Fréttablaðið - 03.01.2002, Síða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
MIKIL ÁNÆCJA
MEÐ SKAUPIÐ
Yfirgnæfandi meirihluta
þótti Áramótaskaupið
vera vel heppnað hjá
Ríkissjónvarpinu að
þessu sinni.
Þótti þér Áramótaskaupið
vel heppnað?
Niðurstöður gærdagsins
á vwwv.vísir.is
Já 92% 1
■ Nei 8%
Spurning dagsins í dag:
Langar þig á skiði?
Farðu inn á vísi.is og segðu
SVARAÐI EKKI ÁKÆRUATRIÐUNUM
Réttarhöldin yfir Zacarias Moussaoui hefj-
ast í október, en i gær kom hann fyrir
dómstól i Bandaríkjunum þar sem dómari
bókaði að hann hefði lýst sig saklausan af
ákæruatriðum.
Grunaður um
hryðjuverk:
Ábending
barst frá flug-
skólanum
ALEXANDRÍA. ap „í Guðs nafni hef
ég engu að svara. Ég svara ekki
ákæruatriðunum," sagði Zacarias
Moussaoui í gær við dómara í
borginni Alexandríu í Virginíu-
ríki, Bandaríkjunum, þar sem
hann sætir ákærum um að hafa
tekið þátt í undirbúningi hryðju-
verkanna í Bandaríkjunum 11.
september.
Leonie Brinkema dómari kaus
að skilja þessi orð sem svo, að
Moussaoui væri að lýsa yfir sak-
leysi sínu af ákæruatriðunum.
Verjandi hans samþykkti þann
skilning.
Moussaoui, sem er franskur
ríkisborgari, er fyrsti maðurinn
sem ákærður er vegna hryðju-
verkanna, sem urðu rúmlega
þrjú þúsund manns að bana.
Ákæruatriðin eru sex, þar af á
Moussaoui yfir höfði sér dauða-
dóm vegna fjögurra.
Bandaríska dagblaðið Was-
hington Post skýrði frá því í gær
að þann 15. ágúst síðastliðinn, að-
eins fáeinum vikum fyrir hryðju-
verkin hefði bandarísku alríkis-
lögreglunni borist ábending frá
flugskóla í Bandaríkjunum þar
sem Moussaoui stundaði nám.
Kennurum við skólann þótti hann
grunsamlegur og sögðu hugsan-
legt að hann væri að búa sig und-
ir hryðjuverk. Daginn eftir var
Moussaoui kallaður til yfir-
heyrslu og sást ekki aftur í flug-
skólanum.
Dómarinn ákvað að réttar-
höldin sjálf myndu hefjast þann
14. október í haust, en Gerald
Zerkin, verjandi Moussaouis,
hafði farið fram á að þau hæfust
ekki fyrr en snemma árs 2002
vegna þess hve umfangsmikið
málið er. ■
jLÖGREGLUFRÉTTIR |
Töluvert var um eignaspjöll í
Kópavogi aðfaranótt nýárs-
dags að sögn lögreglu. Brotnar
voru rúður í fimm grunnskólum
og tveimur leikskólum og
sprengdur upp rafmagnskassi
við Brekkuhjalla.
2
3. janúar 2002 FIMMTUDAGUR
Mustafa Barghouti handtekinn í Jerúsalem:
Sætti barsmíðum
lögreglunnar
JERÚSALEM, ap Palestínumaðurinn
Mustafa Barghouti, sem komið hef-
ur nokkrum sinnum hingað til lands
og var m.a. heiðursgestur á lands-
fundi Samfylkingarinnar í haust,
var í gær handtekinn í Jerúsalem.
Lögreglan lét hann lausan aftur eft-
ir fáeinar klukkustundir, en gerði
hann samstundis brottrækan úr
borginni. Þegar hann var á leiðinni
út úr borginni var hann handtekinn
á nýjan leik, en að þessu sinni af
ísraelsku landamæralögreglunni.
