Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2001, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 22.11.2001, Qupperneq 16
16 FRÉTTABLAÐIÐ 22. nóvember 2001 FIMMTUDAGUR HÁSKÓLABÍÓ HACATORGI, SIMI 530 1919 >'>v v r áufabak . é .^vV I pÁ \\, / •«, :ý:> , í' 1 . V* \ (/j[ , U.iLu.r >’' ,. •;'! ; /.<Pi | Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.45 Sýnd kl. 5.45 og 8 IgæsapártI ktiojol ImÁLARINN kL 5.451 lELLING kLeoglol ITHE OTHERS kl.8og 10.15 j Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 THE ONÉ Forsýnd kl. löj [IÖYRIDÉ kl. 3.30, 5.45 8 og 10.101 L _ YflMflKASI kl. 3.40, 5.50, 8 og IQ.io] jPÉTUR OC KÖTTURINN- f AMERÍKU Hljómsveitimar Úlpa og Enslmi fóru í tón- leikaferðalag til Bandaríkjanna og heim- sóttu meðal annars Hvíta húsið. Utgáfutónleikar Ulpu: Mín synd útgáfutónleikar Hljómsveitin Ulpa verður með tónleika á skemmtistaðnum Nasa í kvöld í tilefni af útgáfu plötunnar Mea Culpa, sem er frumburðar þeirra. „Við spilum nánast alla plötuna en við spilum líka eitthvað nýtt efni,“ sagði Haraldur Örn Sturlu- son, trommuleikari, í samtali við Fréttablaðið í gær. Úlpa hefur verið iðin við spila- mennsku s.l. ár og fór m.a. til Bandaríkjanna ásamt Ensíma fyr- ir stuttu. „Það gekk bara mjög vel hjá okkur þar. Þetta var svolítil keyrsla en hellings upplifun og mikil reynsla," segir Haraldur Örn en vissi ekki hvort einhver erlend útgáfufyrirtæki væru á höttunum eftir þeim. „Það voru einhverjir útsendar- ar sem sáu okkur úti og komu hingað á Airwaves tónlistarhátíð- ina. En við bíðum bara rólegir og sjáum til hvort eitthvað gerist. Þetta hefur allt sinn gang.“ Mea Culpa þýðir „Mín synd“ og það er meistari Megas sem á hug- myndina að nafninu. „Magnús Þór stakk upp á þessu eitt kvöldið þegar hann kom í heimsókn til okkar í stúdíóið. Við ákváðum bara að slá til og nota það.“ Hægt er að nálgast miða í Hljómalind og Japis og við inn- ganginn um kvöldið en miðinn kostar 1000.- kr. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI ■R >Tick Jagger, söngvarinn með iVXstóra munninn, er kvenna- gull míkið. Hann er nýhættur með fýrirsætunni Sophie Dahl en er strax kominn með nýja stúlku upp á arminn. Sú heitir Amanda de Cadanet og er 29 ára einstæð móð- ir. Þau kynntust í Los Angeles þar sem Jagger var að kynna nýjustu plötu sína. „Am- anda er skemmti- legur félagsskap- ur,“ var haft eftir einum vina Jag- ger. „Hún er ljós- hærð, ung og elskar aö hlæja og er alveg eins og Jagger vill hafa þær.“ Bono, söngvari hljómsveitar- innar U2, er ófeiminn við að tjá skoðanir sínar. Hann segir hryðjuverka- manninn Osama bin Laden vera á sama stalli og margir liðsmenn IRA. „Bin Laden er spilltur, milli- stétta strákur. Hann er bara rík- ur strákur líkt og svo margir meðlimir IRA. Þeir eru margir nemar í stjórnmála- fræði sem lærðu að hata sitt eig- ið umhverfi. Þetta fólk metur hugmyndir meir en mannslíf." BBC, breska sjónvarpsstöðin, hefur beðið áhorfendur sína afsökunar á talsmáta Robbie Williams eftir sjónvarpstónleika í síðustu viku. Stöðin fékk yfir 300 kvartanir vegna þáttarins „Kvöldstund með Robbie Williams", sem tileinkaðir voru Frank Sinatra, Rúmlega 7 milljón manna fylgdist með tónleikunum og fór talsmáti Williams og þáttastjörnandans Rupert Ever- ett eitthvað fyrir brjóstíð á áhorfendum en þeir létu ýmis ókvæðisorð falla m.a. um konur. kl.4 y Sýndkl. 