Fréttablaðið - 15.01.2002, Side 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
jwsmém
Esjuhlíðar:
Bætt úti-
vistarað-
staða
borcarmál Borgaryfirvöld vilja
bæta útivistarsvæðið í Esjuhlíð-
um með betri gönguleiðum,
verndun náttúru- og söguminja,
sem og með því að gera fyrir-
tækjum og einstaklingum kleift
að fá reiti á jörðunum Mógilsá
og Kollafirði til ræktunar.
Borgarráð ákvað á fundi sín-
um í síðustu viku að auglýsa
deiliskipulagsuppdrátt fyrir
svæðið, en teiknistofan Land-
mótun hefur unnið að skipulagi
þess. ■
Skólamáltíðir:
Einkennileg tregða í
sumum skólum
skólamál „Við viljum að gripið
verði til lausna varðandi skólamál-
tíðir grunnskólabarna," segir
Bryndís Kristjánsdóttir, staðgeng-
ill formanns Samfoks. „Við erum
ekki ánægð með ástandið, nema
þar sem það gerist best.“ í starfsá-
ætlun fræðslumála í Reykjavík er
stefnt að því að í 75 prósent skóla
verði börnum í fyrsta til sjöunda
bekk gert kleift að fá heita máltíð
úr skólaeldhúsi. Samkvæmt könn-
un sem Samfok gerði nýverið kem-
ur í ljós, að flest börn á aldrinum
sex til níu ára geti fengið einhvers-
konar mat í skólanum, en Bryndís
segir slæmt að ekki séu ákveðin
markmið varðandi eldri börnin.
Aðeins í örfáum skólum sé mjög
vel að skólamáltíðum barnanna
staðið og þau eigi þess kost að fá
góða máltíð og hvíld í þar til gerðu
rými. „Við erum ekki ánægð með
að lágmarkskröfum sé mætt og í of
mörgum skólum gengur þróunin
enn of hægt,“ segir Bryndís. „Ein-
hver einkennileg tregða virðist
vera, í sumum skólum, til að skapa
Jjp
"í • |
■
GRUNNSKÓLAR
í starfsáætlun fræðslumála í Reykjavík er stefnt að því að í 75 prósent skóla verði börnum
í fyrsta til sjöunda bekk gert kleift að fá heita máltíð úr skólaeldhúsi.
börnunum aðstöðu til að matast.
Það er vilji skólayfirvalda í hverj-
um skóla, sem ræður því hversu
hröð þróunin er, því þeir skipu-
leggja innviði skólans og skóla-
starfið." ■
ALAN GREENSPAN HYLLTUR
Tæknibyltingin hefur bætt framleiðni í hag-
kerfinu til frambúðar, segir bankastjóri
Seðlabanka BNA.
Seðlabanki Bandaríkj-
anna:
Nýja hag-
kerfið lifír
viðsnúningur „Efnhagur Banda-
ríkjanna hefur sýnt styrk sinn og
aðlögunarhæfni eftir ýmsar
áskoranir bæði fyrir og eftir 11.
september." Þetta var á meðal
þess sem Alan Greenspan, banka-
stjóri Seðlabanka Bandaríkjanna,
sagði í ræðu sinni í Kaliforníu sl.
föstudag. Greenspan hefur löng-
um verið tíðrætt um aó tækni-
bylting síðasta áratugar hafi
bætt framleiðni í hagkerfinu til
frambúðar. Hann sagði samdrátt
undanfarinna missera ekki af-
sanna kenningu sína og að teikn
væru á lofti um viðsnúning. Máli
sínu til stuðnings nefndi Green-
span meðal annars litla verð-
bólgu og jákvæða þróun hluta-
bréfamarkaða síðasta hálfa árið.
Á Wall Street eru nú almennt
taldar líkur á því að stýrivextir
verði enn og aftur lækkaðir á
næsta fundi þann 29. janúar nk.
Sérfræðinga greinir þó um hvort
eða hversu sterkur viðsnúningur
sé í nánd og segja að slíkt byggist
að miklu leyti á neyslu fólksins í
landinu. Horfurnar þykja óvissar
meðal annars vegna þess að hlut-
fall skulda af tekjum er við
hæstu mörk auk þess sem at-
vinnuleysi heldur áfram að
aukast. ■
I INNLENT I
Opnaður hefur verið reikning-
ur til styrktar Antoni Lína
Hreiðarssyni, sem missti for-
eldra sína og bróður í eldsvoða á
Þingeyri. Reikningurinn er í
Sparisjóði Vestfirðinga á Þing-
eyri. Banka- og reikningsnúmer
eru: 1128-05-4500. Kennitala Ant-
ons litla er 020798-2389.
Maður nálægt þrítugu skarst
nokkuð þegar bíll hans valt
á ísafirði snemma í gærmorg-
un.Talið er að sviptivindar á
Skutulsfjarðarbraut hafi orðið
þess valdandi að bíll mannsins
fór út af flughálum veginum og
valt út í Túnguá. Ökumaðurinn
náði af sjálfsdáðum upp á veginn
aftur og var ekið af öðrum veg-
faranda á sjúkrahús.
Börnum og tónskólum verði
gert jafn hátt undir höfði
Foreldrar stúlku í tónlistarnámi leggja fram kæru til félagsmálaráðuneytis. Hafa leitað til um-
boðsmanns barna og þaðan var þeim bent á að leita til umboðsmanns Alþingis.
tónlistarnám Foreldrar sjö ára
einhverfrar stúlku sem sótt hef-
ur tónlistartíma í hljómborðsleik
við Tónskóla Hörpunnar í
Reykjavík hafa lagt fram kæru
til félagsmálaráðuneytis vegna
mismununar sem þau segja að
viðgangist hjá Reykjavíkurborg
gagnvart börnum í tónlistar-
námi.
