Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.12.2001, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 06.12.2001, Qupperneq 18
HVER ER TILGANGUR LÍFSINS? Að fjölga sér Tilgangur lífsins er að fjölga sér, það er allavega eini liffræðilegi tilgangurinn. Steinn Átmann Magnússon, leikari og útvarpsmaður STILLIMYNDIR Verk Sigurdísar Hörpu Arnardóttur sem hún sýnir í Dýrinu. Selma og Sigurdís: Sýna í Dýrinu tískusýninc í kvöld verður haldin tískusýning á nýrri fatalínu Selmu Ragnarsdóttur fatahönnuð- ar í verslunninni Dýrinu Lauga- vegi 47 í Reykjavík. Þessa nýju línu hefur Selma hannað að hluta í samstarfi við Sigurdísi Hörpu Arnarsdóttur myndlistarmann, sem jafnframt opnar sýningu á nýjum verkum sínum í verslun- inni. Selma hannar undir merkinu ZELMA og eru efnin í nýju línun- nu sléttflauel og gallaefni. Sigurdís sýnir verk sem hún kallar Stillimyndir. Verkið og framsetning þess hefur verið lengi að gerjast í listamanninnum og er í beinu samhengi og fram- haldi af málverkum hennar og ljósmyndaverkum. Stillimyndir er þrívítt verk sem byggist á stuttum frásögnum, eins og atriði í kvikmynd, þó án eiginlegs upp- hafs né endis. Þannig eru stilli- myndir Sigurdísar tímalausar um leið og þær vísa til sammannlegs veruleika. Opnun kl. 20.30 með léttum for- drykk. Tónlist á kynningunni er af plötu Bjarkar Guðmundsdóttur Vespertine. ■ feWtotf jSSV'te-' - i&tf BORGARLEIKHUSIÐ 16. desember 2001 FIMMTUDAGUR STORA SVIÐIÐ |||| NYJA SVIÐIÐ FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen Sun. 9. des. kl. 20 N0KKUR SÆTI Fim. 27. des. kl. 20 LAUS SÆTI Áskriftargestir munið valmöguleikann!!! BLlÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson________ Lau. 8. des. kl. 13 ath. breyttan sýn. tima - aliur ágóði rennur til Jólasöfnunar Rauða krossins og Hjálparstarfs kirkjunnar Sun. 9. des. kl. 14 N0KKURSÆTI KRISTNIHALD UNDIR JpKU e. Halldór Laxness Fös.7. des. kl. 20 - N0KKUR SÆTI Fös. 28. des. kl. 20 - LAUS SÆTI MEÐ VlFIÐ ILÚKUNUM e. Rav Coonev__________ Lau. 8. des.kl. 20-ÖRFÁSÆTI Lau.^9. des. kl 20 - LAUS SÆTI SIMI: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13 -18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is JðLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS_________________ Leikið - sungið - lesið - dansað kringum jólatré Jólasveinar - Bóla - Grýla & Leppalúði - Edda Heiðrun o.m.fl Lau. 8. des. kl. 17 , Su 9. des kl. 17, Lau. 15. des. kl. 17, Su 16. des kl. 17 Aðgangseyrir kr. 500 BEDIÐ EFTIR G0D0T e. Samuel Beckelt Fös. 7. des. kl. 20 LAUS SÆTI Fös. 28. des. kl. 20 LAUS SÆTI ÞRIÐJA HÆDIN PlKUSÖGUR e. Eva Ensler Fös.7. des. kl. 20 N0KKUR SÆTI Lau.8. des. kl. 20 LAUS SÆTI Lau.29. des. kl. 20LAUSSÆTI GJAFAKORT í LEIKHUSIÐ Heill heimur I einu umslagi - Sendum heim - BÆKUR Brotinn taktur BIIOTINN IAIITUR Brotinn taktur eftir Jón Atla Jónasson er safn smásagna sem sumar hverjar eru lauslega tengdar. í þeim flestum er söguhetjan karlkyns og iðulega með einhvern hnút á sálinni. Stíll sagnanna er eiginlega það sem grípur mann fyrst, hann er hraður og hnitmiðaður en býr samt yfir mikilli einlægni. Mál- ið er líka mjög eðlilegt, talmál sem fellur samt ekki í gryfju tilgerðar. Jón Atli er að skrifa um, að mestu leyti ungt, fólk í samtímanum og nær að fanga stemmninguna á hátt sem fáir hafa gert hingað til. BROTINN TAKTUR Höfundur: JÓN ATLI JÓNASSON Útgefandi: Forlagið 2001. 