Fréttablaðið - 18.01.2002, Qupperneq 4
SVONA ERUM VIÐ
UM 2000 SKIPTU UM TRÚFÉLAG
Árið 2001 voru í þjóðskrá gerðar 1.950
breytingar á trúfélags-skráningu, sem svar-
ar til þess að 0,7% landsmanna hafi skipt
um trúfélag. Árið 2000 voru breytingarnar
1.987 að tölu (0,7%) en 1.819 (0,7%) árið
1999. Breyting á trúfélagsskráningu var 1
51% tilvika vegna úrsagna úr þjóðkirkj-
unni, alls 990 (0,4%_þeirra sem voru í
þjóðkirkjunni 1. desember 2001). Af þeim
kusu 229 að vera utan trúfélaga og 224
létu skrá sig í Fríkirkjuna í Hafnarfirði.
Fjöldi þeirra sem breyttu um trúfélag
2000
2000________2001
Heimild: Hagstofa íslands
GUÐMUNDUR
HALLVARÐSSON
Afar óskynsamlegt
á sínum tíma.
Guðmundur Hallvarðsson:
„Oskynsam-
legur samn-
ingur“
landssíminn „Það er ljóst að afar
óskynsamlegt var að gera samn-
ingin ná sínum tíma,“ sagði Guð-
mundur Hall-
varðsson, for-
maður sam-
göngunefndar
Alþingis, þegar
hann var spurður
um álit á starfs-
samningi sem
samgönguráðu-
neytið hafði for-
göngu um að
gera við Þórar-
inn V. Þórarins-
son árið 1999.
„Ég tel að þeir
sem undirrituðu samninginn
verði að ábyrgjast gjörðir sínar.
Orð skulu standa þrátt fyrir að um
óskynsamlegan samning sé að
ræða.“
Fram kom í blaðinu í gær að
viðræður stjórnar Símans og Þór-
arins um starfs-
lokagreiðslur
eru í járnum.
Telja má að
skuldbingarnar
nemi yfir 30
milljónum króna
það sem eftir lif-
ir af samnings-
tímanum.
Friðrik Páls-
son, stjórnarfor-
maður Símans,
sagði samning-
inn hafa þótt
eðlilegan á sínum tíma. Rétt hafi
þótt að tryggja Landssímanum
starfskrafta Þórarins um ákveð-
inn tíma þar sem ekki var ljóst
hversu lengi hann héldi starfinu
vegna einkavæðingaráformanna.
„Einnig var eðlilegt að tryggja
Þórarni ákveðinn starfstíma
vegna óvissunnar." Friðrik tók við
sem stjórnarformaður Símans af
Þórarni árið 1999. R
FRIÐRIK
PÁLSSON
Eðlilegur
samningur.
FRÉTTABLAÐIÐ
18. janúar 2002 FÖSTUDAGUR
Kynlíf utan veggja heimilis:
Norðmenn iðnastir
rannsókn Meira en annar hver
Svíi hefur stundað kynlíf utan
veggja heimilis. Þetta kemur
fram í grein í sænska dagblaðinu
Aftonbladet. í greininni segir frá
könnun bókaforlagsins Harlequin.
í henni voru einstaklingar í
nokkrum löndum spurðir um
hvort og hvar þeir hefðu stundað
kynlíf utan heimilis. í ljós kom að
Norðmenn voru duglegastir við
þá iðju, sjö af hverjum tíu höfðu
stundað kynlíf annars staðar en
inni á heimilum. Það finnst sæns-
ka kynlífsfræðingurinn Maj Briht
Bergström-Walan ekki skrýtið,
þeir búi svo dreift um landið þan-
nig að nóg sé plássið. Frakkar
halda sig hins vegar helst heima
við þegar kynlíf er annars vegar,
einungis 13% þeirra hafa stundað
kynlíf utan veggja heimilis. Maj
Britht mælir með því að sem
flestir prófi að stunda kynlíf ann-
ars staðar en á heimilinu. „Það er
spennandi að reyna að láta sér
detta í hug nýja staði og um-
hverfi." Hún segir einnig að á sjö-
unda og áttunda áratugnum hafi
þessi iðja verið vinsælli en í dag.
Fólk sé feimnara í dag en fyrr við
að prófa nýja staði. ■
BÍLAR VINSÆLIR
í Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu eru
bílar vinsælasti staðurinn, fyrir utan heimil-
ið, til þess að stunda kynlíf. í Svíþjóð er
það skógurinn.
