Fréttablaðið - 23.01.2002, Side 14
FÓTBOLTI
FRÉTTABLAÐIÐ
23. januar 2002 MIÐVIKUPACUR
Risaslagur í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi:
Murphy tryggði Liver-
pool 1-0 sigur á United
Varnir
gegn bullum
Þessa dagana standa yfir viðamiklar æfing-
ar hjá lögreglumönnum í Suður-Kóreu.
Þær eru liður af undirbúningi fyrir heims-
meistarakeppnina í knattspyrnu í sumar.
Hér eru lögreglumenn að handtaka bullur
á æfingu í fyrradag.
VEL HEPPNUÐ ÆFING
Keppendur eru að æfa
sig á Spáni fyrir kappaks-
turinn 3. mars í Melbour-
ne. Reynsluöku-
manninum Ryo Fukada
hjá BAR Honda tókst að
kveikja I bilnum sínum
um helgina.
Formúla 1:
Tyrkir funda um brautina
formúla i Formaður Bifreiðasam-
taka Tyrklands, Mumtaz
Tahincioglu, fundaði í gær með yf-
irmönnum Formúla 1 kappaksturs-
ins í .London. Umræðuefnið var
hvort brautin sem Tyrkir ætla að
byggja í Istanbul fái að vera með á
keppnishring Formúla 1 kappakst-
ursins. Tyrkir hafa nokkrum sinn-
um sótt um að halda Ólympíuleika
en aldrei verið valdir. Þeir telja
möguleika sína meiri ef þeir fá að
vera með í Formúla 1. „Því fylgja
gífurlegir efnahagslegir kraftar.
Ferðamannastraumurinn myndi
stóraukast," sagði Tahincioglu.
Hann er að vinna að því að sérstök
lög verði sett í landinu til að leyfa
tóbaksauglýsingarnar, sem fylgja
kappakstrinum. lýrkland er með
ströng lög varðandi áfengis- og tó-
baksauglýsingar. Áhyggjurnar af
því gætu orðið litlar þar sem Evr-
ópusambandið hyggst banna allar
tóbaksauglýsingar í íþróttum árið
2006. Týrkland keppir við Líbanon,
Bahrain, Egyptaland og Sameinuðu
arabísku furstadæmin um að vera
með í Formúla 1. Moskva verður
líklegast með 2003. ■
NBA deildin:
Knicks aldrei
jafn lélegt
körfubolti Ellefu leikir fóru fram í
NBA deildinni á mánudagskvö.Id.
New York Knicks fóru einna verst
út úr kvöldinu. Það tók á móti
Charlotte Hornets á heimavellinum
Madison Square Garden. Niður-
staðan var stærsta tap þeirra á
heimavelli frá því félagið var stofn-
að fyrir 56 árum. Hornets unnu
leikinn 111-68. Leikmenn Knicks
gengu niðurlútir út af með hand-
klæðin yfir hausnum. Þeir hafa
ekki skorað svo fá stig á tímabilinu.
Þetta var áttundi leikurinn sem lið-
ið tapar í röð. Það er jafnframt
lengsta taplengja þess síðan 1986.
Sacramento Kings gekk öllu bet-
ur. Það tók á móti Memphis
Grizzlies og vann leikinn 112-98.
Þetta var tólfti leikurinn sem liðið
vinnur í röð. Það hefur ekki tapaö á
heimavelli í 16 leikjum í röð. „Sig-
urlengjan er góð en hún nægir ekki.
Við ætlum okkur ekki að sitja og
horfa á Lakers vinna,“ sagði Chris
Webber hjá Sacramento. Liðið er
búið að spila 40 leiki og hefur unnið
31.
Knattspyrnusamband
Islands:
nnr ♦11 ♦ r ♦
1 iu milljomr
til félaga
fótbolti Stjórn Knattspyrnusam-
bands íslands ákvað á stjórnar-
fundi 17. janúar síðastliðinn að
greiða tæpar 10 milljónir króna til
aðildarfélaga KSÍ. Með þessari
ákvörðun hefur KSÍ skilað aðildar-
félögum sínum um 160 milljónum
kr. frá 1992 með framlögum, niður-
fellingu gjalda og yfirtöku á kostn-
aði.
