Fréttablaðið - 12.02.2002, Side 6

Fréttablaðið - 12.02.2002, Side 6
SPURNING DACSINS £ FRÉTTABLAÐIÐ 12. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR Lest þú forystugreinar dagblaðanna ? Nei, það geri ég sjaldnast. Það er helst um helgar ef mér finnst vera fjallað um áhuga- verð málefni. Anna Mðrfa Gísladóttir Umsókn um innflutning norskra NRF-fóstur\a'sa: Ekkert heyrist úr land búnaðarráðuneytinu landbÚnaður Landbúnaðarráðu- neytið hefur enn ekki svarað um- sókn Nautgriparæktarfélags ís- lands (NRFI) um innflutning fóst- urvísa NRF-kúakynsins frá Nor- egi. Sótt var um leyfi til innflutn- ingsins í lok nóvember sl. Jón Gíslason, stjórnarformað- ur NRFÍ, segist litlar beinar fregnir hafa af málum. „Mér er sagt að umsóknin sé komin til um- sagnar í fagráði og dýralækna- ráði,“ sagði hann og bjóst við að Náttúruvernd ríkisins hafi fengið umsóknina líka. „Ég reyndar undrast það að hafa ekkert heyrt frá ráðuneytinu, en ég hef það annars staðar frá að þetta um- sagnarferli sé komið í gang.“ Jón taldi að trúlega vaeri klaufaskap um að kenna að ekkert hafi heyrst frá ráðuneytinu, alla vega væri það klaufalegt. Hann bjóst við að afgreiðslan gæti tekið einhverjar vikur enn. „Eg veit að fagráð ætl- ar helst að ganga frá þessu í næstu viku, en á von á að þetta taki heldur lengri tíma hjá dýra- læknaráði. Það hefur stundum tekið ansi langan tíma þar en mað- KYNBÆTUR A NÆSTUNNI? Nautgriparæktarfélag íslands stefnir að innflutningi fósturvísa NRF-kúakynsins innan þriggja ára og hefur sótt um leyfi til innflutningsins til landbúnaðarráðu- neytisins. ur ætlast til þess að það sé fljót- legra því svo stutt er liðið frá því fjallað var um þetta þar síðast," bætti hann við. ■ íran hafnar sendiherra Breta: Njósnari og gyðingur london - ap íran hefur neitað að taka við David Reddaway sem sendiherra Bretlands í landinu. íranska stjórnin hefur ekki gefið opinberar skýringar á því af hverju þeir hafna Reddaway. I janúar birt- ist, hinsvegar, grein í dagblaði þar í landi þar sem honum var lýst sem „gyðingi í þjónustu bresku leyni- þjónustunnar.“ Talsmaður breska utanríkisráðuneytisins sagði að, Reddaway ekki vera gyðing og ekki í neinum tenglsum við leyniþjón- ustuna. Sem stendur, væru engar áætlanir um að bjóða írönum annan sendiherra í stað Reddaway. ■ JANÚAR Á VERÐBRÉFAÞINGI: | Félög á uppleíð: Delta +54% Járnblendifélagið +28% Sæplast +26% Pharmaco +25% Sölumiðstöðin +24% Baugur Félög á niðurleið: +20% Aco-Tæknival -33% Landssíminn -12,8% Flugleiðir -2,9% Hlutabréfaviðskipti í janúar: FRÉTTASKÝRING Davíð telur litlar líkur á sölu Símans Veltan jókst um65% verðbréfaþing Hlutabréf fyrir 25 milljarða króna skiptu um hendur á Verðbréfaþingi íslands í janúar. Það gerir mánuðinn að þeim þrið- ja veltumesta frá upphafi. Aukn- ing er 65% frá sama mánuði 2001 þegar viðskiptin námu 14,7 millj- örðum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 11% frá áramótum á meðan helstu hlutabréfavísitölur erlendis hafa lækkað. Nasdaq hef- ur t.a.m. lækkað um 9%. Lyfja- vísitala VÞÍ, sem að mestu sam- anstendur að Delta og Pharmaco, hefur hækkað um 35%. Upplýs- ingatæknivísitalan hefur lækkað um 6,3% sem færir lækkun síð- ustu tólf mánaða upp í 70% Jákvæðar væntingar fjárfesta um afkomu fyrirtækja er helsta ástæða hækkunar að mati grein- ingardeildar Landsbankans. Það hafi auk þess jákvæð áhrif að gengisvísitala krónunnar hefur verið með stöðugra móti síðustu vikur, eða á bilinu 138 til 141 stig. Bent er á að raungengi krónunnar sé nálægt sögulegu lágmarki sem auki líkurnar á að fyrirtæki og fjárfestar taki sér langtímastöður með henni. ■ ERLENT Evrópusambandið hvetur Svartf