Fréttablaðið - 22.11.2001, Síða 13
FIMMTUDAGUR 22. nóvember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Mikil eftirspurn eftir nautalundum:
Uppruna ekki getið á veitingahúsum
nautakiöt „Auðvitað væru allir
ánægðastir með að geta boðið bara
íslenskt kjöt og þetta væri ekkert
mál,“ sagði veitingamaður í
Reykjavík um innflutning nauta-
lunda. Hann sagði aðstæður þó vera
þannig að ef veitingahús ætluðu að
bjóða upp á nautalundir, þá væri
ekki annað að gera en flytja þær
inn. „Venjulegt veitingahús er með
svona 3 til 4,5 tonn á ári og þú getur
rétt ímyndað þér hvað þarf að slá-
tra mikið til að hafa upp í það,“
sagði hann og bætti við að uppruna
kjötsins væri ekki getið á matseðl-
inum hjá honum og taldi að flest
veitingahús hefðu þann háttinn á.
„En ég geri það, verði farið fram á
það, það er ekkert mál,“ sagði hann.
Kjötbankinn ehf., í eigu Guð-
geirs Einarssonar, kjötiðnaðar-
meistara og fjölskyldu hans, flutti
fyrir helgi inn um 2 tonn af finnsk-
um nautalundum sem einkum er
ætlaðar í sölu til veitingahúsa. Guð-
geir segir eftirspurnina gífurlega
og að fyrirtækið anni ekki eftir-
spurn. Hann segir lundirnar með
einhverja sterkustu vottun á nauta-
kjöti sem embættismenn landbún-
aðarráðuneytisins höfðu séð. Vegna
þess hve kjötið er ný komið í hús
segir hann sölu á því ekki enn
hafna, Kjötumboðið hafi haldið að
sér höndum og viljað sjá hver þró-
un mála yrði eftir alla kúariðuum-
ræðuna. „Riðan lét Finnland alveg
eiga sig og svo eru þeir líka með
sinn eigin stofn. Þetta er kostur
sem við bjóðum upp á og allir með-
vitaðir um hvað þeir eru að kaupa,“
sagði hann. ■
NAUTAKJÖT
Ónefndur veitingamaður taldi ekk-
ert kjöt standast því innflutta sem
nú er i sölu snúning hvað gæði
varðaði nema kannski „skipakjöt-
ið" en það myndi enginn viður-
kenna að vera með í sölu, enda
lögbrot að smygla kjöti.
ísraelskir vísindamenn:
Smíðuðu
sýrutölvu
vísindi ísraelskir vísindamenn hafa
fundið upp örsmáa tölvu, sem er
gerð úr kjarnsýrusameindum og
efnahvötum. Ehud Shapiro nefnist
forsprakki vísindamannanna, sem
starfa við Weizmann-stofnunina í
ísrael. Vísindamennirnir telja að
tölva af þessu tagi geti þegar fram
líða stundir unnið með kjarnsýrur
innan mannslíkamans, leitað uppi
afbrigðilega starfsemi og jafnvel
búið til lyf á staðnum. Sem stendur
telja þeir þó að hún gagnist einkum
til þess að raðgreina kjarnsýrur.
Frá þessu er skýrt í nýjasta hefti
tímaritsins Nature. ■
skatta. Þeir eru einnig uggandi um
oli@frettabladid.is
hægristjónn.
27.995
Kosningar sem lúta
dönskum lögmálum
Forsætisráðherra segist hafa búist við minni mun í dönsku þingkosningunum sem fram fóru um
sl. helgi. Davíð segir Poul Nyrup Rasmussen ekki hafa notið mikils persónulegs fylgis í Dan-
mörku, en mat hann mikils sem samstarfsmann og kunni vel við hann.
stjÓrnmál „Úrslit kosninganna í
Danmörku eru mjög athyglisverð
og sveiflan heldur meiri en ég
bjóst við,“ sagði Davíð Oddsson,
forsætisráðherra um úrslit dönsku
þingkosninganna. „Mér sýndist að
minn ágæti vinur Poul Nyrup
Rasmussen væri að vinna sig á, en
það hefur ekki dugað til,“ sagði
Davíð og bætti við að sér hafi fall-
ið ágætlega að starfa með honum
og kunnað persónulega vel við
hann. „Mér þótti því miður að hann
tapaði kosningunum, jafnvel þótt
hann sé krati," bætti hann við.
Davíð taldi ólíklegt að kosn-
ingaúrslitin hefðu í för með sér
DAVÍÐ
ODDSSON
Danir, vinir okkar
eru svo miklir
húmoristar, að
auðvitað þarf
hægriflokkurinn
sem vinnur að
heita „Vinstri."
mjög miklar
breytingar fyrir
danskt þjóðlíf.
„Það verður jú
áfram um minni-
hlutastjórn að
ræða. Þó verða
áhrifin væntan-
lega einhver. Það
urðu miklar breyt-
ingar þegar
Schlúter tók við á
sýnum tíma. Þá
var mikil efna-
hagsleg stöðnun
hjá krötunum og
hann reif það allt
upp og Danir urðu efnahagslegt
stórveldi á nýjan leik. Núna er hins
vegar staðan ágæt að mörgu leyti.“
Davíð taldi ekki hægt að draga þá
ályktun að hægrisveifla væri í
uppsiglingu í Evrópu. „Ef við horf-
um til Þýskalands þá eru ný af-
staðnar kosningar í Berlín þar sem
niðurstaðan fór mjög til vinstri.
Áður voru kosningar í Hamborg
þar sem sveiflan var til hægri. Svo
sjáum síðustu kosningar í Bret-
landi þar sem Blair hélt nánast
óbreyttum styrk á milli kosninga.
