Fréttablaðið - 22.02.2002, Qupperneq 10
FRt 1 FABt ADtÐ
10
FRETTABLAÐIÐ
22. febrúar 2002 FÖSTUDACUR
Þjóðmenning í Þjóðmenningarhúsi
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendíngarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og f gagnabönkum
án endurgjalds.
1 BRÉF TIL BLAÐSINS~1
Hingað til hef ég talið Þjóð-
menningarhúsið grafhýsi fyr-
ir úrelta sjálfsmynd þjóðarinnar.
Starfsemin í húsinu hefur miðast
við að vera sviðsmynd fyrir ávörp
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra og Ólafs Ragnars Grímsson-
ar forseta um ágæti íslenska kyn-
stofnsins. Okkur, sem fáum ekki
boðsmiða á uppistand þeirra fé-
laga, hefur verið boðið að skoða
sviðsmyndina yfirgefna. Þar hefur
mátt sjá dúkkur í gervi gjörvileg-
ustu fslendinga sögunnar og þeirra
sem hafa þjáðst mest svo þessi ein-
staka þjóð mætti blómstra á vor-
um dögum. Inntakið er velþekkt.
Landafundaþjóðin, sagnaþjóðin
sem þjáðist af harðindum um tíma
en reis síðan tvíelfd undan útlendu
oki og hefur á vorum dögum sigr-
að allt nema Eurovision.
Ég var sem sagt búinn að gefa
upp vonina um að gæslumönnum
Þjóðmenningarhúss myndi auðn-
ast að draga fram einhvern þátt ís-
lenskrar menningar sem enn væri
á lífi og enn ætti erindi til okkur.
Mér var því skiljanlega létt þegar
upp komst um Guðmund Magnús-
son, forstöðumann hússins. Hon-
um hefur af natni tekist að við-
halda einu veigamesta einkenni ís-
lenskrar menningar; opinberri
embættisfærslu í anda lénsveldis.
Guðmundur leit ekki svo á að hann
væri í ákveðnu starfi. Honum
hafði hlotnast ákveðin aðstaða. Og
hann nýtti hana sjálfum sér til
hagsbóta.
“ JÓNAS SKRIFAR:
Vangavelta
Gunnar Smári Egilsson skrifar um þjóðlega
embættisfærslu Guðmundar Magnússonar,
forstöðumanns Þjóðmenningarhúss.
Það er leiðinlegt hvað þessi
starfsemi Þjóðmenningarhússins
hefur farið leynt. Hún er miklu
mikilvægari en þær tuggur sem
Björn Björnsson, Savana-tríó-mað-
ur, hefur sett fram með tækni leik-
munadeildar Ríkissjónvarpsins.
Nú er lag að fá Björn til að draga
fram raunveruleg verk Guðmund-
ar og setja þau fram í sýningarsöl-
um hússins. Þar mætti sjá brúðu af
Guðmundi og eiginkonu hans, sem
hann réð til allra verka, og vini
þeirra, þjóðskjalaverðinum. I gler-
kössum mætti sýna akstursdagbók
Guðmundar og verktakareikninga.
Síðan geta menn velt fyrir sér
að hleypa Símamálinu í einn sal og
breyta Hannesar stofu Hafstein í
Árna stofu Johnsen. Þetta er okkar
þjóðmenning. Við eigum ekki að
fela hana heldur draga hana fram
og læra að elska hana. ■
INNHERJAR
Er spillingin
alls staðar?
Helga hringdi:
Hún segist uggandi yfir ástand-
inu í þjóðfélaginu og finnst
allt of lítið heyrast í fólki vegna
þess. Hún segist velta því fyrir sér
hvort spillingin sé alls staðar. „Er
það þannig að ef einhvers staðar er
velt við steini þá kemur spillingin í
ljós. Eru allir að stinga undan sem
geta?“
Helga segist velta því fyrir sér
hvort þeir sem komist til valda fari
strax að hugsa um það hvernig
þeir geti svindlað, þingmenn, borg-
arfulltrúar og svo opinberir stjórn-
endur. „Þetta er ekkert annað en
þjófnaður sem þessir menn eru að
framkvæma," segir Helga og for-
sætisráðherrann ætti að kallast
spillingarráðherra að hennar mati.
Henni finnst að fjölmiðlarnir
ættu að taka á svona málum og að
hennar mati hafa þeir ekki staðið
sig sem skyldi hingað til. „Það er
eins og allir séu hræddir við
stjórnvöld og enginn þori að segja
neitt.“ Helgu finnst sem þeir sem
spyrja spurninganna í sjónvarpi
þori ekki að spyrja almennilegra
spurninga. „Maður er alltaf að bíða
eftir þessum spurningum en þær
koma aldrei." ■
Síminn og Enron
Sumt er líkt með Símanum og bandaríska stórfyr-
irtækinu Enron, sem hafa verið í misjöfnum frétt-
um að undanförnu. Hvort tveggja starfar á jaðri
tveggja heima, Enron keypti og seldi einkavæð-
ingu orkugeirans og Síminn hefur um nokkurt
skeið rambað á barmi einkavæðingar.
Hvorki-né staðan er önnur rót vandamála fyrir-
tækjanna tveggja og eigenda þeirra. í tilviki
Símans er farið að losna um tiltölulega fast mótað-
ar siðareglur og gildismat ríkisrekstrar, án þess að
í staðinn hafi fest rætur tiltölulega fast mótaðar
siðareglur og gildismat einkarekstrar.
Önnur rótin er lífsspeki græðginnar, sem hefur
að bandarískri fyrirmynd rutt sér til rúms meðal
forréttindastétta beggja vegna hafs. Menn hafa
tekið trú á klisjuna um, að gróði eins sáldrist til
allra hinna. Taumlaus sjálfsbjargarviðleitni eins
efli efnahagslífið og magni hag fjöldans.