141 bls. Sumar sögurnar eru alveg frábærar eins og t.d. Svart barn sem segir frá manni sem fer á fund við konu sem hann hefur hitt á spjallrásum á Netinu, þar segir Jón Atli sögu sem gæti hæglega gerst í alvörunni - en ljær henni ljóðræna vídd. Sama er í raun upp á teningnum í flestum sögunum, þær eru ein- faldar að byggingu en leyna á sér. Sigríður B. Tómasdóttir FIMMTUDAGURINN 6. DESEMBER FYRIRLESTRAR 12.15: Málstofa í viðskiptafræði. Fyrir- lesari er Snjólfur Jónsson. I ný- legum bókum og ritgerðum hafa fræðimenn innan ólikra sviða sett fram kenningar um það hvernig stefnumiðuð stjórnun getur haft úrslitaáhrif á árangur fyrirtækja. Þessar kenningar urðu kveikjan að rannsóknum Snjólfs á þessu sviði á síðustu mánuðum. í mál- stofunni kynnir hann það sem mætti kalla tilraunakenningar um árangursríka stefnumiðaða stjórn- un. Málstofan er haldin í Odda, stofu 202. 17.00: Alþjóðamálastofnun Háskóla (s- lands gengst fyrir opnum fundi fimmtudaginn 6. desember. Framsögumenn: Guðmundur K. Magnússon prófessor, Hannes H. Gissurarson prófessor, og Þor- steinn Þorgeirsson hagfræðingur. Frjálsar umræður. Rætt verður m.a. um hvort Islendingar eigi að taka upp evruna. Fimmtudag 6. desember kl. 17:oo í stofu 101 Lögbergi. 20.30: „Síðasta ferð línuskipsins Gauta- borgar," heitir fyrirlestur Halldórs Baldurssonar dr. med. sem hann heldur í Sjóminjasafni íslands, Vesturgötu 8 ( Hafnarfirði. I fyrir- lestrinum fjallar Halldór um síð- astu ferð danska herskipsins Gautaborgar, skipbrot þess hér við land 1718, sjópróf og fleiri eft- irmál. Halldór Baldursson er sér- fræðingur í bæklunarlækningum sem hefur I tómstundum grúskað í íslandssögu og birt nokkrar greinar á því sviði. FUNDIR____________________________ 20.00: Jólafundur Kvenréttindafélags ís- lands Hallveigarstöðum, Túngötu 14 í Reykjavík, kjallara. Boðið verður upp á kaffi og jólasmákök- ur, auk þess sem heppnir fundar- gestir fá góðar bækur í vinning í jólahappdrætti KRFÍ. Kynntar verða eftirtaldar bækur: Björg C. Þorláksson eftir Sigrtði Dúnu Kristmundsdóttur, Dömufrí eftir Jónínu Benediktsdóttur Kvenna- slóðir, rit til heiðurs Sigríði Th. Erlendsdóttur, Hátt uppi eftir Hlín Agnarsdóttur og Niko eftir Önnu Gunnhildi Ólafsdóttur. UPPLESTUR_________________________ 20.00: Heitt stríð og kalt er yfirskrift upplestrarkvölds á Súfistanum. Þeir sem lesa úr bókum sínum eru Anna Gunnhildur Ólafsdóttír sem les úr bókinni Niko, Valur Ingimundarson les úr bókinni Uppgjör við umheiminn - fs- land, Bandaríkin og Natól960- 1974 og Herdís Helgadótti sem les úr bókinni Úr fjötrum, ís- lenskar konur og erlendur her. Tl'SKUSÝNING______________________ 20.30: Tískusýning á nýrri fatalínu „Æfði mig að syngja með Ellý Vilhjálms“ Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er aðeins ellefu ára gömul en er búin að gefa út tvær plötur. Hún segist ekki hlusta mikið á íslenska tónlist en hóf söngferil sinn á unga aldri, áður en hún byrjaði að tala. tónlist Jóhanna Guðrún Jónsdótt- ir er aðeins ellefu ára gömul en þrátt fyrir ungan aldur er hún búin að gefa út tvær plötur. Sú fyrri, Jóhanna Guðrún, kom út fyrir jólin í fyrra og var með söluhæstu plötum þá, seldist í rúmum 10.000 eintaka. Seinni platan, Ég sjdlf, kom út fyrir skömmu og inniheldur 12 lög, en þar af eru fjögur þeirra samin sérstaklega fyrir hana. Það eru ekki ómerkari lagahöfundar en Einar Bárðarson, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Magnús Þór Sigmundsson sem lögðu stúlkunni lið. Hún segir það ekki hafa verið öðruvísi að taka upp plötuna í ár þó hún sé orðin reynslunni rík- ari. „Þetta lærist og maður verður aðeins reyndari fyrir vikið en það var ekkert öðruvísi að taka upp þessa plötu.