jallaland eindregið til þess að sækjast ekki eftir sjálf- stæði heldur vera áfram í ríkja- sambandi með Serbíu. Javier Sol- ana, yfirmaður utanríkismála- stefnu ESB, heimsótti í gær Milo Djukanovic, forseta Svartfjalla- lands, og ræddust þeir lengi við. Solana reyndi m.a.a að sannfæra Djukanovic um að hætta við þjóð- aratkvæðagreiðslu um aðskilnað ríkjanna, sem stefnt er að í vor. Áform ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar um einkavæðingu hafa ekki gengið eftir. Getur dregið úr gerð samgöngumannvirkja þar sem þau byggjast á árangrinum. Samkvæmt núverandi gengi verðleggst svonefndur kjölfestuhlutur Símans á 8.750 milljónir. „Það er ekki nema eitthvað verulega at- hugavert komi í Ijós í áreið- anleikakönn- un að menn lækka tilboð sitt frá því sem þeir hafa boðið," sagði Hreinn. — landssi'minn Ríkisstjórnin fól einkavæðingarnefnd að hef ja und- irbúning sölu Símans árið 2000 með það meginmarkmið að koma 49% í einkaeigu fyrir síðustu ára- mót. Samkvæmt áætluninni ætti salan að hafa skilað 20 milljörðum —«_____ króna í ríkiskass- ann, en niðurstað- an er tæpir tveir milljarðar. Eftir erfiða framvindu gaf Davíð Odds- son, forsætisráð- herra, það loks út í Kastljósi Sjón- varpsins í gær að litlar líkur væru á sölu að sinni. Ljóst er að um áfall er að ræða fyrir ríkisstjórn- ina. Geir H. Haar- de og Sturla Böðvarsson, ráðherr- ar ríkisstjórnar, hafa t.a.m. báðir sagt opinberlega að fjármögnun verkefna í samgöngumálum byggðist að hluta á árangrinum. Fyrir almenningsútboð á 24% hluta í september höfðu ráðamenn í ríkisstjórn og einkavæðingar- nefnd lýst því yfir að kjörin væru hagstæð. Sú opinbera skoðun breyttist ekki verulega þrátt fyrir slaka niðurstöðu. Síminn var skráður á Tilboðsmarkað Verð- bréfaþings og rætt um að væntan- leg eftirspurn frá kjölfestufjár- festum myndi glæða áhuga al- mennings. Ýmsir sem standa mál- inu nærri hafa þó orðið til að gagn- rýna söluferlið. „Eftir á að hyggja sýnist mér að það hefði verið skynsamlegra að fá kjölfestufjárfestinn inn í fyrirtæk- ið áður en almenningsútboðið var HREINN STURLA DAVÍÐ Sagði af sér í lok janúar. Búnaðarbankanum mis- Stjórn Símans ábótavant tókst. haldið," sagði Þórarinn V. Þórar- insson, þáverandi forstjóri, sköm- mu eftir útboðið. Með þessum um- mælum bakaði forstjórinn sér skörp andsvör frá Sturlu Böðvars- syni og Hreini Loftssyni, þáver- andi formanni einkavæðingar- nefndar. Búnaðarbankinn, sem annaðist söluna, sagði að verðið hefði verið of hátt. Sturla átti orða- stað við bankann út af þessu. Ráð- herra sagði söluvöruna ekki hafa verið vandamálið heldur bankann. Ýmsir höfðu orð á því að mistök hefðu verið að láta PWC sem helst er þekkt fyrir endurskoðunar- starfsemi að verðleggja Símann. Það sjónarmið kom einnig fram að óeðlilegt væri að fag- og kjölfestu- fjárfestar ættu kost á meiri og betri upplýsingum um fyrirtækið en almennir fjárfestar. Það er haft til marks um frekari vandkvæði að margir þeirra sem keyptu í almenningsútboðinu á genginu 5,75 hafa síðan talið hag sínum best borgið með því að selja á lægra verði á markaði. Hagstæð- asta kauptilboð á Verðbréfaþingi er nú 5,10 krónur á hlut og hefur farið stöðugt lækkandi frá miðjum desember. Þetta þýðir að einstak- lingur sem keypti fyrir 100.000 krónur í september fengi nú til baka tæpar 89.000 krónur. Fjölmörg óbindandi tilboð í kjölfestuhlutinn bárust í lok októ- bermánaðar. „Það er ekki nema eitthvað verulega athugavert komi í ljós í áreiðanleikakönnun að menn lækka tilboð sitt frá því sem þeir hafa boðið,“ sagði Hreinn Loftsson. Þegar hann sagði starfi sínu lausu í lok síðasta mánaðar var honum að líkindum ljós