Fréttablaðið - 22.11.2001, Page 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
SUMIR FYLGJAST
MEÐ DÖNUM
Rúmlega helmingur
þeirra sem tóku þátt í
atkvæðagreiðslunni
sagðist fylgjast með
dönskum stjórnmálum.
Fylgistu með dönskum stjórn-
málum?
Niðurstöður gærdagsins
á vwwv.visir.is
lá
60%
40%
Spurning dagsins í dag:
Hefur þú áhyggjur af falli krónunnar?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun I
__________________
Bandarísk kona á tíræðis-
aldri:
Lést af völd-
um miltis-
brands
bandaríkin í gær lést 94 ára kona,
Ottilie Lundgren, í Connecticut í
Bandaríkjunum af völdum miltis-
brands, sem hún hafði andað að
sér. Hún hafði legið fimm daga á
sjúkrahúsi, eða frá því á föstudag
í síðustu viku, og hafði þá verið
veik í tvo daga. Ekkert var vitað
um það hvar eða hvenær hún
hefði smitast. Ottilie Lundgren
bjó í litlum bæ sem heitir Oxford
og hefur lítið farið út úr húsi
býsna lengi. Það var helst að hún
skryppi í hárgreiðslu og í kirkju,
þegar hún treysti sér til. Rann-
sókn málsins beinist helst að því
að miltisbrandur hafi borist henni
með pósti. ■
—♦—
Yfirmaður herráðs
Bandaríkjanna:
Ekki nóg að
ná bin Laden
STRÍÐIÐ j AFGANISTAN Richard B.
Myers, yfirmaður herráðs Banda-
ríkjanna, sagði í gær að stríðinu í
Afganistan myndi ekki ljúka þótt
Osama bin Laden næðist. Banda-
ríkin eru á höttunum eftir for-
ystusveit A1 Kaída samtakanna,
og Osama bin Laden er aðeins
einn af forsprökkum hennar.
Myers hitti í gær helstu yfirmenn
herafla Atlantshafsbandalagsins í
Brussel og skýrði jafnframt
æðstu stofnun Nató, Atlantshafs-
ráðinu, frá gangi mála í Afganist-
an. ■
—♦—
Arborg:
Líkur á sam-
eiginlegu
framboði
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR „Mér
sýnist að það sé fullur vilji til þess
að fara þá leiðina að styðja Ár-
borgarlistann og vera með í því
framboði", segir Þorsteinn Ólafs-
son, sem hefur verið framarlega í
óformlegum félagsskap Vinstri-
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs í Árborg.
Vinstri-grænir funduðu á
þriðjudagskvöld og ræddu kom-
andi sveitarstjórnarkosningar en
ákváðu að fresta formlegri
ákvarðanatöku um hvort farið
yrði í sameiginlegt framboð þar
til á formlegum stofnfundi flokks-
deildar. „Við ætlum að stofna
deildina formlega á mánudag og
taka þá um leið formlega afstöðu
til framboðs með Árborgarlista",
segir Þorsteinn.
Árborgarlistinn bauð fram við
sveitarstjórnarkosningarnar fyrir
fjórum árurn síðan ogfékk þá þrjá
af níu bæjarfulltrúum. ■
2
22. nóvember 2001 FIMMTUDAGUR
Níu mánaða uppgjör Flugleiða:
Milljarður hefur tapast
vegna hryðjuverkanna
uppgjör Flugleiðir segja neikvæð
áhrif hryðjuverkanna á Bandarík-
in nema 450 milljónum króna og
þegar á heildina er litið um allt að
milljarð í árslok. Þá segir að áhrif-
anna muni gæta á næsta ári og fé-
lagið grípi til ráðstafana til að
bregðast við þessum aðstæðum.
Eftir rekstur fyrstu níu mánuði
ársins skiluðu Flugleiðir hagnaði
upp á 358 milljónir króna.
í níu mánaða uppgjörinu er
miðað við 18% tekjuskatthlutfalls
í stað 30% þrátt fyrir að Alþingi
hafi ekki en samþykkt lögin. Ahrif
þessara breytinga nema 206 millj-
ónum og til viðbótar kemur sölu-
hagnaður á bréfum í French Tel-
ecom upp á 292 milljónir. Samtals
eykur þetta hagnað upp á 498
milljón króna.
