Fréttablaðið - 21.01.2002, Side 10

Fréttablaðið - 21.01.2002, Side 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 21. janúar 2002 H/IÁNUPACUR Hagsmunaárekstrar og spilling FRETTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavfk Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is Fréttablaðinu er drefft ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins I stafrænu formr og (gágnabönkum én endurgjalds. | BRÉF TIL BLAÐSINS] íþrótt er mjög gottmál VHhjálmur Alfreðsson, Efstasundi 76, Rvk. skrifar: hm í knattspyrnu Nýlega hringdi Svala nokkur til blaðsins og gaf í skyn að hún væri fegin því að HM - keppnin yrði ekki sýnd á RÚV. Nú fer ég aftur í tíma. Pabbi minn fór með mér á Ibrox Stadium í Glasgow árið 1944 til að sjá Glas- gow Rangers keppa og þar var Al- bert Guðmundsson í fararbroddi, með bestu knattspyrnumönnum Skotlands. Síðar, þegar ég fór til að styðja Glasgow Rangers, sagði mamma mín við mig: „Mikið ertu með fallega liti.“ Sem sagt, rautt, hvítt og blátt. Og að heyra tugþús- undir manna syngja: „There’s not a team like the Glasgow Rangers, no not one, no not one,“ var tónlist í mínum eyrum. íþrótt er mjög gott mál. ■ The Moscowllmes com Iritstjórnargrein um gjaldþrot Enron segir The Moscow Times að hverjum þeim sem fylgst hefur með viðskiptalífi Rússa ætti að vera ljóst að lítið sé að marka árit- anir endurskoðenda stóru endur- skoðunarfyrirtækjanna. Þannig hafi forverar Prcewaterhouse- Coopers, Coopers & Lybrand, trekk í trekk skrifað undir upp- gjör Seðlabanka Rússlands jafn- vel þótt endurskoðendum fyrir- tækisins hafi verið full ljóst að verið var að dæla peningum út úr bankanum í fyrirtæki sem skráð eru á Ermarsundseyjum. “Mörg endurskoðunarfyrirtæki þéna mikla peninga á ráðgjöf sem þau veita sömu fyrirtækjum og þau endurskoða," segir í leiðaranum. í Lundúnarblaðinu Financial Times er sjónum beint að hlut bankanna í gjaldþrotinu. Bent er á að Enron hafi verið af við- skiptabönkum sínum, J.P. Morg- an og Citigroup, tekið sem dæmi um hversu skynsamlegt það sé að bankar séu bæði lánastofnanir og fjárfestingarbankar. Á fjórða áratug síðustu aldar var slíkt samkrull bannað, enda talið að hagsmunaárekstrar hefðu átt sinn þátt í hruninu mikla 1929. Leiðarahöfundur telur afnám r~- ^jjT"-j— þeirra reglna vafasamar „Veik- leikar þessarar nálgunar hljóta að kalla á endurskoðun þegar aft- ur lygnir eftir storminn kringum Enron.“ New York Times telur yfirlýsing- ar Larry Lindsey, efnhagsráð- gjafa forsetans og Paul O'Neill, fjármálaráðherra Bandaríkjanna um að gjaldþrot Enron væri merki um heilbrigðan kapítal- isma, afar óheppilegar. Blaðið telur að málið sýni þvert á móti að þær stofnanir sem gæta áttu að leikreglum væri fylgt hafi reynst spilltar og að málið sé síð- eljc Jscui JJork Smcs P rá ð ui...Lum.r..æðii[iai Gjaldþrot raforkusölufyrirtækísins Enron hefur vakið upp ýmsar áleitnar spurning- ar. Leiðarahöfundar blaða heimsins hafa að undaförnu velt vöngum yfir hvaða lær- dóm megi draga af þessu stóra gjaldþroti. ur en svo einsdæmi. „Enginn sem ég veit um í fjármálaheiminum er þeirrar skoðunar að mál Enron sé einsdæmi," segir í leiðara. ■ | ÖNNUR SIÓNARMIÐ [ Vöruúrval kannski of mikið Islenskir neytendur eru afskap- lega hlýðnir,“ segir Vigdís Stef- ánsdóttir, blaðamaður og áhuga- manneskja um neytendamál. „Það hvarflar aldrei að þeim að mótmæla eða beita samtaka- mætti.