Fréttablaðið - 22.02.2002, Síða 2
KJÖRKASSINN
LANDSSÍMI
fSLANDS
Meirihluti netverja telur
að stjórn Landssímans
í heild sinni ætti að
segja af sér.
Eiga þeir stjómarmeðlimir Lands-
símans sem eftir eru i stjóm að fara
að dæmi hinna sem sögðu af sér?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Á Orkuveitan að gerast kjölfestufjárfest-
ir í Landssímanum?
Farðu inn á vlsi.is og segðu
þlna skoðun
fSLANDSBANKI
Forsvarsmenn Hlutabréfamarkaðarins hf.
hyggjast gefa hluthöfum útboðslýsingu eft-
ir á til að bæta fyrir mistök sín.
Aminna Hlutabréfamark-
aðinn hf. vegna brots:
Utboðslýsing
gleymdist
verðbréf Hlutabréfamarkaðurinn
hf. hefur verið áminntur af Verð-
bréfaþingi íslands vegna tvöfalds
brots á reglum um verðbréfavið-
skipti í tengslum við hlutafjárút-
boð í desember sl. Annars vegar
vanrækti sjóðurinn að tilkynna
þinginu um skráningu nýju hlut-
anna á þingið og hins vegar vegar
gaf sjóðurinn ekki út útboðslýs-
ingu í tengslum við útboðið. Rétt
fyrir áramót voru seld ný hluta-
bréf fyrir 36,4 milljónir króna að
nafnvirði, eða um 140 milljónir á
núverandi gengi. Blaðið fékk þær
upplýsingar frá þinginu að opin-
ber áminning yrði látin duga. Eng-
inn hluthafi mun hafa leitað réttar
síns vegna málsins.
Því er haldið fram í yfirlýsingu
frá sjóðnum að enginn hluthafa
hafi skaðast. Vandséð væri að
leyndar upplýsingar gætu komið
fram í útboðslýsingu þar sem
gengi sjóðsins á hverjum tíma
ákvarðist alfarið af skráðri hluta-
bréfaeign. Friðrik Magnússon,
sjóðsstjóri, sagði mannlegum mis-
tökum um að kenna, einfaldlega
hafi láðst að uppfylla reglurnar.
Markaðsverðmæti sjóðsins er
um 560 milljónir króna. Hlutir í
bandarísku fyrirtækjunum
Microsoft, IBM og Pfizer eru á
meðal helstu eigna. Handbært fé
var 108 milljónir króna í árslok
sem er um 80 milljóna lækkun frá
fyrra ári. ■
FRÉTTABLAÐIÐ
22. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
Reykj avíkurhöfn:
Eldur í
Eldborg
eldsvoði Eldur kom upp ljósavél í
vélarrúmi loðnuskipsins
Eldborgar RE-241 í Reykjavíkur-
höfn á fjórða tímanum í gær.
Engan sakaði.
Þrír dælubílar og tveir sjúkra-
bílar frá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins voru sendir niður á
miðbakka þar sem Eldborg ligg-
ur. Menn úr áhöfn skipsins höfðu
í millitíðinni sett á sig reykgrím-
ur og kannað ástandið eins og
þeim var unnt. Mikinn reyk lagði
ELDBORG
Slökkiliðsmenn búa sig undir að störf um borð í Eldborgu.
upp úr vélarrúminu en slökkvi-
liði gekk greiðlega að ráða niður-
lögum eldsins. Síðan var skipið
reykræst.
Ekki var hægt að segja til um
upptök eldsins í gær. Eldborgin
hefur verið til viðgerðar í
Reykjavík í um tvo mánuði. ■
Fíkniefni finnast
í Kópavogi:
Tveir teknir
eftir húsleit
lögreglumál Lögreglan í Kópavogi
handtók tvo menn í gærkvöldi eftir
að hafa fundið nokkurt magn fíkni-
efna við húsleit.
Húsleit var gerð í íbúðarhús-
næði og bílskúr í Kópavogi um níu-
leytið í gærkvöldi. Þar fannst nokk-
uð magn af maríúanarettum og
„hvítum efnum“. Ekki fengust ná-
kvæmar upplýsingar um hversu
mikið magn fíkniefnanna væri. Það
var þó sagt „meira en mætti ætla til
einkanota"
Tveir menn sem hafa áður kom-
ið við sögu lögreglunnar voru hand-
teknir í kjölfar húsleitarinnar. ■
Ríkissaksóknari vill gögn
um Þjóðmenningarhús
Forsætisráðuneytið segir máli forstöðumanns Þjóðmenningarhússins lokið. Forstöðumaðurinn
heldur embætti sínu eftir að upp hafa komið ámælisverðir hlutir varðandi greiðslur til hans og
eiginkonu hans. Lögreglu- og skattayfirvöld vilja lítið segja um málið.
stjórnsýsla Embætti ríkissaksókn-
ara óskaði í gær eftir að fá greina-
gerð Ríkisendurskoðunar um emb-
ættisfærslur Guðmundar Magnús-
sonar, forstöðumanns Þjóðmenn-
ingarhúss. í greinagerðinni eru
gerðar alvarlegar athugasemdir
við rekstur hússins og stjórn Guð-
mundar. Bogi Nilsson ríkissak-
sóknari sagði að í
* því ljósi væri fylls-
Yfirmaður ta ástæða til að
efnahags- skoða málið nánar.
brotadeildar Hann sagðist ekk-
Ríkislögreglu- ert hafa meira um
stjóra, vildi málið að segja á
ekkert tjá sig þessari stundu.
um málefni Embættið kallaði
Þjóðmenning- eftir greinargerð-
arhússins þeg- inni að eigin frum-
ar eftir því var kvæði.
leitað. Af hálfu forsæt-
^ isráðuneytisins
verður ekki að-
hafst frekar í máli Guðmundar.