Gert er ráð fyrir að tapið á ár-
inu muni vera um tveir milljarðar
og segja Flugleiðamenn félagið
vera í erfiðari stöðu en flest al-
þjóðaflugfélög, sem séu í samn-
ingaviðræðum við ríkistjórnir um
leiðir úr vandanum. Vísað er í rík-
isstyrki Bandaríkjastjórnar og
Evrópusambandsins. ■
35 vestrænir mótmæl-
endur í Kína:
Reknir úr landi
kína Kínversk stjórnvöld ráku í
gær 35 vestræna mótmælendur
úr landi, en þeir höfðu efnt til
mótmælaaðgerða á Tiananmen
torgi í miðborg Peking. Mótmælin
beindust gegn framgöngu kín-
verskra stjórnvalda gagnvart trú-
arhreyfingunni Falun Gong.
Ilreyfingin var bönnuð í Kína árið
1999, og segja talsmenn hennar að
síðan þá hafi meira en 300 með-
limir hennar látist af völdum
pyntinga og illrar meðferðar í kín-
verskum fangelsum. Vestrænu
mótmælendurnir voru m.a. frá
Ástralíu, Bandaríkjunum, Bret-
landi, Frakklandi, Kanada, ír-
landi, ísrael, Sviss, Svíþjóð og
Þýskalandi. ■
LÍFEYRISSJÓÐURINN HLÍF ER í PESSU HÚSI VIÐ BORGARTÚN
Sjóðurinn hefur skilað mjög góðri ávöxtun undanfarin ár en smæð hans hefur hamlað starfseminni. Rannsókn á Kaupþingsmmálinu
kemur á slæmum tíma fyrir sjóðinn sem leitar eftir sameiningu við Sameinaða lífeyrissjóðinn.
Þarf að sameinast
stærri lífeyrissjóði
Fæð sjóðsfélaga, slæm aldursskipting og mikil eign í óskráðum bréfum
stendur Lífeyrissjóðnum Hlíf fyrir þrifum. Framkvæmdastjórinn rek-
inn vegna rannsóknar á meintum auðgunarbrotum hans og sonar hans
sem var sjóðsstjóri hjá Kaupþingi. Brotin virðast ekki hafa valdið sjóðin-
um tjóni segir stjórnarformaðurinn.
li'feyrissjóðir Lífeyrissjóðurinn
Hlíf er í viðræðum við Sameinaða
lífeyrissjóðinn (SAL) um að starf-
semi sjóðsins verði felld inn í
SAL. Stjórnarformaður Hlífar
fundaði með stjórnendum SAL í
gær þar sem þessi mál voru rædd
í skugga þess að sjóðurinn hefur
dregist inn í rannsókn á meintum
auðgunarbrotum sjóðsstjóra hjá
Kaupþingi. Föður sjóðsstjórans
hefur verið vikið úr starfi fram-
kvæmdastjóra lífeyrissjóðsins en
þeir feðgar eru taldir hafa nýtt
sér lífeyrissjóðinn við auðgunar-
brot sín.
Finnbogi Finnbogason, stjórn-
arformaður Hlífar, segir að sam-
einingarviðræðurnar við SAL
tengist ekki málum feðganna en
sagði að þau gæti vissulega haft
einhver áhrif á sameininguna
meðan menn væru að fara yfir
starfsemi sjóðsins. Hann sagði að
svo virtist sem sjóðurinn hefði
ekki beðið tjón af athæfi feðganna
en sagði of snemmt að fullyrða
nokkuð um það að stöddu. Utanað-
komandi aðilar væru fengnir til
að fara yfir starfsemina og gæti
orðið bið í því að sjóðurinn sam-
einaðist öðrum meðan sú athugun
stæði yfir.
„Við höfum verið að skoða
möguleika á sameiningu um nokk-
urra ára skeið vegna þess að sjóð-
urinn er of lítill“, segir Finnbogi.
„Við eigum að vera með 800 sjóðs-
félaga samkvæmt lögum en þeir
eru ekki nema um helmingur
þess. Aldursskiptingin er líka
óheppileg, við erum með marga
eldri sjóðsfélaga og reynst erfitt
af þeim sökum að greiða þeim
jafn háar bætur og aðrir þrátt fyr-
ir góða ávöxtun."
Fjármálaeftirlitið hefur gert
athugasemd við starfsemi sjóðs-
ins og fundið að því að of stór
hluti sjóða Lífeyrissjóðsins væri í
óskráðum hlutabréfum. Finnbogi
segir að mönnum hafi verið þetta
ljóst en segir sjóðinn ekki hafa
haft svigrúm til að losa sig við þau
bréf. Eitt af því sem sjóðurinn
hefði séð sem lausn á þessu væri
að sameinast stærri sjóði með
hlutdeild í óskráðum bréfum inn-
an hámarksmarka.
binni@frettabladid.is
Fjarðabyggð:
Hafna fram-
boði undir
merkjum
Samfylkingar
framboðsmál Smári Geirsson for-
seti bæjarstjórnar
Fjarðabyggðar
segir að þegar sé
hafinn undirbún-
ingur undir fram-
boð fjarðalistans
fyrir komandi
sveitarstjórnar-
kosningar n.k. vor.