“ Vigdís segist hafa orðið bærilega vör við verðhækkan- ir að undanförnu. „Það eru ekki bara hækkanir á matvöru sem manni blöskrar, heldur einnig hækkanir á opinberri þjónustu. Ég er viss um það að víða er verið að bruðla verulega hjá bæði ríkinu og sveitarfélögum og mér finnst að hið opinbera eigi að ganga á undan með góðu fordæmi þegar verið er að prédika sparnað.” Vigdís segist stundum sniðganga vöru sem hefur hækkað mikið. „Ég held að menn hafi verið að notfæra sér gengið til að hækka vöruverð, alveg eins og menn gerðu þegar myntbreytingin varð á sínum tíma. Svo brenglast verðskynið þegar verðbólgan eykst og launin ná ekki í skottið á verð- hækkununum. Svo má alltaf spyrja sig hvað við neytendur erum að borga fyrir allt vöruúrvalið. Það kostar heilmikið og það er spurning hvort vöruúrval þurfi að vera jafn mikið hér og það er í í Evrópu og Bandaríkjunum samanlagt." ■ Kauptu ekki hlutabréf Hlutabréfakaup og -sala eru ágætt gróðafæri fyrir hákarla í djúpu lauginni. Þú átt ekkert erindi í þessa laug fjármálaheimsins, hvorki einn sér né með leiðsögn ráðgjafa á borð við svokallaða fjár- vörzlumenn í bönkum. Hlutabréf eru fyrst og fremst ágætur vettvangur fyrir innherja. Hlutabréf eru meira að segja hættuleg al- menningi í Bandaríkjunum, þar sem reglur um upplýsingaskyldu fyrirtækja þykja betri en ann- ars staðar og að minnsta kosti ýtarlegri en hér á landi. Nýjasta dæmið um það er gjaldþrot Enron, sem var með stærstu orku- og olíufélögum. Stjórnendur og endurskoðendur fyrirtækisins vissu hvert stefndi, gáfu kolrangar upplýsingar um afkomuna, eyddu mikilvægum skjölum, skutu hagsmunum sínum undan með því að selja hluta- bréf í kyrrþey og létu almenna hluthafa og starfs- menn sitja uppi með sárt ennið. Græðgin í Bandaríkjunum kemur hingað, ef hún lifir ekki þegar góðu lífi hér á landi. Innherj- ar vita einir, hvernig staðan er og hvernig mál munu þróast. Þeir vita einir, hvert þeir ætla að stefna málum fyrirtækisins. Þeir hafa pólitísk sambönd, sem koma eða koma ekki að gagni. Flestir ráðherrar núverandi ríkisstjórnar Bandaríkjanna eru hluthafar í Enron, sumir stór- ir. Þegar vandræði fyrirtækisins voru byrjuð að hrannast upp í fyrra, hafði Dick Cheney, varafor- seti Bandarikjanna forustu um að misnota ríkis- valdið til að reyna að bjarga fyrirtækinu. Meðal annars fóru fulltrúar margra ráðuneyta til Indlands til að hóta stjórn landsins bandarísk- um refsiaðgerðum, ef hún leysti Enron ekki und- an skyldum sínum sem aðaleigandi misheppnaðs orkuvers í Dabhol. Þetta fantabragð mistókst, af því að Indverjar létu ekki kúga sig. Hér á landi höfum við einnig séð ríkisvaldið misnotað í þágu innherja. DeCode Genetics fékk ókeypis einkaleyfi og fékk að gera uppkast að reglugerð um meðhöndlun á sjúkraskýrslum, rétt „Innherjar vita einir, hvernig staðan er og hvernig mál munu þróast. Þeir vita ein- ir, hvert þeir œtla að stefna málumfyrir- tœkisins. Þeir hafa pólitísk sambönd, sem koma eða koma ekki að gagni. “ eins og Enron fékk að hafa áhrif á reglugerð um ríkisstuðning við olíuleit í framhaldi af hugsan- legum orkuskorti vegna ófriðarhættu. Ríkisstuðningurinn við Enron dugði ekki og fyrirtækið var látið rúlla, þegar innherjarnir höfðu í kyrrþey losað sig