Fréttablaðið - 22.11.2001, Page 4
4
FRÉTTABLAÐ1Ð
22. növemer 2001 FIMMTUDACtlR
SVONA ERUM VID
DAVÍÐ í 9. SÆTI
Halldór Ásgrímsson talaði mest allra ráð-
herra á síðasta Alþingi. Annars töluðu ráð-
herrar þannig:
RÁÐHERRAKLUKKUSTUNDIR
Halldór Ásgrimsson 10:59
Valgerður Sverrisdóttir 9:28
Páll Pétursson 8:48
Geir Haarde 7:56
Sturla Böðvarsson 7:25
Sólveig Pétursdóttir 7:22
Guðni Ágústsson 6:31
Jón Kristjánsson
(Ingibjörg Pálmadóttir) 5:19
Davíð Oddsson 5:09
Siv Friðleifsdóttir 4:58
Björn Bjarnason 4:26
Árni M. Mathiesen 3:54
LÁTINN KONUNCUR
Konungurinn ásamt Tuanku Siti Aishar,
drottningu (til hægri), við hátíðlega athöfn
í Kuala Lumpur í mars fyrr á þessu ári.
Konungur Malasiu:
Lést 75 ára
að aldri
KUALA LUMPUR.MALASÍU.AP Abdul
Aziz Shah, konungur Malasíu, lést í
gær 75 ára að aldri á sjúkrahúsi.
Hafði hann átt við heilsuerfiðleika
að stríða undanfarnar vikur í kjöl-
far hjartaaðgerðar sem hann
gekkst undir. Shah tók við kon-
ungsembætti árið 1999 eftir að
hafa verið kosinn af soldánum
landsins. Konungsembætti
Malasíu er formlegt embætti sem
tekur ekki þátt í daglegri stjórnun
landsins. „Það er með mikilli eftir-
sjá og sorg sem ég tilkynni lát
Yang di-Pertuan Agong Salahuddin
Abdul Aziz Shah,“ sagði Mahathir
Mohamad, forsætisráðherra
Malasíu, í sjónvarpsávarpi í gær. ■
.—♦—
Fjöldi breskra lungna-
sjúklinga:
Helmingi
yfir meðal-
tali ESB
LONDON.AP Tvöfalt fleiri deyja af
völdum lungnasjúkdóma í Bret-
landi heldur en í öðrum löndum
Evrópu, ef miðað er við meðal-
fjölda þeirra sem deyjö úr slíkum
sjúkdómum í öllum ríkjum Evr-
ópusambandsins. Fleiri deyja nú í
Bretlandi af völdum Iungnasjúk-
dóma heldur en af völdum
krabbameins og hjartasjúkdóma.
Af hverjum 100 þúsund mönnum í
landinu deyja 105 af völdum
lungnasjúkdóma, miðað við 30 í
Ástralíu, 34 á Ítalíu og 35 í Sviss-
landi. Lungnasjúkdómar kosta
heilbrigðiskerfi Bretlands um 360
milljarða króna á ári.g
I INNLENT I
Iðnaðarmenn hafa unnið hörð-
um höndum að því að gera við
skemmdir sem urðu á brú Slétt-
baks þegar brotsjór reið yfir
skipið út af Vestfjörðum. Skipta
þurftivum töluverðan hluta tækja-
búnaðár,og yfirfara þann búnað
sem ekkí þurfti að endurnýja.
Eru bundnar vonir við að skipið
geti haldið til veiða um helgina
eða í byrjun næstu viku.
Slys vegna lausra knattspyrnumarka:
Tengjast ofitast knatt-
spyrnufélögum
slys „Lífshættuleg slys á börnum
vegna lausra knattspyrnumarka
eru tíð hér á landi þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir til að fá eigend-
ur til að festa þau niður“. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu
sem Árverkni, verkefnastjórn um
slysavarnir barna og unglinga,
hefur sent frá sér. Þar segir að í
könnun sem Árverkni lét gera
kom í ljós að frá árinu 1986 hafa
43 börn orðið fyrir lífshættuleg-
um áverkum. Algengustu áverk-
arnir hafi orðið á líffærum í kvið-
arholi en sum börnin hafi hlotið
brot á höfuðkúpu eða blæðingar
inn á heila. Dæmi eru um að eitt
barn hafi hlotið varanlegum
heilaskaða. Þá hafi 100 börn orðið
fyrir öðrum áverkum
í samtali við Herdís L.
