Fréttablaðið - 03.01.2002, Side 10

Fréttablaðið - 03.01.2002, Side 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 3. janúar 2002 FIMMTUDAGUR f Rf I fABI AÐfÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalslmi: 515 75 00 Slmbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: (P-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins 1 stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. KARLAR í KRAPINU Leikmenn I „buzkashi" keppast um að draga hauslausa geít I mark. Talibanar bönnuðu þennan kappleik eins og aðrar skemmtanir sem ekki samrýmdust trúar- skoðunum þeirra. Þjóðaríþrótt Afgana gengur í endurnýjun líf- daga: Togast á um hauslausa geit kabúl. ap Mikil spenna ríkti á föstudaginn var í Kabúl, höfuð- borg Afganistans. Msundir manna, reyndar eingöngu karl- menn, söfnuðust saman umhverf- is stóran völl í miðborginni. Sum- ir klifruðu upp á veggi, komu sér fyrir á vörubílspalli eða tylltu sér upp á hnakk á reiðhjóli til þess að sjá sem best. Á vellinum áttust við tvö lið karla á hestbaki, allir með svipu í hendi. Loksins áttu Afganir þess kost að fylgjast með þjóðaríþrótt sinni, sem talibanastjórnin hafði bannað ásamt öðrum íþróttum og skemmtunum sem samrýmdust ekki trúarskoðunum þeirra. Þjóðaríþrótt Afgana nefnist buzkashi, en það mun þýða „gríp- tu geitina" eða eitthvað í þá áttina. Leikurinn er ekki fyrir við- kvæma. „Boltinn'1 er hauslaus geitarskrokkur og í upphafi leiks liggur geitin á miðju vallarins. Kúnstin er sú, að ná geitinni og draga hana yfir á marksvæðið, en það getur verið þrautin þyngri. Flest brögð eru leyfileg og jafnt hestar sem knapar eiga á hættu beinbrot og svöðusár. Áhorfendur eru heldur ekki óhul- tir, því á fárra mínútna fresti stef- na kapparnir ríðandi á fullu beint inn í áhorfendaskarann sem á ekki annað ráð en að flýja eins og fætur toga. „Við höfum ekki séð svona leik í meira en fimm ár,“ sagði Ulam Siddiq, einn áhorfenda sem fylgd- ust spenntir með atganginum. „Þetta er hluti af menningu okkar og það gleður okkur að þetta sé komið aftur.“ ■ Hver verður frétt ársins? Guð mun ráða hvar við dönsum næstú jól og fréttir nýja árs- ins eiga örugglega eftir að koma jafnmikið á óvart og fréttirnar um hryðjuverk og miltisbrand gerðu árið 2001. Þrátt fyrir fánýti þess að velta sér upp úr því ókomnum tíma er hér boðið til samkvæmis- leiks. Hverjar verða fréttir ársins 2002? Rétt svör munu liggja fyrir í árslok. Engin verðlaun eru í boði fyrir rétt svör enda verða þau vís- ast allt önnur en hér er stungið upp á. Nœsti borgarstjóri í Reykjavík verður: a) Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. b) Björn Bjarnason. c) Ólafur F. Magnússon í meirihluta Frjáls- lyndra og R-lista. I árslok verður staða Kárahnjúka- málsins þannig að: a) Dómstólar hafa til meðferðar kröfu umhverfisvina um að úr- skurði Sivjar Friðleifsdóttur verði hnekkt. b) Virkjunarfram- kvæmdir verða í fullum gangi, eins og áætlanir gera ráð fyrir. c) Málið er í uppnámi eftir að þrýst- ingur erlendra náttúruverndar- sinna leiðir til þess að Norsk Hydro hættir við þátttöku í álveri. Ríkisstjórn íslands verður skipuð: a) Sömu ráðherrum og í upphafi ársins. b) Engar breytingar nema Sigríður Anna Þórðardóttir verð- ur menntamálaráðherra og Jónína Bjartmarz félagsmálaráðherra. c) Halldór Ásgrímsson verður for- sætisráðherra í vinstri stjórn með Samfylkingunni og Vinstri græn- um. .........Máf manna Pétur Gunnarsson hefur samið fréttagetraun ársins 2002 / framhaldi af rannsókn Sam- keppnisstofnunar á Olíufélögun- um mun: a) Samkeppnisráð leggja á félögin háar sektir sem þau greiða mögl- unarlaust. b) Ríkissaksóknari ákærir stjórnendur félaganna að lokinni meðferð samkeppnisyfir- valda á málinu. c) Áfrýjunarnefnd samkeppnismála fellir niður sekt- ir Samkeppnisráðs og ávítar stofnunina fyrir framgöngu sína. Samfylkingin skiptir um nafn og gengur til alþingiskosninga árið 2003 undir heitinu: a) Alþýðuflokkurinn. b) Jafnaðar- flokkur íslands. c) Samfylking.is. / árslok verður Osama bin Laden: a) í fangelsi í Bandaríkjunum og bíður dóms. b) Á ókunnum stað í Asíu. c) Fallinn í bardaga. Staðan í báráttunni gegn hryðju- verkum verður sú að: a) Ráðist hefur verið inn í írak og Saddam Hussein steypt af stóli. b) Múslimaheimurinn hefur gengið til uppgjörs við bókstafstrúar- menn. c) Ný alda sjálfs- morðsárása dynur á Vesturlönd- um. ■ Duhalde tekur við forsetaembætti Afry^u ýíunarnefnd hafnar öfum