Fréttablaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
VILJA BORCA MEIRA
Mikill meirihluti þeirra
sem tók þátt á at-
kvæðagreiðslu á Vísi.is
sættir sig við að greiða
hærri gjöld fyrir læknis-
þjónustu sem er ein-
mitt það sem á að gera
samkvæmt tillögum
fjárlaganefndar.
Sættir þú þig við hærri gjöld
fyrir læknisþjónustu?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að eyða meiru i jólagjafir
í ár en i fyrra?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
Sól og Terra Nova
sameinast:
• •
Onnur stærs-
ta ferðaskrif-
stofa landsins
ferðaskrifstofur Ferðaskrifstof-
urnar Sól hf. og Terra Nova hf. hafa
verið sameinaðar í eina, Terra
Nova-Sól. Hið nýja fyrirtæki verð-
ur með aðsetur í Stangarhyl 3 en
söluskrifstofu Sólar við Grensás-
veg verður lokað. Langflestir
starfsmenn fyrirtækjanna halda
vinnu og er áætlaður starfsmanna-
fjöldi 25 manns og ársvelta 1,5
milljarður. Nýr forstjóri er Anton
Antonsson, fyrrum framkvæmda-
stjóri Terra Nova. Ómar Kristjáns-
son, fyrrum framkvæmdastjóri
Sólar, lætur af störfum en mun sitja
í stjórn hins nýja fyrirtækis .Fimm
manns eiga sæti í stjórn, þrír frá
hluthöfum Terra Nova og tveir frá
Sól. Framkvæmdastjóri utanlands-
deildar er Sigurjón Þór Hafsteins-
son og markaðsstjóri Goði Sveins-
son. Eftir sameininguna er Terra
Nova-Sól önnur stærsta ferðaskrif-
stofa landsins. ■
—4—
Islensku bókmennta-
verðlaunin:
Tilnefningar
kunngjörðar
bækur Tilnefningar til íslensku
bókmenntaverðlaunanna voru
kynntar með formlegum hætti í
gærkvöldi. í flokki fræðirita voru
tilnefndar bækurnar: Björg eftir
Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur,
Höfundar Njálu eftir Jón Karl
Helgason, íslenskar eldstöðvar eft-
ir Ara Trausta Guðmundsson, Kon-
an í köflótta stólnum eftir Þórunni
Stefánsdóttur og Uppgjör við um-
heiminn eftir Val Ingimundarson.
Eftirtalda bækur hlutu tilnefningu
í flokki fagurbókmennta: Gæludýr-
in eftir Braga Ólafsson, Höfundur
íslands eftir Hallgrím Helgason,
Ljóðtímaleit eftir Sigurð Pálsson,
Sólskinsrútan er sein í kvöld eftir
Sigfús Bjartmarsson og Yfir
Ebrofljótið eftir Álfrúnu Gunn-
laugsdóttur. ■
2
6. desember 2001 FMMTUDAGUR
300 milljóna aukafjárveiting til forsætisráðuneytis:
Forsætisráðherra sýnir
Alþingi lítUsvirðingu
alþinci Ríkisstjórnin og stjórnar-
meirihlutinn sættu mjög harðri
gagnrýni í umræðum um fjárauka-
lög fyrir árið 2001 á Alþingi í gær.
Þingmenn stjórnarandstöðu töldu
ámælisvert að fá ekki skýrar upp-
lýsingar um í hvað 300 milljónir
fara sem forsætisráðuneytið fór
fram á vegna kostnaðar við einka-
væðingu. Greidd voru atkvæði um
hvort neita ætti ráðuneytinu um
fjárveitinguna, í ljósi þess að þing-
ið hafi ekki fengið umbeðnar upp-
lýsingar, en tillagan var felld með
35 atkvæðum gegn 20. Steingrímur
J. Sigfússon, þingmaður VG var lítt
hrifinn af samskiptum fjárveiting-
ar- og framkvæmdavalds í málinu.
„Forsætisráðuneytið fer í broddi
fylkingar og sýnir Alþingi full-
komna lítilsvirðingu og reynir að
telja mönnum trú um að eðlilegt sé
að leyna öllum upplýsingum um
hvernig 300 milljónum af opinberu
fé sé varið [...] Ósvífninni eru nú lít-
il takmörk sett, verð ég að segja.
Látið okkur hafa 300 milljónir en
ykkur kemur ekki við hvernig þær
eru notaðar... Þetta er á mannamáli
það sem forsætisráðuneytið er að
segja við Alþingi," sagði hann.
