Fréttablaðið - 21.01.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS
Hvar er bin Laden
niðurkominn?
„Það veit ég ekki. Eg get ekki imyndað mér
það. Hann getur verið alls staðar."
Marel Eðvaldsson
fyrrverandi sjómaður
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Nemendafjöldi í fram-
halds- og háskólum:
Helmingi
fleiri stunda
Qarnám
menntaniál Um 46 prósent fleiri
nemendur voru skráðir í fjar-
nám síðastliðið haust heldur en
haustið 2000, samkvæmt tölum
Hagstofunnar um fjölda nem-
enda í framhaldsskólum og há-
skólum haustið 2001. Nemendum
á háskólastigi hefur fjölgað um
ríflega átján prósent frá því í
fyrra.
Alls sækja um 33 þúsund
nemendur framhaldsskóla og
háskóla og fjölgar nemendum á
þessum skólastigum um nær
átta prósent frá því árinu áður.
Þrjátiu prósent fleiri nemendur
stunda nám í sérskólum á fram-
haldsskólastigi nú heldur en
haustið 2000.
Nokkuð fleiri sækja fram-
haldsskóla nú og munar um
tveimur prósentum á fjölda
nemenda sem skráðir voru
haustið 2001 og 2000. Háskóli ís-
lands verður að teljast fjölmenn-
asti skóli landsins, samkvæmt
upplýsingum Hagstofunnar. Þar
voru skráðir um sjö þúsund
nemendur síðastliðið haust.
í tveimur framhaldsskólum,
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
og Iðnskólanum í Reykjavík, eru
skráðir fleiri en tvö þúsund
nemendur. ■
FJÖLDI NEMENDA 1 FRAMHALDS- SKÓLUM OG HÁSKÓLUM FRÁ 1997 TIL 2001
Framhalds 1997 »998 »999 20GC 2001
skólar 20.221 20-135 19.871 19.909 20.325
Háskólar 8.478 8.780 9.908 »0.495 »2.422
Samtals 28.699 28.915 29.779 30.404 32.747
FRETTABLAÐIÐ
21. janúar 2002 MÁNUDAGUR
Leikskólamál í Bessastaðahreppi:
Biðlistum útrýmt
á þessu ári
leikskólar Leikskólinn Krakkakot í
Bessastaðahreppi er í dag fullnýtt-
ur, en þar eru 104 börn bæði í heils-
dags- og hlutavistun. Gunnar Valur
Gíslason, sveitarstjóri Bessastaða-
hrepps, sagði að nú væru 14 börn á
aldrinum 2 til 5 ára á biðlista eftir
plássi á leikskólanum og að áætlað
væri að sú tala yrði komin upp í 20
í ágúst. Stefnt væri að því að út-
rýma biðlistanum á þessu ári með
því að fjölga heilsdagsrýmum upp í
102, en þau eru nú 82 .
„Nú eru uppi áform um að stæk-
ka leikskólann á árunum 2003 til
2005 upp í sex deildir, ásamt því að
stækka matsal, bæta við tónlistar-
stofu og sérkennslustofu," sagði
Gunnar Valur. „Auk þessa verður á
árinu 2002 sett stakt kennsluhús á
lóð leikskólans með liðlega 20 heils-
dagsrýmum. Áætlaður kostnaður
við þessar framkvæmdir er um 85
milljónir króna sem dreifist á tíma-
bilið 2002 til 2005.“
Á árunum 1999 til 2000 var
LEIKSKÓLABÖRN
Cert er ráð fyrir að árið 2006 verði 150 böm á leikskólaaldri í Bessastaðahreppi.
Krakkakot, sem er eini leikskólinn í
Bessastaðahreppi, stækkaður úr
tveimur deildum upp í fjórar. Eins
og áður sagði er að ráðgert að stæk-
ka hann um 20 heilsdagsrými í ár. Á
næsta ári er ráðgert að stækka
hann upp í 125 heilsdagsrými og
haustið 2004 eða 2005 upp í 145
heilsdagsrými. Gunnar Valur sagði
að samkvæmt svæðisskipulagi höf-
uðborgarsvæðisins yrðu 150 börn á
leikskólaaldri árið 2006. Fram-
kvæmdirnar nú miðuðu að því að
anna þessari auknu eftirpurn. ■
Veiða þorsk til eld-
is og útflutnings
Hraðfrystihúsið - Gunnvör í Hnífsdal flutti út um 50 tonn af áfram-
eldisþorski á síðasta ári. Að sögn vinnslu- og markaðsstjóra Gunnvarar
hefur eldisþorskurinn gefið góða raun.
þorskeldi „Við slátruðum tæpum
50 tonnum úr Álftafirði og Skut-
ulsfirði í haust. Við eigum meira í
kvíunum í Álftafirði og erum að
prófa okkur áfram. Ætlum að sjá
hvernig fiskurinn og kvíarnar
standa sig yfir veturinn," sagði
Kristján G. Jóakimsson, vinnslu-
og markaðsstjóri, Hraðfrysti-
hússins - Gunnvarar.