Barghouti, sem er læknir og for-
maður hjálparstarfs palestínskra
lækna, sagði að landamæralögregl-
an hefði misþyrmt sér. „Þeir börðu
mig í andlitið, á hálsinn og axlirnar,"
sagði hann. „Þeir brutu gleraugun
mín og di'ógu mig eftir gólfinu."
Innan skamms var hann þó látinn
laus á ný.
Barghouti var í Jerúsalem með
erlendri sendinefnd, sem sýnt hefur
málstað Palestínumanna stuðning.
Meðal annars voru í hópnum tveir
BARGHOUTI Á LANDSFUNDI SAMFYLKINGARINNAR
Hann var handtekinn og sætti barsmíðum. Brot hans var það eitt að hann var staddur I
Jerúsalem ásamt evrópskri sendinefnd. Hann var gerður brottrækur úr borginni.
þingmenn á Evrópuþinginu, annar
Dani og hinn ítali.
ísraelsku lögreglumennirnir
sögðu hann hafa verið í Jerúsalem
án leyfis, en hann er búsettur í bæn-
um Ramallah á Vesturbakkanum.
ísraelsmenn banna Palestínumönn-
um að ferðast á milli svæða. ■
Eyjamenn vilja halda í
Keikó sem sýningardýr
Vestmannaeyingar vonast til að halda Keikó í Eyjum þrátt fyrir að ákveðið hafi verið að flytja há-
hyrninginn til Stykkishólms. Bæjarstjórinn segir Keikó skila Eyjamönnum 130 milljónum króna í
árlega veltu og telur að hagnast megi enn meira á því að gera hann að sýningardýri.
sveitarstjórnir Bæjarráð Vest-
mannaeyja hefur falið Þróunarfé-
lagi Vestmannaeyja að svara því
hvaða möguleikar séu á því að
halda háhyrningnum Keikó í Eyj-
um. Eins og kunnugt er á að flytja
Keikó til Stykkishólms í sumar.
Kostnaður vegna dvalar Keikós
hérlendis mun nú nema nokkuð á
annan milljarð króna og Guðjón
Hjörleifsson bæjarstjóri segir
starfsemina við Keikó velta um
—4— 130 milljónum ár-
lega innanbæjar í
Vestmannaeyjum.
Þrátt fyrir að hval-
urinn hafi ekki skil-
að almennum ferða-
mannastraumi hafa
skapast nokkuð
mörg störf. M.a.
hafi verið stofnað
sérstakt fyrirtæki
í fyrra voru
hinir og þessir
aðilar með
okkur í fjár-
festingum en
nú eru allir
búnir að loka
sjoppunni.
---^---
um rekstur vaktþjónustu, köfun og
eftirlit við kví Keikós.
Bæjarstjórinn segir að með
brotthvarfi Keikós væru Eyja-
menn að missa gott fyrirtæki sem
hafi möguleika á að verða enn
stærra. „Menn virðast hafa viður-
kennt að það næst ekki að gera
hann frjálsan og því horfa allir í
það hvort ekki er hægt að hagnast
á því að vera með sýningar á dýr-
inu,“ segir hann.
Þrátt fyrir að bæjarstjórn
Stykkishólms hafi fallist á beiðni
Ocean Futures um að vista Keikó
telur Guðjón það ekkert vera
ákveðið. „En þetta er óskaplega
einfalt mál: Það er enginn til í að
tapa en allir til í að græða,“ segir
hann og bætir við að von sé á svör-
um frá Ocean Futures fljótlega.
Rúnar Gíslason, forseti bæjar-
stjórnar í Stykkishólmi, er þó ekki
í vafa um að Keikó verði orðinn
heimilsfastur við Baulatanga í
Hólminum í sumar. Þar muni
ferðamenn geta litið hann augum
með því að leggja á sig nokkurra
mínútna göngu út tangann. „Þetta
er endanlega ákveðið og bæjar-
stjóra hefur verið falið að ganga
frá samningum um málið," segir
hann.