Guðmundur Árni Stefánsson gerði
athugasemd við að forsætisráð-
herra væri ekki viðstaddur umræð-
una. Hann beindi orðum sínum því
til Halldórs Ásgrímssonar. „Maður
Ofeigur VE fórst
og eins er saknað
Eins er saknað eftir að Ofeigur VE 325 sökk á skammri stundu í
fyrrinótt. Leit að skipverjanum sem saknað er bar ekki árangur í gær.
Leit heldur áfram í dag.
* Tindafjallajökull \
Eyjafjallajökull Mýrdalsjökull
Eyi*fiön
Vestmannaeyjar \p Mýrdalur Vík Hjörleifshöfði
Ófeigur sökk
KORT AF SLYSSTAÐNUM
( gærdag leituðu margir báta austur af slysstaðnum og reyndu að fylgja reki úr bátnum. í
landi leituðu björgunarsveitarmenn á Mýrdalssandi við erfiðar aðstæður.
slysfarir Leit að manninum sem
saknað er eftir að Ófeigur VE
325 sökk í fyrrinótt verður fram
haldið í dag. í gærkvöldi var
ljóst að björgunarsveitir myndu
halda áfram að
leita á og við Mýr-
dalssand og stóðu
vonir til að að-
stæður til leitar
yrðu betri seinni
partinn í dag en
þær voru í gær
þegar veður og
mikill snjór gerði
leitarmönnum
erfitt fyrir. Leit í
gærmorgun hófst
þegar birta tók,
upp úr klukkan níu. Að sögn Val-
geirs Elíassonar, upplýsingafull-
trúa Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar voru allar aðstæður
TF-LfF
Þylran vað að frá að hverfa vegna veðurs.
Leit var hætt eftir að dimmdi i gær en
hefst aftur við birtingu í dag.
mjög erfiðar. T.a.m. reyndist
ekki unnt að nota slöngubáta við
leitina vegna brims og ölduhæð-
ar. „Þetta er erfitt svæði yfir-
ferðar, það er svo mikill snjór á
sandinum þannig að við erum
dálítið hæggengir í þessu,“ sagði
hann, en fjórar jeppabifreiðar
voru notaðar til leitar.
Á sjó leituðu 5 til 7 bátar með-
an birta leyfði. Ákvarðanir um
framhald leitar verða teknar í
dag, en Landhelgisgæslan stýrir
leitinni.
í áhöfn Ófeigs voru níu
manns og höfðu átta komist í
björgunarbát. Þeim var svo
bjargað að áhöfn Danska Péturs
VE 423 sem kom með þá til hafn-
ar í Vestmannaeyjum í gær-
kvöldi. Að sögn Hjalta Elíasson-
ar, stýrimanns á Danska Pétri,
virðist sem slysið hafi borið
mjög brátt að. „Við vorum á leið
í land þegar við heyrðum kall frá
þeim um að skipið væri að fara
niður. Sem betur fer náðum við
því, þetta var svo fljótt að ske.
Hann gat bara gert þetta á vin-
nurásinni,“ sagði hann. Ófeigur
var sokkinn þegar Danska Pétur
bar að en þá höfðu sjö skipverj-
ar komist í einn bát og einn skip-
verja í annan. Mennirnir voru að
mestu ómeiddir, utan einn sem
var marinn á fæti. „Þeir komust
allir í flotgalla," sagði Hjalti og
taldi að báturinn hafi farið niður
á örfáum mínútum. „Við sáum
óljósa mynd af björgunarbátun-
um og gátum keyrt í stefnu á þá.
Svo skutu þeir upp reykblysi."
Hjalti sagði að strax hafi verið
hafin leit að manninum sem
saknað er og að þyrlu Landhelg-
isgæslunnar hafi borið að fljót-
lega og aðstoðað við leitina.
„Þeir urðu nú að fara til Eyja
einu sinni því það gekk á með
slíkum hryðjum hérna. Það var
hundleiðinlegt veður," sagði
hann og taldi að telja mætti það
mildi að hinir átta hafi þó haft
það af að komast í björgunarbát-
ana.
oli@frettabladid.is
---#---
Ófeigur VE var
sokkinn þegar
Danska Pétur
VE bar að, en
þá höfðu sjö
skipverjar
komist í einn
björgunarbát
og einn skip-
verja í annan.
