Fréttablaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 23. janúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Skotárás fjögurra manna í Kalkútta á Indlandi:
Fimm myrtir við banda-
ríska menningarmiðstöð
KflLKiiTTfl.iNDLflNDi.flP Fimm örygg-
isverðir létust og 21 manneskja
særðist þegar fjórir vopnaðir
menn á vélhjólum hófu skothríð á
menningarmiðstöð Bandarikja-
manna í Kalkútta á Indlandi snem-
ma í gærmorgun. Flúðu ódæðis-
mennirnir af vettvangi eftir árás-
ina. Enginn hafði lýst ábyrgð á
verknaðinum á hendur sér í gær,
en talið er líklegt að róttækur
islamskur hópur hafi staðið á bak
við hann. Indverjar grunuðu
hryðjuverkahóp sem hefur tengsl
við leyniþjónustu Pakistana, ISI,
um verknaðinn. Leyniþjónustan
neitaði hins vegar harðlega öllum
ásökunum og sagðist hvergi hafa
komið nærri.
Menningarmiðstöðin er stað-
sett skammt frá bandarísku ræð-
ismannsskrifstofunni í Kalkútta.
Eftir hryðjuverkaárásirnar
þann 11. september var ákveðið að
auka öryggi við bandarísk stjórn-
setur á Indlandi. Auk þess hafði
öryggi verið hert í kjölfar árásan-
na á indverska þinghúsið í síðasta
mánuði. Sex vikur eru síðan þær
árásir voru gerðar. Undanfarnar
vikur hafa friðsamlega mótmæli
átt sér stað fyrir utan menningar-
miðstöðina og hafði allt verið með
kyrrum kjörum þar til í gær.
Tíu þeirra sem særðust voru
vopnaðir öryggisverðir, aðrir tíu
voru gangandi vegfarendur og
einn var starfsmaður öryggisþjón-
ustu. ■
BYGGINGIN
Almenningur í Kalkútta safnaðist saman i
gær fyrir utan bygginguna þar sem
skotárásin vat gerð.
1 INNLENtT
Veitingahúsið Café Opera aétlar
að lækka hjá sér vöruverð um
.3 prósent. Með því vill fyrirtækið
taka þátt í átaki nokkurra fyrir-
tækja til að viðhalda stöðugleika
Stjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar
skorar á alla kaupmenn, heild-
sala, ríki og sveitarfélög að lækka
hjá sér verð og álögur í baráttu
við verðbólgudrauginn. Stjórnin
segir að þetta geti skipt sköpum.
Ef verðbólgan verði ekki kveðin
niður fyrir vorið er mjög líklegt að
launþegar segi launalið almennra
kjarasamninga lausan. Ekki sé nóg
að nokkrir aðilar taki þátt heldur
verði öll þjóðin að vera með.
Frumkvæði FjarðarkaUpa, Byko
og Húsasmiðjunnar sé virðinga-
vert, vænlegt til árangurs og eigi
að vera öðrurn til fyrirmyndar.
Magnyl búið í apótekum:
V æntanlegt í dag
LYFJflMÁL Magnyl hefur ekki feng-
ist hjá apótekum síðan í síðustu
viku. Magnyl er, meðal annars,
notað við æða og hjartasjúkdóm-
um Lyfið er framleitt af Delta.
Ekki er annað lyf, með sömu
virkni, á markaði.
Að sögn Björns Aðalsteinsson-
ar forstöðumanns markaðssviðs
fyrirtækisins, er von á lyfinu aft-
ur í apótek í dag eða á morgun.
Búið sé að framleiða lyfið. Að-
eins eigi eftir að losa það úr
gæðaeftirliti. Hann segir skort-
inn á lyfinu, stafa af töfum við
framleiðslu þess. Notkun á mag-
MAGNYL
Lyfið er væntanlegt í apótek í dag eða á
morgun. Skortur hefur verið á því síðan í
síðustu viku.
nyl hafi einnig aukist meir en
áætlanir hafi gert ráð fyrir. Því
hafi lyfið ekki verið til á lager og
ekki náðst að framleiða það áður
en það kláraðist í apótekum.
„Skorturinn á lyfinu er vissulega
bagalegur. Þetta eru aðstæður
sem við viljum ekki lenda í,“ seg-
ir Björn. Erfitt sé að fá lausasölu-
lyf flutt erlendis frá, í stað þeirra .
sem framleidd séu hér. Ekki stan-
di til að breyta framleiðslu lyfs-
ins til að skortur geri ekki vart
við sig aftur. ■
| INNLENT |
Verslunin Englabörnin við
Laugaveg hefur ákveðið að
lækka verð á öllum vörum á útsölu
um 20% til viðbótar við þá lækkun
sem áður hafði orðið og segir í
fréttatilkynningu að það sé gert til
að stuðla að lækkun vísitölu
neysluverðs. „Verslunin hefur nú
verið starfrækt í um 20 ár og gera
■ eigendur hennar sér grein fyrir
nauðsyn þess að verðlag haldist
stöðugt í lándinu og vilja leggja sitt
af mörkum til'að svo megi verða“.
Hún var ekki kjörin
af þvf ad hún er kona ...
... hún var kjörin vegna þess
sem hún hefur fram aö færa
- en þaö héfur hún
af því aö hún er kona.
Ef þú kýst ekki fulltrúa þinn
kýs einhver annar fulltrúa sinn
sem fulltrúa þinn.
Ráðherraskipuð nefnd
um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum
___.......•""„ihí.ilií ; 1/1 ■