Fréttablaðið - 11.12.2001, Side 1
ÍÞRÓTTIR
Alveg
ömurlegt ár
KVIKMYND
Nœrmynd
afVigdísi
FOLK
Vandasamt
að vinna með
feit börn
bls 22
HYUNDAI Mu/tifffi
Total IT Solution Provider
Hagkvæm og traust tölva
vfTÆKNIBÆR Skipholti 50C
S: 551-6700 www.tb.ís
Umboðsaðili HYUNDAI á Islandi
FRETTABLAÐIÐ
1 ■J
163. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 11. desember 2001
ÞRIÐJUDAGUR
Skattamál á þingi
ALPINGI Á fundi Al-
þingis í dag lýkur
umræðum um
frumvarp til breyt-
inga á lögum um
tekju- og eignar-
^ skatt. Einnig verð-
ur frumvarp félags-
málaráðherra um húsnæðismál tek-
ið til umræðu, og iðnaðarráðherra
gefur skýrslu um starfsemi
Byggðastofnunar og framvindu
byggðaáætlunar.
Náttúran og borgin
málping Náttúruvernd í og við höf-
uðborg verður umræðuefni mál-
þings á vegum Umhverfisstofnunar
Háskóla íslands og Landverndar
sem fram fer í stofu 101 í Lögbergi
kl. 16 í dag. Freysteinn Sigurðsson,
Þorvaldur S. Þorvaldsson, flytja
framsögu og sitja á pallborði ásamt
Sigrúnu Helgadóttur, Júlíusi V.
Ingvarssyni og Þorbjörgu Hólm-
geirsdóttur.
(víðriðTdacI
REYKJAVÍK Suðvestan
10-15 m/s og stöku skúrir.
Hiti 5 til 10 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður Q 10-15 Skúrir ©8
Akureyri Q 10-18 Skýjað Q 8
Egilsstaðir Q 13-18 Súld Ql
Vestmannaeyjar g) 10-15 Skúrir Q8
Keppt í hönnun
og hugviti
keppni Nemendur Hagaskóla, Rétt-
arholtsskóla og Fellaskóla etja
kappi í hönnunar- og hugvitskeppni
sem fram fer í hátíðarsal Réttar-
hoítsskóia kl. 19.30.
Aðventutónleikar
tónleikar Kvenna-
kór Reykjavíkur
heldur árlega að-
ventutónleika í
Hallgrímskirkju kl.
20. M.a. verður
frumflutt verk eft-
ir Báru Grímsdótt-
ur, sem er sérstaklega samið fyrir
kórinn.
1KVÖLDIÐ í KVÖLD|
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára
íbúar á höfuð-,
borgarsvæð-
inu í dag?
60,8%
Meðallestur 25 til 49
ára á þriðjudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2001
70.000 eintok
65% fólks ler> blaðíö
MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001.
Aðgerðir stefna að
3% verðbólgu 2002
ASÍ, ríkisvald og atvinnulíf. ASI samþykkir að fresta uppsögn samninga fram í maí. 0,25% við-
bótarhækkun launa 2003, dregið úr hækkun tryggingagjalds, erlent lán fyrir innlendum skuld-
um, viðbótarlífeyrir, skattalækkun á grænmeti og aukin framlög í verðlagseftirlit.
kiarasamningar Talið er að hægt
sé að koma verðbólgunni niður í
3% á næsta ári ef hrint verður í
A framkvæmd þeim
tillögum sem for-
usta ASÍ hefur
verið að ræða við
fulltrúa ríkisvalds
og atvinnulífs og
reifaðar voru á
formannafundi
ASÍ í gær. Það er
þó háð því að
verkalýðshreyf-
uppsögn á launalið
Talið er
að áformaðar
tollalækkanir
á grænmeti
muni lækka
verðbólgu um
0,2 - 0,3% á
næsta ári.
,-.»4.-...,
ingin fresti
kjarasamninga um þrjá mánuði,
eða til maí 2002 en samþykkt þess
efnis var gerð á formannafundi
ASÍ í gær með fyrirvara um að
Samtök atvinnulífsins samþykki
þær forsendur sem á þess valdi
eru. Á fundinum kom fram að
þessi frestun sé tæknilega fram-
kvæmanleg án þess að þurfa að
bera það undir félagsfundi í hér-
aði. Hins vegar voru afar skiptar
skoðanir til þess hvort fresta eigi
uppsögninni eða ekki.
Meðal þeirra aðgerða sem rætt
hefur verið um að ráðist verði í til
að slá á verðbólgu, lækka verðlag,
styrkja krónuna og stuðla að
vaxtalækkun er að ríkissjóður
taki erlent lán til að greiða niður
innlend lán. Engin upphæð var
nefnd í því sambandi en tillögur
ASÍ frá því í sumar gera ráð fyrir
eitthvað um 20 milljörðum í þessu
skyni. Þá er rætt um að trygg-
ingagjald hækki um 0,50% í stað
0,77% og bætt verði 0,25% launa-
hækkun við áður umsamdar
hækkanir sem eiga að koma til
framkvæmda í ársbyrjun 2003.