Alls munu 56 aðildarfélög KSÍ fá
framlag frá sambandinu. Þetta eru
þau félög sem sendu lið til keppni í
mót á vegum KSÍ í yngri aldurs-
flokkum utanhúss 2001. Félög sem
sendu lið til keppni í yngri flokkum
karla og kvenna fá 200 þúsund kr.
hvert. Félög sem sendu aðeins lið til
keppni í yngri flokkum karla fá 125
þúsund kr. hvert. Samkvæmt þessu
fá 38 félög 200 þúsund og 18 félög
125 þúsund. Þá hefur verið ákveðið
að engin þátttöku- eða skráningar-
gjöld verði greidd 2002.
„Þetta skiptir kannski ekki
miklu máli hjá stóru félögunum.
Þetta getur hinsvegar munað miklu
hjá þeim minni, sem eru út um allt
land. Þetta er hvatning fyrir þau til
að halda áfram góðu starfi," sagði
Eggert Magnússon, formaður KSÍ,
á blaðamannafundi í gær. ■
KSÍ STYÐUR LITLU FÉLÖGIN
Geir Þorsteinsson og Eggert Magnússon
hugsa vel um þá sem minna mega sín.
VARIÐ
Kurt Thomas hjá New York Knicks sýndi
það að hann getur ennþá varið bolta þó
leikurinn vinnist ekki. Hér fér Jamaal
Magloire slæma útreið í Madison Square
Garden á mánudaginn.
í öðrum leikjum vann Atlanta
Houston, Seattle vann Philadelphia,
Milwaukee Detroit, Dallas New
Jersey, Indiana Chicago, Utah
Golden State, Minnesota Was-
hington, Miami vann Cleveland í
framlengdum leik, Boston vann
Toronto og L.A. Clippers vann Den-
ver. ■
knattspyrna Varnarmenn Liver-
pool unnu fyrir kaupinu sínu í
gærkvöldi þegar lið'ið sigraði
Manchester United 0:1 á Old Traf-
ford. Heimaliðið sótti stíft mest-
allan leikinn en tókst ekki að
brjótast í gegn. Danny Murphy
sem hefur áður verið bjargvættur
Liverpool í leikjum gegn United
skoraði markið eftir sendingu frá
Steven Gerrard á 85. mínútu og
tryggði Liverpool sætan sigur.
Fram að gærkvöldinu hafði liðið
aðeins náð þremur stigum úr fjór-
um deildarleikjum frá áramótum.
Liverpool færðist eftir leikinn
yfir Leeds og Arsenal upp í þriðja
sæti deildarinnar. Liðið er þar
með jafnmörg stig og Newcastle
sem er í öðru sæti en hefur leikið
einum leik meira.
Heimaliðið tapaði sínum fyrsta
leik á árinu, en heldur þrátt fyrir
það þriggja stiga forskoti á
Newcastle sem þó á leik inni.
Markahlutfall United er mun
betra. Ryan Giggs og David Beck-
ham voru báðir oftar en einu sinni
nærri því að skora í leiknum og
einnig Ruud Van Nistelrooy. ■
NISTELROOY
Náði boltanum ekki i neitð í gær eftir að hafa skorað í átta leikjum í röð.
ÓLYMPÍULEiKAR Rússneska keppn-
isliðið á vetrarólympíuleikunum í
Salt Lake City tekur engar áhætt-
ur. „Allir vita að Utáh er morm-
ónafylki, þar sem erfitt er að kom-
ast yfir áfengi," segir liðsstjóri
Rússanna, Viktor Mamatov. Þess
vegna taka menn helstu náuð-
þurftir með sér að heiman: vodka
og kavíar.