Rúnar telur ekki að aðstandend-
ur Keikós hafi horfið frá því að
gefa honum frelsi. „Það er mun
flóknara ferli en þeir ætluðu og
þeir búast við að það taki einhver
ár og reynist jafnvel ekki mögu-
legt. En þeir ætla að reyna áfram
enda koma líka háhyrningar hing-
að í Breiðafjörð," segir hann.
Rúnar segir bæjarstjórnina
ekki hafa verið að hugsa um Keikó
sem stórgróðafyrirtæki. „En hann
er auðvitað mjög frægur og það
má búast við talsverðu af ferða-
KEIKÓ Á SUNDI
Háhyrningurinn Keikó hefur dvalið í Kletts-
vík um árabil en á nú að fá sér sundprett
að Baulutanga I Breiðafirði.
fólki. Fyrir heimamenn skapast
þrjú störf og að auki hefur komið
til tals að Náttúrustofan hafi um-
sjón með staðnum."
Að sögn Rúnars er gert ráð fyr-
ir því að Keikó syndi sjálfur í
Stykkishólm frá Vestmannaeyjum
í júní.
gar@frettabladid.is
Delta og Pharmaco:
11 milljarda
vöxtur á árinu
hlutabréf Alls hækkaði lyfjavísi-
tala Verðbréfaþings íslands um
40% á liðnu ári á meðan samdrátt-
ur einkenndi flestar aðrar vísitöl-
ur. Markaðsverðmæti bréfa Delta
jókst um 4.800 milljónir króna og
bréfa Pharmaco um 6.200, eða
samanlagt um nálægt 11 milljarða
á árinu. Verðmæti félaganna var
undir 20 milljörðum króna í árs-
byrjun 2001 en er nú rétt um 30
milljarðar. Gengi Pharmaco er nú
skráð um 50 krónur og telur
Sindri Sindrason, framkvæmda-
stjóri félagsins, það síst of hátt.
„Ef litið er á kennitölur fyrir-
tækisins þá eru bréfin enn tiltölu-
lega hagstæð og enn forsendur
fyrir hækkun. Fjármálafyrirtæki
hér heima hafa talið rekstur okk-
ar í mið- og austur Evrópu vera
áhættusamari en ástæða er til og
hafa þess vegna sett heldur háa
ávöxtunarkröfu á bréfin. Staða
okkar er trygg meðal annars
vegna þess að lyf eru nauðsynja-
vara og ekki síður að við erum í
ódýrari kantinum hvað varðar
lyfjaverð.“
Hann segir að frá því að
Pharmaco tók við rekstri þriggja
fyrirtækja í Búlgaríu árið 1999
hafi flestar áætlanir staðist.
„Efnahagslega eru þessi land-
PHARMACO
Um 80°/o veltu félagsins er I mið- og aust-
ur Evrópu. Markaðurinn þar er í örum vexti
og horfur góðar segir Sindri Sindrason,
framkvæmdastjóri.
svæði að ná sér á strik og heil-
brigðisgeirinn vex mjög hratt við
slíkar aðstæður. Þess vegna get-
um við verið ánægð með stöðuna
eins og hún er og teljum að þetta
ár líti mjög vel út.“ ■
Hringvegurinn lokaðist:
Uppfylling-
in tolldi ekki
VEGAGERÐ Þjóðvegi eitt var lokað
austan við Kirkjubæjarklaustur í
hádeginu í gær vegna vatnavaxta.
Laxá í Fljótshverfi flæddi yfir
bakka sína vegna rigninga. Veginn
beggja vegna brúarinnar tók í
sundur og þurfti að kalla á starfs-
menn Vegagerðarinnar.
Að sögn lögreglu var nokkur
umferð á svæðinu þegar þetta
gerðist og þurftu ökumenn að bíða
eftir viðgerð. Mjög illa gekk að lag-
færa veginn, en það sem í hann var
borið rann úr honum jafnóðum.
Undir kvöldið var verið að bíða eft-
ir tækjum svo hægt væri að flytja
stórgrýti í veginn. Lögreglan hafði
náð að hleypa nokkrum bílum yfir
um miðjan daginn, en um kvöldið
biðu um fimmtán bílar eftir þvi að
komast leiðar sinnar. ■