“ Jóhanna Guðrún segir að yfir- leitt sé búið að taka upp lögin þegar hún komi í hljóðverið til að syngja en þar vinnur hún með Maríu Björk Sverrisdóttir og upptökustjóra. Síðast liðnar vikur hefur Jó- hanna Guðrún verið iðin við að troða upp en er þá bara ein á sviðinu og tónlistin spiluð af geisladisk. „Ég syng alveg sjálf en nota JÓHANNA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR Söngkonan unga úr Hafnarfirði stundar nám í Setbergsskóla. Hún segir aðaláhugamál sín vera hunda og hesta. „playback," sagði Jóhanna. „Ég hef verið að syngja einu sinni í viku, kannski oftar, en þá aðallega um helgar. En þetta á líklega eftir að aukast þegar nær dregur jólum.“ Aðspurð hvort það sé ekki erfitt að vera fræg sagði Jó- hanna. „Nei, ég er kannski bara fræg á íslandi, en það er ekkert erfitt. Það fylgir þessu margt en mér finnst það ekkert erfitt því það hefur gengið mjög vel hjá okk- ur. Söngkonan unga segist ekki vera mikið fyrir íslenska tónlist en hlustar helst á dægurlaga- söngkonur líkt og Whitney Hou- ston og Celine Dion. „Þegar ég var lítil hlustaði ég á Ellý Vilhjálms og æfði mig að syngja með henni. Ég byrjaði að syngja áður en ég byrjaði að tala, svona eins árs. Þá söng ég með allskonar lögum bæði úr útvarp- inu og af plötum." kristjan@frettabladid.is Selmu Ragnarsdóttur fatahönn- uðar i versluninni Dýrinu Lauga- vegi 47 í Reykjavík. Þessa nýju línu hefur Selma hannað að hluta í samstarfi við Sigurdísi Hörpu Arnarsdóttur myndlistarmann, sem jafnframt mun opna sýningu á nýjum verkum sínum í verslun- inni. Selma hannar undir merkinu ZELMA og eru efnin í nýju línun- nu sléttflauel og gallaefni. TÓNLEIKAR 20.30: Árlegir Aðventutónleikar Söngsveitarinnar Filharmóníu í Langholtskirkju. Einsöngvari er Sigrún Hjálmtýsdóttir og á efnis- skránni er blanda af sígildum, þekktum lögum og öðrum nýjum eða lítt þekktum hér á landi. Stjórnandi söngsveitarinnar er Bernharður Wilkinson og konsertmeistari á tónleikunum er Rut Ingólfsdóttir. 21.00: í tilefni af útkomu breiðskifunnar Ugly Demos heldur Sofandi ( ásmt gestaleikurum ) útgáfutón- leikar í Vesturporti, Vesturgötu 18 - á horni Vesturgötu og Norðurstígs. 21.00: Djasskvöld í Múlanum, Húsi Mál- arans. Fram kemur Tríó Ásgeirs Ásgeirssonar. 22.00: Bubbi Morthens og hljómsveit- in Stríð og friður leika á Gauk á Stöng. 22.00: Cajun-sveitin Kropparnir leikur á Vídalín v/ Ingólfstorg. Sveitin er að meðaltali 7-10 manna band en meðal hljóðfæra sem brúkuð eru i þessari gleðisveit eru s.s. Bala-bassi, Þvottabretti, pappa- kassar sem leikið er á með upp- þvottabursta, límbandsrúllur, doll- ur og heimatilbúnar hristur ýmis- konar en auk þessa eru stuðst við hefðbundnari hljóðfæri. Marg- radda söngur er einnig hafður í hávegum. Sveitin var sett saman fyrr all nokkru úr hljómsveitum eins og Sóldögg, Pöpunum, Rokkabillybandinu og Vinum Vors og Blóma. *v> BÍLABÚO ræsba 'ara * inlakfttfinnl varahíjutóoj í sjáJfskiprittgar frá Tra»§tsr Eittflig eigum við á Jagar og útvegum Tangarhöfða 2*110 Rvk. uppgef ða Öxia og stýrísmasMnur í flesíar símj 5Ó7-1650 • fax 567-2922 geröjr fram4fifshíJa *rá Rockford - acromatic protlucts wí»’>y,biiabudrabba.is Opflunartími: 08:30 - 18:00 <)pið á iaugardögum til jóla frá kl. 10 - 14 íHAMrtm Mmmm-Sr tm.■ pr*f .. ---------M——ái—I-------I V/ð ítilmítm á Lubegaftl sjáífskipoogabféflefrii scm mielf er rrreft ttf mrnléimrnam ýéifktptíttfp m ttttm tofm, iÆte&ttti bætfcfmtt mftp wtttímatý mp &w afhitmm tfáffoktpfwhw ACROMATJC PRCmtJCTS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.