Fréttablaðið - 03.01.2002, Síða 4

Fréttablaðið - 03.01.2002, Síða 4
SVONA ERUM VIÐ ÚTGJÖLD TIL RANNSÓKNA OG ÞRÓUNAR ísland er nokkuð fyrir neðan meðallag OECD-þjóða hvað varðar útgjöld til ýmissa rannsóknar- og þróunanrerkefna. Sllk starf- semi er oft undanfari nýsköpunar í atvinnu- Iffi og eru í ýmsum löndum veittar skatta- ívilnanir fyrir fjárútlát í þennan málaflokk. Útgjöld til þróunarverkefna sem % af landsframleiðslu árið 1998 Svíþjóð Finnland Bandaríkin Þýskaland ísland írland ftalfa Meðaltal OECD 3.7 3.1 2.8 2,0 1,9 1,3 1,0 2.2 TONY BLAIR Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar sér að gera hvað hann getur til að lægja ófriðarlöldurnar á milli kjarnorku- ríkjannana Indlands og Pakistans. Tony Blair, forsætisráð- nerra Bretlands: Heimsækir Indland og Pakistan london.ap Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, ætlar á næstu dögum að heimsækja Indland og Pakistan þar sem hann mun hvetja leiðtoga landanna til frið- arviðræðna. Mikil spenna hefur verið á milli landanna undanfarið eftir sjálfsmorðsárás aðskilnaðar- sinna Kashmir-héraðs á þinghús Indlands. Blair mun vera væntan- legur til Islamabad, höfuðborgar Pakistans, á mánudaginn í tveggja daga heimsókn. ■ Óþekktur aðili kærir til ESA: Flugmála- stjórn sögð hunsa út- boðsskyldu stjórnsýsla Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur staðfest móttöku kæru ónefnds aðila sem telur Flugmálastjórn íslands hafa brot- ið gegn útboðsskyldu. Kæran mun fyrst og fremst lúta að mjög kostnaðarsamri tölvuvinnu sem Flugmálastjórn hefur um árabil keypt án útboðs af fyrirtækinu Flugkerfum hf. í tengslum við flugstjórnarkerfin FDPS og RDPPS. Flugkerfi er rík- isfyrirtæki í eigu Flugmálastjórn- ar og Háskóla Islands. FDPS kerfið, sem enn hefur ekki verið tekið í notkun, þrátt fyrir að hafa verið meira en ára- tug í smíðum, fyrst í Kanada en síðan á íslandi, hefur kostað a.m.k. 900 milljónir króna. RDPPS kerfið kostar talsvert minna, enda um einfaldara kerfi að ræða. FDPS kerfinu er ætlað að safna saman upplýsingum um flugáætl- unum flugvéla og færa á tölvu- tækt form en RDPPS sameinar á einum skjá upplýsingar frá fimm ratsjárstöðvum vil ísland. ■ FRÉTTABLAÐIÐ 3. janúar 2002 FIMMTUDAGUR Nýr yfirmaður skipulags- og byggingarmála: Salvör Jónsdóttir stýrir skipulaginu fólk Reykjavíkurborg hefur ráðið Salvöru Jónsdóttur skipulags- fræðing í nýtt starf sviðstjóra skipulags- og byggingarsviðs. Sjálfstæðismenn í borgarráði töldu meirihluta R-listans hafa gengið framhjá hæfasta einstak- lingnum, Ingibjörgu Rannveigu Guðlaugsdóttur, deildarstjóra hjá Borgarskipulaginu. R-listamenn sögðu Salvöru hins vegar vera hæfasta meðal 19 jafningja sem sóttu um starfið. Salvör er lektor við háskólann í Wisconsin og hefur m.a. starfað fyrir sveitarfélagið þar að því að efla samkipti milli yfirvalda og landeigenda og annarra sem tengjast uppbyggingu nýrra hver- fa. Meðal þeirra sem sóttu um starfið voru Stefán Benediktsson, arkitekt og fyrrverandi alþingis- maður og þjóðgarðsvörður, Bjarki Jóhannesson, forstöðumaður þró- unarsviðs hjá Byggðastofnun, SALVÖR JÓNSDÓTTIR Nýr sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar starfaði m.a. áður hjá Skipu- lagi ríkisins. Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arki- tekt og fyrrverandi formaður Landverndar, og Gestur Ólafsson skipulagsfræðingur. Salvör verður yfirmaður sam- einaðs borgarskipulags og bygg- ingarfulltrúaembættis. Yfir þess- um tveimur deildum eru bygging- arfulltrúi og skipulagsfulltrúi en í síðar nefnda starfið er óráðið og verður það gert í samráði við Sal- vöru. ■ Eignasala borgar sameiningarkostnað Til stendur að selja eignir og land Landspítala-háskólasjúkrahúss í Kópavogi til að standa undir kostnaði við sameiningu spítalanna í Reykjavík. Kostnaður við sameininguna nemur hundruðum milljóna. heilbrigðismál Landspítali-há- skólasjúkrahús selur eignir til að standa undir tilkostnaði við sam- einingu spítalanna í Reykjavík, að sögn Magnúsar Péturssonar, forstjóra Landspítalans. „Við höfum hafið viðræður við Kópa- vog um að selja þar land, eða jafn- vel allt, eftir atvik- um. Við sjáum ekki aðra leið til að fjár- magna þessar nauðsynlegu breytingar