Storgaard, framkvæmdastjóra
Árverkni, kom fram að fjöldi
slysa hefur aukist frá síðasta ári
og tengdust í flestum tilfellum
knattspyrnufélögum landsins.
„Það hefur gengið þokkalega að fá
sveitarstjórnir til að festa niður
LAUS KNATTSPYRNUMÖRK
Að sögn Herdísar L. Storgaard eru til ýmsar auðveldar lausnir til að festa mörk og hafi ver-
ið gefið út fræðslurit um markafestingar.
mörk sem eru í þeirra eigu en hjá legt mál að knattspyrnufélögin
knattspyrnufélögum mörgum byði börnum til sín til íþróttaiðk-
hverjum eru þessi mál í miklum unar en sýndu svo ekki ábyrgð
ólestri.“ Herdís sagði það alvar- sína og gættu að öryggi þeirra. ■
Utgerðir fá afslátt
af listaverði olíu
Verðmunur á skipaolíu hér á landi og erlendis ekki eins mikill og LIU
segir. Ekki fengust samanburðartölur frá olíufélögunum eða upplýsing-
ar um hversu mikill afslátturinn sé.
MIKIL OLfUNOTKUN FISKISKIPA '
Útgerðir kaupa um 300 milljón lítra af olíu á skip sín á hverju ári. Hver króna skiptir
þvi miklu máli fyrir útgerðina. Margir tengja kaup sín á ollu heimsmarkaðsverði
segja olíufélögin.
verðmyndun Geir Magnússon, for-
stjóri ESSO, segist ekki hafa skoð-
að sérstaklega nýjustu tölur Land-
sambands íslenskra útvegsmanna
um verðsantanburð á olíu til fiski-
skipa hér á landi og erlendis. Áður
hafi útvegsmenn í Vestmannaeyj-
um kært verðmyndun á olíu hér
og í Færeyjum. Þá kom í Ijós að
borið var saman skráð verð á Is-
landi en tilboðsverð í Færeyjum,
sem sé ekki sambærilegt.
Geir segist hafa skoðað verð á
sams konar olíu til fiskiskipa í
Noregi í september á þessu ári og
þá kom í Ijós að verðið á lítra þar
var 51 króna. Eftir að hafa dregið
mengunarskatt frá þá kostaði
líterinn af skráðu verði kr. 34,36.
,;Ekki þurfa þeir að flytja það til
Islands. Þeir framleiða þetta
sjálfir."
LÍÚ segir að verðmunur á olíu
til fiskiskipa hér á landi og erlend-
is hafi aukist um 117% frá því
árið 1996. Ef miðað er við olíuverð
í Rotterdam samkvæmt Platts
skýrslu er munurinn nú 11,06
krónur. Árið 1996 var þessi munur
5,06 krónur. Hækkun um eina
króna nemur um 300 milljónum í
aukin útgjöld fyrir útgerðarmenn.
Samúel Guðmundsson hjá Olís
segist telja að verðmunur á olíu til
fiskiskipa hér á landi og erlendis
sé ekki eins mikill og útgerðar-
menn segja. Margir viðskiptavin-
ir kaupi olíu á verði sem tengist
heimsmarkaðsverði og fá afslátt
frá listaverði, sem taka mið af
magni og kjörum. Hann vildi ekki
afhenda fréttablaðinu viðmiðun-
arverð á olíu erlendis sem Olís
miði við máli sínu til stuðnings.
