Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2002, Qupperneq 7

Fréttablaðið - 31.01.2002, Qupperneq 7
FIMMTUPAGUR 31. janúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 7 Samgöngunefnd Reykjavíkur: Svínað á rétti fatlaðra og hreyfihamlaðra SÉRMERKT BÍLASTÆÐI Talið er að í helmingi tilvika séu bílastæði fatlaðra misnotuð af ökumönnum. umferð Svo virðist sem mikil brögð séu að því að ökumenn virði ekki merkt bílastæði fatlaðra og hreyfihamlaðra í borginni. í at- hugun sem Kjartan Magnússon borgarfulltrúi hefur gert eru þessi stæði misnotuð í um helmingi til- vika þar sem þau eru notuð af öku- mönnum sem ekki eiga við fötlun eða hreyfihömlun að stríða. Yfir- völdum hefur hins vegar skort skýrar heimildir til að sekta fólk fyrir brot af þessu tagi eða fjar- lægja bíla sem lagt er ólöglega í þessi stæði. Kjartan segir að það sé vegna þess að umrædd bíla- stæði eru mikið á einkalóðum verslana og þjónustustofnana. Að tilhlutan Kjartans hefur sam- göngunefnd Reykjavíkur sam- þykkt að beina því til Bílastæða- sjóðs og lögreglunnar að auka eft- irlit með þessum bílastæðum til að tryggja réttindi fatlaðra og leita eftir samstarfi við lóðaeigendur um álagningu stöðvarbrotagjalda. Á fundi samgöngunefndar var einnig samþykkt að kanna hvort rétt sé að hækka sektargreiðslur vegna brota af þessu tagi. Gjald- ið nemur um 2500 krónum og er óháð eðli brotsins. Þá er ætlunin að efna til sérstaks átaks til að upplýsa almenning betur um gildandi reglur vegna bifreiða- stæða fatlaðra. Kjartan bendir á að víða í nágrannalöndunum eru brot af þessu tagi litin mjög al- varlegum augum, öndvert við það sem virðist hér á landi. Af þeim sökum sé þörf á mikilli hug- arfarsbreytingu hjá almenningi gagnvart þessum rétti fatlaðra og hreyfihamlaðra. ■ INNLENT Háskólaráð ákvað að 8 nemar yrðu teknir inn í tannlækna- deild í stað 6, vegna mistaka við útreikninga einkunna. Fulltrúar stúdenta hafa einnig krafist þess að fyrirhugðu inntökuprófi f læknadeild verði frestað um eitt ár. Rektor mun kanna málið og var afgreiðslu frestað fram að fundi í næstu viku. Vilhjálmur Egilsson, úr Sjálf- stæðisflokki, mælti fyrir frum- varpi um að áfengis- og tóbakssala verði heimiluð fleirum en ÁTVR. Samkvæmt gildandi lögum hefur ÁTVR einkaleyfi á sölunni og sagði Vilhjálmur að samfélagsþróunin væri sú að smávörusöluverslun væri tímaskekkja. Auknar kröfur eru nú um þjónustu og einokun ríkis eigi ekki lengur við. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson: Mega ekki hafna ofaní skúffu BREYTINCAR Á SKÓLAKERFINU „í fljótu bragði tel ég um athyglisverðar tillögur að ræða. Ég tel full nauð- syn á því að farið verði yfir tillög- urnar og þær skoð- aðar af opnum hug. Þær mega ekki hafna ofaní skúf- fu,“ segir Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson um skýrslu Versl- unarmannafélags Reykjavíkur og vilhjálmur hagfræðistofnunar þ. vilhjá- Háskóla íslands. LMSSOM j,ar koma fram fil- lögur að viðamiklum breytingum á skólakerfinu sem leiða muni til verulegra áhrifa á þjóðarfram- leiðslu. Auk bættari lífskjara og aukinna ævitekna. „Ljóst er að um mjög stórt og umfangsmikið mál er að ræða. Tillögurnar fela í sér gríðarlegar breytingar, og fer eft- ir því hvaða leið verður farin, hversu umfangsmiklar þær verða. Þær verður að skoða, út frá þjóðhaglegum ávinningi. Einnig í ljósi hugsanlegs kostnaðar sem þeim kann að fylgja. Ég vil ekki að lokað verði á þær tillögur sem fram koma í skýrslunni. Ríki, sveitarfélög og aðrir aðilar sem að málinu koma, ættu að skoða þær rækilega. ■ --^-- Opið fram á morgun í Club Diablo: Afstaða lög- reglustjóra hunsuð borcarráð Borgarráð hefur sam- þykkt að veita skemmtistaðnum Club Diablo í Austurstræti 6 áfengisleyfi til klukkan 5.30 að- fararnætur laugardaga, sunnu- daga og almennra frídaga. Með þessu hunsaði borgarráð tilmæli lögreglustjórans í Reykjavík. Lögreglustjórinn mælti gegn því að veitingastaðnum yrði veitt þetta leyfi og vildi takmarka opn- unartímann til klukkan 3. Að hans mati á að takmarka fjölda þeirra veitingastaða sem fá heimilaðan rýmri veitingatíma áfengis. Borg- arráð telur hins vegar að sam- kvæmt reglum um vínveitinga- leyfi sem samþykktar voru í mars 1999 sé leyfilegt að heimila veit- ingatíma til 5.30 um helgar á ákveðnum svæðum innan mið- borgar. Þar sem Club Diablo sé innan slíks svæðis og lögð hafi verið inn öll tilskilin vottorð til rekstursins beri að veita skemmtistaðnum rýmri veitinga- tíma. Áður hafi verið heimilaður rýmri veitingatími í húsnæðinu Austurstræti 6 og þrátt fyrir af- stöðu lögreglustjóra séu í raun ekki til nein takmörk á fjölda slíkra staða í miðborginni. ■ Frábært verð á þvottavélum 65.445 kr. Electrolux þvottavél 1200 sn tekur 5 kg í þvott Verð áður: 76.990 kr. 74.995 kr. 52-990 kr. Á öllum Electrolux þvottavélum 525 3000 • www.husa.is 69.990 kr. Electrolux þvottavél 1100 sn tekur 3 kg í þvott Verð áður: 79.995 kr. Electrolux þvottavél 1000 sn tekur 6,5 kg í þvott Verð áður: 95.690 kr. Tricity Bendix þvottavél 1000 sn tekur 4,5 kg í þvott Verð áður: 65.990 kr. HÚSASMIÐJAN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.