Fréttablaðið - 27.12.2001, Page 1

Fréttablaðið - 27.12.2001, Page 1
Á SJÓ Hamborgar- hryggur og hangikjöt bls 10 _ ÍÞRÓTTIR Ralf verður að bœta sig LEIKHÚS Allir með sitt nef bls 18 HYUNDAI Multitfp) Total IT Solullon Provider Hagkvæm og traust tölva OTÆKNIBÆR Skipholti 50C S: 551-6700 www.tb.is Umboðsaðili HYUNDAI á íslandi FRETTABLAÐIÐ : 174. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík - sími 515 7500 Fimmtudagurinn 27. desember 2001 FiMIVITUDAGUR Verkalýðsfélag heiðrar útgerðir verðlaun Verkalýðsfélag Húsavíkur heiðrar í dag útgerðirnar Geira Péturs og Langanes fyrir framlag til atvinnuuppbyggingar í bænum og þakkar góð samskipti. Þetta er í fyrsta skipti sem félagið heiðrar at- vinnurekendur og verður haldin móttaka til heiðurs útgerðunum. íþróttamaður ársins íþróttir íþróttafréttamenn tilkynna val sitt á íþróttamanni ársins. Með- al þeirra sem urðu í 10 efstu sæt- unum voru Örn Arnarson, Guðni Bergsson og Þórey Edda Elísdóttir. "TvEÐRIÐ i dag| REYKiAVÍK Norðan 10-15 og snjókoma eða él. Léttir til þegar liður á daginn. Frost 5 til 10 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI isafjörður O 10-15 Él O5 Akureyri O 8-13 Snjókoma O - Egilsstaðir o 8-13 Él O Vestmannaeyjar O 10-15 Skýjað O8 Gúndagangan fyrir fórnarlömb umferðarslysa ganga Gúndaganagan verður farin í þriðja skipti kl. 17 í dag, á þrifjgja ára dánarafmæli Guðmundar Isars Ágústssonar, sem lést 12 ára gam- all í bílslysi. Lagt verður af stað frá Neskirkju, að loknum tónleikum, þar sem þekktir tónlistarmenn koma fram. Með tónleikunum og gðngunni er minnt á fórnarlömb umferðarslysa. Flugeldadagar hefjast flugeldar Flugeldasala hefst með hvelli í dag en þetta er eina vika ársins þar sem stunda má viðskipti með rakettur, blys, stjörnuljós, kökur og púðurkellingar. 1KVÖLDIÐ í KVÖLD Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 Iþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára borgarsvæð- inu í dag? 61,9% 'O JO <5 Meðallestur 25 til 49 <0 ra (Z ja 28,7% ára á fimmtudögum S c samkvæmt a 3 ÉP fjölmiðlakönnun Gallup frá O > október 2001 u. 2 □ 70.000 eintök 65% fólks les blaðið MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001. Trúnaðarlæknir segir pólitík ógn við flugöryggi á Islandi Flugmálastjóri hefur vikið trúnaðarlækni stofnunarinnar úr starfi á meðan rannsókn fer fram á störf- um hans. Læknirinn segir brottvikninguna vera að undirlagi samgönguráðuneytis og að alvarlegt sé fyrir flugfarþega að pólískt vald ákveði hverjir teljist hæfir til að stjórna 200 manna flugvélum. stjórnsýsla Þengli Oddssyni, trún- aðarlækni Flugmálastjórnar, hefur verið vikið úr starfi á meðan rann- sókn fer fram á embættisfærslu hans. Þengill neitaði að víkja sjálfur eftir að stjórn Félags íslenskra at- vinnuflugmanna (FÍA) hafði krafist brottvikningar hans. FÍA telur Þengil hafa brotið af sér með því að hafa ekki endunýjað heilbrigðisvott- orð tiltekins flugmanns sem, sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, fékk blóðtappa í höfði fyrir þremur árum. „Mér skilst að þetta sé gert að kröfu samgönguráðuneytisins sem telji að ég hafi óhlýðnast þeim. Það er alvarlegt fyrir flugfarþega að pól- ískt vald á íslandi skuli geta ákveðið hvort einhver sé nógu heilbrigður til að stjórna 200 manna flugvél eða ekki. Það held ég að önnur ríki sem við eigum í samstarfi við líti mjög alvarlegum augum,“ segir Þengill Oddsson. Þengill segir sér hafa komið á óvart að Þorgeir Pálsson flugmálastjóri vék honum tímabundið úr starfi enda sé hægt að gera rann- sókn án þess að menn séu látnir fara frá: „Ég tel mig vera fulltrúa farþega og þeirra sem geta orðið fyrir tjóni á jörðu niðri og tel mig vera að gera 100 prósent rétta hluti. Starf mitt hefur verið tekið út af erlendum þjóðum og þær eru sammála mér í hvívetna. Það er al- varlegt að hlaupa á eftir dyntum hagsmunafélags og ráðherra og FÍA verða að skýra út hvað ég hafi brotið af mér. Ég gaf þessum flugmanni ekki stimpil því hann stenst ein- faldlega ekki þær kröfur sem gerðar eru um heilbrigði samkvæmt íslenskum lögum og reglum,“ segir Þengill. Eftir að Þengill hafði neit- að að endurnýja heilbrigðis- vottorð flugmannsins voru fyrr á þessu ári fengnir þrír sérfræðingar til að meta heilsufar hans og stóðst