Fréttablaðið - 06.12.2001, Side 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
6. desember 2001 FIMIVITUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
LANDSFRAMLEIÐSLA A VINNUTlMA
"ö
C
flJ
to
Z
c
c
Q.
V)
T3
C
10
QQ
to
Heimild: OECD, Hagstofan, SA
VESTMANNAEYJAR
Hallað hefur undan fæti í fjölda starfa I
sjávarútvegi í þessu fornfræga sjávarplássi.
Vestmannaeyjar:
Um 500 störf
tapast á áratug
SJAVflRLiTVECUR Um 500 störf í sjáv-
arútvegi hafa tapast í Vestmanna-
eyjum á sl. áratug. Viðbúið er að
þessi þróun haldi eitthvað áfram
með tilheyrandi fólksfækkun að
sögn heimamanna. Arnar G.
Hjaltalín formaður stéttarfélags-
ins Drífanda í Eyjum segir að ein
helsta ástæðan fyrir þessu sé sú
staðreynd að afli sem nemur um
ársvinnslu þriggja frystihúsa sé
fluttur óunninn út árlega frá
byggðarlaginu. Þess utan hefur
tækniþróun í fiskvinnslu og aukið
álag á þá sem fyrir eru gert það að
verkum að færra fólk sé ráðið til
starfa en áður i þessari atvinnu-
grein. Hann telur að þessi þróun
og aukin framlegð í vinnslu sjáv-
arfurða eigi að geta verið grund-
völlur fyrir hærri launum hjá
þeim sem enn séu vinna við þessa
grein.
Sem dæmi um þróunin í Eyjum
bendir formaður stéttarfélagsins
á að litlar sem engar nýráðningar
séu hjá ísfélaginu vegna nýrrar
vinnslulínu uppsjávarfiska sem
nýlega var tekin þar í notkun. Þá
sé lítil von til þess að störfum
fjölgi í fiskvinnslu í landi þegar
verið sé að kaupa frystitogara til
bæjarins, en nýverið keypti ísfé-
lagið Snorra Sturluson af Granda í
Reykjavík. ■
Eldur í kjallaraíbúð:
Kviknaði í út frá kerti
bruni Eldur kom upp í kjallaraí-
búð við Úthlíð í Reykjavík á þrið-
ja tímanum í fyrrinótt. Nágranni
varð eldsins vart og lét íbúa á efri
hæð vita. í sameiningu komust
þau inn í kjallaraíbúðina og náðu
að gera konu, sem þar var sofandi,
viðvart. Komu þau henni út og var
hún flutt með sjúkrabifreið á
slysadeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss með reykeitrun.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
kom á vettvang og að sögn varð-
stjóra var um mikinn eld að ræða
og þurfti fjóra reykkafara til að
slökkva hann. Talsverðar
skemmdir hafi orðið vegna brun-
ans.
Eldurinn kom upp í hornsófa í
stofu hússins og að sögn lögregl-
unnar sem rannsakaða eldsupptök
kviknaði í út frá kerti. Samkvæmt
talsmanni slökkviliðsins eru brun-
ar í tengslum við kerti og kerta-
skreytingar mjög algengir í des-
embermánuði. Full ástæða sé til
að biðja fólk um að sýna aðgát. ■
KVIKNAÐI f ÚT FRA KERTAUÓSI
Birtan af kertaljósi getur verið notarleg I
skammdeginu en vert er að sýna fyllstu
aðgát í notkun þeirra til að forðast bruna.
uuuumwi
SAMKOMULAC f HÖFN
Viðræðurnar höfðu staðið yfir í Bonn í Þýsklandi í 9 daga. Hér sést samninganefnd Sameinuðu þjóðanna ásamt Schröder, kanslara Þýska-
lands, og fulltrúum afgönsku þjóðarbrotanna.
Karzai leiðir bráðabirgða-
stjórnina í Afganistan
Samkomulag undirritað í Bonn í gær. Stjórnin tekur við völdum þann
22. desember.
