Fréttablaðið - 12.02.2002, Qupperneq 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
12. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAÚUR
NABBI
Þú æðir olltof inn i herbergið
mitt ón þess oð banko!
Hvoð
með að
þvo þvottmn
sjólfur?
sinn
Hvað með
milt einkalíf?
Hvað með að
virðo þörf mína
fyrir smónæði?
PlXAR
LiJ
SmfíHfíX^ BIO
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 Sýnd kl. 5 og 7 m/ísl. tali
Igemsar kL 7og9| [POMESTIC kLÍl
Iamelie kl. 5, 730 og 101 ImávahlAtur kt. 5Í
REGINA kTsj Ielling kL7og9|
Sýndkl. 5.30, 8 og 10.30
kl. 10.301
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
|LORD OF THE RINGS kl.6ogl0|
jSHALLOW HAl kl. 5.30, 8 og 10.30 j LORD OF THE RINCS
urj Drdby /ÐD/™.'" Thx sfM( SA4 0000 • www.smarabio.is
Kl. 3.50, 5.55,8 og 10.10 m/ens. tali VIT »4
Kl. 3.50 og 5.55 m/ísL tali «11»
IHEARTS IN ATL... kl. 6, 8 og 10.10 [ fRECÍNA
kL 350 og555
K-PAX
kl. 8 og 10.2o][^i ‘ATLANTIS m/ isL tali
OCEANS ELEVEN kl.8 oglo.lo[[HARRYPOTTERm/IsLtaU kL«t|^
VELALAND
VELASALA • TÚRBÍNUR
VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavik
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
FRETTIR AF FÓLKI
GEISLANUM
THEWHtTE STRIPES:
Whit Blood Cells
Ekta hjónarokk
Annað slagið skjótast upp á
yfirborðið menn (og konur)
sem sýna það og sanna að það
eru ekki verkfærin sem skapa
snilldarverkin heldur hendurn-
ar sem þau handleika. Alveg
eins og menn hafa ekkert við
Benz að gera ef þeir kunna ekki
að keyra batna lagasmíðar lúð-
anna ekkert þó nýjustu hljóð-
verstækni og vísindi séu notuð.
Hjónakornin í The White
Stripes sýna það og sanna með
plötu sinni „White Blood Cells“
að rokkið getur skilað sér í
gegnum hvaða skítahljómflutn-
ingsgræjur sem er eins lengi og
það er mallað af einlægni.
Hljómurinn er gamaldags og
lifandi. Hann spilar einfalt gri-
parokk í anda Cream, Kings og
lOcc og syngur stundum af
slíkri innlifun að hlustandinn
fær á tilfinninguna að radd-
böndin séu við það að slitna.
Hún trommar og hefur vit fyrir
því hvenær á að gefa í og
hvenær á að slaka á. Lögin eru
svöl uppsveifla og allir gömlu
rokkfrasarnir notaðir. Niður-
staðan er hrein snilld.
Þó svo að White Stripes verði
seint talin til brautryðjanda
hvað tónlistarstefnu varðar,
munu allir sem á þau hlusta
skynja aö þau eru ekta.
Birgir Örn Steinarsson
Diesel
stillingar
Naomi Campeli hefur kært slúð-
urblaðið The Mirror fyrir að
virða trúnaðarrétt hennar og fyrir
að ryðjast inn á
einkalíf hennar.
Blaðið birti mynd-
ir af Campell í
fyrra þar sem hún
sást yfirgefa AA
fund til stuðnings
eiturlyfjafíklum.
Blaðið hélt því
fram að fyrirsæt-
an ætti við drykkju- og eiturlyfja-
vanda að stríða.
Leikstjórinn Robert Altman fékk
„lífstíðarafreks“- verðlaun á
Kvikmyndahátíðinni í Berlín. Há-
tíðin er stærsta
kvikmyndahátíð
Þýskalands og ein
sú virtasta í heim-
inum. Þegar hinn
77 ára gamli leik-
stjóri tók á móti
verðlaununum
sagði hann að of
snemmt væri að
gefa honum slíka gripi. Hann hefði
áform um að gera fleiri myndir.
Systurnar Kylie og Dannii
Minogue segjast ekki hafa tíma
til þess að taka upp dúett saman.
Dannii segist ekki
öfunda stóru syst-
ur af vinsældum
hennar enda hafi
hún sjálf um nóg
að snúast. Dannii
segir systur sína
taka oftar skyndi-
ákvarðanir, t.d.
hafi foreldrar
hennar eitt sinn átt von á henni í
kvöldmat þegar hún hringdi og
sagðist ekki komast, hún hefði
ákveðið að fara frekar til Tælands.
