Fréttablaðið - 27.12.2001, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
27. desember 2001 FIMMTUDAGUR
HVflÐfl BÓK ERTU AÐ LESA?
Les ævisögu
Shaun Ryder
„Ég er að lesa ævisögu Shaun Ryder, fyrrum
söngvara Happy Mondays. Hún byrjar mjög
vel, ég er bara búinn með tvo fyrstu kafl-
anna."
Krummi Björgvinsson
Söngvari Mínus
LEIKSTJÓRINN
Peter Jackson leikstjóri vonast til að hægt
verði að komast að samkomulagi við erf-
ingja JJR Tolkien.
Peter Jackson, leikstjóri
Hringadróttinsögu:
Vill koma á
fót Hringa-
dróttinsafni
safn Leikstjóri myndanna um
Hringadróttinsögu, Peter
Jackson, vonast til að geta sett
upp safn þar sem sýndir verða
leikmunir og búningar sem notað-
ir voru við framleiðslu myndanna.
Að sögn Jacksons hefur dánarbú
JJR Tolkien, höfundar sögunnar,
reyndar sett sig upp á móti hug-
myndinni en leikstjórinn vonast
engu að síður að hægt verði að
komast að samkomulagi. Fyrsta
kvikmyndin í röðinni af þremur
hefur fengið frábæra dóma og er
von til þess að hún slái út Harry
Potter myndina hvað varðar að-
sókn. Allir leikmunir fyrir
Hringadróttinsögu voru hand-
gerðir sérstaklega fyrir myndirn-
ar. Má þar nefna 900 brynjur,
hundruð vopna og næstum 50 þús-
und annarra leikmuna, allt frá
beltissylgjum til bjórkrúsa. Segir
Jackson að aðdáendur eigi heimt-
ingu á að berja gripina augum.
Þess má geta að höfuðborg Nýja
Sjálands, Wellington, hefur nú
fengið nýtt nafn í eina viku og
heitir eftirleiðis Miðgarður í til-
efni af frumsýningu myndarinnar.
Hafa yfirvöld merkt höfuðstaðinn
í bak og fyrir með vísan í söguna
heimsfrægu. Meðal annars eru
frímerki í pósthúsum borgarinnar
merkt Miðgarði og bera einkenn-
ismerki myndanna. ■
„Ætli ég eigi ekki tæplega 100
matreiðslubækur á íslensku,
ensku og frönsku. Sú nýjasta
heitir Seiðandi saltfiskur og
þorskréttir þjóðanna. Mér líst vel
á uppskriftirnar og bókin er
skemmtileg aflestrar. Ég hef ekki
séð svona frumlega íslenska
matreiðslubók síðan eftir kenjum
kokksins eftir Rúnar Marvinsson
kom út.“ Áslaug Eva Guð-
mundsdóttir í viðtali í Vikunni 11.
desember sl.
Hér eru 3 af 44 matreiðendum í
bókinni þar á meðal Rúnar Mar-
vinsson en 4 opnur eru tileikað-
ar honum.
Bók sem gott er að
eiga eftir jólin.
Tónleikar Thule musik og Mysufélagsins:
Allur ágóði til Mæðra-
styrksnefndar
tónleikar „Þetta byrjaði þannig að
strákarnir í Mysufélaginu í MR
komu til okkar og viðruðu hug-
mynd um tónleika til styrktar
Mæðrastyrksnefnd. Við ákváðum
að taka þetta alla leið og gera tón-
leikana stærri en hugmyndin var
upphaflega og margar helstu
hljómsveitir okkar koma því
fram á tónleikunum í kvöld,“ seg-
ir Þórhallur Skúlason hjá Thule
musik. Útgáfan stendur í kvöld í
samvinnu við Mysufélagið fyrir
tónleikum á Gauk á Stöng. Tón-
leikarnir hefjast kl. níu og að-
gangseyrir, sem er 1.000 krónur,
rennur óskiptur til Mæðrastyrks-
nefndar.
„Fram koma hljómsveitirnar
The Funerals, Exos, Trabant, Sof-
andi og The worm is green en
þær hafa allar að þeirri síðustu
undanskilinni gefið út geisladisk
hjá útgáfunni á árinu,“ segir Þór-
hallur sem er mjög ánægður með
árið hjá Thule musik.
