Fréttablaðið - 15.01.2002, Síða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
~í
SPURNINC DAGSINS
15. janúar 2002 PRIÐIUDAGUR
Er gott að búa á íslandi?
Já, það finnst mér svo sannarlega, sérstak-
lega núna á þessum erfiðu tímum sem að
ríkja í heiminum í dag
Jónas Finnbogason
starfsmaður Seðlabanka íslands.
SMÁTT
Vinstrihreyfingin-grænt fram-
boð stofnaði nýtt kjördæmis-
ráð í hinu nýja Norðvesturkjör-
dæmi á Hólmavík um helgina.
Greint var frá þessu á vef Bæjar-
ins Besta.
Akveðin atriði í nýju James
Bond myndinni verða tekin á
ísilögðu vatni i norður Finnlandi
að því er fram kemur á vefnum
horn.is. Á vefnum er einnig greint
frá því að byggð verði eftirlíking
af sænsku íshóteli í Pinewood
kvikmyndaverinu á Englandi.
Þessar fréttir munu ekki hafa ver-
ið staðfestar af framleiðendum
myndarinnar, en í síðustu viku til-
kynntu þeir að atriði úr myndinni
yrðu tekin upp á íslandi.
TVÆR ÞOTUR í LEICUFLUC
Tvær Boeing-757 flugvélar munu sinna
leiguflugi Flugleiða, en vegna samdráttar í
áætlunarflugi hefur fyrirtækið ákveðið að
leggja aukna áherslu á á leiguflug.
Flugleiðir leggja
áherslu á leiguflug:
Samningar
upp á 2,7
milljarða
króna
FLUCSAMCÖNCUR Flugleiðir-
Leiguflug hf., nýstofnaö dóttur-
fyrirtæki Flugleiða, hefur undir-
ritað samning við dönsku ferða-
skrifstofuna Krone Rejser um
leiguflug milli Danmerkur og
Miðjarðarhafslandanna. Samn-
ingurinn er til tveggja ára og er
metinn á um 1,5 milljarð króna
og hefur dótturfyrirtækið þar
með gert samninga upp á 2,7
milljarða króna í vetur.
Eftir samdrátt í áætlunar-
flugi ákváðu Flugleiðir að leggja
aukna áherslu á leiguflug og tók
dótturfyrirtækið til starfa nú um
áramótin. Því er ætlað að annast
og þróa vaxandi starfsemi Flug-
leiða á alþjóðlegum leiguflugs-
markaði í samræmi við þá
stefnu fyrirtækisins að auka
sveigjanleika í rekstrinum.
Samningurinn við Krone Rej-
se er þriðji stóri leiguflugs-
samningurinn sem Flugleiðir
gera, en fyrr í vetur kynnti fyr-
irtækið eins milljarðs króna
samning við bandarísku ferða-
skrifstofuna GWV, en hann
kveður á um flug frá Boston til
sex áfangastaða í Karíbahafinu.
í desember var síðan Undirritað-
ur 200 milljóna króna samningur
við ferðaskrifstofuna Univers
Gestion Multi Voyages um leigu-
flug milli Montreal í Kanada og
Karíbahafsins.
Tvær Boeing-757 flugvélar
Flugleiða munu sinna leiguflug-
inu og verða áhafnirnar íslensk-
ar ■
Mjög
KVÖTflLEiGA Jóhann Ár-
sælsson segir framsetn-
ingu LÍÚ á áhrifum auð-
lindagjalds villandi. Út-
reikningar hans á
hvernig kvóti hefur ver-
ið leigður milli sveitar-
félaga styðji þetta. LÍÚ
hélt því fram að tillögur
meirihluta auðlinda-
nefndar jafngiltu 300
milljóna byggðaskatti á
Akureyringa en Jóhann
segir að Akureyringar
hafi á síðasta ári leigt
frá sér veiðiheimildir
fyrir 917 milljónir
Áhrif kvótakerfisins:
misjöfn útkoma byggðanna
JÓHANN ÁRSÆLSSON
Umrædd dæmi fyrst og
fremst til umhugsunar.
króna. LÍÚ hafi enn-
fremur haldið því
fram að íbúar Snæ-
fellsbæjar þyrftu
að greiða 114 millj-
ónir í byggðaskatt
en útreikningar
hans sýndu að þeir
hefðu borgað 520
milljónir á síðasta
ári.