Jafnframt er rætt um frjálsan og
ótollaðan innflutning á tómötum,
agúrkum og paprikum og tolla-
lækkun á útiræktuðu grænmeti.
Þessi grænmetisþáttur er metinn
á 0,2 - 0,3% lækkun á verðbólgu á
næsta ári. Einnig er vilji til þess
að ríkisstjórnin gefi út yfirlýs-
ingu um að vinna að samræmingu
á kjörum félagsmanna stéttarfé-
Iaga á álmennum markaði og þeir-
ra sem eru í opinberum félögum
sem vinna sambærileg störf hjá
ríkinu. Ennfremur er rætt um að
festa annað af tveimur prósentum
sem atvinnurekendur greiða í við-
bótarlífeyrissparnað án þess að
launamaðurinn þurfi að fara sér-
staklega fram á það. Þá hefur ver-
ið rætt um að ríkið hækki framlag
sitt til Fræðslumiðstöðvar at-
vinnulífsins og sömuleiðis til
verðlagseftirlits.
grh@frettabladid.is
SKIPBROTSMAÐURINN OC LÍFGJAFINN Eyþór Garðarsson, skipbrotsmaður af Svanborgu SH-404, og fjölskylda hans hittu Iffgjafa Ey-
þórs, Jay Lane, sigmann í Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, í myndveri Stöðvar 2 í gærkvöldi. Á myndinni eru einnig dætur Eyþórs, María
Rún og Agnes Sif og flugstjóri varnarliðsþyrlunnar, Javier Casanova, sem er lengst til hægri.
Djúpmyndir og Ocean Futures í málaferlum:
Vilja fá greidda leigu fyrir
akkeri Keikós í Klettsvík
| PETTA HELST |
Verðmunur á lyf jum í apótek-
um hérlendis er á bilinu 25-
325% sámkvæmt könnun sem
ASÍ gekkst fyrir.
bls. 2.
Islenskri erfðagreiningu hefur
verið'stefnt fyrir dóm í
Bandaríkjunum af hópi hluthafa
sem keyptu hlutabréf í fyrir-
tækinu frá 17. júlí til 6. desem-
ber á síðasta ári og telja að
rangar upplýsingar hafi komið
fram í frumútboði.
bls. 8.
Afengisheildsalar eru óánægð-
ir með breytingar á gjald-
töku, sem gera ráð fyrir að
ÁTVR taki upp 5.000-40.000 kr.
gjald fyrir nýjar tegundir, sem
teknar verða til sölu.
bls. 4.
300.000 kr.
sólarferð með Úrval-Útsýn
fyrir 300 kr. ?
ipiÉ! mm
keikó „Við teljum okkur eiga rétt á
leigu vegna akkeranna,“ segir
Stefán Víðir Martin, eigandi Djúp-
myndar ehf., en fyrirtækið hefur
stefnt stofnuninni sem fer með
forræði Keikós, Ocean Futures,
fyrir Héraðsdómi Suðurlands þar
sem krafist er viðurkenningar á
kröfu um leigu fyrir búnaðinn.
Um er að ræða akkeri sem halda
kvínni í Klettsvík við Heimaey,
heimili Keikós, á sínum stað. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins nema
kröfurnar um 100.000 krónum á
mánuði frá árinu 1999, eða um
þremur milljónum króna.
KEIKÓ
Háhyrningurinn vill vera á meðal manna
og kærir sig koilóttan um allan ágreining.
Keikó-stofnunin hafnar alfarið
málatilbúnaði Djúpmyndar og
segir félagið mistúlka samning
þeirra í millum. „Af einhverjum
ástæðum telja þeir sig eiga kröfu
um leigugreiðslur en ekkert slíkt
kemur fram í samningnum,“ segir
Reimar Pétursson, lögmaður Oce-
an Futures, og áréttar að þar sé
kveðið á um eina greiðslu fyrir af-
not af akkerunum sem fyrir löngu
hafi verið greidd.
Sem kunnugt er var fallið frá
áformum um að sleppa Keikó út í
náttúruna, eftir ítrekaðar tilraun-
ir. Leit stendur yfir að framtíðar-
heimili, en Klettsvíkin er ekki tal-
in hentug m.a. vegna fyrirhugaðs
fiskeldis þar. ■
SímaLottó!
Hringdu strax í
907-2000
DregÍS alla fimmtudaga. Fylgttu rmift á RÚV.
Ekki missa af vinningi!
I’*r scnt viniiitignniirf.ist