Fréttablaðið - 23.01.2002, Qupperneq 1
anns
ÍÞRÓTTIR
Yorke
til Boro
bls 15
FRÉTTABLAÐ
MENNINC
Hrœðilegt að
heyra mig tala
íslensku.
bls 18
ÖRYGGISKERFI
TÖLVULAGNAVÖRUR
VINNUSTAÐABÚNAÐUR
Hamarshöfða 1 - Sími 511 1122
www.simnet.is/ris Ný Heimasióa
FÓLK
Trabant á
skífu mánað
RAFLAGNIR ÍSLANDS ehf.
VERSLUN - HEILDSALA
16. tölubiað - 2. árgangur
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Miðvikudagurinn 23. janúar 2002
MIÐVIKUDAGUR
Á að upplýsa um
ófrjósemisaðgerðir?
þincfundur Á fundi Alþingis í dag
verður m.a fjallað um hvort leyfa
skuli beiðni Þór-
unnar Sveinbjarn-
ardóttur, alþingis-
manns til heilbrigð-
isróðherra um
skýrslu um umfang
ófrjósemisaðgerða
hérlendis á tímabil-
inu 1938-1975. Vitað er til að slíkar
aðgerðir hafi verið gerðar í ein-
hverjum mæli á þroskaheftu fólki
hérlendis að því forspurðu og hafa
verið greiddar bætur úr ríkissjóði
vegna slíkra aðgerða.
Að meta gærur
nefndarfunpur Landbúnaðarnefnd
Alþingis fjallar um flokkun og mat
á gærum og ull, útflutning hrossa,
búf járhald, búnaðarlög og fleira á
fundi sínum í dag.
VEÐRIÐ í DAG
REYKJAVI'K Norðaustan 5-13
m/s og léttskýjað.
Frost 5 til 10 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
isafjörður Q 8-13 Él 010
Akureyri Q 8-13 Él 010
Egilsstaðir o 8-13 Él O 10
Vestmannaeyjar © 8-15 Léttskýjað O8
Hvar stendur
forsetinn?
mAlstofa Lagadeild Háskólans spyr
um stjórnskipulega stöðu forseta
íslands á málþingi í stofu 101 í Lög-
bergi kl. 12.15. Sigurður Líndal og
Hannes H. Gissurarson velta vöng-
um fyrir opnu húsi.
Konur og börn í
Zimbabwe
réttindi Réttindi barna og kvenna í
Zimbabwe eru til umf jöllunar á
málstofu Mannréttindaskrifstofu
íslands í Litlu Brekku við Banka-
stræti kl. 17. Magnfríður Júlíus-
dóttir lektor reifar málið á grund-
velli eigin rannsóknar.
KVÖLPIÐ j KVÖLDj
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára
íbúar á 63,4%
höfuð-
borgarsvæð- |
inu í dag?
Meðallestur 25 til 49
ára á miðvikudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2001
70.000 eintök
65% fólks les blaðið
MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA A
HÖFUÐBORCARSVÆÐINU SAMKVÆMT
FjðLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001.
Breytt staða rædd í
stjórn fulltrúaráðs
Ovíst hvort hugmyndum um leiðtogaprófkjör verður haldið til streitu eftir að Inga Jóna Þórðar-
dóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur dregið sig í hlé og lýst stuðningi við Björn
Bjarnason í leiðtogasætið. Davíð Oddsson segir að Björn eigi aðeins þá leið færa að fara í fram-
boð. Björn segir yfirlýsingar sínar bíða fundar fulltrúaráðsins á laugardag.
framboðsmál Breytt staða varð-
andi leiðtogaprófkjör sjálfstæðis-
manna í Reykjavík verður til um-
ræðu á fundi stjórnar fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík á morgun. Til fundar-
ins var boðað síðdegis í gær þeg-
ar ljóst var að Inga Jóna Þórðar-
dóttir, sitjandi oddviti sjálfstæð-
ismanna í borginni, drægi sig út
úr fyrirhuguðu leiðtogaprófkjöri
og lýsti stuðningi við Björn
Bjarnason, menntamálaráðherra í
embaéttið.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði í gær að ákvörð-
un Ingu Jónu hafi verið skynsam-
leg o'g taldi Björn Bjarnason njóta
mikils stuðnings til fprystu í
borgarstjórnarmálum. í viðtali
Sjónvarpsins sagði Davíð að ljóst
væri að einungis ein leið
væri fær fyrir Björn og
það væri að fara fram í
borginni. Björn Bjarnason
tók í sama streng, en ætlar
að bíða með formlega yfir-
lýsingu þar til á kjördæm-
isfundi fulltrúaráðs
flokksins í borginni á laug-
ardaginn kemur. „Það er
sá vettvarigur sem ég hef
alltaf miðað við og talið að
sé eðlilegur vettvangur fyrir yfir-
lýsingu mína þessa efnis,“ sagði
hann.
Eins og staðan var í gærkvöldi
sat Eyþór Arnalds einn eftir sem
yfirlýstur frambjóðandi í leið-
togaprófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann segist ætla að
kortleggja sína stöðu í
ljósi breyttra aðstæðna.