Jóhann segir að
það sé í raun hlægi-
legt hjá LÍÚ að setja
upp leikrit í kring-
um auðlindagjaldið
og kalla byggða-
skatt. Greiðslurnar séu meiri í
núverandi kerfi og það miklar að
þegar og ef fyrirtæki leggja upp
laupana á litlum stöðum komi
ekki neitt í staðinn. Það sé ekki
hægt að stofna ný fyrirtæki við
núverandi kerfi þar sem kvóta-
leiga sé of dýr.
Jóhann setur þann fyrirvara
við útreikningana að ekki hafi
fengist sundurliðaðar upplýsing-
ar heldur hafi hann notast við
upplýsingar um kvótaleigu milli
sveitarfélaga og reiknað kostnað
við leigu út frá meðalverði á
þeim veiðiheimildum sem fóru
um Kvótaþing á síðasta ári. ■
SVEITARFÉLÖG SEM SELJA FRÁ SÉR KVÓTA
Sveitarfélag Tekjur í miijónum Á hvern íbúa
Akureyri 917 60.000
Ólafsfjörður 226 210.000
Skagaströnd 169 274.000
Þórshöfn 170 398.000
SVEITARFÉLÖG SEM KAUPA
TIL SÍN KVÓTA
Sveitarféiag Greiðslur í Á hvern
miljónum íbúa
Tálknafjörður 35 97.000
Dalvík 253 124.000
Grindavík 399 172.000
Snæfellsbær 520 280.000
Kvennaathvarfíð
verði borið út
Héraðsdómur fellst á kröfur erfingja Einars ríka. Mögulegt
að leita verði til Hæstaréttar í von um aðra niðurstöðu.
Það er auðvit-
að verið að
leita annarra
lausna á þess-
um málum en
að láta dóm-
stólana skera
úr um það.
dómsmál Héraðsdómur hefur fall-
ist á kröfu erfingja Einars Sig-
urðssonar um að Kvennaathvarfið
verði borið út úr húsi erfingjanna
—♦— í Bárugötu. Sam-
tök um kvennaat-
hvarf hafa nú 15
daga frest til að
skjóta málinu til
Hæstaréttar.
Eggert Óskars-
son héraðsdómari
sagði í úrskurði
sínum að loforð
erfingjanna um að
veita Kvennaathvarfinu „sann-
gjarnan frest“ verði ekki túlkað
svo rúrnt að athvarfinu væri
heimil afnot af húsinu fram til 1.
júní. Áður hefur komið fram í
Fréttablaðinu að Kvennaathvarfð
hefur keypt annað hús undir
starfsemi sína. Húsið á að afhend-
ast 1. júní nk. þó það geti hugsan-
leag orðið eitthvað fyrr.
Dómarinn sagði Kvennaat-
hvarfið enga heimild hafa til að
dvelja í húsinu á Bárugötu og
féllst því á kröfu erfingjanna um
útburð.
„Þessi úrskurður um útburð er
genginn. Það verður tekin
ákvörðun um það hvort sá úr-
skurður verður kærður. Sú
ákvörðun hefur ekki verið tekin
og þannig stendur málin núna.
Það er auðvitað verið að leita ann-
arra lausna á þessum málum en
KVENNAATHVARFIÐ
Dómarinn segir samtökin engan rétt hafa til að vera I húsinu.
að láta dómstólana skera úr um
það,“ segir Jón Steinar Gunn-
laugsson, sem rekur málið fyrir
hönd Samtaka um kvennaathvarf.