Ég held við verðum að horfa á
þetta sem einstakar kosningar sem
lúta dönskum lögmálum. Eg hefði
Steinunn Valdís Óskarsdóttir um bílskýlið:
Ekki nógir hagsmunir
til að fara að reglum
skipulacsmál Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, meðlimur skipu-
lags- og byggingarnefndar og full-
trúi í borgarstjórn Reykjavíkur,
segir það hafa verið of harkalegt
að gera íbúanum í Bröndukvísl 22
að fjarlægja skýli sem hann hefur
byggt í óleyfi við húsið. Því hefði
borgarstjórn samþykkt að ekki
verði farið að nið-
urstöðu skipulags-
nefndar og úr-
skurðarnefndar
skipulags- og
byggingarmála
um að rífa bæri
skýlið.
„Ástæðan fyrir
því að borgarráð
sneri við ákvörð-
un skipulags-
nefndar byggði
meðal annars á
því að fram-
kvæmdin er kom-
in upp og að hún
er ekki það mikið
íþyngjandi fyrir
nágrennið. Það
væri því mjög stór og afdrifarík
ákvörðun af hálfu stjórnvalda að
fara fram á það við eigandann að
hann rífi skýlið," segir Steinunn.
Steinnun segir að þrátt fyrir
niðurstöðu fyrrgreindra nefnda
sé ákvörðun borgarráðs og borg-
arstjórnar nú „ekki tekin út í blá-
inn“: „Ef ég man þetta rétt þá er
sú ákvörðun að leyfa þessari
framkvæmd að standa tekin með-
al annars með það í huga að verið
væri að taka meiri hagsmuni um-
fram minni,“ segir hún.
STEINUNN
VALDÍS ÓSK-
ARSDÓTTIR
„Það er þannig að
í nágrannasamfé-
lagi koma stund-
um upp lítil mál
sem verða að
stórum málum,"
segir borgarfull-
trúinn.
BRÖNDUKVÍSL 22
Borgarstjórn segir hagsmuni eiganda þessa skýlis vera meira en nágrannanna sem kærðu
og því fái skýlið að standa jafnvel þó það sé byggt I óleyfi í andstöðu við deiliskipulag.
Tveir nágrannar mannsins í
Bröndukvísl 22 höfðu kært skýlið
og Steinunn viðurkennir að það sé
í andstöðu við gildandi deiliskipu-
lag.
„Það er þannig að í nágranna-
samfélagi koma stundum upp lítil
mál sem verða að stórum málum.
Þegar búið er að framkvæma
svona - þó í óleyfi sé - þarf auðvit-
að að meta það hversu mikill skaði
það sé í raun fyrir umhverfið.
Stundum eru það harkaleg við-
brögð að gera fólki að rífa slíkt.
Þar með er ég ekki að réttlæta að
menn framkvæmi svona í óleyfi
því menn eiga auðvitað alltaf að
ekkert á móti því að þetta væri
hægrisveifla, en ég lít bara ekki á
að svo sé.“
Aðspurður sagðist Davíð ekki
telja að hægt væri að heimfæra
ósigur Pouls Nyrups í Danmörku
upp á íslenskar aðstæður, en því
hefur verið fleygt að ákveðin þrey-
ta hafi verið að komið fram í kosn-
ingunum vegna þess hve hann hef-
ur verið lengi við völd. „Poul Nyr-
up hafði persónulega lent illa í því,
og var í skoðanakönnunum númer
47 yfir þá stjórnmálamenn sem
Danir meta mest. Ég held að ekki
sé hægt að færa það yfir á fsland."
Sænskir stjórnmálamenn
um Dani:
Óttast áhrif
Folkepartiet
kosnincar Viðbrögð stjórnmála-
manna í Svíþjóð við dönsku kosn-
ingunum markast að nokkru leyti
af stöðu þeirra í litrófi stjórnmál-
anna. Sósíaldemókratar harma út-
reið bræðraflokksins og Gudrun
Schyman formaður vinstrimanna
óttast að árangur danska Folke-
partiet leiði til harðnandi afstöðu
til innflytjenda. „Það ræðst af því
hvernig Venstre tekur á málum og
hversu háðir þeir verða Folkeparti-
et. Göran Persson, forsætisráð-
herra, segir þá staðreynd að sigur
borgaraflokka, bæði í Danmörku
og Noregi eigi rætur í harðari af-
stöðu til innflytjenda, skelfilega
þróun. Hann á ekki von á því að
takist að mynda sterka stjórn í
framhaldinu.
Fulltrúar hægriflokka fagna
sigri félaga sinna og finna sam-
hljóm í hugmyndum um niður-
skurð í velferðarkerfi og lækkun
sækja um svona til byggingaryfir-
valda,“ segir Steinunn og ítrekar
að skilboð borgaryfirvalda til íbú-
anna séi þau að fara að reglum og
lögum:
„En í þessu tilfelli var það mat
okkar að það væri of harkaleg að-
gerð að gera manninum það að
fara að rífa þetta niður - það væru
ekki þeir hagsmunir í húfi sem
réttlættu það,“ segir hún.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær ætla kærendurnir tveir
að nú að leita til Skipulagsstofn-
unar með það að skýlið vei'ði fjar-
lægt.
UPPATIU FINGUR
DEMANTAHÚSIÐ
K R1N G L U N NI -4-12
SÍMl 588-9944
Rafvirki óskast
Tengi s.f. Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavík, óskar
að ráða rafvirkja tii viðhalds og þjónustustarfa.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf hið fyrsta.
Starfsreynsla er æskileg.
Nánari upplýsingar í síma 898-4790
gar@frettabladid.is