Fréttablaðið - 31.01.2002, Qupperneq 13
FIIVIMTUPAGUB 51. janúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Fjöltengi Orkuveitu Reykjavíkur:
Háhraðatenging um raflagnir
tækni Sala á háhraða internetteng-
inum um raflínukerfið er hafin
hjá Orkuveitu Reykjavíkur undir
nafninu Fjöltengi í ákveðnum
hverfum höfuðborgarinnar. Á
annað hundrað heimili hafa verið
tengd Netinu með þessum hætti.
Ákveðið var að auglýsa þjón-
ustuna ekki að öðru leyti en því að
fólki á svæðum þar sem tenging
er möguleg er sent bréf um þjón-
ustuna, að sögn Guðmundar Þór-
oddssonar, forstjóra Orkuveitu
Reykjavíkur. „Þetta er nú rétt
komið af tilraunastigi. Við erum
að setja þetta upp í spennustöðv-
um og svo tengi við hús í tenging-
arfæri. Við erum svona að ná tök-
um á þessu ennþá.“ Guðmundur
sagði að Orkuveitan seldi sjálfa
tenginguna en Lína.net sæi um
gagnaflutning og tengingu við
ljósleiðara, útlönd og internet.
Á heimasíðu Fjöltengis segir
að útbreiðslan sé hröð og að í
hverri viku bætist við mörg
hundruð heimili sem geti tengst.
Guðmundur sagðist ekkert vilja
fullyrða um hvenær lokið yrði við
að tengja öll heimili í Reykjavík
enda gæti margt spilað inn í þegar
ný tækni væri innleidd. „Svo eru
þetta líka um 50 þúsund heimili,"
sagði hann og bætti við að ástand
raflagna gæti líka verið misjafnt
eftir götum.
Tæknin býður upp á band-
breidd að 4,5 Mb á sekúndu. Gert
er ráð fyrir að séndihraðinn verði
ekki undir 256 Kb/s á mestu álags-
punktum. Stofngjald er tæpar 20
þúsund krónur, en svo er greitt
fast mánaðargjald, mishátt eftir
gagnamagni. Upplýsingar um
hverjir geta tengst, tækjabúnað
o.f.l. er að finna á síðu Orkuveit-
unnar: www.fjoltengi.is. ■
RAFMÖGNUÐ INTERNETTENGING
Þegar gagnaflutningur um raflínur var í
undirbúningi var raett um að ekkert stofn-
gjald aetti að vera heldur yrði það hluti af
áskrift. Forstjóri Orkuveitunnar segir að fólk
geti samið um að fella stofngjaldið inn í
almennt áskriftargjald.
Afmæli á Eskifirði
Alli ríki 80 ára
afmæli Aðalsteinn Jónsson, aðal-
eigandi Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar, fagnaði áttræðis afmæli sínu í
gær. Aðalsteinn
hefur gengt
forstjórastarfi í
fyrirtæki sínu
um 40 ára skeið
en hann lét af
störfum 31.
desember árið
2000. Að sögn
lögreglunnar á
Eskifirði var
um frekar ró-
legan dag að
ræða hjá þeim
nema um átta leytið fór fólk að
tínast saman til að fagna þessum
merku tímamótum. ■
AÐALSTEINN
JÓNSSON
Hann fagnaði áttatiu
ára afmaeli sínu í gær
Sögulegur
áfangi kostar
30 milljarða
Oll starfsemi Landspítala - háskólasjúkrahúss
við Hringbraut. Sagður hagkvæmasti kostur-
inn. Vonast eftir víðtækari sátt. Framkvæmda-
tími 14 -17 ár.
heilbrigðismál Nefnd á vegum
heilbrigðisráðherra hefur lagt til
að öll starfsemi Landspítala - há-
skólasjúkrahúss verði á einum
stað við Hringbraut. Einnig er
lagt til að nýbyggingar spítalans
rísi aðallega sunnan
núverandi _ Hring-
brautar. Áætlaður
stofnkostnaður vegna
þessara framkvæmda
er talin geta numið allt
að 30 milljörðum
króna. Á móti er talið
að hægt verði að selja
eignir fyrir vel á ann-
an tug milljarða. Áætl-
aður framkvæmda-
tími er talin geta stað-
ið yfir í 14 -17 ár, enda
getur heildarstærð ný-
bygginga numið allt að
85 þúsund fermetrum.
Þarna er m.a. fyrir-
hugað að byggja
göngu- og dagdeildir auk bráða-
móttöku.
Á blaðamannafundi í Perlunni í
gær sagði Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra að hann hefði
þegar gert þessar tillögur að sín-
um. Hann sagði þetta vera sögu-
legan áfanga fyrir spítalann og
raunar fyrir heilbrigðisþjónust-
una í landinu. Þá hafa þessar til-
lögur verið kynntar í ríkisstjórn.