ÞÝSKALANPi.flP Ný bráðabirgða-
stjórn í Afganistan mun taka við
völdum þann 22. desember næst-
komandi, en formleg athöfn með
Gerard Schröder, kanslara Þýska-
lands, fór fram í gær, þar sem
skrifað var undir samkomulag
þess efnis. Skipað var í 11 stöður
af 30 í ríkisstjórninni og var
Hamid Karzai, leiðtogi Pashtun-
þjóðarbrotsins, eins fjögurra
þjóðarbrota í Afganistan, skipað-
ur forsætisráðherra landsins.
Hann berst um þessar mundir
gegn talibönum um borgina
Kandahar og er hann þar yfirmað-
ur 4000 manna herliðs. Þess má
geta að tvær konur sitja í nýju rík-
isstjórninni, önnur sem heilbrigð-
isráðherra og hin sem ráðherra
sem hefur umsjón með hagsmun-
um kvenna. Með hinni nýju bráða-
birgðastjórn er vonast til að end-
urvekja frið og stöðugleika í
Afganistan, en þjóðin hefur í rúm
20 ár átt í innbyrðis stríðsátökum
og deilum, eða allt frá því að Sov-
étríkin réðust inn í landið árið
1979. Stjórnin verður við völd í
u.þ.b. sex mánuði, eða þar til
„Lyoya Jirga,“ sem er nafn þjóð-
arþingsins í Afganistan, verður
haldið. Þá verður önnur bráða-
birgðastjórn kosin til að stjórna
landinu í um 18 mánuði. Eftir það
verður stjórnarskrá samin og
framtíðarríkisstjórn verður kosin.
Nýi forsætisráðherrann, hinn
44 ára gamli Karzai, er mikill
þjóðernissinni og hefur hann oft á
tíðum sakað félaga sína innan
Pashtun-þjóðarbrotsins um að
hafa aðeins verið peð í tafli stærri
afla, þá sérstaklega Pakistans,
sem er nágrannaland Afganistans.
Karzai átti m.a. þátt í stofnun tali-
banastjórnarinnar árið 1994. Ári
síðar óskuðu talibanar eftir því
við Karzai að hann yrði fulltrúi
þeirra hjá Sameinuðu þjóðunum.
Hann þekktist hins vegar ekki
boðið þar sem hann taldi talibana
hafa gengið Pakistönum full mikið
á hönd, en fram að hryðjuverka-
árásunum á Bandaríkin voru
Pakistanar taldir til helstu sam-
herja talibana. Afgönsku samn-
ingafulltrúarnir voru ánægðir
þegar samningurinn var í höfn.
„Þetta er kannski ekki fullkomið,"
sagði Mostapha Zaher, barnabarn
fyrrverandi konungs Áfganistans.
„Undir kringumstæðunum er
þetta virðingarvert, eitthvað gott.
Ég held að framtíð Afganistan sé
afar björt.“ ■
Borgarráð:
Samþykkti
jólauppbót
borgarráð Borgarráð hefur sam-
þykkt að leggja til við félags-
málaráð að samþykkja jólauppbót
að upphæð 12.484 krónur til þeir-
ra notenda Félagsþjónustunnar
sem þegið hafa fjárhagsaðstoð í
sex mánuði eða lengur. Segir að
með tilliti til þess að öryrkjum og
launþegum sem notið hafi fjár-
hagsstuðnings frá Félagsþjónust-
unni í Reykjavík hafi ekki verið
reiknaðar til tekna þær jólaupp-
bætur sem þeir hafa fengið, fái
langtímanotendur fjárhagsað-
stoðar hjá Félagsþjónustunni á
sama hátt sérstakan fjárhags-
stuðning. ■
Juri Eglitis:
Afram í gæslu
lögreglumál Juris Eglitis, var í
gær úrskurðaður í héraðsdómi
Reykjavíkur, í áframhaldandi
gæsluvarðhald til nítjánda desem-
ber næstkomandi, samkvæmt
upplýsingum frá alþjóðadeild
Ríkislögreglustjóra. Juris var
handtekinn, að beiðni Interpol, á
Dalvík, 22. nóvember síðastliðinn,
sakaður um morð í heimalandi
sínu Lettlandi. Gæsluvarðhalds-
úrskurður gagnvart honum hér á
landi var framlengdur, þar sem að
enn hefur ekki borist framsals-
beiðni á hendur honum, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Ríkislög-
reglustjóra hefur borist staðfest-
ing frá ríkissaksóknaraembætt-
inu í Riga þess efnis að hún sé í
undirbúningi. Vonir standi því til
þess að framsalsbeiðnin berist yf-
irvöldum hér á landi áður en að
framlengdur gæsluvarðhaldsúr-
skurður renni út. ■
—+—
Alögur í heilbrigðiskerfi:
Skerðing á kjör-
um aldraðra
alpraðir „Við lítum á þetta sem
beina skerðingu á kjörum ellífeyris-
þega,“ segir Ölafur Ólafsson, fyrr-
um landlæknir og formaður Félags
eldri borgara, um fyrirhugaða
hækkun gjaldskrár stjórnvalda í
heilbrigðiskerfinu. „Eins og gefur
að skilja leggjast hækkanir á þessu
sviði sérlega þungt á eldri borgara.