Að sögn Sig-
Hannsegir að rúnar Birgisdótt-
Samkeppnis- ur, móður
ráð hafi beint stúlkunnar, kost-
þeim tilmæl- ar veturinn í Tón-
um til Reykja- skóla Hörpunnar
víkurborgar að 83.500 kr. miðað
breytingar við 50 mínútna
verði gerðar á kennslustund í
núverandi fyr- viku með tveimur
irkomulagi. nemendum í tíma.
...Skólinn nýtur
engra styrkja frá
Reykjavíkurborg ólíkt við
marga aðra tónlistarskóla. Hún
hafði samband við Tónskóla Sig-
ursveins en þar kostar veturinn
55 þúsund krónur miðað við
einnar klukkustundar kennslu á
viku í einkatíma. Sigrún og eig-
inmaður hennar skrifuðu um-
boðsmanni barna vegna málsins
sem vísaði þeim áfram til um-
boðsmanns Alþingis. Þar var
þeim tjáð að félagsmálaráðu-
neyti yrði fyrst að fjalla um mál-
ið áður en hann gæti úrskurðað í
málinu. í kjölfarið var kæra lögð
fram og þess jafnframt krafist
að félagsmálaráðherra víki sæti
vegna tengsla við Sigrúnu Magn-
úsdóttur, formann Fræðsluráðs
Reykjavíkur.
Að sögn Kjartans Eggertsson-
ar skólastjóra hefur Tónskóli
Hörpunnar krafið borgaryfir-
völd um að hann fái notið sam-
bærilegra rekstrarstyrkja og
aðrir tónlistarskólar. Hann segir
að í þessu tilviki séu foreldrarn-
ir hins vegar að leita réttar síns
óháð skólanum. Kjartan nefnir
að um verulegar fjárhæðir sé að
ræða og styrkur borgarinnar á
ári til barns í tónlistarnámi sé á
bilinu 100 til 300 þúsund krónur.
Hann segir að Samkeppnisráð
hafi beint þeim tilmælum til
Reykjavíkurborgar að breyting-
ar verði gerðar á núverandi fyr-
irkomulagi. Borgarfulltrúar R-
lista hafi lýst því yfir í haust að
málin væru í endurskoðun.
kristjangeir@frettabladid.is
TÓNSKÓLAR
Tónskóli Hörpunnar hefur enga styrki fengið frá Reykjavíkurborg ólíkt við marga aðra tón-
listarskóla í Reykjavfk. Foreldrar bams sem stundar nám við skólann hafa lagt fram kæru
til félagsmálaráðuneytis vegna málsins.
Vandræði bresku járnbrautanna:
Breska stjórnin ætlar
ad bæta lestakerflð
LONDON, ap Stjórnvöld í Bretlandi
ætla á næstu átta árum að verja
33,5 milljörðum punda til þess að
lagfæra járnbrautarkerfi lands-
ins. Að auki er reiknað með því
að einkafyrirtæki veiti 23 millj-
örðum punda í þetta verkefni.
Samtals nemur þetta rúmlega
8.000 milljörðum íslenskra
króna.
Sívaxandi óánægju með járn-
brautakerfið hefur gætt í Bret-
landi undanfarið. „Eitthvað þarf
að gera,“ sagði Richard Bowker,
formaður yfirstjórnar járnbraut-
anna, þegar hann kynnti þessa
áætlun í gær.
Seinkanir á ferðum og önnur
vandræði í tengslum við lesta-
kerfið hafa iðulega verið á forsíð-
um breskra dagblaða. Nokkur al-
varleg járnbrautarslys á síðustu
árum hafa vakið athygli á því að
kerfið sé úr sér gengið að miklu
leyti. Tafirnar hafa svo orðið enn
meiri vegna þeirra viðgerða sem
ráðist hefur verið í til að bregð-
ast við gagnrýninni.
Verkföll hafa aukið enn á
VETTVANGUR VANDRÆÐANNA
Breska lestakerfið hefur verið til margvíslegra vandræða undanfarið. Þessi mynd er tekin á
lestarstöðinni Clapham Junction í London.
vandræðin síðustu vikurnar og
Tony Blair forsætisráðherra átti
í vök að verjast vegna alls þessa.
í áætluninni, sem kynnt var í
gær, er því m.a. lofað að 1700
nýir lestarvagnar verði teknir í
notkun á næstu þremur árum,
þjálfun starfsfólks verði bætt til
muna og öryggiskerfi gerð betur
úr garði.
Bílar í vanda í gríðarlegri
hálku:
Þrír utan
vegar á
Fróðárheiði
umferð Þrír bílar enduðu Utan
vegar og tveir aðrir komust ekki
áleiðis vegna gífurlegrar hálku á
Fróðárheiði á sunnudagskvöldi.
Engin slys urðu á fólki. Að sögn
lögreglunnar á Ólafsvík var
fólkinu hjálpað til byggða.
Vandræðin hófust í sunnan-
verðri heiðinni um kvöldmatar-
leytið. Lögregla fékk aðstoð
björgunarsveitar til að leysa úr
vanda fólksins og voru allir
komnir til byggða um miðnætti.
Vegagerðin kom á vettvang
og saltaði veginn. Einn bíl varð
þó að skilja eftir um nóttina.
Hann var sóttur morguninn eft-
ir.
í síðustu viku lá við stórslysi
á sömu slóðum. Þá hafði öku-
maður skilið bíl sinn eftir á öfug-
um vegarhelmingi. Ung stúlka
þurfti síðan að nauðhemla er
hún kom aðvífandi í miklum
hríðarbyl. Bíll hennar snarsner-
ist á veginum og endaði utan
vegar og valt þar. Stúlkan var í
belti og slapp á ótrúlegan hátt án