—4---------
TEKIST Á UM FJÁRVEITINCAR
Þíngmenn stjórnarandstöðu sögðu það
vera hneyksli að fá ekki svör um hverjir
fengju greiddar 300 milljónirnar.
hlýtur að álykta sem svo [að hér séu
á ferðinni] einhver þau leyndarmál
sem ekki þola dagsins ljós,“ sagði
hann. Halldór sagði að nægja hætti
að fjárlaganefnd hafi verið afhent-
ar umbeðnar upplýsingar sem trún-
aðarmál. „Ég held að eðlilegast sé
að umræðan um málið haldi áfram í
þeirri nefnd,“ sagði hann og taldi að
í nefndinni ætti jafnframt að ræða
hvenær rétt væri að lyfta trúnaði af
gögnunum. oli@frettabladid.is
BUSH
George Bush, Bandaríkjaforseti, segir
Saddam Hussain vera illan mann.
Bush gefur í skyn mögu-
legar árásir á Irak:
Er Saddam
næstur?
stríðsrekstur George W. Bush,
Bandaríkjaforseti hefur gefið í
skyn við Saddam Hussain, íraks-
leiðtoga, að mögulegt sé að næst
muni Bandaríkjamenn einbeita
sér að því að ráðast til atlögu gegn
írökum. Segir hann að Hussain
verði að virða loforð sitt um að
leyfa vopnasérfræðingum á veg-
um Sameinuðu Jtjóðanna að rann- 1
saka vopnabúr Iraka. „Ég tel hann
vera illan vegna þess að hann er
ein af fáum persónum á jörðinni
sem hefur nýlega beitt efnavopn-
um til að eitra fyrir sínu eigin
fólki og nágrönnum sínum,“ sagði
Bush í gær í viðtali á fréttavef
Sky. Sagði hann þó að ekki verði
gripið til hernarðaraðgerða í öðr-
um löndum en Afganistan fyrr en I
náð hefði verið ásættanlegum ár-
angri þar. „Ég vil bara að banda-
ríska þjóðin viti að við höldum öll-
um möguleikum opnum,“ sagði
hann. ■
—♦----
Ævintýraferðir.:
Fleiri starfs-
menn ráðnir
ÍSLENSKAR ÆVINTÝRAFERÐIR íslensk-
ar ævintýraferðir gengu í gær frá
kaupum á innanlandsdeild Sam-
vinnuferða-Landsýnar. í kaupun-
um felst aðgangur að gögnum
deildarinnar og skrifstofubúnaði.
íslenskar ævintýraferðir hafa
þegar ráðið til sín sex af fyrrum
starfsmönnum innanlandsdeildar
S-L. og gerir fyrirtækið ráð fyrir j
að ráða fleiri starfsmenn til við-
bótar. Hjá íslenskum ævintýra-
ferðum starfa nú um 40 manns. ■
Ný bók eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fáir höfundar hafa skemmt íslenskum
bömum og unglingum betur en Ólafur
Haukur á síðustu áratugum.
Þessi bók er í senn organdi fyndin og
raunsönn lýsing á samskiptum fólks
í nánu sambýli.
Frábær bók.
„Hafi fullorðið fólk gaman af
bókum fyrir böm eru þær
góðar. Það á svo sannarlega
við um Fólkið í blokkinni."
Siguröur Helgason, Mbl.
Mál og mynd
Bræðraborgarstíg 9 • 101 Reykjavík
Þjóðvegaræningjar hrella Samskip á Ítalíu:
Mafían rændi íslenskum
saltfiski fyrir 40 milljónir
þjóðvegarán Tveimur gámum með
saltfiski að verðmæti 40 milljónir
króna var stolið úr bíl á vegum
Samskipa á Suður-Ítalíu í október
að því er segir á fréttavef íslensku
Umboðssölunnar. Hjálmar Diego
hjá Samskipum segir þjóðvega-
ræningja taka tvo til þrjá gáma á
hverju ári frá fyrirtækinu.
Gámarnir voru báðir teknir í
nágrenni Napólí, sá fyrri í byrjun
október og sá seinni í lok október.
Verðmæti er talið nema um 40
milljónum króna á markaði í
Napólí.
„Það er nokkuð ljóst að ítalska
mafían stendur aðallega á bak við
þetta. Ránin eru þaulskipulögð og
þjófarnir virðast meira að segja
vita hvað er í gámunum. Ef bíl-
stjórarnir stoppa við þjóðveginn
til að borða, sofa eða taka bensín,
eru mestar líkur á að bílnum og
farminum verði stolið. Við höfum
brugðist við þessu með því að
beina þeim tilmælum til bílstjór-
anna að þeir fylli olíutankana áður
en þeir fara frá Róm auk þess að
leggja bílunum á vöktuðum svæð-
um þegar þeir þurfa að hvílast,"
segir Hjálmar við fréttavefinn.
Sex norsk flutningsfyrirtæki
munu hafa sett vopnaða verði í
bílalestir sem flytja skreið til
Napólí en Hjálmar segir slíkt ekki
á prjónunum hjá Samskipum. ■
'