Fréttablaðið - 15.01.2002, Síða 15
ÞRIÐJUPAGUR 15. janúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
ri\flh iu A I ! JU-I-
15
TTT
Heimsbikar á snjóbretti:
Finni vinnur
í Frakklandi
snióbretti Finninn Heikki Sorsa
vann í brekkuröri heimsbikars
FIS sambandsins í Alpe D’Huez í
Frakklandi á sunnudaginn. Norð-
maðurinn Halvor Lunn og Finn-
inn Risto Mattila voru í öðru og
þriðja sæti. Heikki Sorsa er í
stuði þessa dagana en hann lenti í
öðru sæti í síðasta heimsbikar-
móti. Það fór fram í Sviss í síð-
ustu viku. Heimamaðurinn Gian
Simmen vann þar.
Frakkinn Cecile Alzina vann í
kvennaflokki á sunnudaginn. Ma-
elle Ricker frá Kanada var í öðru
sæti og Frakkinn Doriane Vidal í
þriðja. ■
SUMSTAÐAR ER SNJÓR
Snjóleysið plagar ekki Frakka líkt og
íslendinga. Hér er Sorsa í loftköstum á
sunnudaginn.
NEFIÐ í SANDINN
Frakkinn Jean-Pierre Fontenay fór fullgeyst um sandhóla Sahara eyðimerkurinnar í Márit-
aníu um helgina.
17 daga kappakstri lokið:
Allir komnir
til Dakar
kappakstur 24. Dakar kappakstrin-
um lauk í samnefndri höfuðborg
Senegal á sunnudaginn. Japaninn
Hiroshi Masuoka var 22 mínútum
á eftir næsta manni eftir 17 erfiða
daga í gegnum Frakkland, Spán,
Marokkó, Máritaníu og Senegal.
Fyrir kappaksturinn höfðu
skipuleggjendur áhyggjur af hót-
unum hryðjuverkamanna. Sem
betur fer varð ekkert úr þeim.
Hinsvegar settu tvö dauðsföll
skugga sinn á kappaksturinn. Það
fyrra gerðist annan dag hans. Þá
lést franskur ökumaður, ótengdur
kappakstrinum. Hann lenti í árek-
stri við viðgerðabíl í suðurhluta
Frakklands. Skipuleggjendur
segja ökumanninn hafa ekið á vit-
lausum vegahelmingi. Það seinna
gerðist í síðustu viku. Þá lést annar
Frakki, viðgerðamaður, þegar bíll-
inn sem hann ók fór út af veginum.
„Kappaksturinn í ár var mjög
erfiður," sagði Þjóðverjinn Jutta
Kleinschmidt. Hún vann í fyrra
en lenti nú í öðru sæti. „Við lent-
um í miklum vandræðum. Bíllinn
bilaði tvisvar." Kleinschmidt
komst í mikið stuð síðustu daga
kappakstursins. Hún saxaði for-
skot Masuoka niður um 34 mínút-
ur en þar sem síðustu leiðirnar
voru stuttar náði hún ekki alla
leið. Japaninn Kenjiro Shinozuka
lenti í þriðja sæti.
ítalinn Fabrizio Meoni vann
annað árið í röð í vélhjólaflokki.
„Ég kem aftur að ári til að ná í
þriðja sigurinn í röð,“ sagði Me-
oni. Hann var 48 mínútum á und-
an næsta manni, Alfie Cox frá
Suður-Afríku. Landi Meoni, Joan
Roma, var lengi á hælum hans en
lenti í slysi á föstudag og datt úr
keppni. ■
Auglýsing um fasteignagjöld
í Reykjavík árið 2002
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 2002 verða sendir út næstu daga,
ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjalda, og umsóknareyðublaði vegna greiðslu
gjalda með boðgreiðslum á greiðslukortum. Gjöldin eru innheimt af Tollstjóranum í
Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í sparisjóðum, bönkum eða á pósthúsum.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald, vatnsgjald og
sorphirðugjald.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegarsem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi
á liðnu ári, fá einnig að óbreyttu lækkun árið 2002, að teknu tilliti til tekju- og
eignaviðmiðunar.
Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl lífeyrisþega eftir framlagningu skattskrár Reykjavíkur.
Úrskurðar hún endanlega um breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi hjá þeim er
eiga rétt á þeim samkvæmt þeim reglum er borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr.
4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, ásamt 87. gr. vatnalaga nr. 15/1923, sbr. einnig lög
nr. 137/1995. Verður viðkomandi tilkynnt um breytingar ef þær verða.
Á fundi borgarráðs þann 11. desember s.l. var samþykkt að tekjumörk vegna lækkunar
fásteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2002 hækki um 19% á milli ára og verði sem hér
segir: (Miðað er við tekjur liðins árs).
100% lækkun:
Einstaklingar með tekjur allt að Hjón með tekjur allt að kr. 1.155.000- kr. 1.615.000-
80% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.155.000-til kr. 1.615.000-til kr. 1.330.000- kr. 1.860.000-
50% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.330.000- til kr. 1.860.000-til kr. 1.530.000- kr. 2.140.000-
Til að flýta fyrir afgreiðslu geta þeir sem ekki fengu lækkun á sl. ári sent framtalsnefnd
umsókn um lækkun, ásamt afriti af skattframtali 2002.
Fulltrúar framtalsnefndar eru til viðtals alla þriðjudaga milli kl. 16.00 og 17.00 I Ráðhúsi
Reykjavíkur, frá 5. febrúar til 30. apríl n.k. Á sama tímabili verða upplýsingar veittar í síma
552-8050, alla þriðjudaga kl. 10.00 til 12.00.
Hreinsunardeild, Umhverfis- og heilbrigðisstofu, Skúlatúni 2, veitir allar upplýsingar
varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 567-9600, og í bréfasíma
567-9605.
Orkuveita Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 34, veitir þær upplýsingar sem snerta álagningu
og breytingar á vatnsgjaldi (síma 585-6000, og bréfasíma 567-2119.
Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, gefur upplýsingar um álagningu annarra
fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 563-2062, og bréfasíma 563-2033.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 15.000- fyrir árið 2002 eru: 1. febrúar, 1.
mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 15.000-, og gjalda
þeirra gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna í maí, er 1. maí.
5 ,
Reykjavík, 15. janúar 2002
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Reykjavíkiui>oi:£
70°/ö
og gerdu frábær kaup!
Ath. takmarkað magn - Fyrstur kemur fyrstur fær!
„ ^ f_______l aUt fyrlr kroppinn
, Op'» IHREYSTI
fra kl.10-18 L—
Fæðubótarefni - Æfingafatnaður - Rafþjálfunartæki