Fjármálaráðherra segir að gjald-
skráin hafi ekki hækkað undanfarin
ár, en það má benda á að ýmislegt
hefur hækkað í heilbrigðiskerfinu,
t.d. lyf. Því fer fjarri að ellilífeyrir
hafi hækkað sambærilega. Almennt
þá erum við mjög óhress með þess-
ar hugmyndir stjómvalda."
Ólafur segir fyrirhugaða gjald-
skrárhækkun bætast við miklar
hækkanir ýmisskonar þjónustu-
gjalda sem komið hafi illa við elli-
lífeyrisþega. „Það er nú samt þan-
nig að við höfum ekki valdastöðu
til hrinda þessu af þingi, en mun-
um mótmæla þessu mjög kröftug-
lega.“ ■
Nýtt á íslandi!
Fyrsta sendingin af OPTIMUM
vélunum er komin
OPTIMUM borvélar
OPTIMUM rennibekkir
OPTIMUM bandsagir
OPTIMUM borfræsivélar
og fylgihlutir
Gæðavörur sem létta
mönnum lífið!
OPTIMUM, stærsta
vélasala Evrópu á þessu
sviði, valdi Fossberg sem
umboðsaðila sinn á
íslandi.
©
F0SSBERG
stórmarkaður iðnaðarmannsins
Suðurlandsbraut 14 - Sími 5757600
Sveitarfélög:
Hærri launakostnaður
slær á framkvæmdir
kjarasamningar Launakostnaður
sveitarfélaga hefur vaxið töluvert
í framhaldi af þeim launahækkun-
um sem samið hefur verið við
starfsmenn þeirra á árinu. Þar
vegur einna þyngst umsamdar
launahækkanir grunnskólakenn-
ara, leikskólakennara og tónlistar-
kennara auk þess sem aðrir starfs-
menn sveitarfélaga fengu vænar
launahækkanir á árinu. Þessi
kostnaður setur svip sinn á margar
fjárhagsáætlanir sveitarfélaga og
viðbúið að þetta muni draga mjög
úr öllum framkvæmdum þeirra á
næsta ári nema með því að slá lán
fyrir þeim.
Guðmundur Bjarnason bæjar-
FJARÐABYCGÐ
Kjarasamningar við opinbera starfsmenn
hafa haft íþyngjandi áhrif á fjárhagsstöðu
margra sveitarfélaga.
stjóri í Fjarðabyggð segir að áætl-
aður launakostnaður hjá þeim á
næsta ári sé um 583 milljónir
króna á móti 456 milljónum í fyrra.
Sem hlutfall af skatttekjum hefur
þessi kostnaður hækkað úr 65% í
ár í 68,8% á næsta ári. Skatttekjur
bæjarins í fyrra voru um 701 millj-
ón og á næsta ári er áætlað að þær
verði 840 milljónir. Guðmundur
segir að það geti verið tvísýnt að
draga úr framkvæmdum því það
getur bitnað á þjónustustigi bæjar-
félagsins og þar með haft neikvæð
áhrif á búsetuþróunina. Hann telur
því umhugsunarvert hvort ekki
verði að auka hlutdeild syeitarfé-
laga í staðgreiðslunni. ■