Fréttablaðið - 11.12.2001, Page 12
©
Jólagjöf
LAGERSALA
gott verð
Gæsaskyttirí
heima í stofu.
Myndvarpinn
varpar myndinni
af bráöinni
á vegginn
og riffillinn er
tengdur
myndinni, þegar
þú hittir fellur
bráðin til jarðar.
Hörkuspennandi
og skemmtilegt
verkfæri.
áðurkr. 12.900,-
Nú kr.
1490,-
Opnunartími:
Glæsilegt
úrval
af drögtum
til jólagjafa
I.Guðmundsson ehf.
Skipholti 25 • 105 Reykjavík
Bill sem
gefur frá
sér hljóð,
mótorhljóð,
flautar
og fleira.
Mánud.-föstud. kl. 13 -17
Frábær tilboð - Þú mátt ekki missa af þessu
Hundurinn
sem geltir
og hleypur um -
hann er meö
fjarstýringu.
voff
I'Off
FRETTABLAÐIÐ 11. desember 2001 þriðjudagur
Vandi feitra barna til umræðu á Alþingi:
Verði undir væng For
varnastofnunar
heilbricðismál Forvarnastofnun,
sem unnið er að því að setja á
stofn, þyrfti að taka á offituvand-
anum, að mati Ástu Möller, þing-
manns Sjálfstæðisflokks. Hún
segir of fá sértæk úrræði vera til
fyrir börn og ungmenni sem eiga
við offituvandamál að stríða og
vildi með fyrirspurn til heilbrigð-
isráðherra á þingi í síðustu viku
vekja sérstaka athygli málefninu.
„Þetta eru krakkar sem oft lenda í
einelti og loka sig töluvert af. Af
því þetta eru börn þurfa þau hjálp
við þennan vanda, ólíkt fullorðn-
um sem geta frekar sjálfir haft
frumkvæði að því að leysa sinn
vanda. Börnin þurfa að fá stuðn-
ing frá foreldrum sínum, og þau
ráða jafnvel minnstu sjálf um
neysluvenjur sínar. Foreldrarnir
ákveða hvaða fæðu er haldið að
þeim og hvort þau eru hvött til
hreyfingar eða annars slíks,“
sagði hún og taldi ljóst að stuðn-
ingsúrræði þyrftu að ná til fjöl-
skyldunnar allrar. „í svari ráð-
herra komu frekar fram almenn
úrræði auk úrræða fyrir full-
orðna, en Gaui litli hefur verið
ÁSTA MÖLLER
Ásta segir að nýleg íslensk rannsókn sýni
að milli 1.500 og 2.000 börn á grunn-
skólaaldri, sem eru 5 %, teljist of feit og
eigi í verulegum vanda vegna þess. 6 til
7.000 séu hins vegar of þung eða 20 %..
með námsskeið fyrir þessa krak-
ka og það virðist skipulagt undir
handleiðslu Manneldisráðs og
með stuðningi Landlæknis." ■
Kári vinnur hálfan
Breskur ráðherra um bin Laden:
sigur í húsadeilu
Stækkun byggingarreits fyrirhugaðs einbýlishúss Kára Stefánssonar í
Skeljatanga hefur verið úrskurðuð lögmæt. Urskurðarnefndin á hins
vegar eftir að taka endanlega afstöðu til byggingarleyfis hússins sjálfs en
hefur áður sagt það vera ólöglegt.
skipulacsmál Kári Stefánsson
hefur unnið áfangasigur í baráttu
sinni fyrir að fá að reisa 540 fer-
metra líparítklætt einbýlishús á
lóðinni við Skeljatanga 9.
Úrskurðanefnd skipulags - og
byggingarmála segir ákvörðun
Reykjavíkurborgar um að heimila
stækkun byggingarreits á lóðinni
og breyta deiliskipulagi hennar í
því skyni hafa verið lögmæta.