Áframeldisþorskur er villtur
þorskur sem er veiddur, yfirleitt
í snurvoð. Honum er haldið lif-
andi í körum þar sem rennandi
sjór flæðir um. Fiskurinn er síð-
an settur í sjókvíar og alinn þar
áður en honum er slátrað. Slík
raun hefur gefist vel víðar á land-
inu.
„Fiskistofa fylgist með meðal-
þyngd og talningu ofan í kvíarn-
ar. Magnið sem fer ofan í kvína
dregst frá kvóta en við erum
jafnvel að tvöfalda þyngdina. Það
sem fiskurinn þyngist hjá okkur
telst ekki til kvóta,“ sagði Krist-
ján um ferlið á eldisþorski.
Hraðfrystihúsið - Gunnvör
hefur rúmlega 5 þúsund tonna
kvóta af þorski. Fyrirtækið hefur
bæði veitt á ísfisksskip og frysti-
skip og hefur flutt út talsvert af
ferskum fiski.
„Eldisfiskurinn passar vel inn
í starfsemina hjá okkur," sagði
Kristján. „Þetta er alveg sam-
bærilegt við frystingu- og fersk-
fiskvinnslu og er á sama verði.“
Kristján segir að horft hafi
verið til seiðaeldis meó það fyrir
augum að ná stjórn á öllu ferlinu.
„Við fengum um 1.000 seiði frá
Hafrannsóknastofnun í október
ÁFRAMELDI
Einar Már, starfsrnaður hjá Hraðfrystihúsinu - Gunnvör, fóðrar hér eldisþorsk. Myndin er
fengin af vefsvæði fyrirtækisins frosti.is
ví
JHLi!
YRIRTÆKJASALA
SLANDS Ifer^JIo
^YHIRTÆKI TIL SOLU
LÍTIÐ SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Gissur V. Kristjánsson hdL og
lögg. fasteigna- og fyrírtaekjasali
SÖLUSTJÓRI
GUNNAR JÓN YNGVASON
VEISLUÞJ. og FRAMLEIÐSLUELDHUS
góður búnaður og öll aðstaða verð 4,9 millj
FRAMLEIÐSLA Á FISKRÉTTUM selt í mat-
vöruv og veitingast, selst á tækjaverði 8 m
HEILDSALA MEÐ GJAFAVÖRUR vinsæl og
þekkt, velta 30 millj verð 6,5
LYFTARAÞJÓNUSTA ein sú elsta í bransan-
um , góð umboð , góð varahlutasala.
SNYRTISTQFA rótgróin og þekkt með góða
verkefnastöðu, Verð aðeins kr 4,5 millj
SKYNDIBITASTAÐUR M/KJÚKLING og fl,
mikill og góður búnaður, flott aðstaða
DÖMUVERSLUN SEM ALLIR ÞEKKJA
mjöggóð afkoma, selst vegna flutnings
DA6SÖLUTURN I ATVINNUHVERFI með
grill, sallatbar, stólar f. 20 verð 3 millj.
HVERFIS-SPQRTBAR 15 ára rótgróin stað-
setning , sami eigandi lengi, góð afkoma
VERKTAKAR BORUN WIÚRBROT og fl
landsþekkt með 90 rnilij veltu .
HÓTEL - GISTIHEIMILI ÚT Á LANDI stærð-
ir frá 7 herfc ti' 25 roigrömr staðir
EFNALAUG vel staðsett með góða veltu ,
áberandi staðsetning.góð tæki og búnaður,
BAKARÍ / KAFFISTOFA traust 50m velta ,
góður flottur búnaður, mjög góð afkoma
LÚGU-SÖLUTURN MEÐ GRILL á góðum
fjölfömum stað, góð afkoma
HEILSUSTUDIO góð velta , besti tíminn
framundan, fæst á mjög góðu verði.
FASTEIGNASALA I FULLUM REKSTl haeqt
er að yfirtaka bara ábyrgðir.
FRAMLEIDSLA Á VESTURLANDI rótgróin
þekkt fyrir byggingariðnaðinn
HÁRGREIÐSLUSTOFA í HLÍÐUNUM 30 ára
rótgróin staðsetning, selst vegna veikinda.
VANTAR VIÐBÓT VID REKSTURINN?
HAFÐU SAMBAND ÝMISLEGT TIL
Atvinnuhúsnæði
MIKIÐ ÚRVAL!
HVAD VANTAR ÞIG?
FLESTAR STÆRDIR OG GERDIR -
HAFÐU SAMBAND -
7 ÁRA REYNSLA
og höfum verið meó þau í eldi.
