Fréttablaðið - 31.01.2002, Blaðsíða 9
HMMTUPAGUR 31. janúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
9
FÖSTUDAGS-OG LAUGARDAGSKVÖLD
Sala Símans
alþingi Stjórnarandstaðan segir
sölu Landssímans dæmalaust klúð-
ur og dregur í efa að þingmeirihluti
sé enn fyrir sölunni. Við utandag-
skrárumræður á Alþingi í gær kom
fram að tveir þingmenn Framsókn-
arflokks telja að endurskoða eigi
söluna.
Ögmundur Jónasson, sagði að
ein röksemda þess að selja Símann
hafi verið að hlutfélög væru ekki
eins svifasein og opinberar stofnan-
ir í ákvarðanatöku. „Við höfum ver-
ið að kynnast því hvernig ákvarðan-
ir hafa verið teknar [...] Við sjáum
hvernig hundruðum milljóna hefur
verið kastað á glæ í glæfralegum
áhættufjárfestingum. Við höfum
séð forstjórasamninga sem nema
milljónatugum. Við höfum séð
kærumál á hendur erlendum fjár-
festum sem erindrekar ríkisstjórn-
arinnar í einkavæðingarnefnd hafa
rennt vonaraugum til,“ sagði hann.
Kristinn H. Gunnarsson sagði
eðlilegt að endurmeta sölu Símans.
„Það er ljóst að verðið sem stendur
til boða fyrir fyrirtækið er ekki í
samræmi við þær væntingar sem
voru uppi á þeim tíma þegar um
þetta var rætt,“ sagði hann. Magn-
ús Stefánsson, þingmaður og vara-
formaður stjórnar Landssímans,
taldi einnig fullt tilefni til að endur-
MAGNUS
Auk þess að vera
þingmaður er hann
varaformaður stjórn-
ar Landssímans.
Hann telur fullt til-
efni til að endur-
skoða söluáformin.
skoða söluá-
formin. Hann
minnti á að þing-
flokkur Fram-
sóknarflokksins
hafi gert ýmsa
fyrirvara við söl-
una.
Sturla Böðv-
arsson samsinnti
því að þróun á
hlutabréfamark-
aði hafi orðið
önnur en vænst
var þegar sölu-
ferlið hófst.
Hann vildi þó
ekki meina að illa hefði tekist til.
Sturla taldi að samkeppni á fjar-
skiptamarkaði myndi koma í veg
fyrir gjaldskrárhækkanir í kjölfar
einkavæðingar. Þá vísaði hann til
þess að fjarskipta- og samkeppnis-
lög tryggðu að eðlilegar samkeppn-
isreglur yrðu í heiðri hafðar. „Enda
þótt um stund blási á móti í einka-
væðingunni munum við halda okk-
ar striki þrátt fyrir nöldur stjórnar-
andstöðunnar,“ sagði hann og taldi
ástæðu þess að hægt hafi gengið í
að selja hlut ríkisins þá að einka-
væðingarnefnd hafi viljað vanda til
verka.
oli@frettabladid.is
Félagsmálaráðuneytið telur að
málsmeðferð bæjarstjórnar
Garðabæjar hafi verið andstæð
sveitarstjórnarlögum þegar úthlut-
að var lóðum í 4. áfanga Ásahverf-
is. Um.45 lóðir er að ræða sem var
úthlutað í fyrra og voru umsækj-
endur um 600 talsins. Telur ráðu-
neytið að bæjarstjórn hafi brotið
gegn stjórnsýslulögum um undir-
búning ákvarðana, rökstuðning og
jafnræði. Sem dæmi benti ráðu-
neytið að feðgar hefðu fengið lóðir
hlið við hlið í sömu götu.
I^frétt blaðsins í gær um skoðana-
kannanir á fylgi framboðanna
við borgarstjórnarkosningar var
ranglega sagt að könnun Gallup
tæki til nokkurra daga í desember.
Hið rétta er að Gallup mælir fylgi
flokkanna yfir allan mánuðinn.
Gatnamálastjóri um stíga við Elliðavatn:
Hestamenn verða að nota
undirgöng með öðrum
stígar Nýgerðir hjólreiða- og
göngustígar við Eilliðavatn eru í
samræmi við samþykkt aðal-
skipulag að sögn Sigurðar Skarp-
héðinssonar, gatnamálastjóra
Reykjavíkur. Eina breytingin
væri sú að smá stígbútur austan
við undirgöngin undir Breiðholts-
braut. væri í bráðabirgðaleigu.
Hann sagöi aö kostnaður vegna
hjólreiða- og göngustíganna hefði
verið um 78. milljónir króna.
Hestamenn hafa lýst yfir óá-
nægju með stígana þar sem þeir
skarast saman við reiðstíga sem
' voru fyrir á svæðinu. Einnig hafa
þeir gagnrýnt að hjólreiðamenn
og hestamenn skuli þurfa að nota
sömu undirgöng. Þeir segja að það
sé mikið öryggismál að skilja að
HESTAMENN ERU ÓÁNÆGÐIR
Hestamenn segja að það sé mikið öryggis-
mál að skilja að hesta- og hjólreiðaumferð
vegna slysahættu.
hesta- og hjólreiðaumferð vegna
slysahættu.
Sigurður sagði að tveir skurð-
punktar stíganna myndu hverfa á
þessu eða næsta ári þegar hjól-
reiða- og göngustígarnir mundu
færast í þá legu sem þeir ættu að
vera í í framtíðinni. Undirgöngin
yrðu hins vegar áfram samnýtt af
hestamönnum og öðrum. Reistur
hefði verið milliveggur inni í
þeim þannig að hestarnir sæju
ekki hjólreiða- og göngufólkið. Þá
gætu hestamenn einnig riðið und-
ir brúna á Dimmu. Þar væri engin
umferð gangandi eða hjólandi.
Hann sagði að þegar byggð yrðu
mislæg gatnamót Breiðholts-
brautar og Suðurlandsvegar
myndu þau göng hverfa. Sú fram-
kvæmd hefði ekki verið tímasett
og því gætu verið nokkur ár í að
ráðist yrði í hana. ■
Naglaskóli
Professionals
• Útskrifar noglasérfræSingo
með alþjóðlegu Diploma
sem gildir í 20 löndum.
• Nýir nemendur teknir inn
allt árið.
• Einstaklings kennsla
Upplýsingar í síma 588 8300
Alþingi:
STUTT