nei- kvæð afstaða þess fyrirtækis sem hann hafði átti þátt í að velja sem kjölfestufjárfesti. Fréttabann var á framvindu viðræðna einkavæðingarnefndar við TDC í janúarmánuði. PWC sendi bréf fyrir hönd einkavæð- ingarnefndar í síðustu viku til TDC þar sem yfirlýsing Dananna um að viðræðum hefði verið slitið var hörmuð. Ekkert hafði þá heyrst op- inberlega frá PWC um Símasöluna frá því sl. haust. Því var mótmælt að viðræðum hefði verið slitið. Annarsvegar var tilkynnt að einka- væðingarnefnd myndi innan skamms halda til fundar við TDC með ársreikning Símans 2001 í farteskinu. Hinsvegar var tilkynnt að aðrir kaupendur væru áhuga- samir sem nefndin áskildi sér rétt til að ræða við. Talið er víst að þar sé helst átt við Providence, einn eiganda Western Wireless, aðaleig- anda Tals hf. TDC mun samkvæmt yfirlýs- ingu sinni ekki greiða 10 milljarða fyrir fjórðungshlut í Símanum. Tekur fyrirtækið þar hugsanlega mið af því að heildarverðmæti Símans samkvæmt genginu 5,10 á tilboðsmarkaði VÞÍ er 35 milljarð- ar, en ekki 40. Fjórðungur verð- leggst því á 8.750 milljónir. Hall- dór Ásgrímsson, utanríkisráð- herra, sagði við blaðið í síðustu viku að 10 milljarðar króna væri lágmarksverð. mbh@frettabladid.is Grænmetisbóndi fékk hugmynd úr Familie Journalen: Danskir sniglar í Biskupstungurnar —♦— Hundruð manna í Téténíu efndu til mótmælafundar á laugardaginn fyrir utan skrifstof- ur héraðsstjórnarinnar í Grosní. Krafðist mannfjöldinn þess að Rússar létu lausa um það bil 400 manns, allt óbreytta borgara sem Rússar handtóku í viðamiklum lögregluaðgerðum nýlega. * Irönsk stjornvöld létu loka skrifstofum afganska stríðs- herrans Gulbuddin Hekmatyar, sem hefur verið andvígur bráða- birgðastjórninni í Afganistan. Hekmatyar hafði skrifstofur bæði í Teheran, höfuðborg írans, og borginni Mashhad í austur- hluta írans nálægt landamærum Afganistans. landbúnaður Jakob Narfí Hjalta- son, grænmetisbóndi í Biskups- tungum, ætlar að hefja snigla- rækt á búi sínu í sumar. Hann hef- ur fengið tilraunaleyfi. Fyrstu dýrin eru væntanleg á markað um mitt næsta ár. Jakob segist hafa fengið hug- myndina að sniglaræktinni fyrir allnokkrum árum. „Ég var að lesa hió ágæta danska tímarit Familie Journalen og sá þá viðtal við konu sem ræktar snigla. Ég hef hitt hana nokkrum sinnum og býst við að kaupa um 2000 dýr af henni til að flytja inn í sumar,“ segir hann. Jakob segist stefna að því að framleiða á bilinu 100 til 250 kíló af sniglum á ári. Hann er ekki viss hversu mikill markaður er fyrir sniglana. Hins vegar hafi á bilinu 500 til 1000 kíló verið flutt inn ár- lega. Aðspurður segist Jakob ekki hafa nákvæmar upplýsingar um sniglaverð á markaði hér: „Fyrir nokkrum árum sá ég tólf snigla í bakka í Kaupfélaginu á Selfossi. Kílóverðið á þeim var á fimmta þúsund krónur. En ég hef ekki komist að neinum verðum ennþá. Þetta verður aðeins aukabúgrein hjá mér og sniglarnir eiga að geta lifað á því sem til fellur hjá mér. Þannig að rekstrarkostnaðurinn er ekki svo mikil,“ segir hann. ■ Stuðningur Svía við evruna aldrei meiri: 53 prósent segðu já EVRAN Stuðningur Svía við að taka upp evruna hefur aldrei verið meiri. 53 prósent Svía myndu sam- þykkja evruna ef til þjóðarat- kvæðagreiðslu kæmi. Þetta kemur fram á fréttavef Finanstidningen. 34 prósent Svía myndu segja nei við evrunni. Þrettán prósent eru óákveðnir. Á fréttavef Samtaka Iðnaðarins kemur fram að munur- inn hafi aldrei verið meiri en nú er. Auki það líkurnar á því að sænska ríkisstjórnin efni til þjóðarat- kvæðagreiðslu á næsta ári, ems og Göran Person hafi gefið í skyn rétt fyrir áramót. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.