Oútgefið lag sem Kurt Cobain
söng með hljómsveitinni Earth
hefur nú verið gefið út. Lagið var
tekið upp 1990, fjórum árum áður
en Cobain framdi sjálfsmorð. Það
heitir „Divine and Bright" og er að
finna á þröngskífunni „Sunn Amps
ánd Smashed Guitars" með hljóm-
sveitinni Earth. Höfuðpaur þeirra
hljómsveitar segist vona að fólk
kaupi plötunni vegna þess að það
hafi áhuga á Earth, en ekki einung-
is til þess að eignast nýtt lag með
Cobain. Óhætt er því að álykta að
hann verði fyrir vonbrigðum.
Hljómsveit
andartaksins
Það eru fáir sem skilja Einar Orn Benediksson. En það er allt í lagi,
hann skilur lítið í sér sjálfur. Nú er kominn út tvöfaldur diskur með
Purrki Pillnikk sem inniheldur allt það sem áður var óútgefið á disk.
tónlist Nýútkomin tvöföld geisla-
plata Purrks Pilnikks, „í augum
úti“, inniheldur plöturnar
„Googooplex", „Tilf‘, „Maskínan"
og „No time to think“. Þar með er
allt efni Purrksins fáanlegt á
geisladisk. Nú eru 21 ár liðin frá
því að Einar Örn Benediktsson
gargaði sig inn í hjörtu manna
með fyrstu útgáfu Purrksins,
„Tilf“, sem er 10 laga sjötomma.
Þar með eru jafn mörg ár liðin frá
fyrstu útgáfunni og voru frá fæð-
ingu hans þegar platan kom út.
„Ég er með fína tilfinningu
fyrir því,“ segir Einar. „Þegar ég
hlusta á þessi lög í dag finnst mér
engin önnur sveit hafa náð þess-
um stalli, nema kannski Mínus.
En það er engin eftirsjá eða for-
tíðarreki. Þetta er bara flott og
falleg tónlist."
Einar var 18 ára gamall þegar
Purrkurinn byrjaði. „Ég var í
raun og veru að uppgötva hvað
það er að koma hugsun sinni á
blað, og af blaðinu í míkrafón.
Það að læra að koma tilfinningum
mínum frá mér og standa svo upp
á sviði er minn stærsti skóli.
Þetta gerði mig að því að því sem
ég hef verið og er í dag. Sá skóli
sem Purrkurinn var, var mín fæð-
ing. Eftir tóku svo þroska- og
uppvaxtarár með Kuklinu og Syk-
urmolunum.“
Óhætt er að fullyrða að boð-
skapur sveitarinnar hafi virkað
hvetjandi á aðra ómótaða tónlist-
armenn. Enda slagorð Einars,
„Það er ekki hvað þú kannt, held-
ur hvað þú gerir“, nægt til þess að
rífa hvaða skjaldböku sem er upp
úr heimilissófanum og inn í bíl-
skúr að rokka.
„Vissulega 20 árum síðar
finnst mér ég stundum vera bú-
inn að segja allt sem ég hef að
segja," viðurkennir Einar. „Eg er
búinn að segja þetta einu sinni og
þarf ekki að segja þetta aftur. Ef
fólk náði þessu ekki í fyrsta skipt-
ið, þá er það bara „æ,æ, ekki mér
að kenna“. En á öllum þessum
tíma held ég að ég hafi ekki end-
urtekið mig.“
Einar er að eigin sögn þessa
dagana að læra að semja tónlist í
fyrsta skiptið sjálfur. „Ég hef
verið að reyna mig áfram í þeirri
list að búa til takta og vinna þá
áfram með Bibba úr Curver. Eg
er ekkert endilega að búa til
hljómplötu, bara að sjá hvort ég
geti samið eitthvað sem gæti orð-
ið að lagi. Hingað til hef ég ekki
lært á neitt hljóðfæri og bara
samið eitt lag, einu sinni fyrir
Tappa Tíkarass."
Óg hvernig gengur? „Þetta er
PURRKUR PILNIKK
Er jafn fræg fyrir tónlist slna og slagorðið
„Það er ekki hvað þú kannt, heldur hvað
þú gerir" sem Einar Örn yrti svo eftir-
minnilega í kvikmyndinni Rokk i Reykjavík.
náttúrulega algjör „Killer“. Þetta
er það besta sem hefur gerst síð-
an Purrkurinn hætti. Sumir vilja
meina að ég sé ekki tónlistarmað-
ur. Ég tek því fagnandi. Sumir
skilja ekki enn hvað ég geri. Ég
tek því líka fagnandi, sjaldnast
veit ég sjálfur hvað það er sem ég
geri. Eg held *ið það skipti miklu
máli að láta andartakið ráða.
Purrkur Pillnikk var hljómsveit
andartaksins. Síðan þá hef ég
vanalega ekki legið of lengi yfir
hlutunum, því ef ég hef gert það
hefur komið svolítið „dauðeldis-
lykt“ af þeim.“
biggi@frettabladid.is