5.30 í ,8og 10.30 VITIM IOSMOSIS JONES 1,1 cl fvlri ICORKY ROMflNO ~4,6,8 og 10.10 | AMERICAN PIE 2 kLSog 10.10 (THEOTHERS kt 5J0.8 og 10.15 ií^ ISEXY BEAST kL8ogl0.1o||®S jSKÓLALÍF m/ isUol kL4og61RUGARTSINRARISm/ísl.tali kL35o| IPRINCESS DIARIESkL345og 53>oO |SHREK m/isLtali . ..'ií^xsxetsssamzesæt GOTT SKRALL A MÓTEL VENUS „Þetta er konumynd. Það ætti að skylda unglingsstúlkur á aldrinum 12 til 18 ára að sjá hana. Hún er raunsæ sýn á þá veröld, sem bíður þeirra," segir Böðvar Bjarki leikstjóri. Reðurdýrkun og grimmd í Gæsapartíi Kvikmyndin Gæsapartí eftir Böðvar Bjarka Pétursson verður sýnd í fyrsta skipti hjá Filmundi í kvöld. Myndin gerist í gæsapartíi, sem er haldið til heiðurs brúðurinni Freyju á Mótel Venus í Borgarnesi. KVIKMYNDIR „Hugmyndin kviknaði þegar ég var staddur í Hyrnunni í Borgarnesi. Allt í einu fylltist staðurinn af snar- brjáluðum konum. Ég spurðist fyrir og komst að því að þetta var gæsapar- tí. Við endurgerum þessa senu að vissu leyti, ákváð- um bara að partíið myndi halda áfram í Mótel Ven- us,“ segir Böðvar Bjarki Pétursson leikstjóri. Gæsapartí var tekin á fimm dögum í sumar. Leikararnir í myndinni er allir óreyndir fyrir utan Magnús Jónsson. „Við völdum 16 borg- firskar konur úr nokkuð stórum hópi. Það fór töluverður tími í æfingar en þær standa sig með prýði. Það er gaman að því að þessar konur úr Borgarnesi eru allt í einu orðnar stjörnur." Böðvar skrifaði handritið ásamt Pétri Má Gunnarssyni. Myndin gerist á einum degi, auk BÖÐVAR BJARKI Reynir að skila myndinni frá hjartanu og til- einkar hana dætrum sínum. endurlita. „Það var ákveð- inn vandi fyrir okkur Pét- ur að skrifa um kvennap- artí. Það var hætta á því að við gengum of langt, vegna þess að við erum karlmenn. Þetta er konu- mynd. Það ætti að skylda unglingsstúlkur á aldrin- um 12 til 18 ára að sjá hana. Þær hefðu gott að því. Hún er raunsæ sýn á þá veröld, sem bíður þeir- ra. Af þeim konum, sem hafa séð myndina, blygð- ast þær á þrítugsaldri en eldri konum finnst hún töff Böðvar Bjarki sýndi í haust heimildarmyndina Lúðrasveit og brú í Háskólabíó og í Sjón- varpinu. Að þeirri mynd lokinni segist hann hafa viljað gera mynd fyrir áhorfendur. „Ég vona bara að hausinn á mér sé áhorfendavænn. En þó að Gæsapartí sé fyndin á köflum er hún engin Stella í orlofi. í henni eru alvarlegir tónar, paródía á lífið og tilveruna. Það er spennandi hvað þessi partí eru óskiljanlega furðuleg fyrir- bæri. Ég veit ekki hvaða til- gangi þau þjóna. Þetta er ein- hvers konar upplausn og grim- md er oft einkennandi. Einnig niðurlæging og reðurdýrkun. Þetta er yfirborðsleg skemmt- un, afsökun fyrir gott skrall.“ Myndin er tekin til almennra sýninga í Háskólabíó um helg- ina og er sýnd á stafrænu formi. Framleiðsluferlið gekk fljótlega fyrir sig og segir Böðvar það nýja leið fyrir íslenska kvik- myndagerð. Framleiðslufyrir- tæki hans, 20 geitur, ætlar t.d. að gera tvær myndir á næsta ári, Orgel og Lífið er leikur. „Ég veit að bransinn fylgist vel með Gæsapartíinu. Menn eru spenntir fyrir því ef þetta heppnast, en það þýðir að fimm til sjö þúsund manns sjá mynd- ina. Þetta er kröfuharður heim- ur. halldor@frettabladid.is NABBI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.