Gunnar Kvaran, kynningafull-
trúi hjá Skeljungi, segir mjög
margar útgerðir vera með sér-
iðnaður Forsvarsmenn Vestur-
byggðar eru þessa dagana að
kynna sér rekstur kalkþörunga-
verksmiðju Celtic Sea Minerals í
grennd við Cork á írlandi. Jón
Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri í
Vesturbyggð, segir verið að skoða
möguleikann á að koma upp slíkri
verksmiðju í Arnarfirði en At-
vinnuþróunarfélag Vestfjarða fari
fyrir rannsóknum á svæðinu. „Svo
er spuríiíng hvort það nær máli að
vinna þetta og selja þannig að skili
afrakstri og árangri. Þannig að við
ætlum að sjá hvernig þeir bera sig
að í útlandinu," sagði Jón Gunnar
samninga um verð á olíu til fiski-
skipa. Utgerðarmenn séu því ekki
að bera saman sambærilega hluti
þegar þeir bera saman listaverð á
olíu hér á landi og erlendis. Hann
og taldi ekki loku fyrir það skotið
að irska fyrirtækið kæmi að rek-
stri slíkrar verksmiðju hér heima
með einum eða öðrum hætti. „Það
er einhver áhugi hjá þeim að koma
að vinnslunni í Arnarfirðinum ef
um semst. Þeir eru með þekking-
una og samböndin og ekki ólíklegt
að það sé stysta leiðin til að koma
þessu í gang að eiga við þá sam-
ytarf. Það þarf að finna þessu far-
veg í sölu einhvern veginn.“ Jón
Gunnar sagðibjartsýnústu áætlan-
ir gera ráð fyrir að hægt verði að
hefja vinnslu árið 2003, en bætti
við að nokkrar rannsóknir ættu
vildi ekki gefa upp hvað útgerðir
væru að fá mikinn afslátt. Þess
vegna þarf að bera saman lista-
verð í samanburöi við útlönd.
bjorgvin@frettabladid.is
JÓN GUNNAR STEPÁNSSON
Fulltrúar Vesturbyggðar fóru utan í morgun
til að kynna sér starfsemi Celtic Sea Miner-
als á Irlandi og eru væntaplegir aftur til
lahdsins á sunnudag.
eftir að eiga sér stað og jafnframt
þyrfti starfsemin sjálfsagt að fara
í mat á umhverfisáhrifum. ■
HÆSTIRÉTTUR
Vélstjóri fær greiddar 3,3 milljónir vegna
vangoldinna launa en stýrimaður fyrirgerði
rétti sínum.
Hæstiréttur hafnar kröfu
stýrimanns:
Ekki
greidd laun
af nauðung-
arsöluverði
dómsmál Hæsitréttur hefur dæmt
að lettneskur vélstjöri af fiski-
skipinu Vídalín skuli fá greiddar
3,3 milljónir króna af nauðungar-
söluverði skipsins. Með þessu
staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu
héraðsdóms Austurlands nær
óbreytta.
Hæstirréttur hnekkti hins veg-
ar þeirri niðurstöðu héraðsdóms
að greiða bæri íslenskum stýri-
manni af skipinu tæpar 500 þús-
und krónur.
Lettneski vélstjórinn starfaði
um borð í Vídalín um hálfs árs
skeið á árinu 2000. Útgerðin
skuldaði honum umtalsverðar
fjárhæðir er skipið var selt nauð-
ungarsölu fyrir 100 milljónir
króna síðla það ár og krafðist
hann greiðslu af söluandvirðinu.
íslendingurinn, sem ráðinn var
sem stýrimaður og afleysinga-
skipstjóri, taldi að útgerðarmað-
urinn hafi rekið sig þegar hann
hafi sagst telja Vídaín óhaffært
en það átti að fara til veiða í
Smuguna.
Hæstiréttur sagði hins vegar
Vídalín hafa haft haffærisskír-
teini frá Siglingastofnun og stýri-
maðurinn hafi sjálfur gengið úr
skipsrúminu. Þannig hafi hann
slitið ráðningarsambandi sínú við
útgerðina og fyrirgert rétti til
greiðslu úr hendi fyrirtækisins. ■
Flúðu af vettvangi:
Elt uppi af
eiganda bif-
reiðarinnar
lögreglumál Maður og kona voru
handtekin af lögreglunni í Kópa-
vogi eftir að hafa keyrt bifreið
sinni á annan og flúið af vettvangi
um sjöleytið í fyrrakvöld. Hafði
bifreiðin runnið til í hálku á gatna-
mótum Listabrautar og Kringlu-
mýrarbrautar. Eigandi bílsins sem
keyrt var á elti uppi parið og kallaði
í leiðinni eftir aðstoð lögreglunnar.
Fundust þau í vesturbæ Kópa-
vogs og við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að þau voru undir áhrif-
um áfengis. Voru þáu flutt í fanga-
geymslur lögreglunnar þar sem
þau gistu yfir nóttina og yfirheyrð í
gærmorgun. ■
Bæjarfulltrúar Vesturbyggðar:
Skoða verksmiðju
á Irlandi