Fréttablaðið - 31.01.2002, Side 22

Fréttablaðið - 31.01.2002, Side 22
FRETTABLAÐIÐ | FRÉTTIR AF FÓLKI Bjöm B jarnason, hefur greini- lega tekið fram breiðu spjótin því hann hefur kosningabaráttuna ekki bara á því að senda R-listan- um skeyti heldur lætur hann sinn fyrrum flokksbróður Ólaf F. Magnússon, sem nú er óháður, heyra það. I Kastljósi Sjónvarps- ins fyrir skömmu fullyrti Björn að Ólafur væri „gegn því öllu á fram- farasviðum sem snertir virkjanir og nýtingu orkulinda.“ Ólafur tók ummælin óstinnt upp og sendi fjölmiðlum tilkynningu þar sem hann sakar Björn um rangfærslur og segist alls ekki í almennri and- stöðu við virkjanir eða nýtingu orkulinda. „Ég vænti þess að mál- flutningur Björns Bjarnasonar í kosningabaráttunni [...] muni ekki byggjast fyrst og fremst á rang- færslum og útúrsnúningum eins og var raunin í áðurnefndum Kast- ljósþætti," skrifar Ólafur. 1 FRÉTTIR AF FÓLKI ["*“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri gaf Birni Bjarna- syni langþráð færi á sér í einvígi þeirra í Silfri Eg- ils á sunnudag þegar hún varðist atlögum Björns að frammistöðu R-listans í skóla- málum og orku- málum. Ingibjörg svaraði því til að það væru framsóknarmennirnir í R-listanum sem bæru ábyrgð á báðum málaflokk- um. í pistlum á vefsíðu sinni hef- ur Björn löngum reynt að sækja inn á miðjuna með því að tala til framsóknar- manna og vara þá við að taka ábyrgð á kommún- isma R-listans. Hann var því ekki seinn að kveikja á orðum Ingi- bjargar og henda á lofti að hún væri að reyna að koma ábyrgð á einstökum mála- flokkum undan R- listanum í heild og sverta fram- sóknarmenn. Þetta járn hafa Björn og hans menn svo hamrað enn og aftur það sem af er vikunni og er ljóst að þeir ætla að reyna til fulls að selja framsóknarmönnum þá hug- mynd að þeir eigi litla samleið með vinstri mönnunum í R-listan- um og það sé best að þeir bjóði bara fram í eigin nafni. Fyrsta kosningabomba sjálf- stæðismanna féll í gær þegar Bolli Kristinsson, kaupmaður í Sautján, miðborgarstjórnarmaður Sjálfstæöisflokksins og líklegur frambjóðandi til borgarstjórnar, lýsti því yfir að hann ætlaði að hætta verslana- rekstri við Laugaveginn vegna skipu- lagsstefnu nú- verandi meiri- hluta. Bolli rek- ur sem kunnugt er Sautján í einu stærsta verslun- arhúsi við Laugaveginn og á auk þess búðir í helstu verslanamið- stöðvum. Hann nefnir friðunar- stefnu R-listans á húsum við Laugaveg sem helstu ástæðu fyr- ir brotthvarfi sínu úr miðbænum og segir Laugaveginn í þann veg- inn að verða framlengingu á Kolaportinu þar sem ekkert þrí- fist nema þriðja flokks verslanir. Því er spáð að friðunarstefnan við Laugaveginn verði eitt helsta kosningamál sjálfstæðismanna en eins og kunnugt er ætla þeir að láta málefnavinnuna bíða þess að það sé ljóst hvaða menn séu í framboði. Aðild sjómannaforystunnar með nýjan forseti FFSÍ, Árna Bjarnason, í broddi fylkingar, að tillögum LIÚ um aukna veiði- skyldu og þar með skert svigrúm til framsals veiðiheimilda getur verið tvíbent vopn fyrir sjómenn. Með því fallast þeir í raun á að 22 Leikskólar Reykjavíkur: Hvert barn fær minna rými vegna íjölgunar LEIKSKÓLAR „Við stefnum að því, á fyrri hluta þessa árs, að bæta um 120 börnum á þá leikskóla sem fyrir eru í borginni," segir Bergur Felixson, framkvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur. Reglu- gerð um starfsemi leikskóla hefur því verið breytt á þann hátt, að nú má hver leikskólakennari hafa tíu fimm ára börn til umsjónar í stað átta áður. Með þessari breytingu er hægt að fjölga yngstu börnun- um. Einnig hefur heildar fer- metrafjöldi á hvert barn verið lækkaður úr sjö í 6,5 fermetra. „í sumum leikskólum þarf að gera breytingar svo hægt sé að koma börnunum fyrir,“ segir Bergur. „Fjárveiting hefur fengist til að kaupa viðbótar borð, stóla og fata- hengi. Auk þess hefur starfsfólki verið fjölgað. Það er vissulega minna rými fyrir börnin. Það LEIKSKÓLAR REYKJAVÍKUR Börnum verður fjölgað um 120 á þessu ári. Þrengra verður þó um börnin og starfsfólkið á leikskólunum. verður farið eftir reglugerð og haldið til haga þriggja fermetra leikrými á hvert barn. í mörgum leikskólum er sérstök leikstofa eða salur. Starfsfólkið hefur ein- nig verið duglegt við að nýta það rými sem til er.