„Það er ekkert í þessu sem kallar
t.d. á lögreglurannsókn. Við förum
eftir áliti og niðurstöðum Ríkisend-
urskoðunar í þessu máli. Það er
mat Ríkisendurskoðunar að málið
sé fullrannsakað og ekki þörf á
frekari rannsókn," sagði Ólafur
Davíðsson, ráðuneytisstjóri í for-
sætisráðuneytinu. Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, vildi ekki tjá sig
frekar um málið í gær.
Sigurður Þórðarson, ríkisendur-
skoðandi, segir ekki sitt hlutverk
að segja til um hvort málinu sé lok-
ið. „Það er ráðherrann, eða ráðu-
neytið sem tekur ákvörðun um
það,“ sagði hann. Forsætisráðherra
hefur beint því til Ríkisendurskoð-
unar að sjá til þess að ný og betri
vinnubrögð verði viðhöfð í Þjóð-
menningarhúsinu. „Þetta þýðir ef-
laust að við munum sjá til þess að
verklag hluta sem athugasemdir
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Ríkissaksóknari hefur óskað eftir gögnum varðandi rekstur Þjóðmenningarhússins. Málinu mun hafa verið lokið að hálfu forsætisráðu-
neytisins með bréfi ráðherra til forstöðumanns Þjóðmenningarhússins.
voru gerðar við verði komið í lag
og ákvörðunarferlar þarna innan-
dyra teknir til endurskoðunar,"
sagði Sigurður og bætti við að séð
yrði til að ekki yrði brugðið út af
nýja verklaginu.
Jón H. B. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra, vildi ekkert tjá sig um
málefni Þjóðmenningarhússins
þegar eftir því var leitað. Aðspurð-
ur sagði hann þó að ekki þyrfti að
vísa málum sérstaklega til deildar-
innar til að þau væru tekin upp
heldur hefði embættið það í hendi
sér.
Skúli Eggert Þórðarson, skatt-
rannsóknarstjóri, sagði embættið
ekki hafa einstaklinga utan at-
vinnurekstrar til rannsóknar nema
það tengdist atvinnurekstri af ein-
hverju tagi. „Ég vil samt ekki tjá
mig sérstaklega um þetta mál og
finnst ólíklegt af þeim upplýsing-
um sem fram hafa komið í fjölmiðl-
um að það komi á borð hér,“ sagði
hann.
Heimildir blaðsins herma að
ríkisvaldið vilji fara sér hægt í að
segja mönnum upp störfum vegna
mála sem upp kunna að koma. Þá
kveði stjórnsýslulög og lög um
réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins á um að áður en hægt sé að
reka opinbera starfsmenn þurfi
þeir að hafa hlotið áminningu.
Ágústi Guðmundssyni, forstjóra
Landmælinga var sagt upp störfum
árið 2000 vegna gruns og ásakana
um misferli, en var svo sýknaður
af tveimur ákæruatriðum af þrem-
ur. Hann var þó sakfelldur fyrir að
taka við greiðslum án samþykkis
kjaranefndar. í máli Ágústar var
gerð athugasemd við eina greiðslu
upp á 450 þúsund krónur. Ríkisend-
urskoðun gerði athugasemd við
greiðslur fram hjá kjaranefnd upp
á tæpar 3,3 milljónir króna til Guð-
mundar Magnússonar.
oli@frettabladid.is
í Austurveri
8:00 á morgnana
til miðnættis
Guðmundur Magnússon:
Ber af sér sakir en
játar þó yfirsjónir
LV Lyf&heilsa
B £ T R I L i 0
stjórnsýsla Guðmundur Magnús-
son, forstöðumaður Þjóðmenningar-
hússins, segir í yfirlýsingu að hann
taki fullt mark á aðfinnslum Ríkis-
endurskoðunar. Hann ber af sér
sumar sakir en játar þó jafnframt
yfirsjónir.
Guðmundur segir að sér hafi
ekki verið ljóst að sérfræðistörf
hans fyrir Þjóðskjalasafn íslands
heyrðu undir ákvæði starfsmanna-
laga um að umsagnar kjaranefndar
væri þörf. Þá viðurkennir Guð-
mundur að störf eiginkonu hans
fyrir Þjóðmenningarhúsið gætu
hafa skapað óþægileg úrlausnar-
efni. Hann áréttar þó að ýmis dæmi
séu fyrir að maki forstöðumanns
starfi á sama vinnustað. Misræmi í
akstursdagbók rekur hann til mis-
minnis þar sem bókin hafi stundum
verið færð eftir á.
Óbein lán með ávísunum í sjóði
segir Guðmundur yfirsjón. Hann
átelur jafnframt skrif um ferð hans
til Skotlands sem skemmtiferð en
óvæntar persónulegar ástæður
vegna neyðarástands í fjölskyldu
hans hafi orðið til að hann þurfti að
breyta ferðafyrirkomulagi. ■
Dalvíkurletti framseldur:
Sendur
úr landi
dómsmál Hæstiréttur hefur úr-
skurðað að lettneskur karlmaður
sem grunaður er um þrjú morð í
heimalandi sínu verði framseldur
þangað. Þar sneri Hæstiréttur dómi
héraðsdóms. Héraðsdómur taldi að
hætta kynni að vera á að Lettinn
yrði látinn sæta dauðarefsingu fyr-
ir elsta brotið. Það var framið
meðan dauðarefsins var enn í
lögum þarlendis. Óheimilt er að
framselja menn héðan nema tryggt
sé að þeir verði ekki látnir sæta
dauðarefsingu. Dauðarefsing hefur
verið afnumin í Lettlancii og heimi-
laði Hæstiréttur því framsalið. ■