„Við höfum gefið út meira af
geisladiskum á árinu en áður,
hingað höfum við aðallega gefið
út plötur. Á næsta ári ætlum við
að tvöfalda útgáfuna, við stefn- the funerals spila I kvöld
um á að vera stærstir," segir Þór- „Mikill áhugi er fyrir þeim erlendis" segir
hallur að lokum. ■ Þórhallur Skúlason.
FIMMTUPAGURINN
27. DESEMBER
TÓNLEIKAR___________________________
21.00: Tónleikar Thule-útgáfunnar og
Mysufélagsins á Gauk á Stöng.
Meðal listamanna sem koma
fram eru Funerals, Trabant og
Sofandi. Allur ágóði rennur til
styrktar Mæðrastyrksnefnd.
23.00: Hljómsveitin Gullfoss leikur á
Vídalín. Hljómsveitina skipa þeir
Sigurður Gröndal, gítarleikar,
Besti, trommuleikar, Golli Rotta,
Hljómborðsleikari, Zúkki Pé,
bassaleikari og síðast en ekki síst
Eyjólfur Kristjánsson, söngvari
og gítarleikari. Þetta band mun
víst áður hafa gengið undir nafn-
inu Sköndlarnir en það mun hafa
staðið þeim fyrir þrifum og þeir
þv( breytt um nafn.
LEIKHÚS_____________________________
20.00: Leikritið Cyrano de Bergerac
sýnt á stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins.
20.00: Leikritið Fjandmaður fólksins sýnt
á stóra sviði Borgadeikhússins.
SÝNINGAR____________________________
Maður, lærðu að skapa sjálfan þig
heitir sýning um sögu Bjargar C. Þor-
láksson sem stendur yfir í Þjóðarbók-
hlöðunni. Það er Kvennasögusafnið
sem setur sýninguna upp.
Handritasýning í Stofnun Árna Magn-
ússonar, Arnagarði við Suðurgötu.
Handritasýning er opin kl. 14 -16 þriðju-
daga til föstudaga.
MYNDLIST____________________________
í Listasafni íslands stendur nú yfir yfir-
litssýning sem ber heitið "íslensk
myndlist á 20. öld". Sýnd eru verk í
eigu safnsins eftir 38 íslenska listamenn.
Sá elsti er Þórarinn B. Þorláksson en
sá yngsti Sigurður Árni Sigurðsson.
Sýningin veitir gestum gott tækifaeri til
að fá yfirlit yfir margt það helsta í ís-
lenskri myndlist um 100 ára skeið. ( sýn-
ingarskrá er gerð grein fyrir stefnum og
straumum sem höfðu áhrif á /slenska
myndlistarmenn og verk þeirra sett í
innlent og erlent samhengi. Safnið er
opið alla daga nema mánudaga, 11-17.
Sýningin stendur til 15. janúar.
1 Ófeigi, Skólavörðustíg 5, sýna lista-
menn sem reka gallerí Meistara Jakob í
sama húsi, til janúarloka. Listamennirnir
eru Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdótt-
ir, grafík, Auður Vésteinsdóttir, listvefn-
aður, Elísabet Haraldsdóttir, leirlist
Guðný Hafsteinsdóttir, leirlist Kristín
Sigfríður Garðarsdóttir, leirlist Kristín
Geirsdóttir, málverk, Margrét Guð-
mundsdóttir, graffk Sigrfður Agústs-
dóttir, leirlist Þorbjörg Þórðardóttir,
listvefnaður Þórður Hall, málverk.
Gjörningaklúbburinn sýnir ný verk í
gallerí@hlemmur.is, Þverholti 5.
Gjörningaklúbbinn skipa þær Eirún
Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og
Sigrún Hrólfsdóttir. Galleríið er opið
fimmtudaga til sunnudaga. Sýningin
stendur til 6. janúar 2002.
Benedikt S. Lafleur sýnir verk í Gallerí
Reykjavík, Skólavörðustíg 16. Sýningin
stendur til 31.des.
i Listasafni Reykjavíkur-
Kjarvalsstöðum stendur yfir sýningin
Leiðin að miðju jarðar. Það er sýning
tékkneskra glerlistamanna, sem eru
meðal þeirra fremstu í heiminum.