hann þá skoðun. Þengill segir margt í læknisfræði vera matsatr'iði. „Það er ekkert við því að segja þó aðrir komist að öðr- um niðurstöðum en fluglæknisfræði byggir öll á öryggiskröfum,“ segir hann. Franz Ploder, formaður FÍA, seg- ir að sér hafi enn ekki verið kynnt ákvörðunin um brottvikningu Þeng- ils. „Ég veit ekkert um læknisfræði en veit það að flugmaðurinn á að fá skírteinið sitt aftur samkvæmt þeim reglum sem gilda á íslandi. Okkar krafa er enn sú að Þengill verði rek- inn og að flugmálastjórn biðjist af- sökunar og borgi þann mikla lög- fræðikostnað sem við höfum haft af þessu. Við höfum hins vegar enn engin svör fengið,“ segir Franz. gar@frettabladid.is Ég gaf þessum flugmanni ekki stimpil því hann stenst einfaldlega ekki þær kröf- ur sem gerðar eru um heil- brigði. Fæðingar yfir jólin: Jólastelpa á aðfangadag fólksfjölgun Lítil stúlka fæddist á Landsspítalanum rétt um það leyti sem jólin gengu í garð. Jólastúlkan var ein af sex börnum sem fædd- ust þennan dag. Á fæðingardeild fengust þær upplýsingar að 5 börn hefðu fæðst á jóladag og í gær- kvöldi átti starfsfólkið von á 6. jólabarninu þann daginn. Þá hefur 21 barn fæðst þessa þrjá jóladaga. Samkvæmt hjúkrunarfræðingi á fæðingardeildinni hafa 176 börn fæðst í desember og telst það vera frekar rólegur mánuður. Venju- lega fæðast yfir 200 börn. Búist er við sprengju í janúar með nálægt 250 fæðingum sem er langt yfir meðallag. Ekkert getur skýrt þessa sveiflu nema kannski að for- eldrar séu orðnir það vel skipu- lagðir að þeir vilji ekki standa í barnafæðingum yfir jóladagana. ■ Ermasundsgöng: 550 flóttamenn stöðvaðir flóttamenn Lögregla beitti tára- gasi til að hefta för 550 flótta- manna sem héldu fótgangandi í gegnum Ermasundsgöngin áleiðis til Bretlands á jóladagskvöld. Flóttamennirnir, sem flestir eru Kúrdar eða Afganar, komu úr búð- um Rauða krossins í strandbænum Sangatte í Frakklandi þar sem dvelja um 1000 manns. Þeir brutu sér leið úr búðunum og fóru í tveimur hollum inn í göngin. Var umferð um göngin stöðvuð á með- an á þessu stóð. Að sögn yfirmanns Eurotunnel, rekstrarfélags gangn- anna, var engin von til þess að flóttamönnunum tækist ætlunar- verk sitt. Sagði hann augljóst að flóttamennirnir hefðu með þessu viljað vekja athygli fjölmiðla á málefnum flóttamanna. ■ HVfT JÓL. Jólasnjórinn féll á höfuðborgarbúa á jólanótt. í gær snjóaði linnulaust og var jólalegt um að litast í kyrru veðri. Verslunin: Utsölur á fyrsta virka degi eftir jól neytendur Heimilistæki og nokkr- ar aðrar verslanir hafa auglýst út- sölur hjá sér á fyrsta virka degi eftir jólaverslunina. Einhverjum kann að þykja þetta heldur fljótt á stað farið en Sigurður Björnsson framkvæmdastjóri Heimilistækja segir að þetta sé ekkert nýtt hjá þeim því þar hefur verið útsala á þessum árstíma á undanförnum árum. í ár bjóða þeir allt að 60% afslátt af vöruverði einstakra tækja. Hann segir að það sé dýrt að hafa birgðir og m.a. vegna þeir- ra háu vaxta sem verslunin býr við um þessar mundir. Sigurður segir að verslunin fyrir þessi jól hafi verið svipuð og í fyrra, eða frekar góð. Helsta breytingin í ár frá fyrra ári hefði einkum verið sú að fólk keypti minna af dýrum tækjum en oft áður og því meira af vörum í svo- nefndum milliverðum og einnig vörur í ódýrari kantinum. Hann segir að fyrri útsölur hjá þeim á þessum árstíma hafi gefist vel. Aðspurður segir hann að það sé misjafnt hvort fólk bregðist ókvæða við að sjá útsöluverð á tækjum nokkrum dögum eftir að það hafði keypt þau á öðru verði fyrir jólin. Þá séu aðrir farnir að reikna með þessum útsölum í sín- um innkaupum vegna jóla- og ára- móta. ■ Tí»etta HELST I Spenna hefur stigmagnast við landamæri Indlands og Pakist- ans og var barist þar í gær. Með- aldræg flugskeyti beggja herja eru sögð í viðbragsstöðu. bls. 2. —♦— Spáð er að atvinnuleysi aukist umfram hefðbundna árstíðar- sveiflu og verði 2 - 3% á næstu mánuðum. bls. 4. 000 manns hafa yfirgefið heimili sín vegna skógarelda í nágrenni Sydney í Ástralíu. Eldar loguðu á um 100 stöðum í gær. bls. 2. —♦— Verslun og þjónusta greiða um 40% opinberra gjalda lögað- ila, iðnaður um 24% útgerðin 4,5%, fiskvinnslan 4% og land- búnaður tæplega 1%. bls. 2.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.