Ráðherrann sagði að aðalrökin
fyrir þessari niðurstöðu vera m.a.
að kostnaður við þessa útfærslu
sé einna minnstur af þeim þremur
möguleikum sem komu til greina,
auk nálegðar við Háskólann. Hin-
ir kostirnir voru í Fossvogi og í
landi Vífilstaða. Ráð-
herra sagðist ekki
geta sagt til um það á
þessari stundu
hvenær fyrsta
skóflustungan verður
tekin að þessum
framkvæmdum.
Hann benti hins veg-
ar á að nefndin legg-
ur til að skipaður
verði starfshópur til
að undirbúa þessar
framkvæmdir. Þá
vonast hann til að víð-
tæk sátt náist um
þetta mál bæði á Al-
þingi og almennt í
þjóðfélaginu.
Þá er fyrirhugað að hefja við-
ræður við borgina um aðgengi,
lóðamörk, umferðarmannavirki
og fleira. Á fundinum kom fram
að borgin stefnir að því að Land-
spítali - háskólasjúkrahús og Há-
skóli íslands fái byggingarrétt
þar sem Umferðarmiðstöðin er.
Talið er að það muni gefa marg-
vísleg tækifæri til að tengja betur
saman spítalann og Háskólann.
grh@frettabladid
JÓN KRISTJÁNSSON
Segist líkja þessari ákvörðun
um uppbygginguna við það
þegar ákveðið var að byggja
Landspítalann á öndverðri lið-
inni öld.
Enron-hneykslið:
Breiðist út eins og vírus
hlutabréf Á meðal þess sem helst
er talið valda niðursveiflu hluta-
bréfa á Wall Street í vikunni eru
áhyggjur fjárfesta af því að ekki
sé hægt treysta tölum frá fyrir-
tækjum. Þetta kemur í kjölfar En-
ron-hneyklisins, en fleiri fyrir-
tæki hafa nú fengið á sig gagnrýni
vegna bókhaldsfærslu undan-
farna daga og séð gengi bréfa
sinna falla. Ekki hefur þurft ann-
að en að fjölmiðlar greini frá
grunsemdum um vafasamar að-
ferðir. Gengi bréfa lyfjafyrirtæk-
isins Elan féll t.a.m. um fjórðung
eftir að dagblaðið Wall Street Jo-
urnal fjallaði um slíkar grun-
semdir.
Einn fjármálaráðgjafi á Wall
Street líkti ástandinu við sjúk-
dómsfaraldur. „Bókhaldsvand-
ræðin breiðast út eins og vírus.
Ekkert fyrirtæki vill smitast."
Nasdaq-vísitalan hafði í gær
lækkað um 5% frá opnun á mánu-
dag. Ekki hefur hjálpað til að árs-
f jórðungsuppgjör margra stórfyr-
irtækja, svo sem AOL-Time Warn-
er og WorldCom, hafa verið undir
spám. ■
KAUPHÖLLIN í NEW YORK
Miklar sveiflur hafa einkennt bandarískar
hlutabréfavísitölur síðustu daga.
ÖRYGGISKERFI
FYRIR HEIMILI OG VINNUSTAÐI
Ýmsir möguleikar -
Reykskynjarar -
Innhringjari án
mánaðargjalda
Öryggiskerfi fyrir heimili - þráðlaus Öryggiskerfi fyrir vinnustaði - þráðk.
Stöð og hnappaborð - Hreyfiskynjari -
Hurðaseglar 2st - Fjarstýring - Bjalla -
Rafhlöður - Límmiðar í glugga -
Uppsetning - TILBOÐ kr. 65.000
Stöð 6-rása - Hreyfiskynjari 2st -
Hurðasegull 2st - Reykskynjarar 2st -
Límmiðar - Bjalla - Rafhlaða -
Uppsetning - TILBOÐ kr. 95.000
RAFLAGNIR fSLANDS ehf.
VERSLUN - HEILDSALA
Hamarshöfða 1-110 Reykjavík - Sími 511 1122 - Fax 511 1123
Netfang: ris@simnet.is - Veffang: www.simnet.is/ris
Framundan á
PLAYERS
1. feb. NÝDÖNSK
2. feb. HÁLFT í HVORU
8. feb. PAPAR
9. feb. PAPAR
15. feb. BSG
16. feb. BSG
23. feb. SPÚTNIK
24. feb. SPÚTNIK
1. mars HLJÓMAR
NÝDÖNSK
PLAYERS
Kópavogi
Föstudaginn 1. mars
NYDÖNSK