Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2002, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 03.01.2002, Qupperneq 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 3. janúar 2002 FIMIVITUPAGUR Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ: Tveir af þremur bæj arfulltrúum hætta Slys í Bandaríkjunum: Fjórir létust þegar eikar- tré féll á bíl CREENFIELD.INDIANA.AP PreStur, eig- inkona hans og tvö börn þeirra létu lífið í Indiana í Bandaríkjun- um í gær eftir að stórt eikartré féll á bíl þeirra. „Enginn vindur. Enginn stormur. Líkurnar á að þetta tré myndi falla á sama tíma og þau óku undir það eru stjarn- fræðilegar," sagði Nick Gulling, lögreglumaður eftir atburðinn. Yngsta barn þeirra hjóna, hin fjögurra ára gamla Emily, komst lífs af úr slysinu. ■ SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Tveir af þremur bæjarfulltrúum Sjálfstæð- ismanna í Mosfellsbæ gefa ekki kost á sér í prófkjöri flokksins fyr- ir komandi sveitarstjórnarkosn- ingar. Það eru þau Hákon Björns- son, sem leiddi listann fyrir fjór- um árum, og Ásta B. Björnsdóttir sem gefa ekki kost á sér. Herdís Sigurjónsdóttir er eini núverandi bæjarfulltrúi flokksins til að gefa kost á sér og ljóst að miklar breyt- ingar verða á framboðslista flokksins. Að sögn Magnúsar Sigsteins- sonar, formanns kjörnefndar, skil- uðu 13 einstaklingar inn framboð- um áður en frestur til þess rann út á gamlársdag. Kjörnefnd hefur heimild til að bæta einstaklingum í hóp þeirra sem taka þátt í próf- kjörinu ef henni þykir ástæða til og segir Magnús að ekki verði gef- ið upp hverjir skiluðu inn framboð- um fyrr en ákvörðun hefur verið tekin um hvort sú leið verði farin. Bæjarstjórn Kópavogs er skip- uð sjö bæjarfulltrúum og hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í minnihluta á þessu kjörtímabili. ■ ATLANTA Mosfellsbær er heimabær þessa stóra fyrir- tækis. Nú er Ijós að breytingar verða í bæj- arstjórninni. Alzheimer: Frístundir draga úr hættu heilsa Ný bandarísk rannsókn hef- ur leitt í ljós að með því að eyða dágóðum tíma í frístundir draga menn úr hættunni á að fá Alzheimer-sjúkdóminn um allt að 38%. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri rannsókn sem birtist í tímaritinu „American Academy of Neurology." Mæla vísindamenn með því að menn lesi bók, horfi á bíómynd eða fari reglulega í göngutúra til að draga úr líkunum. Telja þeir að þannig geti fólk veitt heilanum aukna orku sem frestað gæti þróun sjúkdómsins. ■ Sautján ára ökumaður: Tekinn á 158 km hraða hraðakstur Sautján ára gamall ökumaður var tekinn á 158 km hraða á leið suður Kringlumýr- arbraut um klukkan þrjú í fyrr- inótt. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi var ökumaðurinn, sem fékk ökuskírteinið fyrir 4 mán- uðum, mældur við Essó-bensín- stöðina í Fossvogi og reyndi lög- reglan strax að stöðva hann. Ökumaðurinn, sem var á Alfa Romeo, hélt hins vegar ferð sinni áfram og náði lögreglan honum ekki fyrr en við umferð- arljósin á Arnarneshæðinni, þar sem hann beið á rauðu ljósi. Að sögn lögreglu sýndi öku- maðurinn fullkomið ábyrgðar- leysi með akstri sínum, en í bíln- um voru þrír jafnaldrar hans. Búast má við því að málið sæti ákæru sem þýðir að ökumaður getur ekki lokið því með g reiðslu sektar. Málið fer því fyr- ir dóm og gæti ýmislegt orðið til refsiþyngingar eins og t.d. akst- ursaðstæður, útbúnaður bílsins og sú staðreynd að þrír farþegar voru í honum. Lögreglan vill ekki fullyrða að ökumaðurinn hafi verið að reyna að stinga af heldur geti einfaldlega verið að hann hafi ekki séð lögregluna, þar sem hann hefði verið á það mikilli ferð. Hún sagði að ef hann hefði ekki þurft að stöðva á umferðar- ljósunum við Arnarneshæð hefði ekki verið víst að lögreglan hefði náð honum. ■ Kosningar í bænum Mercer í Pennsylvaniu: 19 ára gamall bæjarstjóri mercer.pennsylvania.ap Hinn 19 ára gamli Christopher Portman tók í gær við embætti bæjar- stjóra í bænum Mercer í Pennsyl- vaniu-fylki í Bandaríkjunum, en íbúar bæjarins eru tæplega 2400 talsins. „Mér finnst mikilvægt fyrir ungt fólk að láta til sín taka og gefa eitthvað aftur til