Fréttablaðið - 30.11.2001, Side 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
30. nóvember 2001 FÖSTUDAGUR
SVONA ERUM VID
HREIN EIGN LÍFEYRISSJÓÐA
Hrein eign lífeyrissjóða eru þeir fjármunir
sem lífeyrissjóðir eiga til að standa við
skuldbindingar sínar gagnvart sjóðfélögum.
Mánaðartölur eru áætlaðar út frá úrtaki
stærstu sjóða. Tölur hér að neðan eru fyrir
september ár hvert í milljörðum króna.
Ar
1997
Milljarðar
334
1998
386
1999
2000
2001
462
571
602
Heimild: Seðlabanki Islands
Opnun Hafnarstrætis:
Verði miðborg-
inni allri til góða
SAMGÖNGUR Borgarráð samþykkti
nýlega að Hafnarstræti skyldi opn-
að á ný fyrir umferð til austurs en
henni var lokað fyrir umferð til
móts við skiptistöð strætisvagna
árið 1997. Ein þeirra verslunar
sem hvað lengst hefur verið starf-
andi í Hafnarstrætinu er Ramma-
gerðin. „Ég er mjög ánægður með
þessa ákvörðun en ég var búin að
berjast fyrir því af fullri hörku að
Hafnarstrætið yrði opnað á ný. Nú
er þetta loksins að komast í samt
lag á ný en að mínu mati tíu árum
og seint,“ sagði Einar Nielsen, eig-
andi Rammagerðarinnar.
Einar segir lokunina hafa haft
þau áhrif að fjöldi verslana hafi
lagt upp laupana. Hún hafi kom-
ið niður á rekstri Rammagerðar-
innar auk þess sem margt annað
hafi breyst til hins verra. „Þegar
verslanirnar hættu rekstri komu
í staðinn veitingahús og spilasal-
ir. Sú starfsemi hefur haft í för
með sér að ég hef þurft að skipta
HAFNARSTRÆTI
Rammagerðin er ein sú verslana sem hvað lengst hefur verið með starfsemi í Hafnarstræt-
inu eða rúmlega hálfa öld.
þrjátíu og fimm sinnum um rúð-
ur í versluninni og oft var ekki
hægt að opna verslunina fyrir
drukknum næturklúbbagestum
sem voru að skemmta sér langt
fram undir morgun." Hann segir
þó breyttan opnunartíma hafa
verið til bóta. Einar segist hafa
trú á því að með þessari opnun
glæðist ekki bara Hafnarstrætið
heldur miðborgin í heild og verði
verslunum til góða. ■
GRÆNMETI
Tekist er á um stuðning ríkis við garðyrkju-
bændur í grænmetisnefnd landbúnaðar-
ráðherra.
Grænmetisnefnd:
Verst allra
frétta
TOLiAR „Við höfum nú fundað með
ráðuneytinu. Það varð samkomu-
lag um að ekki yrði greint frá
ágreiningsatriðum á meðan menn
væru að reyna að komast að sam-
komulagi,“ segir Kristján Braga-
son, fulltrúi Alþýðusambandsins í
svonefndri grænmetisnefnd
Landbúnaðarráðherra. Síðastliðið
vor var stefnt var að því að nefnd-
in skilaði áliti í september og því
næst í lok október. „Málið er á við-
kvæmu stigi. Niðurstaðan fæst
væntanlega á fyrstu dögum des-
embermánaðar," segir Kristján.
Fram hefur komið áður að full-
trúar verkalýðshreyfingarinnar í
nefndinni þrýsta á um tollalækkun
á grænmeti, enda telja þeir að slíkt
yrði neytendum til hagsbóta. Bent
hefur verið á að grænmetisverð
hafi hækkað verulega umfram al-
menna neysluverðsvísitölu á und-
anförnum árum. Þá hefur það ver-
ið dregið fram að tollalækkanir
stjórnvalda sl. vor hafi helst snúið
að tegundum sem lítt eða ekki séu
framleiddar hér á landi og að
stuðningur stjórnvalda við græn-
metisframleiðslu gangi gegn til-
gangi GATT-samningsins. ■
Utanflug Héraðsbúa
veltur á Þjóðverjum
Fyrirhugað áætlunarflug milli Egilsstaða og Dússeldorf næsta sumar er
háð áhuga þýskra ferðamanna að sögn Antons Antonssonar hjá Terra
Nova. Hann hrósar heimamönnum fyrir frumkvæði í málinu og telur
flugið munu verða góða lyftistöng fyrir Austurland.
samgöngur Anton Antonsson hjá
ferðaskrifstofunni Terra Nova
segir það endanlega frágengið að
þýska flugfélagið LTU muni fllúga
13 ferðir milli Dússeldorf og Egils-
staða á föstudögum næsta sumar.
Samningur þessa
efnis verði undir-
ritaður um miðjan
janúar en fyrsta
flugið verði 7. júní
og lokaflugið 30.
ágúst.
Flogið verður
með 180 farþega
Airbus-þotu frá
Dússeldorf að
kvöldi dags en frá
Egilsstöðum að
næturlagi með við-
Flogið verður
með 180 far-
þega Airbus-
þotu frá
Dússeldorf að
kvöldi dags en
frá Egilsstöð-
um að nætur-
lagi með við-
komu í Kefla-
vík.
---♦.—
komu í Keflavík og verður lent í
Þýskalandi í morgunsárið.
Anton segir að ferðirnar hafi
þegar verið settar í sölu í alþjóð-
lega bókunarkerfinu Amadeus en
að upphæð fargjaldanna sé hins
vegar ófrágengin. Þó sé ákveðið að
þau verði jafnhá fargjöldum LTU
frá Reykjavík til Þýskalands en
apex-fargjald þaðan kostaði 24.900
krónur í fyrrasumar. Anton segist
reikna með talsverðri hækkun
vegna gengisbreytinga krónunnar
og verðhækkana erlendis.
Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá hafa heimamenn austur
á Héraði, opinberir aðilar og aðrir,
ábyrgst sölu 500 farseðla í þessu
flugi. Anton segir þó að langmikil-
vægast sé að ná að kynna Egils-
staði í Þýskalandi sem hlið að ís-
landi. LTU hafi sett sér markmið
um 85% sætanýtingu og að því
FRÁ EGILSSTÖÐUM TIL DUSSELDORF
Héraðsbúar munu eiga þess kost næsta sumar að fljúga úr heimahögum sínum til þýsku
borgarinnar Dusseldorf.
verði engar ferðir farnar yfirhöf-
uð nema það takist að selja um 100
sæti í hverja ferð frá Þýskalandi.
Þess vegna hafi Ferðamálaráð tek-
ið að sér að kynna Egilsstaði og
Austurland yfirleitt fyrir Þjóð-
verjum.
Anton segir Egilsstaðaflugið
munu verða góða lyftistöng fyrir
ferðamannaiðnaðinn, allt frá
Skaftafelli til Mývatns, með til-
heyrandi fjölgun gistinátta. Þetta
eigi ekki síst við um Egilsstaði
sjálfa þar sem víst sé að umsvifin
muni aukast frá því sem verið hef-
ur.
„Tilgangurinn er fyrst og
fremst að færa meiri viðskipti til
landbyggðarinnar. Ég verð að
hrósa heimamönnum vegna þess
að þetta hefði aldrei gengið upp
nema fyrir þeirra frumkvæði í
málinu," segir Anton.
gar@frettabladid.is
... ^
AKRANES
Akraneslistinn fékk fjóra bæjarfulltrúa af
níu við síðustu kosningar og myndar
meirihluta ásamt Framsóknarflokknum.
Samfylkingin á Akranesi:
Stillt upp á
lista
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR „Það
hefur ekki verið rætt um annað en
að við bjóðum fram undir nafni
Samfylkingarinnar", segir Hann-
es Sigurðsson, formaður Samfylk-
ingarfélags Akraness og nágrenn-
is um undirbúning flokksins fyrir
næstu sveitarstjórnarkosningar.
Hann segir að sá félagsskapur
sem stóð að Akraneslistanum
1998 hafi verið samstíga um að
vinna með þessum hætti og því
væri vart um annað að ræða.
Hannes segir að uppstillingar-
nefnd hafi verið skipuð á fundi
Samfylkingafélagsins fyrir
skemmstu og sé henni ætlað að
leita eftir tilnefningum á fram-
boðslista og koma í kjölfarið með
tillögur um endanlega lista til
stjórnar félagsins. Það starf er
ekki komið langt á veg en Hannes
segir stefnt að því að tillögur upp-
stillingarnefndar liggi fyrir í
byrjun febrúar. Því gefist góður
tími til að kanna vilja félags-
manna og stilla upp lista. ■
IlögreglufréttirI
Jeppi fór út af veginum í Hest-
firði í Djúpi um hálftíuleytið í
gærkvöldi og lenti á hliðinni.
Engin slys urðu á fólki en
skemmdir urðu á bílnum. Að öðru
leyti hefur verið afar rólegt hjá
lögreglunni á ísafirði. Almennt
er hálka á vegum.
Smáralind
AVIS___________________________
Vantar þig bíl í Smáralind?
Viltu að bíllinn bíði eftir þér á Reykjavíkurflugvelli?
BíII í A flokki, daggjald kr. 3.700,-
Ótakmarkaður akstur, tryggingar og skattar
Sími: 591 4000
Fax: 591 4040 E-mail: avis@avis.is - Dugguvogur 10 - www.avis.is
Eiginmaður Katrínar Valgeirsdóttur:
Islcindsferð var
í undirbúningi
mannshvarf Katrín Valgeirsdóttir,
segir, í samtali við Boston Globe,
engar líkur vera á því að eiginmað-
ur hennar hafi framið framið
sjálfsmorð. Don hafi ekki átt í nein-
um erfiðleikum og uppeldi barna
þeirra, 7 og 10 ára, hafi átt hug hans
allan. Eiginmaður hennar hafi enn-
fremur lagt stund á íslenskunám,
en þau hafi verið á leiðinni til fs-
lands og hafi þegar keypt flugmið-
ana. Tíuþúsund dollara verðlaun
eru í boði fyrir upplýsingar sem
leitt geti til handtöku og ákæru
þeirra sem hugsanlega eigi þátt í
liinu.d.ularfuJla hviirfi.£iginmanns.
Katrínar Valgeirsdóttur, sam-
kvæmt upplýsingum á vefsíðu
Gomemphis. Harvardháskóli og St.
Jude barnaspítalinn leggja fram
verðlaunaféð, sem er framlög
starfsfólks og stjórnarmanna stofn-
ananna. Bandaríski sjónvarpsþátt-
urinn Crime Stoppers hefur milli-
göngu um verðlaunin. Ekkert hefur
spurst til Don C. Wiley síðan sext-
ánda nóvember, en ýmsar getgátur
hafa verið uppi um ástæðuna fyrir
hvarfi hans, sérstaklega í ljósi þeir-
ra rannsókna sem hann hefur
stundað. ■
DON C. WILEY
Tíuþúsund dollara verðlaun eru í boðí
----fyrir upplýsingaf sem leitt-geti til-band-
töku og ákæru þeirra sem hugsanlega
eigi þátt í hinu dularfulla hvarfi Don.