„Ég hef bara gefið eina yf-
irlýsingu. Það er að ég ætl-
aði að gefá kost á mér í
leiðtogaprófkjörinu. Það
hefur ekkert breyst,"
áréttaði hann þó í gær-
kvöldi og taldi nægan tíma
fram á laugardag til að
íhuga næstu skref. Júlíus
Vífill Ingvarssön, sem einnig hef-
ur verið nefndur við oddvitasætið
ætlar að hugsa sig enn frekar um
og ráðfæra sig við sjálfstæðis-
menn í borginni.
Þótt miðstjórn flokksins. hafi
breytt prófkjörsreglum til að
greiða fyrir því að hægt sé að
halda sérstakt prófkjör um fyrsta
sæti lista er það fulltrúaráðið sem
ákveður hvort sú leið verður far-
in. Þar til Inga Jóna dró sig í hlé í
gær var það talið formsatriði að
sú ákvörðun yrði tekin á fundi
ráðsins á laugardag. í kjölfar yf-
irlýsingar hennar hafa hins vegar
komið fram raddir innan forystu
flokksins í borginni um að falla
frá leiðtogaprófkjöri og leita eftir
samstöðu innan fulltrúaráðsins
um að Björn leiði framboðslist-
ann.
Sjá einnig bls. 8
Sagði Davíð að
Ijóst væri að
einungis .ein
leið væri fær
fyrir Björn og
það væri að
fara fram í
borginni.
Á ALÞINGI í GÆR Það mæðir margt á menntamálaráðherra þjóðarinnar þessa dagana. Myndin er tekin skömmu áður en fregnir bár-
ust af því að Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrum keppihautur hans um leiðtogasæti i borginni, drægi sig í hlé og lýsti yfir stuðningi við Björn
sjálfan í embættið. Þó kann að vera að Geir H. Haarde, fjármálaráðherra og eiginmaður Ingu Jónu, hafi upplýst sessenaut sinn, Björn, um
stöðu mála fyrir þingfund.
Hærra kílóverð í Fjarðarkaupum í gær:
„Verðið er á sífelldu flökti“
MATVARA Dæmi eru um að græn-
meti og ávextir í Fjarðarkaupum
hafi hækkað í gær, sama dag og
verslunin hóf að gefa viðskiptavin-
um sínum 3% afslátt af öllum vör-
um við kassa. Kílóið af grænum
eplum kostaði 169 krónur í fyrra-
dag en 198 krónur í gær. Sama
magn af appelsínum kostaði 149
krónur í fyrradag en 179 í gær.
Hækkun þessara tegunda á milli
daga var því um 15%. Rauð papri-
ka hækkaði nokkuð minna, eða um
8%. Fjarðarkaup er eina matvöru-
verslunin sem hefur farið að dæmi
Byko og Húsasmiðjunnar um
verðstöðvun fram til 1. maí.
Gisli Sigurbergsson, einn eig-
enda Fjarðarkaupa, segir hækkan-
irnar ekki til marks um að verslun-
in hafi viljað búa sig undir áform-
aða verðstöðvun. „Það eru alltaf
einhverjar breytingar í gangi, sér-
staklega á grænmeti." Þannig hafi
tilviljun ráðið því að verð á ofan-
töldum tegundunum voru hækkuð
samtímis verðstöðvuninni. „Fyrir
um.10 dögum lækkuðum við ýms-
ar grænmetistegundir. Við vorum
einfaldlega að breyta verðunum
aftur, þó ekki til jafns við það sem
þær voru áður.“ ■
FÓLK
Skotárás í Jerúsalem:
Tuttugu
særðir
hryðjuverk Að minnsta kosti tutt-
ugu Israelsmenn særðust, margir
alvarlega, þegar Palestínumaður
hóf skothríð við strætivagnastöð
við fjölfarna verslanamiðstöð í
Jerúsalem í gær.
Maðurinn hélt uppi skothríð úr
sjálfvirkum riffli í um tíu mfnútur
og reyndi að komast undan.á flót-
ta en ísraelSkir lögreglumenn kró-
uðu hann af og skutu til bana.
Fyrstu fréttir hermdu að ellefu
manns hefðu fallið en staðfestar
upplýsingar um afdrif hinna slös-
uðu lágu ekki fy.rir í gær.
Talið er að árásin hafi veriö í
hefndarskyni fyrir það að ísraels-
her drap fjóra Hamas-menn í
Nablus í gær.
Sjá nánar bls. 7
ÞETTA HELST
Utanríkisráðuneytið ræður
sjálft greiðslum til sendi-
herra. Allir íslenskir sendiherrar
í starfi erlendis fá yfir milljón
krónur á mánuði í reiknaðar
skattskyldar tekjur. bls. 2.
—4----
Guðni Ágústsson varaði við því
að horft væri til ESB í um-
ræðum um efnahagsmál á Al-
þingi í gær. bls. 2.
Davíð Oddsson sagði á Alþingi
í gær að til greina kæmi að
skipta upp markaðsráðandi stór-
fyrirtækjum á matvælamarkaði.
Hann spáir vatalækkun í næsta
mánuði. bls. 2.