Fréttablaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 22. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR SÍMINN Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, efast um að einkavæðing Landssima íslands gangi eftir á kjörtímabilinu. Hann lét þessi orð falla á opnum fundi framsóknarmanna á Hótel Borg i gær. Komi ekki til sölu á kjölfestu- hlut Símans fljótlega sagði Ólafur Örn Haraldsson alþingismaður vænlegast að fresta henni um 2 til 3 ár meðan fyrirtækið væri endur- skipulagt. Þeir sem þegar hafi keypt hlutabréf ættu að fá þau inn- leyst á kaupverði. ■ Ariel Sharon ávarpar þjóð sína: Isrelsher ræðst inn í Gazaborg JStálhillur i fyrlrtœkl og heimili Stærð: 6 hillur D: 40 cm B:100cm H:200 kr. 10.259,- Næsti lengdarmeter kr. 7.296,- UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Sr___________________ AUÐBREKKA 1 200 KÓPAVOGUR SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335 I www.straumur.is I GflZABORG. ap Síðustu daga hefur ísraelski herinn hert til muna árás- ir sínar á Palestínumenn. Árásun- um er einkum beint gegn heima- stjórn Palestínumanna og Jasser Arafat. ísraelski herinn hélt í gær inn í Gazaborg í fyrsta sinn á þeim sautján mánuðum sem átökin hafa staðið yfir. Að minnsta kosti níu Palestínumenn létu lífið í gær. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, hefur jafnframt ítrekað og hert kröfur sínar um að heima- stjórnin handtaki hryðjuverka- menn og komi í veg fyrir árásir á ísraelsmenn. Hann líkir stríði ísra- els við Palestínumenn við stríð Bandaríkjanna gegn hryðjuverka- mönnum. Heimastjórnin handtók í gær þrjá herskáa Palestínumenn, sem grunaðir eru um morð á ísraelsk- um ráðherra. Jasser Arafat, leið- togi Palestínumanna, sagði að ísra- elskir „skriðdrekar og flugvélar geti ekki hrætt Palestínumenn eða VILJA BERJAST Þessir ungu Palestínumenn réttu i gær upp höndina til merkis um stuðning við baráttu gegn ísrael. Myndin er tekin við jarðarför Palestínumanns sem lést í skotbardaga við ísra- elska hermenn. Hinn látni var meðlimur í samtökunum Hamas, sem skipulagt hafa marg- ar árásir á ísraelsmenn. leiðtoga þeirra.“ Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, hugðist gera grein fyrir breyttum áherslum í hernaði gegn Palestínumönnum í ávarpi sínu til þjóðarinnar í gærkvöldi. Hann hef- ur sagt í fjölmiðlum undanfarna daga að hann hafi engan áhuga á að fara í allsherjar stríð gegn Palest- ínumönnum. ■ Endurbætur á forstjóra- kontór Símans feimnismál Síminn vill ekki skýra frá kostnaði við gagngerar breytingar á forstjóraskrifstofu Þórarins V. Heimildir segja breytingarnir hafa kostað allt að tíu milljónum króna. „Fráleitt," segir Þórarinn. lanpssíiviinn Landssími íslands neitar að upplýsa kostnað við breytingar sem gerðar voru á for- stjóraskrifstofu fyrirtækisins eft- ir að Þórarinn V. Þórarinsson tók við forstjórastarfinu um mitt ár 1999. Óstaðfestar heimildir Frétta- blaðsins segja að breytingarnar hafi kostað milljónir króna, jafn- vel allt að tíu milljónum. Haft var samband við Þói’arinn sjálfan sem sagðist ekki hafa á takteinum hversu mikinn kostnað Landssíminn hafi borið af breyt- ingunum. Það hafi þó alls ekki ver- ið tíu milljónir króna. „Fráleitt," sagði landssímaforstjórinn fyri’- verandi um þá upphæð og vildi ekkert fi’ekar láta hafa eftir sér um málið. Heiðrún Jónsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Landssímans, sagði fyrirtækið hvorki ætla að upplýsa um í hverju breytingarnar á for- stjórarskrifstofunni voru fólgnar né hversu mikið þær kostuðu. Hún sagði fyrirtækinu ekki, fremur en öðrum almenningshlutafélögum, bera skylda til þess að skýra frá Hönnun, myndlist, arkitektúr? Fornám Myndlistaskólinn í Reykjavík býður upp á árs nám skólaárið 2002-2003 til undirbúnings háskólanámi í sjónmenntum. Námið er 40 einingar og skipuiagt með hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla. Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára og hafa lokið framhaldsskólanámi eða 104 einingum í almennum greinum. Inntökupróf fara fram 1. og 2. júní 2002. Æskilegur undirbúningur eru námskeið myndlistaskóla eða valáfangar úr framhaldsskóla, s.s. SJL 103 og SJL 203, módelteikning, hlutateikning eða lita/formfræði. Umsóknarfrestur er til 22. mars. MYNDLISTASKOLINN THE REYKJAVÍK SCHOOL OF ART I REYKJAVIK HRIHGBRAUT12) « 107 REYKJAVÍK • SÍMI 551 1990 Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu eða heimasíðu skólans. Skólinn er á 2. hæð í J L-húsinu, Hringbraut 121. Skrifstofan er opin virka daga kl. 10-12 og 13-17, sími 551 1990 og 551 1936, fax 551 1926. mynd@myndlistaskolinn.is • www.myndlistaskolinn.is HINGAÐ OG EKKI LENGRA. Nær forstjóraskrifstofu Landssímans var Ijósmyndara Fréttablaðsins ekki hleypt. slíkum atriðum. Landssíminn synjaði beiðni um myndatöku af forstjóraskrifstof- unni en hún mun vera um 30 fer- metrar. Óhætt er að segja að breytingarnar á skrifstofunni hafi verið gagngerar. Einn heimildar- maður blaðsins sagði þær jafn- fram hafa verið tímabærar. Lagt var fljótandi parket á gólf, sett upp gluggatjöld og veggir málaðir. Keypt voru ný húsgögn. Lýsingu var breytt, eins og mun hafa verið gert víðar á efstu hæð- inni. Sjálfur mun Þórarinn hafa lagt til málverk úr eigin eigu til að prýða veggi skrifstofu sinnar. Fleiri breytingar voru gerðar á hæðinni. Stórt herbergi framan við forstjóraskrifstofuna var minnkað og gerð viðbótarskrif- stofa fyrir einn starfsmann. Sett- ur var upp myndvarpi í stjórnar- fundarherbergi. Einnig var þar smíðað nýtt fundarborð. Þórarinn V. Þórarinsson yfirgaf forstjóraskrifstofuna 10. október sl. Þar situr nú Óskar Jósefsson rektrarverkfræðingur sem „mun gegna stöðu forstjóra tímabundið eða þar til kynnt hefur verið við hvern einkavæðingarnefnd hefur ákveðið að semja á grundvelli bindandi kauptilboðs," eins og enn segir á heimasíðu Landssímans. gar@frettabladid.is Sala Landssíma íslands: Orkuveitan sem kjölfestuij árfestir bopveitur Orkuveita Reykjavíkur er að láta kanna hvort fyrirtækið geti orðið kjölfestufjárfestir í Símanum. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði á opnum fundi framsóknar- manna í Reykjavík í gær, að í ljósi þess hve illa gengi í viðræðum við erlenda aðila gæti Orkuveitan vel komið að málum. Hann sagði al- þekkt í Evrópu og víðar um heim að orkufyrirtæki hösluðu sér völl á sviði fjarskipta. Alfreð nefndi lífeyrissjóði landsins auk fleiri að- ila sem mögulega fjárfesta auk Orkuveitunnar. Aréttaði hann þó að hugmyndirnar væru enn á frumstigi. Guðmundur Þóroddsson, for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, staðfesti að áhugi væri á kaupun- um og viðræður við aðra fjárfesta hafi átt sér stað. Hann vildi þó ekki upplýsa hverjir þeir væru. „Þegar maður skoðar Símann og Orkuveituna saman sést hvað þetta eru lík fyrirtæki. Bæði eru að grafa gegnum garða og götur, innheimta gjöld fyrir þjónustu, erum með bakvaktir og þjónustu- ver, og megum helst ekki bila,“ nefndi hann sem dæmi um keim- líka uppbyggingu þjónustu fyrir- tækjanna. „Uti í heimi er þetta ein af þeim leiðum sem hefur verið farin. Fyrstu skref okkar inn á þennan markað voi’u náttúrulega með Línu.neti og svo eigum við, með Landsvirkjun, fjarskiptakerfi lögreglu og sjúkraliðs. Þetta er meðvituð stefna að færa sig að- eins inn á þessa braut," sagði hann. Næsta skref sagði Guðmundur vera að hafa samband við ríkis- valdið og einkavæðingarnefnd. Hann taldi ekki ólíklegt að betur gæti gengið að selja aðra pró- sentuhluta Símans eftir aðkomu Orkuveitunnar að málum. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.