. Rússneska liðið telur 400
manns, að þjálfurum, aðstoðar-
mönnum þeirra, nuddurum,
sjúkraþjálfurum og öðrum með-
töldum. Til að tryggja að allir hafi
allt til alls og ekkert hamli árangri
ólympíufaranna var tekin sú
ákvörðun að hver einasti maður í
hópnum tæki með sér tvær flösk-
ur af vodka og tvær dósir af
styrjuhrognum. „Yfirvöld í Utah
hafa veitt okkur heimild til að hafa
áfengi með í för,“ sagði Mamatov í
viðtali í blaðinu Sport Express.
Auk vodkans og styrjuhrogn-
anna taka Rússarnir með sér eitt
og annað smálegt í matinn. Til að
allt verði eins og það á að vera eru
tveir Rússanna meistarar á sviði
hinnar eðlu íþróttar, matargerðar-
listar. Tveir meistarakokkar sjá
um að elda fyrir liðið. Það verður
ekkert MacDonaldsfæði hjá Rúss-
unum.
Fyrstu vodka- og kavíar-
skammtarnir ættu að vera komnir
til Salt Lake City. Kvennaliðið í
Curling og allir skíðagöngukappar
liðsins mættu til borgarinnar á
mánudag. Nú er bara spurning
hvort nestið dugi fram að leikun-
um. ■
PUTIN STYÐUR FARANA
Vladimir Pútin, forseti Rússland, heilsaði upp á Ólympíufarana um helgina og hefur eflaust fengið sér staup I tilefni af því. Þeir voru
við æfingar í þorpinu Planernoye, sem er 20 kílómetrum fyrir norðan Moskvu. Við hlið hans stendur Leonid Tyazhlov, formaður
Ólympíunefndar Rússlands.
Rússar undirbúa sig fyrir Ólympíuleika:
Atta hundruð vodka
flöskur með í för
Ll www.simnet.is/ris
£ ÖRYGGISKERFI
Bestir í úrvalsdeildinni:
Guðni þriðji,
Eiður sjöundi
knattspyrna Tveir íslenskir knatt-
spyrnumenn eru meðal hinna sjö
bestu á Bretlandseyjum sam-
kvæmt einkunnagjöf norska dag-
blaðsins Verdens Gang. Guðni
Bergsson er í þriðja sæti og Eiður
Smári Guðjohnsen í því sjöunda.
Norska blaðið hefur gefið Guðna
meðaleinkunnina 7,16 en Eiður
Smári er með 7,07.
Efstur á blaði er Robert Pires,
miðvallarmaður Arsenal með 7,25.
í öðru sæti er Malbranque hjá Ful-
ham með 7,17, 0,01 stigi meira en
Guðni. Fjórði er Dean Kiely hjá
Charlton með 7,13. Markamaskírian
Thierry Henry er með 7,11, Benito
Carbone hjá Derby fær 7.08.
Hermann Hreiðarsson er í 74.
sæti en alls fá 234 Ieikmenn ein-
kunn. Tossinn í úrvalsdeildinni er
Ade Akinbiyi, hinn óheppni sóknar-
maður Leicester, með 5,44. ■
Stoke tapaði í Cardiff:
Sjálfsmark
hjá Bjama
knattspyrna Stoke City tapaði 2:0
fyrir Cardiff í gærkvöldi og tókst
því ekki að komast í annað sæti
ensku 2. deildarinnar. Eftir leikinn
situr liðið enn í fjórða sæti og Car-
diff ekki langt undan. Bjarni Guð-
jónsson varð fyrir því óhappi að
skora sjálfsmark á 17. mínútu og
Andy Clegg, leikmaður Cardiff,
innsiglaði sigurinn um miðjan síð-
ari hálfleik.
Topplið Reading vann í gær og
er nú átta stigum fyrir ofan Stoke
sem á einn leik til góða. Brighton
og Bristol Rovers, sem einnig eru
fyrir ofan Stoke, léku ekki í gær. ■
KONT^AST
Tilboð á
sérmeðferðum við
skemmdu hári, flösu
og hárlosi.
Oonunartími
mánud. frá kl.11-18
þrið. - fös. frá kl.11-21
laugard frá kl. 10-16
587 2111