Hann segir að það
hafi aldrei komið
til greina að bjóða
fram undir merkj-
um Samfylkingar.
Það sé einkum
vegna andstöðu
heimamanna við stefnu flokksins í
stóriðjumálum og sömuleiðis séu
menn á öndverðum meiði við fyrn-
ingarstefnu flokksins í sjávarút-
vegsmálum. Fjarðalistinn hefur 7
af 11 fulltrúum í bæjarstjórninni
en við næstu kosningar verður
bæjarfulltrúum fækkað í 9.
Hann segir að ákveðið hafi ver-
ið að fara leið uppstillingar við val
á frambjóðendum á listann. Hann
vill hins vegar ekki tjá sig um það
hvort einhverjar breytingar
kunna að verða á skipan manna á
listanum frá því sem var við síð-
ustu kosningar. Það eigi jafnt um
sig sjálfan sem og aðra sem sitja í
bæjarstjórninni af hálfu Fjarða-
listans. ■
SMÁRI
GEIRSSON
Segir að Fjarða-
listinn eigi ekki
samleið með
Samfylkingu í
veigamiklum mál
um
| smáttT
I^hádeginu í gær var skrifað
undir stofnanasamningsþátt
kjarasamninga lögreglumanna
eftir langa og stranga útreikn-
inga. Þessi þáttur samninganna
gekk út á yfirfærslu í nýtt launa-
kerfi sem byggir á persónu-
bundnu mati á menntun og
reynslu hvers lögreglumanns fyr-
ir sig.
—♦—
Kýr frá norðurhluta eyjarinn-
ar Hokkaido í Japan hefur
greinst með kúariðu. Er þetta
annað kúariðutilfellið til þessa í
landinu. Kúariða hefur ekki gre-
inst í öðrum Asíuríkjum en Jap-
an.
Greiðsluafkoma ríkissjóðs:
Enn umtalsverður samdráttur
GREIÐSLUAFKOMA Útgjöld ríkissjóðs
hækka um 24 milljarða króna, frá
því sama tíma í fyrra, samkvæmt
greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrstu
tíu mánuði þessa árs, eða um 15
prósent sem er svipað hlutfall
hækkunar og var fyrstu níu mán-
uði ársins. Heildartekjur ríkis-
sjóðs hækka um 12,5 milljarða
króna, eða um einu prósentustigi
meira en fyrstu níu mánuði árs-
ins. Tekjuaukningin er að mestu
vegna aukinnar innheimtu skatta
á tekjur og hagnað, auk trygg-
ingagjalds, eða 8,5 milljarða um-
fram áætlun. Eignaskattar eru
rúmlega þrjúhundruð milljónum
umfram áætlun fyrstu tíu mánuði
ársins, en voru nær alveg sam-
kvæmt áætlun fyrstu níu mánuð-
ina. Veltuskattar lækka, hinsveg-
ar um tæplega hálfan milljarð
króna, en lækkunin nam 1,5 millj-
arði fyrstu níu mánuði ársins.
Samkvæmt greiðsluafkomu ríkis-
sjóðs endurspeglar þessi þróun
áfram töluverðan samdrátt milli
ára, fyrst og fremst vegna veru-
legs samdráttar í útgjöldum til
neyslu. ■
HLUTFALLSLEGUR MUNUR Á SKATTTEKJUM RÍKISSJÓÐS
Breytingar frá fyrra ári %
jan-sept jan-okt
Skatttekjur í heild 6,5 7,3
Skattar á tekjur og hagnað 21,2 21,2
Tekjuskattur einstaklinga 17,0 17,1
Tekjuskattur lögaðila 36,4 35,9
Skattur á .fjármagnstekjur 32,3 33,4
HLUTFALLSLEGUR MUNUR Á SKATTTEKJUM RÍKISSJÓÐS Á VÖRUR OG ÞJÓNUSTU
Breytingar frá fyrra ári %
jan-sept jan-okt
Skattar af vöru og þjónustu -2,2 -0,5
Virðisaukaskattur -0,9 0,7
Aðrir óbeinir skattar -4,4 -2,6
Þar af:
Vörugjöld af ökutækjurp -42,3 -40,8
Vörugjöld af bensíni -3,5 -2,6
Þungaskattur 0,8 0,8
Áfengisgjald og hagn. ÁTVR -1.9 -1,7
Annað 5,6 9,8