Kjarvalsstaðir eru opnir alla daga 10-17
og miðvikudaga 10-19. Sýningin stendur
til 13. janúar 2002.
Myndlistarmennirnir Jón Sæmundur
Auðarson og Páll Banine hafa opnað
sýninguna „Séð og heyrt" í Gallerí
Skugga, Hverfísgötu 39. Opnunartími er
kl. 13 til 17 alla daga nema mánudaga.
Sýningin stendur til 31. desember.
Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir málverk á
Kaffi Mokka við Skólavörðustíg.
Allir með sitt nef
Stefán Karl Stefánsson og Rúnar Freyr Gíslason fara með aðalkarl-
hlutverkin í leikritinu Cyrano frá Bergerac. Þeir voru í sama bekk í
Leiklistarskólanum og hafa oft leikið saman síðan. Ein augngota næg-
ir til að þeir skilji hvor annan segja vinirnir sem ekki vilja meina að
þeir séu orðnir leiðir hver á öðrum, ekki alvarlega að minnsta kosti.
CYRANO FRÁ BERGERAC:
ÞÝÐANDI: Kristján Árnason
LEIKSTJÓRl: Hilmar Jónsson
LÝSING: Björn Bergsteinn Guðmundsson
BÚNINGAR: Þórunn María Stefánsdóttir
LEIKMYND: Finnur örn Arnarson
TÓNLIST: Hjálmar H. Ragnarsson.
FLYTJENDUR: Rússibanar.
leikrit „Við eigum mjög auðvelt
með að leika saman,“ segja þeir
Stefán Karl og Rúnar Freyr. „Við
þurfum ekki annað en að senda
hvor öðrum augngotu til að koma
einhverju til skila,“ segir Rúnar
Freyr. „Við erum líka óhræddir
við að krítísera hvor annan,“
bætir Stefán Karl við. Þeir félag-
ar deila líka búningsherbergi í
Þjóðleikhúsinu. „Við erurn búnir
að skreyta það franska fánanum
til að fá réttu stemmninguna,"
segja þeir og vilja alls ekki
meina að þeir séu orðnir leiðir
hvor á öðrum, ekki að ráði að
minnsta kosti segja þeir og skot-
in sem fljúga í spjallinu benda
einmitt til þess að þeir séu ansi
góðir vinir.
Franska stemmningin í bún-
ingsherbergi Stefáns Karls og
Rúnars Freys á rætur sínar að
rekja til leikritsins Cyrano frá
Bergerac sem frumsýnt var í
gærkvöld í Þjóðleikhúsinu. Þar
fer Stefán Karl með titilhlutverk
en Rúnar Freyr leikur Christian.
„Þeir eru í sömu herdeild og
kynnast þar. Christian er alger
sveitamaður og kannski ekki allt
of gáfaður, þó hann sé ekki sami
vitleysingurinn og látið var í
veðri vaka í kvikmynd Steve
Martins, Roxanne, sem byggir á
leikritinu" útskýrir Rúnar Freyr.
„Cyrano er ástfanginn af
Roxönu, sem hann hefur þekkt
frá blautu barnsbeini. Hann þor-
ir hins vegar ekki að reyna við
STEFÁN KARL OG RÚNAR FREYR
Bítast um Roxönu í verkinu Cyrano de Bergerac eftir Edmond Rostand, sem frumsýnt
var í gær í Þjóðleikhúsinu. Hlutverk hennar er i höndum Nönnu Kristlnar Magnúsdóttur
sem var með þeim í bekk í Leiklistarskólanum.
