Fréttablaðið - 12.02.2002, Síða 8

Fréttablaðið - 12.02.2002, Síða 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 12. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR Spá breskra sérfræðinga: Fjöldi efitirlitsmynda- véla mun tífaldast Breskir vísindamenn: Efast um hóstasaft heilsa Vísindamenn við Bristol há- skóla á Englandi segjast hafa mikl- ar efasemdir um virkni hóstasafts. Rannsökuðu þeir 2000 sjúklinga sem allir áttu við hóstavandamál að stríða. Voru sjúklingarnir ann- ars vegar látnir taka inn venjulegt hóstasaft og hins vegar gervi- hóstasaft. 15 próf voru tekin og í níu þeirra virkaði hóstasaftið ekk- ert betur en gervi-hóstasaftið, að því er fréttavefur BBC greindi frá. „Ekki er hægt að mæla með notk- un hóstasafts fyrir sjúklinga mið- að við nýfengin sönnunargögn," sagði í niðurstöðum rannsóknar- innar. ■ tækni Sérfræðingar í Bretlandi reikna með því að fjöldi eftirlits- myndavéla í landinu muni tífald- ast á næstu fimm árum. Ástæðan mun vera aukin útbreiðsla staf- rænna eftirlitsmyndavéla. Slíkar myndavélar ná skýrari myndum og geta skráð fleiri gögn en þær myndavélar sem notaðar hafa verið hingað til. „Gömlu mynda- vélarnar gátu aðeins skráð um 5% af því sem var á seyði. Aftur á móti geta nýju stafrænu vélarnar myndað allt og gæðin eru upp á það allra besta,“ sagði Oliver Vellacott, forstjóri IndigoVison, fyrirtækis sem hannar eftirlits- kerfi, í samtali við fréttavef BBC. Einnig mun vera hægt að sam- ræma nýju vélarnar til að láta þær vinna saman í einu kerfi, eitt- hvað sem ekki var hægt með þær gömlu. Samkvæmt nýjustu tölum er meðalborgarinn í Bretlandi myndaður af eftirlitsmyndavél 300 sinnum á dag. 25 milljónir eft- irlitsmyndavéla eru í notkun úti um allan heim. Af þeim eru 2,5 milljónir up'p við í Bretlandi. ■ EFTIRLITSMYNDAVÉL Nú á tímum „býst" fólk við því að vera myndað á opinberum stöðum. Afkoma Úterðarfélags Akureyringa: Tap en þó besta ár í sögunni uppgjör Rekstur ÚA skilaði 87 millj- óna króna tapi árið 2001. Guðbrand- ur Sigurðsson, forstjóri, segir árið hið besta í 56 ára sögu félagsins þrátt fyrir tapið. Mikil- vægt sé að horfa til 1.300 milljóna veltu- fjár frá rekstri sem rúmlega tvöfaldist frá fyrra ári. „Það er mjög mikil fjár- munamyndun í rekstrinum og ytri aðstæður óvenju góð- ar, bæði hvað varðar markaði fyrir afurðir félagsins og gengi gjaldmiðla.“ Erlend lán sem hækkuðu vegna veikingar krónunnar á árinu dragi hinsvegar niður heildarniður- stöðu ársins. Gengistap vegna þessa var tæpur milljarður króna. Hagnað- ur fyrir afskriftir og fjármagnsliði jókst um 77% á milli ára, úr 958 milljónum árið 2000 í 1.698 milljónir á því síðasta. „Stefnan er að halda áfram á sömu braut á yfirstandandi ári og við gerum ráð fyrir að vergur hagn- aður og veltufé frá rekstri félags- ins haldi enn áfram að aukast," seg- ir Guðbrandur. ■ GUÐBRANDUR SIGURÐSSON Veiking krón- unnar árið 2001 var tvíeggjuð fyrir útflutnings- fyrirtaeki. VIÐSKIPTI Bæjarmálafélag Seltjarnarness hefur samþykkt framboðslista Neslistans fyrir bæjarstjórnar- kosningar. Efstu sætin réðust í prófkjöri í nóvember. Þau skipa Guðrún Helga Brynleifsdóttir, Sunneva Hafsteinsdóttir, bæjar- fulltrúi og Árni Einarsson. Næstu sæti skipa Stefán Bergmann og Nökkvi Gunnarsson. Neslistinn hefur nú tvo fulltrúa af sjö í bæj- arstjórn. Annar þeirra, Högni Óskarsson, hættir í vor. Bretar tortryggja ágæti bólusetningar Grunur leikur á að bólusetning barna gegn rauðum hundum, hettusótt og mislingum valdi ein- hverfu. Þrjú bóluefni í einu of stór skammtur fyrir lítil börn? Bresk heilbrigðisyfirvöld reyna að sannfæra almenning um ágæti bólusetninga. bólusetningar Almenningur í Bret- landi hefur undanfarin misseri tor- tryggt bólusetningar við barna- sjúkdómum meira en aðrar þjóðir. Tortryggnin beinist einkum að bólusetningu gegn rauðum hund- um, hettusótt og mislingum. Eink- » um óttast fólk að þessi bólusetning geti valdið ein- hverfu. Sums stað- ar í Englandi láta einungis 80 pró- sent foreldra bólu- setja börn sín gegn Einkum óttast fólk að þessi bólusetning geti valdið einhverfu. —*— þessum þremur sjúkdómum. Árið 1988 