Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2002, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 31.01.2002, Qupperneq 6
6___________________FRÉTTABLAÐIÐ___________________51. janúar 2002 fiiviivitupacur Elna Katrín Jónsdóttir: Vekur erfíðar samfél agslegar spurningar SPURNING DAGSINS Hvað finnst þér um gengi landsliðsins á EM í handbolta? Mér líst bara vel á það. Samt vil ég nú ekki spá fyrir um árangurínn, enda litill spámað- ur. Maður óskar þeim bara alls hins besta. Vilmundur Guðmundsson, leigubílstjóri BREYTINGflR Á SKÓLAKERFINU „Ekki hefur enn verið farið yfir skýrsl- una hjá Kennarasambandinu. Eins og fram kemur er úttektin gerð frá afmörkuðu sjónhorni. Mín skoðun er sú að skoða þurfi þessi mál gaumgæfilega og frá fleiri sjónarhornum," segir Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður Kennarasambands íslands. Verslunarmannafélag Reykja- víkur hefur kynnt skýrslu sem hagfræðistofnun Háskóla ís- lands gerði að beiðni félagsins og boðar viðamiklar breytingar á skólakerfinu. „Skýrsluhöfund- ar gefa sér að nauðsynlegir fjár- munir, til að kosta breytingarn- ar, yrðu inntir af hendi. Með skýrslunni er einnig verið að hreyfa við erfiðum samfélags- legum spurningum. Sú spurning vaknar hvort samfélagið sé reiðubúið til þess,“ segir Elna Katrín. Nefnd um mótun menntastefnu hafi gert tillögu að styttingu námstíma til stúd- entsprófs. „Síðan eru liðin um átta ár. Á liðnun árum hefur stytting námstíma ekki verið kappsmál stjórnvalda. Allir stærri framhaldsskólar með áfangakerfi hafa forsendur til að bjóða nám til stúdentsprófs á þremur árum. Fjármagn hefur, hinsvegar, skort,“ segir Elna ELNA KATRÍN JÓNSDÓTTIR Ég tel ágætt að samtök á al- mennum vinnu- markaði rann- saki málið vís- indalega. Verið getur að það hreyfi við yfir- völdum í menntamálum að gera upp við sig hvaða skóla- stefna skuli setja um málið. Katrín. „Ég tel ágætt að samtök á almennum vinnumarkaði rann- saki málið vísindalega. Verið getur að það hreyfi við yfirvöld- um í menntamálum að gera upp við sig hvort stytting námstíma, frá upphafi skólaskyldu til stúd- entsprófs, verði opinber skóla- stefna.“ ■ Drottning í hálfa öld Margvísleg hátíðarhöld allt árið í tilefni af krýningarafmæli Breta- drottningar. Hátíðarhöldin ná hámarki í byrjun júní. Tony Blair er tíundi forsætisráðherra hennar. DUGLEG AÐ HEIMSÆKJA ÞEGNANA Elísabet Bretadrottning er jafnframt æðsti leiðtogi breska samveldisins. Hún hefur á valda- tímasinum heimsótt öll samveldisríkin, sem eru 54 talsins. Þessi mynd var tekin þegar hún kom til Ástralíu í mars árið 2000. RAFRÆNT PRÓFKJÖR Magnús Gunnarsson bæjarstjóri tekur þátt í prófkjöri sjálfstæðisfélaganna í bænum. Prófkjör sjálfstæðis- manna í Hafnarfirði: Bæjarstjór- inn meðcil 16 þátttakenda stjórnmál Prófkjör sjálfstæðisfé- laganna í Hafnarfirði vegna bæjar- stjórnarkosninganna í vor verður haldið í Víðistaðaskóla laugardag- inn 16. febrúar, kl. 10 til 20. Stefnt er að því að prófkjörið verði raf- rænt en að einnig verði unnt að kjósa með hefðbundnu móti. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag- anna samþykkti einróma framboðs- lista 16 frambjóðenda í prófkjprinu og eru Almar Grímsson, Ágúst Sindri Karlsson, Gissur Guðmunds- son, Haraldur Þór Ólason, Helga Ragnheiður Stefánsdóttir, Leifur S. Garðarsson, Magnús Gunnarsson, Magnús Sigurðsson, Ragnhiidur Guðmundsdóttir, Sigurður Freyr Árnason, Sigurður Einarsson, Sig- urlín Sveinbjarnardóttir, Steinunn Guðnadóttir, Valgeróur Sigurðar- dóttir, Vilborg Gunnarsdóttir og Þóroddur Steinn Skaptason. Nánari upplýsingar um undir- búning prófkjörsins og bæjar- stjórnarkosningarnar má finna á vefsíðunni www.xdhafnarfjord- ur.is. Opinn kynningarfundur fram- bjóðenda verður haldinn í Skút- unni, Hólshrauni, 3 næstkomandi mánudag, 4. febrúar kl. 20. ■ bretland Á miðvikudaginn næsta, þann 6. febrúar, verða liðin fimm- tíu ár frá því Elísabet Bretlands- drottning tók við krúnunni. Af því tilefni verður mikið um dýrðir í Bretlandi. Hátíðarhöld af ýmsu tagi standa yfir meira eða minna allt árið. Drottningin verður á far- aldsfæti og heimsækir þegna sína í öllum landshlutum. Einnig skreppur hún ásamt manni sínum til Ástralíu, Nýja-Sjálands og Jamaíku að heilsa upp á þegna sína þar. Þann 29. aprfl býður Tony Blair forsætisráðherra drottningunni í mat í tilefni