en að selja eignirnar. Það er ráð stjórn- valda að selja eign- ir til að fjármagna sameininguna og þá gerum við það,“ sagði hann og bætti við að tví- þættur tilgangur væri með samein- ingu spítalanna. „Annars vegar er að efla starfssemina faglega, en auðvitað skiptir það mestu máli. Að hinu leytinu viljum við fá úr þessu hagkvæmari rekstur og hvort tveggja er að skila sér,“ sagði hann og gerði ráð fyrir að tilflutningum deilda og sérgreina milli húsa yrði lokið næstu ára- mót. Magnús sagði reynsluna sýna að ótvíræður hagur væri af sam- einingunni. „En maður tekur ekki sérgrein og hendir henni milli húsa yfir nótt. Á sama tíma er haldið hér uppi þjónustu án þess að sjúklingar verði mikið varir —-+— Á árinu 2001 var spítalinn rekinn á sama raunkostnaði og árið áður, þrátt fyrir auk- inn tilkostnað vegna samein- ingar sjúkra- húsanna í Reykjavík og kostnaðar vegna gengis- breytinga. —♦—. við það sem verið er að gera.“ Hann sagði að sér hefði þótt sameiningin ganga mjög vel það sem af er og starfsfólk unnið gríð- arlega vel að málinu. „Árið 2001 var spítalinn rekinn á sama raunkostnaði og árið áður. Á sama tíma er verið að breyta honum og mikill kostnaður sem fellur til vegna sameiningarinnar. Það finnst mér bara góður árangur," sagði hann og bætti við að á árinu hafi þjónusta aukist og legu- tími styst. MAGNUS PÉTURSSON Sameiníngar- kostnaður vegna starfsloka 150 milljónir króna á slðasta ári. Sama á þessu ári. lokað Að sögn Magnúsar ligg- ur heildarkostnaður vegna sameiningarinnar ekki fyrir. „Kostnaðurinn liggur í starfsmanna- kostnaði, því hér er verið að fækka fólki. Það leiðir til þess að gerðir eru starfslokasamningar og fleira slíkt. Oft er það þannig að menn eiga heil- mikinn rétt til biðlauna. í annan stað liggur kostnað- ur í því þegar sérgreinar eru sameinaðar, þær flutt- ar til og heilum húsum eins og við erum að gera LANDSPÍTALI-HÁSKÓLASJÚKRAHÚS Rekstur spítalans hefði verið í góðu lagi hefði ekki komið til aukinn tilkostnaður vegna gengisbreytinga sem hafði mikil áhrif á innkaupaverð lyfja, hjúkrunarvara og tækja að sögn forstjóra Landspítalans. með Vífilsstaði." Magnús sagði það kosta um 70 milljónir að inn- rétta einn sjúkragang frá grunni. Á síðasta ári fóru um 200 milljón- ir í endurbætur á húsnæði spítal- ans og 150 milljónir í starfs- mannakostnað vegna sameining- arinnar. Magnús gerði ráð fyrir svipuðum starfsmannakostnaði á þessu ári. oli@frettabladid.is Ríki og sveitarfélög: Verka- og kostnaðar- skipting endurskoðuð stjórnsýsla „Það er gert ráð fyrir því að fara sameiginlega yfir mál sem hefur verið ágreiningur um eða þarf að skoða betur og er stefnt að því að koma þeim í ákveðinn farveg", segir Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfé- laga, um sameiginlega yfirlýsingu sambandsins og fjármála- og fé- lagsmálaráðherra um verka- og kostnaðarskiptingu ríkis og sveit- arfélaga. Meðal þess sem kveðið er á um í yfirlýsingunni er að farið verði yfir ágreiningsmál sem komu upp í kjölfar breytinga á álagningar- stofni mannvirkja, fjármögnun húsaleigubótakerfisins verður tekin til endurskoðunar og verka- skipting tónlistar tekin til skoðun- ar. Þá er stefnt að því að stofn- kostnaður framhaldsskóla og stofnkostnaður og meiri háttar viðhald heilbrigðisstofnana flytj- SJÚKRAHÚSIÐ í KEFLAVÍK Stofnkostnaður og meiriháttar viðhalds- kostnaður heilbrigðisstofnana er meðal þess sem verður skoðað. ist frá sveitarfélögum til ríkisins en það er talið nema 350 til 400 milljónum króna árlega. ■ 71 árs gamall Bandaríkja- maður: Vill verða sá elsti til að klífa Everest CHICAGO.AP Hinn 71 árs gamli A1 Hanna ætlar brátt að hefja fjórðu tilraun sína til að komast á spjöld sögunnar með því að verða elsti maðurinn til að klífa Mount Ever- est, hæsta fjall heims. Hann er rúmlega sjö árum eldri en núver- andi heimsmethafi, Sherman Bull frá Connecticut, sem kleif Ever- est í fyrra 64 ára gamall. „Allir segja, hvað er að golfi?,“ segir Hanna. „Ég hef þrjá lögfræðinga og allir hafa þeir hótað að láta leg- gja mig inn,“ segir hann. Hanna heldur sér í formi með því að æfa í þrjár klukkustundir á dag fimm daga vikunnar. s

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.