Úrskurðir mannanafna-
nefndar:
Skíra má eftir
grískum guði
stjórnsýSLA Nú er heimilt að skíra
drengi í höfuðið á Ares, stríðsguði
Grikkja til foma. Ares var meðal
þeirra nafna sem mannanafnanefnd
fjallaði um á síðasta fundi sínum.
Meðal Rómverja var Ares nefndur
Mars og var faðir Rómusar og
Remúlusar sem sögnum samkvæmt
stofnuðu Róm. Önnur nöfn sem tek-
in voru til umfjöllunar voru stúlkna-
nafnið Christine, sem þykir hafa
unnið sér hefð í íslensku og var
samþykkt, millinafnið Byron, sem
var hafnað, stúlknanafnið Rebecca,
sem var hafnað og drengjanafnið
Ralph, sem einnig var hafnað. ■
Sambærilegar reglur á íslandi og í Bandaríkjunum:
Hlutleysi endurskoð-
enda er frumatriði
gjaldþrot enrons Stefán Svavars-
son, dósent og löggiltur endurskoð-
andi við Viðskipta-
og hagfræðideild
Háskóla íslands,
segir með ólíkind-
um að endurskoð-
andi hjá hinu virta
endurskoðunarfyr-
irtæki Arthur And-
erson hafi látið
eyða bókhalds-
gögnum orkusölu-
Enron, sem varð
gjaldþrota fyrir nokkrum vikum.
„Það er alveg ljóst að reglur um
endurskoðendur eru þannig að
menn eiga að vera hlutlausir í
starfi sínu,“ segir Stefán. „Tilveru-
réttur stéttarinnar byggir á því að
þeir sinni starfi sínu af samvisku-
..♦....
Það er alveg
Ijóst að reglur
um endur-
skoðendur eru
þannig að
menn eiga að
vera hlutlausir
í starfi sínu.
—♦---
fyrirækisins
ENDURSKOÐANDINN
David Duncan, aðalendurskoðandi bandariska orkusölufyrirtækisins Enron, var yfirheyrður
á miðvikudaginn.
semi og í samræmi við góðar end-
urskoðunarvenjur."
Hann bendir þó á, að gera verði
skýran greinarmun á reglum um
reikningsskil fyrirtækja og regl-
um um endurskoðun.
„Reikningsskilaráð Bandaríkj-
anna setur reglur um hvernig á að
semja reikningsskil, en það hefur
ekkert með endurskoðun að gera.
Reglurnar á því sviði setur fag-
stéttin sjálf. Hér á landi er það fé-
lag löggiltra endurskoðenda, sem
setu'r staðla um endurskoðun.“
Hann segir sambærilegar regl-
ur gilda um það hér á landi og í
Bandaríkjunum. „Þeir hafa sett
miklu ítarlegri reglur en við, en
við erum samt skuldbundnir af
þeim reglum sem alþjóðleg sam-
tök endurskoðenda hafa sett.“
Varðandi málið, sem upp er
komið í Bandaríkjunum hljóti
menn að spyrja sig „hvernig á því
standi að endurskoðendur skrifi
upp á reikninga um að allt sé í lagi
en svo nokkrum mánuðum síðar er
fyrirtækið gjaldþrota. Vann endur-
skoðandinn þá verk sitt í samræmi
við góðar endurskoðunarvenjur
eða ekki?“ ■
Endurskoðandinn sem eyddi bókhaldsgögnum Enrons:
Segist hafa hlítt ráðum
lögfræðinga Andersons
washington. ap Gjaldþrotamál
bandaríska orkusölufyrirtækisins
Enrons hefur síðustu dagana snú-
ist mjög um hlutverk endurskoð-
anda fyrirtækisins, sem lét eyða
hluta bókhaldsgagna Enrons í
október síðastliðnum. Þykir
mörgum þetta framferði endur-
skoðandans grunsamlegt og
benda til þess að hann hafi gerst
brotlegur við fagskyldur sínar, ef
ekki við löe.
GOLFFERÐ TIL THAILANDS
Brottför 9. mars, 16 dagar eða 22 dagar
Fararstjóri: Kjartan L. Pálsson
Verð frá kr. 142,975 m. sköttum
í 3* hóteli og frá 172,275 m. sköttum
í 4* hóteli í Pattaya.
Einnig kjörinn staður fyrir þá sem
spila ekki golf.
Golfdeild U-U,
Hlíðasmára 15,
s: 585 4140,
peter@uu.is,
www. urvalutsyn. is
URVAL UTSYN
Endurskoðandinn, David
Duncan, var samstundis rekinn
frá endurskoðunarfyrirtæki sínu,
Arthur Andersen, eftir að uppvíst
varð um eyðingu gagnanna. Hann
heldur því nú fram að lögfræðing-
ar fyrirtækisins hafi ráðlagt sér
að eyða hluta af bókhaldsgögnum
orkusölufyrirtækisins Enron.