við hlutafé sitt. Verð- gildi hlutafjár í Enron gufaði upp, án þess að venjulegir hluthafar áttuðu sig á, hvaðan á þá stóð veðrið, líka þeir sem vissu um ríkisafskiptin. Hér á landi eru margir, sem þykjast vera sér- fræðingar í hlutabréfum og mæla með slíkri fjár- festingu umfram kaup á stöðugri pappírum á borð við opinber skuldabréf. Þeir notuðu uppsveiflu á síðari hluta síðasta áratugar til að tala hlutabréf upp, í fjölmiðlum og í almennri ráðgjöf. Árin 2000 og 2001 sáum við, að bjartsýni þess- ara svokölluðu sérfræðinga átti ekki við rök að styðjast. Þeir, sem fjárfestu í hlutabréfum, töp- uðu yfirleitt peningum, meðan hinir varðveittu höfuðstólinn, sem fóru með löndum í fjárfesting- unni og sættu sig við minni væntingar. Fjárvörzlumenn í bönkum og aðrir meintir sér- fræðingar vita lítið meira en þú um stöðu og þró- un mála. Yfirleitt er þetta ungt fólk, nýskriðið úr skólum. Það áttar sig ekki á aðstæðum, en er vopnað takmarkalausu og ástæðulausu trausti á getu sína til að fara með annarra manna fé. Raunar skiptir litlu, hversu mikið fjárvörzlu- menn þroskast á mistökum sínum. Þeir vita alltaf minna en hákarlarnir í djúpu lauginni. Jónas Kristjánsson ORÐRÉTT Tveir léttir! Minni fita og faerri hitaeiningar! Með villisveppum og með skinku og beikoni. Fyrir voru léttostar með grænmeti, með sjávarréttum og hreinn léttostur. Smurostarnir eru þægilegt, bragðgott álegg og Ifka spennandi í ofnrétti, súpur og sösur. www.ostur.ls ÓSKYNSAMLEC ORÐ SKULU STANDA „Ég tel að þeir sem undirrituðu samninginn verði að ábyrgjast gjörðir sínar. Orð skulu standa þrátt fyrir að um óskynsamlegan samning sé að ræða.“ Guðmundur Hailvarðsson alþingismaður um deilur um starfs- lokasamning Þórarins V. Þórarinssonar. Fréttablaðið. 18. janúar. LEYNIFUNDURINN „Þetta er bara kaffiboð hjá vini okkar Hannesi.“ Jónmundur Guð- marsson væntanlegur bæjarstjóri Seltirninga um fund Björns Bjarnasonar og stuðn- ingsmanna hans á heimili Hannesar H. Gissurarsonar. Fréttablaðið. 18. janúar. EKKERT ATVINNULEYSI? „Þeir sem vilja vinna sýnist mér að eigi að geta fengið vinnu.“ Jens Ólafsson, framkvæmdastjóri ráðningarstofunnar Ábendis um ástand á vinnumarkaðnum. Fréttablaðið. 18. janúar. ER VERÐBÓLGAN VANMETIN? „Við höfum ekki verið að hækka verð á matvælum umfram verð- bólguþróun." CRUNDVALLARÁGREININCUR „Okkur fannst menn gæta einka- hagsmuna miklu meira en al- mannahagsmuna og við viljum það ekki.“ Jón B.G. Jónsson, oddviti sjálfstæðismanna í Vesturbyggð um samstarfsslit við framsóknarmenn í bæjarstjórn. Mbl. 18. janúar. HEIMSBORGIRNAR OG KEFLAVÍK „Það er mikill styrkur að búa í bæ hærri heims- borgum. Það eyk- ur því möguleik- ana að búa [í Keflavík] fremur en að takmarka þá.“ Árni Sigfússon, bæjarstjóraefni i Reykjanesbæ, sem hefur keypt sér hús í Keflavík. Mbl. 18. janúar. FENGIST PETTA BIRT í ÞRIÐJA RÍKINU? „Flokkur Davíðs og Hannesar rit- skoðar ríkisfjöl- miðlana af kost- gæfni og beitir miskunnarlausri atvinnukúgun til að beygja fjöl- miðlamenn undir vilja sinn og gef- ur lítið eftir höfðingjum þriðja ríkisins í vinnubrögðum sínum.“ íslenskir ostar - hreinasta afbragð. Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs. Mbl. 18. janúar. Sverrir Hermannsson um Sjálfstæðis- flokkinn. Mbl. 18. janúar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.