Hæstaréttur viðurkenndi for-
kaupsrétt erfingjanna að húsinu á
Bárugötu 20. september sl. Þar
með var St. Jósepssystrum skylt
að selja erfingjunum húsið á
sama verði og nunnurnar höfðu
áður selt það til Kvennaathvarfs-
ins. Erfingjarnir gáfu Kvennaat-
hvarfinu síðan frest til 15. nóv-
ember til að rýma húsið og kröfð-
ust útburðar þegar það var ekki
gert. ■
Austurríkismaður sem ætlaði að flytja 67 þúsund E-töflur til Bandaríkjanna:
Harðasti fikniefnadómur
SKIPHOLT 50C
Starfsgreinasambandið:
Á förum
úr Skip-
holtinu
húSnæði Starfsgreinasamband ís-
lands hefur selt 250 fermetra
skrifstofuhúsnæði sitt að Skip-
holti 50 c sem það keypti af Efl-
ingu fyrir tveimur árum á 25-26
milljónir króna. Söluverð fæst
ekki gefið upp né heldur hverjir
keyptu að öðru leyti en því að
sambandið sé ekki að tapa á þess-
um viðskiptum. Það mun eiga að
skila húsnæðinu til nýrra eigenda
í apríl n.k. Þá mun það flytja höf-
uðstöðvar sínar að Sæbraut 1 þar
sem Efling er fyrir auk þess sem
ASÍ mun flytja þangað áður en
langt um líður. ■
FJÖLBRAUTARSKÓLINN f BREIÐHOLTI
Nemendur FB eru meðal þeirra sem helst
hafa orðið fyrir barðinu á erfðileikum
vegna nýs tölvukerfis í framhaldsskólum.
Nýtt tölvukerfi í fram-
lialdsskólum veldur usla:
Stunda-
töflur úr
skorðum
Islandssögunnar í gær
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Kurtt Fellner var tekinn með 67485 töflur í Leifsstöð í lok september í fyrra.
stöð þar sem hann beið eftir tengi-
dÓmsmál Austurríkismaðurinn
Kurt Fellner var í gær dæmdur í
tólf ára fangelsi fyrir E-töflu-
smygl. Fellner var handtekinn í
Leifsstöð í september með 67485
E-töflur sem hann hugðist smygla
til Bandaríkjanna. Dómurinn er sá
þyngsti í fíkniefnamáli á íslandi.
Dómarinn í Héraðsdómi
Reykjaness, Finnbogi H. Alexand-
ersson, sagði Fellner ekki eiga
neinar málsbætur í málinu.
Fellner hefur hins vegar áfrýjað
dómnum til Hæstaréttar. Hann
var í kjölfarið úrskurðaður í
gæsluvarðhald þar til dómur
gengur í Hæstarétti.
Eins og áður segir er dómurinn
yfir Fellner sá þyngsti sem felldur
hefur værið í fíkniefnamáli á ís-
landi. í fyrra var hámarksrefsing í
slíkum málum hækkuð úr tíu
árum í tólf. Dómurinn yfir Fellner
felur því í sér hámarksi’efsingu.
Fellner var handtekinn í Leifs-
flugi til Bandaríkjanna. Við gegn-
umlýsingu hafði fundist torkenni-
legur massi í ferðatösku hans. E-
töflurnar fundust síðan í fölskum
botni töskunnar. Talið er sannað að
hunn hafi ætlað að flytja töflurnar
til Bandaríkjanna og selja þar í
ágóðaskyni.
Sjálfur sagðist Fellner ekki
haft vitneskju um töflurnar í tösk-
unni sem hann hefði tekið að sér
að flytja fyrir ókunnugan mann í
Amsterdam. ■
skólamál Nýja tölvukerfið INNA
frá Skýrr hf., sem tekið var upp í
átta framhaldskólum í haust í stað
eldra kei'fis, hefur valdið nokkrum
usla að undanförnu. Illa hefur
gengi að prenta út reikninga fyrir
skólagjöldum og útgáfa stunda-
skráa hefur líka gengið brösug-
lega.
Karl Kristjánsson, deildarstjóri
mála framhaldskóla í menntamála-
ráðuneytinu, segir að nýja kerfið
hafi vissulega valdið nokkrum erf-
iðleikar en að þeir séu ekki alvar-
legir. „Það er verið að taka upp
nýtt kerfi og eins og alltaf er
svolitlir byrjunarörðugleikar en
það er ekkert sem ekki leysist,"
segir Karl.
Að sögn Karls hafa mestu vand-
ræðin verið í stærstu skólunum,
eins og Iðnskólanum og Fjölbraut-
arskólanum í Reykjavík. „Það
reynir fyrst á þetta kerfi í stunda-
töflugerð núna um áramótin. Þetta
hafa verið smávægilegar erfiðleik-
ar en nú er þetta komið í lag og er
verið að gagna frá töflunum. Þetta
hefur ekki tafið skólahald neitt að
ráði,“ segir KarL ■