Fréttablaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 8
8 FRETTABLAÐIÐ 25. janúar 2002 MIÐVIKUPAGUR Loðnuveiðar: 96.000 tonn komin á land loðnuveidar Samkvæmt skýrslu Samtaka fiskvinnslustöðva var búið að landa um 96 þúsund tonn- um af loðnu á vetrarvertíðinni í gærmorgun. Á sama tíma í fyrra var búið að landa um 54.811 tonn- um. Aukningin er því 42.000 tonn. Hraðfrystihúss Eskifjarðar hefur landað hvað mest, rúmlega 16 þúsund tonnum. SR Mjöl á Seyð- isfirði hefur landað um 13 þúsund tonnum og Síldarvinnslan á Nes- kaupstað rúmlega 12 þúsund tonn- um. Hraðfrystihús Þórshafnar hef- ur landað um 8300 tonnum og Sam- herji í Grindavík 7100 tonnum. Er- lend skip hafa landað um 2500 tonnum. ■ Borgarstjóri um ákvörðun Ingu Jónu: „Þarf helst að kjósa áður en Björn tekur ákvarðanir" stiórnmál „Mér finnst þetta í sjál- fu sér merkileg yfirlýsing. Hún sýnir hvað það þarf að ganga langt við að ryðja hindrunum úr vegi svo Björn Bjarnason geti ákveðið að gefa kost á sér. Það þarf helst að kjósa áður en hann tekur ákvarð- anir“, segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, borgarstjóri, og segir að sú hægvirka ákvarðanataka sem Björn Bjarnason hafi sýnt í fram- boðsmálum ekki ganga við borgar- stjórnarkosningar í vor enda verði vart beðið eftir honum með þær. „Þetta er í fjórða skipti sem sjálfstæðismenn skipta um hest í miðju vaði. Fyrst var Markús Örn Antons- son kallaður til að taka við af Davíð Oddssyni þar sem engum var treyst í borgar- stjórnarflokknum. Svo leysti Árni Sigfússon hann af níu vikum fyrir kosning- ar. Svo leysti Inga Jóna Árna af. Núna er Björn Bjarnason leiddur til önd- vegis. Því er reyndar öðru- INCIBJÖRG SÓLRÚN Sjálfstæðisflokkur riðar til falls standi einhver I vegi Björns Bjarnasonar. vísi farið en þegar Inga Jóna leysti Árna af. Hún hafði att kappi við hann í prófkjöri og þótti þá engum mikið um. Nú riðar flokkurinn hins vegar til falls ef ein- hver ætlar að standa í vegi fyrir Birni Bjarnasyni." „Þetta hefur engin áhrif á framboð okkar. Við erum þessu vön. Enda væri það frekar stílbrot ef þeir myndu ekki skipta um leiðtoga." ■ Hafnarfjörður: Sex sinu- brunar eldur Lögreglan í Hafnarfirði var kölluð út sex sinnum í gær vegna sinubruna víðsvegar um bæinn. Að sögn lögreglu var ekki um mikinn eld að ræða en þó þurfti að kalla slökkviliðið einu sinni á vett- vang. Lögreglan sagði það hefðu ver- ið ungir drengir sem hefðu kveikt sinuna. Hún hefði meira og minna verið innan um byggð og því þyrfti lítið að gerast til þess að illa færi. Einni væri mjög erfitt að slökkvað sinubruna þegar eldur- inn kæmist í mosann í hrauninu. ■ Júlíus Vífill Ingvarsson: Skoðar stöð- una á næstu dögum stjórnmál Júlíus Vífill Ingvars- son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks, kveðst ætla að ræða við sjálfstæðismenn í Reykjavík og heyra hvað þeim finnst um stöðu mála áður en hann tekur ákvörðun um hvort hann muni gefa kost á sér í forystu- prófkjöri sjálf- stæðismanna. „Nú er kom- in ný staða í framboðsmál- um í Reykja- vík“, segir Júlí- us Vífill og tel- ur eðlilegt að taka einhverja daga í að fara yfir stöðuna með öðrum sjálfstæðismönnum í Reykjavík. „Það sérkennilega við þetta er að Björn Bjarnason hefur ekki enn gefið kost á sér í leið- togaprófkjörinu. Staðan er því galopin." „Maður verður að hlusta eftir því hvort sjálfstæðismenn í Reykjavík telji að sá sem kemur til með að leiða listann hafi feng- ið það umboð sem æskilegt er að hafa í þá baráttu sem er framund- an. I-Ivort hann hafi fengið það frá sjálfstæðismönnum í Reykja- vík.“ ■——----------------- JÚLÍUS VÍFILL Ný staða komin upp sem þarf að meta. Telur Björn best fallinn til forystu Inga Jóna Þórðardóttir hefur dregið framboð sitt í fyrirhuguðu leiðtogaprófkjöri til baka. Lýsir stuðningi við Björn Bjarnason, menntamálaráðherra. Er tilbúin að taka áttunda sætið, fari kjörnefnd þess á leit við hana. Björn um yfirlýsingu Ingu Jónu: Þakklátur fyrir stuðning Ingu Jónu stjórnmál „Ég er náttúrulega mjög þakklátur fyrir þann stuðn- ing sem Inga Jóna lýsir við mig“, segir Björn Bjarnason mennta- málaráðherra. „Ég er innilega sammála henni um að það sé lykil- atriði fyrir okkur á þessari stundu að standa saman.