hana, hann er með risastórt nef
og hefur mikla minnimáttar-
kennd þess vegna. Hann fær því
Christian til þess, en semur fyrir
hann bónorðsbréfin," heldur
Stefán Karl áfram. Það er ekki
að sökum að spyrja, Roxana
verður ástfangin af biðlinum
sem hefur útlit Christians, en
mælsku Cyranos. „Þessi leikur
þeirra fer úr böndunum," segir
Rúnar Freyr sem leggur áherslu
á að verkið sé rómantískt; fyndið
og dramatískt segir Stefán Karl
og báðir eru þeir sammála um að
þetta aldargamla verk eigi upp á
pallborðið í dag. „Þetta verk
fjallar eiginlega um það að mað-
ur eigi ekki að dæma bók eftir
bókarkápunni," segir Rúnar
Freyr. „Hilmar leikstjóri lýsti
þessu nokkuð vel um daginn þeg-
ar hann sagði: „Við erum öll með
okkar nef“ og átti við að við
erum öll með minnimáttarkennd
út af einhverju, það þarf bara að
takast á við hana,“ bætir Stefán
Karl við. „Þarna er fyrirsögnin
komin hjá þér,“ segir Rúnar
Freyr og blaðamaður tekur hann
á orðinu og lætur viðtalinu lokið.
sigridur@frettabladid.is
Svipir lands og sagna er yfirskrift
sýningar á verkum Ásmundar Sveins-
sonar í Listasafni Reykjavíkur,
Ásmundarsafni. Á sýningunni eru verk
sem spanna allan feril listamannsins.
Safnið er opið daglega kl. 10 til 16 og
stendur til 10. febrúar á næsta ári.
Nú stendur yfir sýning á 27 ollumál-
verkum eftir Helga Hálfdánarson í
Listacafé og Veislugallery í Listhúsinu
í Laugardal. Myndirnar eru á
tilboðsverði út desembermánuð. Helgi
hefur stundað nám í olíumálun í Mynd-
listarskóla Reykjavíkur '84 - 87 og á
ýmsum námskeiðum þar, í Myndlista-
og handíðaskólanum og í T.H. Aachen í
Þýskalandi.
Steinþór Marinó Gunnarsson listmálari
sýnir nú röð smámynda í Verksmiðju-
sölunni á Álafossi, Álafossvegi 23,
Mosfellsbæ. Þetta er jólasýning. Flest
verkin eru unnin á árunum 1980 -
1998. Hér er um að ræða alls 25 verk
unnin f pastell og myndir með blandaðri
tækni. Sýningín er opin frá kl. 10.00 -
18.00, og laugardaga kl. 10.00 - 14.00.
Sýningin er opin til 31. desember.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabladid.is
BÆKUR
Ryþmi og rím
Vá! Annað ljóðasafn," sagði
átta ára dóttir mín þegar ég
kom heim með ljóðabókina
Grannmeti og átvextir eftir
Þórarinn Eldjárn. Þarf nokkuð
að hafa fleiri orð um það? Það
hlýtur að vera mesta hrós höf-
undarins ef barnið fagnar nýrri
bók. Við mæðgurnar höfum
nefnilega haft mikið dálæti á
Stjörnuhrapi, sem einnig er eft-
ir Þórarinn Eldjárn.
Börn hafa almennt ekki van-
ist því að lesa ljóð og vísur sér
til skemmtunar, og enn síður að
ljóðabækur komi út sérstaklega
handa þeim. Það er miður, því
þau laðast gjarnan að því sem
hefur ryþma og rímar.
Ljóðin hans Þórarins eru
bæði fyndin og skemmtileg og
við mægurnar veltumst um af
VMMMMaWWNMMMMMMWRWMMMHIMMMMMFnMMMMMMMMMWNFNNJMMMmWMKMMMMMMI
GRANNMETI OG ÁTVEXTIR
Þórarinn Eldjárn
Vaka Helgafell, 2001, 112 blaðsíður
hlátri. Sér í lagi fannst okkur
ljóðið um Sílikonuna fyndið og
minnti okkur á gamalt ljóð um
asnann öfundsjúka, sem var hé-
gómagjarnari en hollt er.
í fyrstu fannst okkur sem
við læsum algert bull, en flest
fela ljóðin í sér skilaboð eða
sögu. Mikill kostur er, að
skemmtilegt er að lesa þau upp-
hátt. Orðin sjálf fela í sér takt-
inn og blæ ljóðsins. Sum eru
lesin reiðlega, önnur glaölega
og enn önnur hratt. Úr verður
heill leikþáttur bæði lesandan-
um og hlustendunum til
ánægju.
Arndís Bergsdóttir
•;á'.