Þau fara væntanlega í sjókvíar í
vor og verður síðan slátrað sem
matfiski; þriú til fjögur kíló.“
Gunnvararmenn líta björtum
augum á þorskeldi en samstarfs-
aðili þcirra s.l. sumar, Ketili Elí-
asson, hefur stundað það í 6 ár.
„Við horfurn á vöxt koma fyrst
og fremst úr fiskeldi og þar sem
við erum aö meðhöndla þorsk
dags daglega teljum við hann
góðan kost. Við höfum tæknibún-
aðinn til að vinna hann og leiðir
til að selja. Þetta liggur okkur
mikið nær en lax eða einhverjar
heitsjávartegundir. Fyrir utan al-
mennan áhuga og skort á þorski,
þá er þetta aðalástæðan fyrir því
að menn horfa til hans.“
Aðspurður hvort þetta sé ekki
kjörið tækifæri til að nýta smá-
fiskinn sagðist Kristján ekki vera
viss um að svo væri.
„Ég myndi nú ekki segja að
það væri nein lausn á því þannig.
Það þyrfti helst sérútbúið skip
með tönkum til að koma fisknum
lifandi að landi."
kristjan@frettabladid.is
UMFERÐIN
Borgin stefnir að því að draga úr óhefri
aukningu umferðar.
Reykj avíkurborg:
Slysog
óhöpp kosta
7-9 millj-
arða á ári
UMFERÐ Áætlað er að umferðaró-
höpp og slys í Reykjavík kosti 7 -
9 milljarða króna ár hvert. Þá
benda meðaltöl áranna 1991 - 1995
til þess að í borginni eigi sér stað
rúmlega 2000 óhöpp á ári og þar
af um 280 slys samkvæmt lög-
regluskráningu. í þeim slasast 79
alvarlega og 5 slys enda með
dauðsfalli innan 30 daga. Þetta
kemur fram í bæklingi um Um-
hverfisáætlun Reykjavíkur, Stað-
ardagskrá 21 sem dreift var á
blaðamannafundi.
Þar kemur fram að markmið
Reykjavíkurborgar sé að almenn-
ingssamgöngur verði góður og ör-
uggur kostur í samanburði við
annan ferðamáta. Á þann hátt
verði hægt að stuðla að því að
draga úr óheftri aukningu um-
ferðar i borginni og umferðar-
mengun. Þá benda kannanir til
þess að 55% borgarbúa noti stræt-
isvagna' að staðaldri eða óreglu-
lega. í áætluninni kemur fram að
árið 1999 voru 76 þúsund ökutæki
í borginni og þar af 62 þúsund
fólksbílar. Þetta gerir um 570 bíla
á hverja þúsund íbúa. Talið er að
meðalakstursvegalengd á höfuð-
borgarsvæðinu sé um 6 kílómetr-
ar í hverri ferð, Ein helsta afleið-
ing af aukinni umferð er að þjón-
ustustig aðalgatnakerfisins hefur
minnkað. ■
Trassaskapur sjómanna:
Réttinda-
lausir á sjó
siómennska Ekki eru tii nákvæmar
tölur um hversu margir sjómenn
kunna að vera í vandræðum vegna
þess að nú er farið að framfylgja
kröfum um slysavarnanám áður en
þeir fá lögskráningu á skip. Milli 2
og 3 hundruð eru á biðlista eftir að
komast að í Slysavarnaskóla sjó-
manna, en ekki er víst að allur sá
hópur sé í vandræðum. Fullbókað
er í námið fram í október nk.
Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasambands
íslands, segir að einhverjir sjó-
menn hafi leitað til sambandsins út
af málinu en ekki hafi verið haldið
utan um það sérstaklega. „Það var
náttúrulega búið að fresta þessu
íkröfunni um siysavamanáml mar-
SJÓMENNSKA
Oft er gengið frá lokaskráningu manna sem kallaðir eru á sjó með skömmum fyrirvara
eftir að skip hafa látið út höfn og hefur þá í sumum tilvikum komið í Ijós að þeir hafa
ekki lögskráningu.
goft. Stór hluti af þessu held ég aö
hljóti að flokkast undir trassaskap,"
sagði hann og taldi ólíklegt að fjöld-
inn væri slíkur að útgerðir væru í
vandræðum. „Það er einkennilegt
ef þetta kemur mönnum á óvart því
langt ér síðan þetta átti að taka
gildi," bætti hann við.
Þórhallur Helgason, rekstrar-
st.jóri togara hjá Granda hf. segir
að komið hafi upp tiifelli þar sem
afleysingamenn hafi reynst ólög-
legir þegar á reyndi og skip jafnvel
komin á sjó. Þeir menn haldi ekki
plássi sínu þótt ekki hafi verið
stímt í land með þá. „Þeir eru
tryggðir og ekki verið að glannast,
þannig lagað. En þetta er ólöglegt
og við reynum að fylgja þessu héð-
an' í frá eins og hægt er." ■