“ Björn segir stuðningsyfirlýs- ingu við sig mikils virði og að hún komi til með að ráða miklu um það hvaða ákvörðun hann tekur. „Ég segi Inkanrðið um framboð mitt á •kjör-ða BJÖRN BJARNASON Boðar yfirlýsingu á kjördæmis- fundi fulltrúa- ráðs sjálfstæðis- manna I Reykja- næsta laugardag. Það er sá vett- vangur sem ég hef alltaf miðað við og talið að sé eðlileg- ur vettvangur fyr- ir yfirlýsingu mína þessa efnis.“ Björn kveðst ekki hafa rætt við Ingu Jónu áður en hún lýsti því yfir að hún drægi sig iÞ-baka-eg -styddi- - hann til forystu fyrir flokkinn. Hins vegar hafi þau í-ætt saman skömmu eftir að blaðamanna- fundi Ingu Jónu lauk. Þegar Fréttablaðið ræddi við hann hafði hann hins vegar ekki rætt við aðra þá sem hafa verið oi’ðaðir við framboð. Aðspurður hvernig hon- um litist á hugmynd Ingu Jónu um að hún tæki áttunda sætið sagði hann að það væri í vei’kahring kjörnefndar að ákveða það og sjálfur vildi hann ekkijaka fram fyr-ii-hendur hennar.- É-*®- — Átakið ör- uggt spjall forvarnir Börn á grunnskólaaldri eru hvött til að sýna aðgát á spjall- rásum internetsins. í dag kynna ríkislögreglustjóri, lögreglan í Reykjavík, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, _ LFmboðsmaður barna og Skýri’/ísmennt sérstakt átak til að vara börn við þeim hættum sem fylgja notkun spjall- rása. Kynnt verður veggspjald og bæklingur og í framhaldinu haft samband bréfleiðis við foreldra .ákveðinna aldurshópa. Átakið. Eyþór Arnalds um Ingu Jónu: Óvænt í ljósi fyrri yfirlýs- mga Stjórnmál „Það má segja að það komi á óvart að Inga Jóna skuli ákveða að draga sig til baka miðað við framgang hennar síðustu daga og fyrri yfirlýsingar hennar“, segir Eyþór Arnalds. „Eftir stend- ur að það er aðeins einn búinn að gefa kost á sér í leiðtogaprófkjör- inu.“ „Þessi ákvörðun Ingu Jónu breytir stöðunni fyrir alla. Flest- ir áttu von á því að Inga Jóna gæfi kost á sér. Sjálfur átti ég von á því að fleiri en ég myndu gefa kost á sér á móti EYÞÓR ARNALDS In8u JÓnu. Ég Átti von á því að var sannfærður frambjóðendum fjölgaði fremur en fækkaði. um að frambjóð- endum myndi fjölga en ekki fækka eins og nú hefur orðið raunin." Aðspurður hvort yfirlýsing Ingu Jónu breytti einhverju um áform sín sagði Eyþór að upp væri komin breytt staða. Hann myndi setjast niður með stuðn- ingsmönnum sínum og kortleggja þá stöðu. ■ framboðsmál Inga Jóna Þórðar- dóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks- ins í borgarstjórn, dró framboð sitt í fyrirhuguðu leiðtogapróf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík til baka í gær og lýsti um leið yfir stuðningi við að Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, skipi fyrsta sætið. Hún segist —jafnframt reiðubú- in að skipa áttunda sæti listans, verði þess óskað af kjör- nefnd. í yfirlýsingu sem Inga Jóna sendi frá sér segist hún hafa orðið vör við vaxandi óróa meðal flokks- manna á síðustu „Ég er að fórna því að láta á það reyna hvort ég myndi hafa hann í próf- kjöri. Sjálf tel ég miklar líkur á því." —«— dögum og hafi haft áhyggjur af því að keppni milli stuðnings- manna hennar og Björns gæti orð- ið harðvítug. Slík keppni geti skað- að flokkinn verulega og minnkað möguleika hans á sigri í komandi kosningum. Því hafi hún ákveðið að draga framboð sitt til baka. Inga Jóna sagðist ekki hafa rætt við Björn um ákvörðun sína en treystir því að meirihluti flokksins muni fylkja sér bakvið hann. „Það kæmi mér á óvart ef hann byði sig ekki fram. Hann er búinn að gefa það mikið upp að ég tel að það sé hægt að draga þá ályktun að hann sé fyllilega reiðubúinn til þess. „Ég er að fórna því að láta á það reyna hvort ég myndi hafa hann í prófkjöri. Sjálf tel ég miklar líkur á því. En ég ætla ekki að leiða þá baráttu yfir flokkinn. Ég tel að kostnaðurinn við átökin sem fyl- gdu í kjölfarið skipti minna rnáli heldur en að við tökum höndum saman og vinnum borgina." Björn mun gefa svar á laugar- INGA JONA ÞORÐARDOTTIR • Boðaði til blaðamannafundar I gær þar sem hún tilkynnti ákvörðun sína. Hún styður Björn Bjarnason í fyrsta sætið og er tilbúin að taka áttunda sætið, óski kjörfnefnd þess. daginn kemur um hvort hann fari í leiðtogaprófkjörið. Aðspurð hvort Björn væri sterkasti ein- staklingurinn til að leiða listann sagði Inga Jóna: ,;Já, hann er það.“ I síðustu tveimur borgarstjórn- arkosningum hefur áttunda sætið verið baráttusæti milli Sjálfstæð- isflokks og Reykjavíkurlistans. Ef Sjálfstæðisflokkurinn nær ekki átta kjörnum fulltrúum mun Inga Jóna verða varamaður í borgar- stjórn. kristjan@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.