“ Vissulega sé um að ræða aukið álag fyrir starfs- fólkið. Sér í lagi þegar skörun verður á matartíma, en mikil aukning hefur verið á að börn í vistun hálfan daginn snæði hádeg- ismat á leikskólanum. „Það getur oft verið erfitt að koma öllum fjöldanum við matarborð," segir Bergur. „Starfsfólkið er þó ótrú- lega duglegt að nýta plássið. Eng- inn vafi er á að þetta mun takast vel.“ ■ Hildur Helga Lúthersdóttir og Þórhallur Hákonarson eru bæði par og skólasystkin. Þau náðu saman glæsilegum árangri I lokaverkefni sínu við Tækniskóla íslands. Trúlofunarhringar til að tryggja samstarfið Parid Þórhallur Hákonarson og Hildur Lúthersdóttir fengu 10 í ein- kunn fyrir lokaverkefni í rekstrardeild Tækniskólans. I verkefninu skoð- uðu þau grundvöll fyrir markaðssókn Ossurar á mörkuðum í Kína. útskriftarverkefni Einkunnin 10 fyrir lokaverkefni er ekki gefin á hverjum degi, enda ku þetta vera í annað sinn sem slíkt ger- ist í rekstrarfræði við Tækni- skóla ísland. Það er líka frekar óvenjulegt að par vinni saman slíkt verkefni. „Við kynntumst á fyrstu önn í skólanum. Ég fékk lánaðar hjá henni glósur og hef ekki farið síðan,“ segir Þórhall- ur. Þau segja samstarfið hafa gengið vel, þótt óneitanlega hafi stundum reynt á. Margir hafi verið búnir að vara þau við að vinna saman. Samstarfið hafi gengið vel og þeim tekist að nýta sér styrkleika hvors annar. „Við tókum samt enga áhættu og fengum okkur trúlofunarhringa í september til að tryggja okkur enn frekar," segir Þórhallur og hlær. Kína er risavaxinn markaður og efnahagur héraða er afar mismunandi. Þau segjast hafa einbeitt sér að þeim svæðum sem lengst væru komin í efna- hagsþróun. „Kínverjar hafa byggt þetta upp með því að velja sérstök svæði sem ætlað er að taka við erlendri fjárfestingu. Þar er efnahagurinn góður á kínverskan mælikvarða. Miðað við okkar forsendur þurfa menn ekki að ná hárri prósentu til þess að markaðurinn komi vel út fyrir Össur.“ Hildur og Þórhallur segja að mikilvægt hafi verið að fá góðan stuðning Össurar til þess að ná sem bestum árangri í verkefn- inu. „Kolbeinn Björnsson og þau hjá Óssuri hjálpuðu okkur geysi- lega mikið. Við komum með fræðilegu hliðina, en þau lögðu okkur til allar upplýsingar, ein- nig skipti miklu að hafa frábær- bæran leiðbeinanda, Vivienne Heng Ker-ni.“ Þau segja að sjón- ir hafi beinst að ytri skilyrðum fyrir sölu á framleiðsluvörunum í Kína og svo á því hvort innvið- ir fyrirtækisins Össurar bæru markaðssökn af þessu tagi. Nið- urstaða sé að allar forsendur séu fyrir hendi. „í næsta skrefi þyrftu menn að fara á staðinn og gera ítarlegri rannsóknir." Hver veit nema að þetta fyrirmyndar- verkefni verði kveikjan að mik- illi markaðssókn Össurar í Kína. haflidi@frettabladid.is \ ÞRÚÐA ® „Fyndið." flotinn sé allt of stór, nauðsynlegt sé að fækka skipum og þar með starfandi sjómönnum og skip- Einnig markar þessi aðgerð þau tímamót að enn frekar slitnar milli hagsmuna sjó- manna og land- verkafólks og sjómenn stilla sér upp við hlið stórútgerð- ________________ anna. Vonlítið hark kvótalítilla útgerða hefur ekki síst verið til þess að tryggja landvinnslunni langþráð hráefni til að halda uppi vinnu í sjávar- plássunum. Á hinn bóginn er ljóst að samstarfið hlýtur að greiða mjög fyrir lausn þeirrar átta ára lönguvitleysu sem kjaradeila sjó- manna og útgerðarmanna hefur verið. stjórnarmönnum. v í/ spá Spámiðillinn Yrsa Beint samband S. 908-6414 149.90 mín. Ástarmálin - Fjármálin Vinnan - Heilsan www. tarot. is Tarotnámskeið: Áhugavert - Öflugt - Allt árið Fjarnám - Bréfaskóli Uppl. og skráning á www. tarot. is og í síma 553-8822 í spásímanum 9086116 er spákonan Sirrý og spáir í ástir og örlög framtíðar. Einnig tímapantanir fyrir einkatíma í sama síma. Andleg leiðsögn, miðlun, tarot, spilaspá, draumaráðningar og huglækningar. Leitum lausna við vandamálum. Verð við frá kl.1í-2 i síma 908-6040. Hanna Tarotlínan sími 908 5050 tarotlestur, miðlun, draumráðningar. Fínsvör um hjónabandið, ástina, heilsuna, fjármálin, símatími 18-24 Iðnaður Ath. gegnheilt parket frá 1470 krónur fm. hffif GólfþMnéstan júlíus júlíusson GSM 847 1481 Fagmennska í fyrirúmi Ábyrgjumst öll okkar verk Námskeið Námskeið í tré og trérennismíði hefjast í febrúar, lýkur fyrir páska Kennari Þórarinn Þórarinsson Upplýsingar í síma 894 3715 www. simnet. is/inni Parketslípun, Parket viðhald, Parketlögn Gólfi stan Júlíus Júlíusson GSM 847 I48I Fagmennska í fyrirúmi Ábyrgjumst öll okkar verk

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.