af afmælinu. Meðan Elisabet hefur verið drottning Breta hafa tíu forsætisráðherrar verið við völd þar í landi. Sá fyrsti var Winston Churchill. Einungis fimm þeirra hafa þó boðið henni í mat. í ár verður mest um að vera frá maí og fram í júlí. ITápunkti ná hátíðarhöldin dagana 1. til 4. júní. Þá verða tvennir útitónleikar í garðinum við Buckinghamhöll. Annars vegar verður flutt sígild tónlist og hins vegar forgengileg dægurtónlist. Sent verður beint frá þessum tónleikum í sjónvarpi og verður útsendingunni varpað á nokkur stór útitjöld í London. Öllum Bretum sem fæddust 6. febrúar árið 1952 verður einnig boðið í garðveislu við Bucking- hamhöll þann 9. júlí í sumar. Alls er gert ráð fyrir 3.500 gestum í þessa garðveislu. Þá eru Bretar hvattir til að efna sjálfir til marg- víslegra hátíðarhalda í ár á eigin vegum í tilefni af afmælinu. Hef- ur starfsfólk drottningarinnar út- búið sérstakar leiðbeiningar handa þeim, sem hyggjast slást í leikinn. í fréttatilkynningu frá Buck- inghamhöll segir að nú þegar sé búið að staðfesta meira en hund- rað afmælisfagnaði á árinu. Og tekið er fram að kveikt verði á að minnsta kosti 455 kyndlum, sem er helmingi meira en á aldarfjórð- ungsafmælinu. Ástæðan fyrir því að 6. febrúar verður ekki hápunktur hátíðar- haldanna er sú, að sami dagur er dánardagur föður Elísabetar, Ge- orgs VI. Ekki þykir við hæfi að fagna mjög á þeim degi. Sjálf krýningarathöfnin fór enda ekki fram fyrr en 2. júní árið 1953, meira en ári eftir að Elísabet Bretadrottning tók við krúnunni af föður sínum. ■ AUSTURGLUGGINN Það er nóg að gerast á Austurlandi segir Katrín Oddsdóttir blaðamaður á Austurglugganum. Vikublað hefur göngu sína: Austur- glugganum dreifit um Austurland fjölmiðlar íbúar Austurlands fá nýtt blað í hendur í dag, Austur- gluggann. Blaðið er sextán síður og er stefnan að dreifa því frá Bakkafirði til Hornafjarðar. „Fólk er mjög spennt fyrir blað- inu hér, það hefur myndast mjög mikil eftispurn eftir blaði á Austurlandi,“ segir Katrfn Oddsdóttir blaðamaður sem seg- ir blaðið eigi að vera óháð og ópólitísk. Hún og Brynjólfur Þorvarðarson, ritstjóri, eru einu blaðamennirnir í fullu starfi en stefnt verður að því að koma upp neti lausapenna um allan fjórðunginn. „Blaðið á að fjalla um allt milli himins og jarðar. Aðsendar greinar verða einnig velkomnar," segir Katrín. Hún og Brynjólfur eru sjálf nýflutt austur á Neskaupstað þar sem aðsetur ritstjórnarinnar er. „Við erum aðkomufólk á Austurlandi, sem ég held að sé ágætt, þá komum við fersk að málum hér.“ Blaðið eru í eigu útgáfufélags Austurlands, það er prentað á Egilstöðum. Blaðinu verður dreift frítt í fyrstu þrjú skiptin en síðan verður það selt í áskrift. ■ Samfylkingin Aðalfundur Kjördæmafélags Samfylkingarinnar í Reykjavík fimmtudagskvöldið 31. janúar kl. 20.00 á Kornhlöðuloftinu, Bankastræti 2 (Lækjarbrekku). Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Gestur fundarins: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. VG vill úttekt á einkavæðingarnefnd: Langt út fyrir siðferðismörk úttekt Störf einkavæðingar- nefndar ríkisstjórnarinnar hafa um sumt verið langt út fyrir þau siðferðismörk sem íslendingar hafa tamið sér að mati Ögmund- ar Jónassonar, þingflokksfor- manns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. í gær óskaði þingflokkurinn eftir því við for- seta Alþingis að Ríkisendurskoð- un yrði látin vinna ítarlega út- tekt á störfum einkavæðingai'- nefndar með hliðsjón af einka- væðingu Landssímans. Athuguð verði vinnubrögð, verklag og stjórnskipuleg staða nefndarinn- ar. Einnig hvort nefndin hafi haft afskipti af innri málefnum Símans. Ögmundur segir þingflokkinn ekki vera að dylgja að einkavæð- ingarnefnd hafi farið út fyrir sitt verksvið. Hins vegar hafi tíðindi innan úr Landssímanum verið með þeim hætti að þeim þætti ástæða til að fá á hreint hvernig hefði verið staðið að málum. Ögmundur segir tengsl nefndarinnar við einokunaraðila eins og Baug og Aðalverktaka utan siðferðismarka. Hann gagnrýnir einnig hvernig staðið hefur verið að sölu á Landssím- anum og að staðið sé í viðræðum við fyrirtæki sem hefur verið kært fyrir að misnota einokun- araðstöðu sína. ■ ÖGMUNDUR JÓNASSON Störf einkavæðingarnefndar og afskipti af Landssíma verði könnuð. S~

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.