Hann sagði við yfirheyrslur á
miðvikudaginn að strax í septem-
ber hafi farið af stað almennar
umræður innan endurskoðunar-
fyrirtækisins um það, hvaða
gögnum skuli eyða. Ljóst þykir að
endurskoðunarfyrirtækið hafi
strax í ágúst fengið vitneskju um
að ýmisleg væri vafasamt í rek-
stri Enrons, sem lagði fram beiðni
um gjaldþrotaskipti í byrjun des-
ember.
Arthur Anderson birti í gær
heilsíðuauglýsingu í bandarískum
BLÓMIN SELD STARFSMÖNNUM
Þessi starfsmaður hjá Enron keypti sér
nokkur blóm, sem áður skreyttu bygging-
una. Fyrirtækið, sem varð gjaldþrota í des-
ember, leyfði starfsmönnum sínum að
kaupa blómin, þar sem ekki verði lengur
greitt fyrir að vökva þau.
fjölmiðlum til þess að reyna að
sannfæra almenning um að fyrir-
tækið muni gera allt sem það get-
ur til að upplýsa málið. ■
Varnarliðsmaður lést:
Rannsókn í höndum lögreglu
rannsókn Þegar bíll tveggja
varnaliðsmanna af Keflavíkur-
flugvelli fór út af á Grindarvíkur-
vegi kom herlögreglan á staðinn
til að rannsaka málið. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hjá lög-
reglunni í Keflavík þá á slysið sér
stað í þeirra umdæmi og hún með
rannsókn málsins. Lögreglan
ræður yfir vettvanginum á ís-
lenskri grund.
Herlögreglan rannsakaði mál-
ið samhliða lögreglunni. Málið
snerti hagsmuni Bandaríkjanna
og því eðlilegt að þeir komi að
málinu. Lögreglan í Keflavík
sendir svo skýrslur til Banda-
ríkjahers. Krufning mannsins,
sem dó í slysinu, er í höndum
Bandaríkjamanna og fær lögregl-
an í Keflavík sendar niðurstöður
úr henni.
„Þetta er í besta bróðerni,“
sagði lögreglumaðurinn.
Bílar varnaliðsins eru ekki
skoðaðir af íslenskum stjórnvöld-
um þrátt fyrir að keyra um vegi
landsins. Bandarísk stjórnvöld
annast sína bíla og sjá til þess að
þeir séu í lagi. ■
j INNLENT |
Gjaldþrot Leifturs á Ólafsfirði
var á dagskrá á stjórnarfundi
Knattspyrnusambands íslands í
gær. Ákvað stjórnin að Eggert
Magnússon, formaður KSI, og
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri sambandsins, myndu fara
til Ólafsfjarðar eftir rúma viku
til að kynna sér málin nánar. Egg-
ert sagði ákvörðun um það hvort
knattpyrnuliðinu yrði gert að
færa sig niður í 3. deild yrði tek-
in að heimsókninni lokinni.
Stór flutningabíll sem vegna
hálku komst ekki upp Kaup-
vangsstræti á Akureyri í fyrra-
kvöld festist þvert í gilinu þegar
ökumaðurinn reyndi að bakka
honum niður brekkuna. Bílinn
lokaði fyrir umferð um götuna.
Um hálftíma tók að losa bílinn úr
klemmunni. Slanga í hemlunar-
búnaði hafði gefið sig. Það tafði
fyrir úrlausn málsins. Tólf tonna
hámarksþyng ökutækja er í gildi
á Kaupvangsstræti. Flutningabíl-
inn mun hins vegar hafa verið
vel yfir þeim mörkum. Hann átti
reyndar aðeins leið kippkorn upp
götuna því hann átti erindi inn á
baklóð Hótels KEA.
Lögreglan á Akureyri segir að
óvenjumargir ökumenn aki
um á bílum sínum með ljós í
ólagi. Lögreglan segir marga
vera eineygða og marga með önn-
ur ljós í ólagi. Hún skorar á öku-
menn að kanna ástand ljósabún-
aðar og skipta út ónýtum perum.
Ifyrrinótt fór öryggiskerfi í
gang í húsi Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar. Hurð hafði
verið brotin upp en þegar örygg-
isvörður kom á staðinn höfðu
verðandi innbrotsþjófar forðað
sér tómhentir á braut.