Byggingarreiturinn var stækkað-
ur um átta metra
til austurs og ell-
efu metra til suð-
urs og telur úr-
skurðarnefndin
viðbótina vera
minniháttar breyt-
ingu á deiliskipu-
laginu og ekki
óeðlilega með til-
liti til stærðar lóð-
arinnar og legu
hennar.
Úrskurðar-
nefndin segir að
hús Kára verði
innan marka aðalskipulags að því
tilskildu að byggt sé innan gild-
andi skipulagsskilmála að öðru
leyti.
Það er einmitt þetta síðast
talda sem er sá meginþáttur
málsins sem nefndin á enn eftir
að taka afstöðu til því kærend-
urnir telja húsið eiga að vera of
háreist til að rúmast innan gild-
andi skipulags og því hafi bygg-
ingarfulltrúa borgarinnar verið
óheimilt að gefa út byggingar-
leyfi fyrir því.
Eins og komið hefur fram var
grunnurinn að húsi Kára tekinn í
......-
Úrskurðar-
nefndin segir
að hús Kára
verði innan
marka aðal-
skipulags að
því tilskildu að
byggt sé inn-
an gildandi
skipulagsskil-
mála að öðru
leyti.
—♦—
LÓÐ KÁRA STEFÁNSSONAR
Framkvæmdir liggja enn niðri við byggingu einbýlishúss Kára Stefánssonar í Skeljatanga 9
þrátt fyrir áfangasigur hjá úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.
sumar en úrskurðarnefndin
stöðvaði framkvæmdirnar í lok
júlí að kröfu nágrannanna. Þá
taldi nefndin sýnt að húsbygging-
in stangaðist á við lög:
„Þegar byggingarnefndar-
teikningarnar að hinni umdeildu
byggingu eru bornar saman við
gildandi skipulagsskilmála verður
ekki annað séð en að við hönnun
byggingarinnar hafi verið vikið
frá skilmálunum í veigamiklum
atriðum. Mestur hluti gólfflatar
hússins er í lágmarkshæð, sem
ekki virðist samræmast skilmál-
um um hæð aðalgólfplötu. Stöllun
tekur til mun meira en helmings
grunnflatar og er húsið meira en
að hálfu leyti á tveimur hæðum.
Verður ekki annað ráðið en að í
þessum efnum hafi verið vikið
verulega frá skipulagsskilmálum.
Eins og málið liggur fyrir virðist
hið umdeilda byggingaleyfi því
ekki fullnægja lagaskilyrðum,"
sagði í úrskurði nefndarinnar í
júlí.
gar@frettabladid.is
Ekki framseldur fyrir dauðarefsingu
stríð cecn hryðjverkum Bretar
myndu framselja Osama bin
Laden til bandarískra dómstóla
aðeins ef tryggt yrði að hann
myndi ekki hljóta dauðarefsingu.
Þetta sagði Geoff Hoon, varnar-
málaráðherra Bretlands, í viðtali
á sjónvarpsstöðinni BBC í fyrra-
kvöld. „Bandaríkin er rétti staður-
inn fyrir réttarhöld yfir þeim sem
stóðu að baki hryðjuverkaárásun-
um þann 11. september, jafnvel
þótt einhverjir þeirra yrðu hand-
samaðir af breskum hersveitum,"
sagði Iioon. Bretar eru aðilar að
mannréttindasáttmála Evrópu-
ráðsins og mega því ekki fram-
selja sakamenn til annarra landa
nema tryggt sé að þeir muni ekki
verða teknir af lífi, en þess má
geta að dauðarefsing er leyfileg í
37 ríkjum Bandaríkjanna. Spán-
verjar og Þjóðverjar hafa þegar
HERMAÐUR
Bandarískur hermaður í Afganistan stendur vaktina. Handsami breskir hermenn bin Laden
er ekki víst að hann yrði framseldur til Bandaríkjanna.
neitað að framselja menn grunaða vegna hættu á að þeir hljóti
um hryðjuverk til Bandaríkjanna dauðarefsingu. ■