samfélags- ins,“ sagði Portman eftir kjörið, en hann er repúblikani sem enn býr hjá foreldrum sínum ásamt 17 ára gömlum tvíburabræðrum sínum. í bæjarstjórakosningunum bar Portman sigurorð af hinum 55 ára gamla bæjarráðsmanni Kenneth Vernon og öðrum ung- um frambjóðanda, hinum 19 ára gamla John Kish. ■ SAMVINUFERÐIR-LANDSÝN Margir virðast hafa tapað fjármunum og oft á tíðum langþráðu ferðalagi vegna gjaldþrots ferðaskrifstofunnar. Synjað um endur- greiðslu á gjafakorti Tryggingafé vegna gjaldþrots SL. Fjölskyldugjöf á 50 ára afmæli sjómanns. Ætlaði til Ríó. Endurgreiðslukröfur nema 32,5 milljónum. Um 674 misstu af ferð. CJALDÞROT Það eru án efa fjölmarg- ir sem eru í sömu sporum og Haukur Sævar Harðarson, sjó- maður á frystitogaranum Frera RE, sem sér fram á að hafa tapað 70 þúsund krónum vegna gjaldþrots Samvinnuferða - Landsýnar. Fjöl- _____ skylda Hauks gaf honum gjafakort í 50 ára afmælisgjöf sem hann ætl- aði að nota til greiðslu á ferð þar sem kjötkveðjuhátíðin í Ríó í Brasilíu var ofarlega á blaði. Hafði hugsað sér að nota gjafakortið til ferðast til Ríó f tilefni af 50 ára afmælinu. Kortið var keypt 1. febrúar 2001 á afmælisdegi Hauks. Samgöngu- ráðuneytið hefur hins vegar hafn- að ósk hans um endurgreiðslu á útlögðum ferðakostnaði. Hann er þó ekki úrkula vonar um að þetta kunni að breytast því Sjómanna- félag Reykjavíkur hefur ákveðið að skoða þetta mál hans. í bréfi ráðuneytisins kemur fram að skilyrði fyrir endur- greiðslu af tryggingarfénu eru m.a. þau að um kaup á svokallaðri alferð sem felur í sér kaup á fyrir fram ákveðinni ferð. Að mati ráðuneytisins er gjafakortið inn- eign hjá ferðaskrifstofunni og því hefði ekki verið búið að ganga frá kaupum á tiltekinni ferð. Af þeim sökum telur ráðuneytið að krafa hans um endurgreiðslu uppfylli ekki skilyrði laga um endur- greiðslu á tryggingarfé. Haukur segir að það hafi ekki verið skemmtilegt að fá þessa synjun frá ráðuneytinu. Hann segist hafa hugsað sér að nýta gjafakortið á þessu nýbyrjaða ári vegna þess að ekki hefði gefist tækifæri til þess á sjálfu afmælis- árinu vegna sjómennskunnar. Þetta sé því mjög svekkjandi. í samgönguráðuneytinu feng- ust þær upplýsingar að kröfulýs- ingar í tryggingarféð hefðu numið 32,5 milljónum króna þegar síðast var vitað. Þá á eftir að draga frá þeim kröfum sem verður hafnað eða vísað til skiptastjóra. Trygg- ingarféð nemur alls vel á annað hundrað milljónir króna. í lok síð- ustu viku var fjöldi kröfuhafa um 306 og 674 sem höfðu misst af ferðum vegna gjaldþrotsins. Þessi mismunur er vegna þess að sumir kröfuhafar gera kröfur fyrir fleiri en bara sjálfan sig. grh@frettabladid.is Formaður fjárlaganefndar puðar með syninum í jólafríinu: Með Haraldi Erni á hæsta Qallstind Suður-Ameríku fólk Ólafur örn Haraldsson, for- maður fjárlaganefndar Alþingis, er kominn til Suður-Ameríku, og ætlar ásamt tveimur öðrum ís- lendingum að fylgja syni Ólafs, Haraldi Erni, á hæsta tind álf- unnar, Aconcagua í Chile. Aconcagua er sjötta og næst- hæsta fjallið á sjö tinda göngu Haraldar Arnar, 6960 metra hátt. Leiðangursmenn munu m.a. þurfa að glíma við kulda og súrefnisskort. Sjálfur er Haraldur Örn enn veðurtepptur á suðurskautinu eftir að hafa gengið á fjallið Vin- son Masif 18. desember sl. í nóv- ember varð hann að hverfa frá hæsta fjalli Eyjaálfu, Carstensz Pyramid á Nýju Gíneu, en gekk á hið helmingi lægra Kosciuszko í Ástralíu í staðinn. Sagt er að hann hyggist bæta úr þessu áður en gangan hans á síðasta tindinn, Mount Everest, hefst. Þó ekki sé það ákveðið mun Ólafur örn líka hafa hug á að fylgja syninum á Mount Everest, en Haraldur áætlar að standa á tindunum um miðjan maí. Að ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON Formaður fjárlaganefndar Alþingis ætlar að slást I för með syninum og fjallið 6960 metra hátt fjall í Chile. vísu myndi þingmaðurinn ekki að klífa tindinn sjálfan heldur stýra leiðangrinum úr grunn- búðum. Haraldur ætlar að klífa fjallið með Breta sem fyrir fáum árum fann lík landa síns, George Mallorys, sem fórst rétt neðan við tindinn 1924. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.