Fréttablaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 15
f
FIMMTUDAGUR 22. nóvember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Enskir knattspyrnumenn:
Samþykkja
verkfall í desember
HflNDBOLTi Knattspyrnumenn í
Englandi hafa samþykkt að fara í
verkfall 1. og 2. desember. Ef Sam-
tök atvinnuknattspyrnumanna
(PFA) og forráðamenn Úrvals-
deildarinnar ná ekki samkomulagi
fyrir þann tíma munu leikmenn
ekki leika fyrir framan sjónvarps-
myndavélar. PFA vill fá 5% af tekj-
um vegna sjónvarpsútsendinga eða
25 milljónir pund á ári, en forráða-
menn Úrvalsdeildarinnar buðu
þeim 30 milljónir fyrir næstu þrjú
ár. Það sættir PFA sig ekki við.
Richard Scudamore, einn af
forráðamönnum Úrvalsdeildar-
innar, segir að verkfallið sé ólög-
legt. Stjórnarmenn flestra félaga
í Úrvalsdeildinni hafa tekið undir
með Scudamore og sagst ekki
ætla að borga þeim leikmönnum,
sem munu taka þátt í verkfallinu,
laun. PFA fái nægan pening og að
meðlimir þess séu engir láglauna-
menn því þeir séu með frá 30
milljónum króna upp í 450 millj-
ónir í árslaun.
Gordon Taylor, framkvæmda-
Styrkleikalisti FIFA:
Island hækkar
um eitt sæti
KNflTTSPYRNA Þrátt fyrir 6-0 tap
gegn Dönum í síðasta mánuði
hækkar íslenska landsliðið sig um
STYRKLEIKALISTI
1; Frakkland 0)
2 Argentína (3)
3 Brasilía (2)
4 Portúgal (4)
5 Kólumbía (8)
6 Italia (4)
7 Spánn (6)
8 Holland (7)
9 Mexíkó 00
10 England (9)
11 Þýskaland (14)
12 Júgóslavía 00
13 Tékkland 00)
14 Paragvæ 03)
15 Rúmenía 05)
53 islond (54)
eitt sæti á styrkleikalista Alþjóða-
knattspyrnusambandsins (FIFA),
sem birtur var í gær. Frakkar
halda toppsætinu, en Argentínu-
menn skjótast upp fyrir Brasilíu-
menn í annað sæti listans og er
þetta í fyrsta skiptið síðan 1993,
sem þeir eru fyrir ofan erkifjend-
urna á listanum.
Belgar eru hástökkvarar mán-
aðarins, en eftir glæsta sigra á
Tékkum í umspili um laust sæti í
lokakeppni HM 2002, fóru þeir úr
33. sæti upp í það 20. Eftir stórsig-
ur á Austurríki stukku Tyrkir upp
um ellefu sæti og sitja nú í því 23.
Af þeim liðum sem ekki náðu að
tryggja sér sæti í lokakeppninni
voru það Bólivía og Venezuela
sem hækkuðu hvað mest á listan-
um. Bólivía hækkaði úr 81. sæti í
Frestað
vegna
snjóleysis
Heimsmeistarakeppnin í ralli:
Tvö stig skilja að
þrjá efstu menn
Heimsbikarinn:
SAMSTAÐA
Alan Smith og Mark Viduka munu ekki leika fyrir Leeds fyrir framan sjónvarpsmyndavélar
ef verkfall skellur á.
stjóri PFA, blæs á ásakanir um að
verkfallið sé ólöglegt. Hann segir
að forráðamenn Urvalsdeildar-
innar vilji einfaldlega losna við
PFA því það henti þeim ekki að
knattspyrnumenn séu með eigið
stéttarfélag sem verji hagsmuni
þeirra á kostnað félaganna. ■
SKÍDi Alþjóða skíðasambandið hef-
ur frestað þremur heimsbikar-
keppnum í alpagreinum vegna
snjóleysis. Keppnirnar áttu að fara
fram núna um helgina og í byrjun
desember í Aspen og Beaver
Creek í Colorado í Bandaríkjunum,
en þar hefur verið methiti undan-
farna daga og því enginn snjór.
Þetta er í fyrsta skiptið síðan
1983, sem keppni hefur verið
frestað í Bandaríkjunum. Stefnt er
að því að halda þær í Evrópu sein-
na á árinu. ■
RICHARD BURNS
Bretinn er með 40 stig í þriðja sæti, en
Colin WlcRae og Tommi Makinen eru fyrir
ofan hann.
inn. Til þess að vinna heims-
meistaratitilinn þarf Sainz að
treysta á að þremeningarnir nái
ekki í stig. ■
UPP FYRIR BRASSA
Argentínumennirnir Diego Simeone og
Hernan Jorge Crespo komust loks upp fyrir
Brasiliu á styrkleikalista FIFA.
það 70. eftir sigur á Brasilíu og
Venezuela úr 89. sæti í það 81.
Lið eins og Kólumbía, Holland,
Júgóslavía, Tékkland og Rúmenía
mega eiga von á því að lækka tölu-
vert á listanum á næstu mánuð-
um, þar sem þau náðu ekki að
tryggja sér sæti í lokakeppni HM.
Af þeim liðum sem tryggðu sér
sæti í lokakeppninni eru Kína og
Senegal þau einu sem eru neðar
en í 50. sæti. Kína er í 55. sæti, en
Senegal í því 67. ■
EALL Lokaspretturinn í Heirns-
meistarakeppninni í ralli gæti
ekki verið meira spennandi, en
síðasta keppnin hefst í suður Wa-
les í dag. Aðeins tvö stig skilja að
þrjá efstu ökumennina. Colin
McRae, sem ekur Ford Focus, er
með 42 stig, Tommi Makinen,
sem ekur Mitsubishi Lancer, er
með 41 stig og Richard Burns,
sem ekur Subaru Impreza, er
með 40 stig. Jafnvel Carlos Sainz,
félagi McRae hjá Ford á smá
möguleika á titlinum, sem hann
vann síðast 1992, en hann er með
33 stig.
Keppnin stendur fram á
sunnudag og eru 10 stig gefin
fyrir efsta sætið, 6 fyrir annað
sætið og 4 fyrir það þriðja. Ef
einhver þeirra þriggja efstu
verður í toppsætinu sigrar trygg-
ir hann sér heimsmeistaratitil-
TIL UMHUGSUNAR
KVEÐJA
Aldraðir óska lífeyrissjóðum og stjórnvöldum velfarnaðar í lokaumræðunni
um húsnæ^'smál aldraðra með von um jákvæðar aðgerðir.
A íslenskur ríkisborgari