Fréttablaðið - 03.01.2002, Side 9
FIMWITUDACUR 3. janúar 2002
Sóltún og Akureyrarsókn:
Fjórir djáknar
Sigmaðurinn sem bjargaði skipverja Svanborgar:
Afrek Jay Lane vekur
athygli í heimabæ hans
harrisburg.ap Afrek Jay Lane,
sigmanns bandaríska varnarliðs-
ins á íslandi, er hann bjargaði Ey-
þóri Garðarsyni, skipverja á
Svanborgu SH sem fórst 7. des-
ember, hefur vakið töluverða at-
hygli í heimabæ hans, Lower
Allen Township í Pennsylvaniu. í
vefútgáfu blaðsins Standard-Jo-
urnal birtist frétt um viðurkenn-
inguna sem hann fékk nýverið frá
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
íslands, fyrir hugrekkið sem hann
sýndi við hinar gríðarlega erfiðu
aðstæður. „Þetta er afar spenn-
andi og eiginlega yfirþyrmandi,"
sagði Lane um viðurkenninguna.
„Hann leit út eins og hann sæti
á bakinu á trylltum bola,“ sagði
hann um Eyþór er hann hélt sér
fast í handrið á bátnum skömmu
áður en Lane kom honum til
bjargar. „Ef ég hefði ekki séð lífs-
í MYNDVERI
Lane í myndveri Stöðvar 2 er hann hitti
Eyþór Garðarson í fyrsta skipti eftir
atburðinn.
mark í bátnum, hefði ég að öllum
líkindum ekki farið niður til að
leita að eftirlifendum," bætti
hann við. ■
kirkja Þrír djáknar voru vígðir
til hjúkrunarheimilisins Sóltúns
í Reykjavík í gær og á sunnudag-
inn verður einn vígður til Akur-
eyrarsóknar.
Til Sóltúns vígðust þau Fjóla
Haraldsdóttir, sem starfaði m.a.
á líknardeild Landspítalans, Jón
Jóhannsson, sem hefur starfað á
vegum KFUM og KFUK og þjóð-
kirkjunnar og Jóhanna Kristín
Guðmundsdóttir, sem lauk
djáknanámi frá Háskóla íslands
árið 2000.
Til Akureyrarkirkju vígðist
Ingunn Björk Jónsdóttir, sem
m.a. hefur unnið við barnastarf
kirkjunnar. ■
AKUREYRARKIRKJA
Ingunn Björg Jónsdóttir vígist þangað sem
djákni.
aUELLE
Kópavogi • S/fllí 564 2000
Verslua Dalvegi 2
Stórsýning um helgina-tilfinningin ergóð
13