var fyrst byrjað að bólusetja gegn þessum þremur sjúkdómum samtímis. Nú tíðkast þessi bólusetning í níutíu löndum. Til þess að tryggja viðunandi árangur eru börnin bólusett tvis- var. í Bretlandi fá börn fyrri sprautuna á aldrinum 12 til 15 mánaða. Seinni sprautuna fá þau svo áður en þau byrja í skóla. Hér á landi eru börn bólusett gegn þessum þremur sjúkdómum í fyrra skiptið við 18 mánaða aldur og svo aftur þegar þau eru níu ára. Árið 1998 kom breskur læknir, dr. Andrew Wakefield, fyrstur manna fram með þá tilgátu að þessi bólusetning geti valdið ein- hverfu. Hann segir hættuna stafa af því að veirurnar þrjár séu not- aðar saman. Sumir læknar telja þrjár veirur of stóran skammt fyr- ir börnin í einu. Dæmi séu til þess að börn hafi veikst alvarlega af þeim sökum. Auk þess hefur verið FORSÆTISRÁÐHERRANN styður bólusetningar Tony Blair er nýkominn úr ferðalagi til Afríku bent á að einhverfa greinist oft á þriðja ári, sem er grunsamlega stuttu eftir fyrri sprautuna. Bresk heilbrigðisyfirvöld halda því statt og stöðugt fram að bólusetningin sé hættulaus. Engar sannanir séu um hið gagnstæða. Þau eru núna að fara af stað þar sem hann hitti m.a. forseta Senegals. Heii brigðisyfirvalda fyrir bólusetningum. með herferð þar sem þau hvetja fólk til að láta bólusetja börnin sín. Lögð er sérstök áhersla hættu á faraldri þessara sjúkdóma ef fólk lætur ekki bólusetja börnin sín. Heilbrigðisyfirvöld benda á að þessir þrír sjúkdómar séu ekki aldeilis skaðlausir. Þeir geti vald- fyrir beið hans m.a. þátttaka í herferð heil- ið fæðingargöllum, heilaskaða, lungnabólgu og ófrjósemi. Tony Blair forsætisráðherra fer í farar- broddi þeirrar herferðar. Á heimasíðu forsætisráðuneytisins er til dæmis að finna bækling heil- brigðisyfirvalda um bólusetning- arnar. ■ Naglaskóli Professionails Innritun í síma: 588 8300 Inga Þyri ÞórSardóttir naglafræSingur útskrifaS- ist fró naglaskóla Professionails í september 2000. Hún starfar viS naglaósetningar ó snyrtistofunni Greifynj- unni í Árbæ tímapantanir í síma 587 9310. Umsögn: Góö vinna með námi, sveigjanlegur vinnutími, góð laun og skemmtileg vinna. PROFESSIONAILS naglaskólinn er frábær skóli. Vinstri grænir í Reykjavík: Félagsfólk beðið um tilnefningar framboðsmál Á næstunni munu félagsmenn hjá Vinstri grænum í Reykjavík fá bréf frá sjö manna uppstillingarnefnd félagsins. í bréfinu verða félagsmenn beðnir um að tilnefna þá frambjóðendur sem þeir vilja að verði í kjöri fyr- ir flokkinn á R-listanum. Sigríður Stefánsdóttir formaður félags Vinstri grænna í borginni segir uppstillingarnefnd muni síðan vinna úr þeim tilnefningum sem fram koma. Hún segir að nefndin hafi síðan heimild til að leita á ný til félagsmanna um röðum manna í sæti ef það verður talið nauð- synlegt. Það sé vegna þess að fé- lagsmenn merkja ekki þá sem þeir tilnefna í einhver ákveðin framboðssæti. Uppstillingar- nefnd mun síðan leggja tillögur sínar um skipan framboðslistans fyrir félagsfund. Formaður Vinstri grænna í borginni segir að það sé stefnt að því að niðurstaða í framboðsmál- um flokksins liggi fyrir eigi síðan en 23. febrúar n.k. Hún áréttar þó að sú dágsetning megi þó ekki verða til þess að setja einhverja pressu á það lýðræðislega verk- lag sem flokkurinn hefur ákveðið að viðhafa við val á sínum fram- bjóðendum. Um 300 - 400 manns eru í félagi Vinstri grænna í borg- inni. ■ Kramnik: Tilbúinn að mæta Fischer skák Viðtal Egils Helgasonar við Bobby Fischer hefur vakið athygli í skákheiminum. Fyrrum heims- meistari í skák, Vladimir Kramnik, hefur mikið dálæti á hæfileikum Fischers. f frétt á heimasíðu Kramniks er sagt frá viðtalinu við Fischer. Þar er tilgreint að Fischer sé tilbúinn að tefla svokallaða slembiskák (fischerrandom). í því felst að dregið er um uppstillingu aftari taflmannanna í upphafi. Kramnik er spurður hvort hann hafi haft samband við Fischer. Hann svarar því neitandi. „En ég er mjög áhugasamur að mæta honum við taflborðið," segir Kramnik. Hann vill samt ekki taka undir öll sjónar- mið sem Fischer stendur fyrir og segist vera ósammála mörgu. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.