Fréttablaðið - 06.12.2001, Síða 15
FIMMTUDAGUR 6. desember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Islenski boltinn:
KR-ingar með
nýjan búning
Fótbolti Samningur KR við Reebok
rann út í haust og samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins hefur KR
samið við umboðs- og heildverslun-
ina Hoffell, sem Magnús V. Péturs-
son, fyrrverandi knattpspyrnudóm-
ari rekur.
KR gerði á sínum tíma tveggja
Iára samning við Reebok með mögu-
leika á að framlengja hann um tvö
ár í haust. Guðjón Guðmundsson,
formaður Knattspyrnudeildar KR,
sagði að báðir aðilar hefðu hins veg-
ar ákveðið að hætta samstarfinu.
Hann vildi ekki staðfesta að KR
væri búið að semja við Hoffell en
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
MmttmíemiMmmmimiStMSSmíSttmm
NÝR BÚNINGUR
Búningurinn verður svipaður þessum sem
sést á þessari mynd en þó er líklegt að
hálsmálið verði eitthvað öðruvísi og að
engar stjörnur verði á ermunum.
ins mun KR leika í búningum frá
Pro Star á næsta ári. ■
iWSÍSWÍÍSSÍ
Leikmannamál:
Keflavík þarf að
losna við Gunnleif
fótbolti Keflavík þyrfti helst að
losna við Gunnleif Gunnleifsson
markvörð, þar sem knattspyrnu-
deildin hefur ekki efni á að halda
honum, en hann er samningsbund-
inn félaginu í eitt ár í viðbót.
Rúnar Arnarson sagði að það
væri ekkert launungarmál að
deildin hefði ekki efni á að halda
Gunnleifi og því hefði stjórnin
farið fram á það við hann að hann
leitaði sér að nýju liði. Gunnleifur
er nýkominn frá Hpnefoss í Nor-
egi þar sem hann var til reynslu,
en ekkert varð úr því að hann
gengi til liðs við félagið þar sem
það samdi við Frode Grodás, 37
ára leikmann Schalke og fyrrum
leikmann Tottenham og Chelsea.
Rúnar sagði að Þórarinn B.
Kristjánsson væri einnig nýkorn-
in að utan, en hann hefði verið til
reynslu hjá Patrick Thistle í
Skotlandi og Halifax í Englandi.
Rúnar sagði að Þórarinn ætti tvö
ár eftir af samningi sínum við
Keflavík og að ef hann færi myndi
Keflavík fara fram á greiðslu fyr-
ÁFÖRUM
Stjórn Keflavíkur hefur ekki efni á að halda
Gunnleifi, en hann á ár eftir af samningi
sínum við félagið.
ir hann. Hann hefði reyndar
meiðst eitthvað úti og vel gæti
farið svo að hann færi aftur út til
reynslu. ■
Ray Mercer:
Ætlar að koma
Tyson á óvart
hnefaleikar Ray Mercer segist
ætla að eyðileggja fyrirætlanir
Mike Tyson um að berjast við
Lennox Lewis. Hann segist ætla
koma Tyson á óvart þegar þeir
mætast í hringnum í næsta mán-
uði og gera sjálfur atlögu að
heimsmeistaratitlinum.
„Hann [Tyson] hlýtur að vera
brjálaður að ætla að berjast við
Ray Mercer,“ sagði Mercer í út-
varpsviðtali en hnefaleikakappar
eru þekktir fyrir að hafa mikið
álit á sjálfum sér. „Það líta allir
framhjá Ray Mercer en ég er þar
sem ég vil vera.“
Mercer segist vera ánægður
með að fólk haldi að hann muni
tapa fyrir Tyson því hann eigi eft-
Þjálfaramál:
Aðalsteinn kos-
inn unglinga-
þjálfari ársins
fótbolti Aðalsteinn Örnólfsson,
þjálfari 2. flokks kvenna hjá Hauk-
um, hefur verið kosinn unglinga-
þjálfari ársins 2001 af _ Knatt-
spyrnuþjálfarafélagi íslands.
Hann var á sínum tíma þjálfari
kvennalandsliðs íslands.
Aðalsteinn hefur verið mjög
sigursæll á 28 ára ferli sínum sem
þjálfari. Hann hefur unnið til
meira en 130 titla og þjálfað hjá 10
knattspyrnuliðum á Islandi. Hann
hefur lokið öllum þjálfarastigum
Knattspyrnusambands íslands,
ásamt fjölda knattspyrnunám-
skeiða, sem og námskeiða í barna-
RAY
MERCER
Hefur oft ver-
ið nefndur
hinn miskun-
arlausi.
ir að vanmeta hann.
„Áætlun mín gengur út á að
gera Mike Tyson pirraðan og þan-
nig vinn ég slaginn."
Mercer segir þá vera vini og að
hann hafi heimsótt hann meðan
hann sat inni.
„Mike Tyson var fyrirmynd
mín. Hann er einn versti maður á
þessari jörðu og að við skulum
vera vinir er frábært." ■
AÐALSTEINN ÖRNÓLFSSON
Á 28 ára feril að baki sem knattspyrnu-
þjálfari.
og unglingasálfræði. Aðalsteinn er
meðlimur í danska og bandaríska
knattspyrnuþjálfarafélaginu auk
þess að vera meðlimur í Knatt-
spyrnuþjálfarafélagi íslands. Þá
hefur hann dómararéttindi í knatt-
spyrnu, handknattleik og golfi. ■
Sígrænt eöaftré í hazsta gæöaflokJá frá
sfcátummi prýðir nú þúsuncfir íslenskra heimila
aw
t*- 10 ára ábyrgð
tA- 12 stærðir, 90 - 500 cm
ía- Stálfótur fyigir
» Ekkert barr að ryksuga
Trufiar ekki stofubiómin
<*. Eldtraust
t*. Þarf ekki að vökva
t*' íslenskar leiðbeiningar
t*. Traustur söluaðili
t*. Skynsamleg fjárfesting
BeaKfefcg ísferjtócro ikólö .
Ný bók eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fáir höfundar hafa skemmt íslenskum
/
börnum og unglingum betur en Olafur
Haukur á síðustu áratugum.
Þessi bók er í senn organdi fyndin og
raunsönn lýsing á samskiptum fólks
í nánu sambýli.
Frábær bók.
„Hafi fullorðið fólk gaman a:
bókum fyrir böm eru þær
góðar. Það á svo sannarlega
við um Fólkið í blokkinni.“
Sigurður Helgason, Mbl
Mál og mynd
Bræðraborgarstíg 9 • 101 Reykjavík
FACE ADIDAS CONVERSE BUFFALO
CAMPER BASE DR. MARTENS GRAVIS
DKNY CAT NIKE ROOTS
dna•
imaginetheshoes.com
kr i nglan * s: 5 3 3 5 15 0
4.990,-
St. 24-34
4