Fréttablaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 595 65 00
VlÐ SEGJUM FRÉTTiR Fréttavefurinn á VÍSÍl*.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Aáde^nu
Kr. 1090
Grensásvegur10
Sími 553 88 33
hzza
H ÚSIÐ
Vatnsmýrarvegi 25 • Sími: 562 1055
Vantar bíla vegna
gífulegrar sölu!
Syngjandi sælir og
glaðir landsmenn
Nú er ég búin að fá nóg af því að
borga þúsund kall fyrir kílóið af
sæmilegum fiski. Gamla klisjan um
besta loft, vatn og fisk í heimi er
bara fyndin. Vatnið er kannski ágætt,
en loftið er slæmt á Hringbrautinni
og fiskurinn er rándýr, ætlaður fyrir
útlendinga en ekki mörlanda. Nú hef-
ur maður fisk á laugardögum og allir
eru spariklæddir honum til heiðurs.
HANDÓNÝTT FISKVEIÐIKERFI
stýrir verðlaginu, kerfi sem jafnvel
fógetinn í Nottingham hefði skamm-
ast sín fyrir. Trillukarlar sitja á
bryggjum landsins með hönd undir
kinn, stara út á hafið, brostnum aug-
um. Brottkast eða brottflutningur?
Aumingja Grímseyingar að öll þessi
ýsa skuli synda í sjónum í kringum
þá. En hvað er til ráða? Jú, í sjöttu
grein a) í lögum um stjórn fiskveiða
segir orðrétt: „Heimilt er án sérstaks
leyfis að stunda fiskveiðar í tóm-
stundum til eigin neyslu. Slíkar veið-
ar er einungis heimilt að stunda með
handfærum án sjálfvirknibúnaðar.
Afla sem veiddur er samkvæmt
heimild í þessari málsgrein er óheim-
ilt að selja eða fénýta á annan hátt. “
—«—
GOTT OG VEL . Nú er kominn tími
til að almenningur fari til sjós og
sæki sér fisk til eigin neyslu.
Trillukarlar fá þá ærinn starfa við að
flytja landsmenn út á miðin og taka
fyrir það þóknun. Þannig getum við
öll fyllt frystikistur okkar af fiski á
viðunandi verði og smábátarnir öðl-
ast tilgang á ný.
Smábátaeigendur geta boðist til að
flytja almenning og sjipp og hoj við
getum öll, syngjandi sæl og glöð,
mokað í koppa og kirnur ýsu, stein-
bíti, þorski og fíneríi.
—♦— '
HÚSMÆÐUR í ÚTHVERFUM,
verðbréfasalar, rafvirkjar, af-
greiðslufólk, unglingar, tónlistar-
kennarar og sjúkraliðar geta haldið
til sjós daglangt og dregið björg í bú.
Trillukarlar geta jafnvel haldið veiði-
dag fjölskyldunnar mánaðarlega-
ómetanlegar samverustundir þar sem
ungviðið lærir gömul handtök. Nú
lýsa hagsýnar húsmæður og heimilis-
feður eftir kvótalitlum trillukörlum
með gamlar handsnúnar handfær-
arúllur - körlum sem eru tilbúnir til
að sigla með unga sem aldna á miðin
gegn sanngjörnu flutnings og að-
stöðugjaldi. Best er ef þessir karlar
hafa verkunaraðstöðu í landi þar sem
fjölskyldan getur gert að aflanum. ■
Fegurð sem heillar!
Peugeot 307 hlaut ekki kosninguna “bíll ársins
2002" bara vegna útlitsins, heldur vegna
samspils allra þeirra þátta sem krafist er af bíl
morgundagsins. Aukinn öryggisbúnaður,
stórlega bættir aksturseiginleikar, einstök
nýting farþegarýmis, meiri gæðí og frábært
verð móta það forskot sem Peugeot 307 hefur
á samkeppnisbíla sína.
Kynntu þér kosti Peugeot 307 og iáttu
morgundaginn byrja í dag.
ZÍMUGESTOnE
Loftbóludekkin
Lausnin
í stað nagíanna!
Réttu dekkin fyrir
ABS bremsurnar!
í grafinu hér til hliðar má sjá að
Bridgestone BLIZZAK dekkin
leysa nagladekkin af hólmi. Þessi
niðurstaða sem fékkst í íslenkri
prófun staðfestir niðurstöður
prófana frá öðrum löndum:
BLIZZAK - best í snjó og hálku!
Dekk/bromsuteg.
Grafið sýnir
meöalbremsuvegalengd
3ja umferða á þurrum ís
á 60 km/klst.
• Frábær í snjó og hálku
• Meirí stöðugleiki
• Miklu hljóðlátarí
• Betri aksturseiginleikar
• Minni eldsneytiseyðsla
• Aukin þægindi
• Minni mengun - meiri sparnaður
BRÆÐURNIR
H J Ó L BARÐAR
Lágmúla 9 • Sími 530 2800