Fróða: Gamli rit- stjórinn held- ur Samúel Miklar sviptingar í argentískum stjórnmálum. Fimmti forsetinn á tveimur vikum. Duhalde óskar eftir erlendri aðstoð til að vinna bug á bágri efnahagsstöðu landsins. NYR FOR5ETI Eduardo Duhalde, hinn nýi forseti Argentínu, fagnar kjörinu ásamt stuðningsmönnum sín- um í Buenos Aires í gær. ARGENTÍNA.AP Eduardo Duhalde tók í gær við embætti forseta Argent- ínu og er hann sá fimmti sem gegnir starfinu á tveimur vikum, en Adolfo Rodriguez Saa, fyrir- rennari Duhalde, sagði upp störf- um þann 30. desember eftir viku í embætti. „Ég ætla mér að leggja niður þá efnahagsstefnu sem leitt hefur til örvæntingar hjá meiri- hluta þjóðarinnar," sagði hann eft- ir embættistökuna. „Þetta er sann- leiksstundin. Argentína er aðfram komin. Landið er sundrað." Nokkrum klukkustundum eftir að mikill meirihluti argentíska þingsins kaus Duhalde sem for- seta, flykktust um 4.000 Argent- ínubúar út á götur Buenos Aires til að mótmæla stjórnvöldum lands- ins. Heimtuðu margir hverjir að almennar kosningar yrðu haldnar þegar í stað, en reiknað er með að Duhalde starfi það sem eftir er af því kjörtímabili sem fyrrum for- I seti landsins, Fernando de la Rua, | átti eftir að ljúka, eða til ársins 2003. Argentínumenn segjast ekki geta borgað þá 132 milljarða daga sem landið skuldar og óskaði Duhalde við innsetningarræðu sína eftir erlendri aðstoð og sam- vinnu við að leysa þau vandamál sem steðja að landinu. Nema skuldir landsins um einum sjö- unda hluta allra skulda þróunar- ríkja í heiminum. Eduardo Duhalde, sem kemur úr vinstri væng flokks Peronista í landinu, segist ætla að stofna rík- isstjórn með stuðning þjóðarinnar að leiðarljósi, til þess að taka á efnahags- og félagslegri upplausn í landinu. ■ dómsiviál Áfrýjunarnefnd hug- verkaréttinda á sviði iðnaðar hef- ur fellt þann úrskurð að Þórarinn Jón Magnússon sé réttmætur eig- andi tímarits- nafnsins Samúel. Útgáfufyrir- tækið Fróði hafði krafist þess árið 1999 að fá yfir- ráðarétt sinn yfir Samúels nafninu staðfestan. Fróði keypti Samúel ásamt fleiri tíma- ritum af Þórarni Jóni snemma á síðasta áratug. Þá hafði Þórarinn Jón ritstýrt Samú- el frá því 1969 og hann ritstýrði ein- nig þeim fjórum ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON Ritstjóri Samúel frá 1969 má nota nafn blaðsins þar sem Fróði sem keypti hafði blað- ið af honum hætti að gefa það út. tölublöðum sem gefin voru út af Fróða þar til útgáfu blaðsins var hætt árið 1994. Áfrýjunarnefndin taldi Fróða hafa fyrirgert vörumerkjarétti sínum með því að hafa ekki notað Samúelsnafnið í fimm ár. Því hafi Þórarni, eins og hverjum öðrum verið frjálst að skrá nafnið hjá Einkaleyfisstofunni. Það gerði hann árið 1997. Eitt tölublað af Samúel kom út síðasta sumar eftir sjö ára hlé en næsta tölublað er sagt vera tilbúið til prentunar. Núverandi útgáfu- fyrirtæki Þórarins hefur einnig gefið út tímaritin Heimsmynd og Lifsstíl. ■ Hárgreiðslustörf spilla heilsu: Hárgreiðslukonur verða síður óléttar HÆTTULEGT STARF? Sænskar rannsóknir benda til þess að starf hárgreiðslukvenna hafi áhrif á heilsufar þeirra og frjósemi. svíþjóð Hárgreiðslukonur eiga erfiðara með að verða óléttar, en samanburðarhópar kvenna. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem gerð hefur verið af sérfræðing- um í atvinnu og umhverfissjúk- dómum við læknadeild Iláskól- ans í Lundi. Hárgreiðslukonur eru einnig líklegri til að eignast léttari börn og sjúkdómar eins og asmi og fleira eru algengari hjá börnum hárgreiðslukvenna, en annarra kvenna. Ástæður þessa eru ekki að fullu kunnugar, en Lars Ryland- er, dósent við háskólann og einn höfunda rannsóknarinnar segir í viðtali við Dagens Nyheter að snerting hárgreiðslukvenna við ýmis konar efni í vinnu sinni kunni að vera ein skýringanna. „Það er hugsanlegt að ástæðan sé blanda af notkun alls konar efna, lélegrar loftræstingar og streitu. Við munum halda áfram að rann- saka orsakirnar," segir Lars Rylander. Rannsóknin er yfirgripsmikil og nær til yfir S þúsund kvenna fæddra 1960 og síðar. Til hlið- sjónar var jafnstór hópur kvenna á sama aldri. Fleiri rannsóknir hafa verið gerðar á heilsu hár- greiðslufólks og kemur í ljós að fólk í þessari starfsgrein er í meiri hættu með að fá exem á höndum og asma. Lars Rylander segir að framhald rannsóknar muni beinast að því hvaða efni það séu sem hugsanlega hafi þessi áhrif. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.