Þegar lífspeki græðginnar fer saman við losara-
legt umhverfi fyrirtækja á breytingaskeiði, verður
til eins konar Villta vestrið, þar sem valdamenn
fyrirtækjanna sýna ótrúlegt hugmyndaflug við að
misnota aðstöðu sína til að skara eld að eigin köku
og við að réttlæta framferðið opinberlega.
Þriðja rótin felst í tengslunum við pólitíkina.
Hér heima eru raunar allir málsaðilar komnir til
skjalanna á pólitískum forsendum frekar en mál-
efnalegum. í flestum tilvikum eru þeir innstu
koppar í búri stjórnmálaflokksins, sem mesta
áherzlu leggur á sjálfsbjargarviðleitni.
Vandinn byrjar í sjálfri einkavæðingarnefnd-
inni, sem hefur látið undir höfuð leggjast að setja
skorður við lausunginni, sem hefst þegar í aðdrag-
anda einkavæðingar og magnast gegnum allt ferli
hennar. Undir verndarvæng einkavæðinganefndar
leikur óheft sjálfsbjargarviðleitni lausum hala.
Sjálfur formaður einkavæðingarnefndar gaf
tóninn með því að láta greiða sér laun fyrir meinta
ráðgjöf, er voru margfalt hærri en þau, sem hann
fékk fyrir formennskuna sjálfa. Önnur gæludýr
„ Ekki er von á góðu, þegar pólitísk
gæludýr með hugmyndafrœði
síngirninnar ífarteskinu koma að
eftirlitslausum ríkisfyrirtækjum,
sem eru að breytast í einkafyrirtœki. “
einkavæðingarinnar hafa tekið sér þá aðferð til
fyrirmyndar. Eftir höfðinu dansa limirnir.
Stjórnarmenn ríkisfyrirtækja eru valdir pólit-
ískt og telja stjórnarlaun sín vera greiðslu fyrir að
vera til, en ekki fyrir að gera neitt. Þeir sinna því
engu því eftirliti og aðhaldi, sem talið er vera hlut-
verk stjórnarmanna í einkafyrirtækjum. Því gátu
ráðamenn Símans leikið lausum hala.
Ekki er von á góðu, þegar pólitísk gæludýr með
hugmyndafræði síngirninnar í farteskinu koma að
eftirlitslausum ríkisfyrirtækjum, sem eru að
breytast í einkafyrirtæki. Niðurstöðuna höfum við
séð í nokkrum tilvikum, en hvergi greinilegar en í
Símanum, furðulega reknu fyrirtæki.
Af framangreindum ástæðum hefur íslenzk
einkavæðing réttilega verið nefnd einkavinavæð-
ing. Ráðamenn þjóðarinnar hafa gripið sérhvert
tækifæri einkavæðingar til að koma pólitískum
gæludýrum sínum fyrir við kjötkatlana. Gælu-
dýrin fara síðan hamförum í græðginni.
Einkavæðingarnefnd er hluti vandans, en ætti
að vera hluti lausnarinnar. Hún ætti að tryggja
málefnalegra mannval til forustu ríkisfyrirtækja á
breytingaskeiði og einstaklega strangt eftirlit með
þeim, í ljósi augljósrar hættu af hinni auknu út-
breiðslu á hugsunarhætti græðginnar.
Síminn hefur eins og Enron opinberað fyrir öll-
um, hvernig Villta vestrið verður til. Þau sýna okk-
ur, að við þurfum skriflegar leikreglur, sem eru
miklu nákvæmari en við höfum haft hingað til.
Jónas Kristjánsson
Reiði yfir
spillingu
Málefni forstöðumanns Þjóð-
menningarhúss og þjóð-
skjalavarðar eru ofarlega í huga
Innherja á stjórnmálaþræði vis-
is.is. „Var að lesa frétt á visir.is
um embættisfærslu Guðm. Magn-
ússonar. Ferlegt!" segir einn og
vill að þeir verði reknir. Annar
spjallari er hneykslaður á Guð-
mundi „ísland er verra en versta
Mið-Ameríkuríki. Og ekki er þjóð-
skjalavörðurinn betri - skátahöfð-
inginn sjálfur!“
Innherjar snúa sér því næst að
viðbrögðum forsætisráðherra.
„Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, er búinn að senda Guð-
mundi Magnússyni bréf, þar sem
hann snuprar hann fyrir þetta at-
hæfi. Ég tel að Guðmundur og
Ólafur séu í mjög vondum mál-
um,“ segir einn harður stuðnings-
maður Sjálfstæðisflokksins.
„“snuprar"? finnst þér það eðlileg
viðbrögð og nægileg?" svarar
skátinn. Hann bendir á að ekki
hafi verið farið svo mildum hönd-
um um skúringakonuna sem
hringdi úr síma Davíðs. Hann rifj-
ar líka upp brottrekstur forstjóra
Landmælinga. „Hann var rekinn,
rétt og slétt. Kerlingin líka.“ Sjálf-
stæðismaðurinn svarar fyrir sig.
„Ég sagði ekki að það væri nóg.
Ég er á þeirri skoðun að þeir verði
að fara.“
Innherjar eru umræðuvettvangur
á vefnum visir.is.
KAUPENDAÞJÓNUSTA - SÍMI 533 3444
Opið um helgina á milli 11:00 -14:00
Við á Þingholti höfum fjölda fólks á skrá sem bíður eftir réttu eigninni.
2ja i Rad/par I Nýbyggingar
Leikskólakennari leitar áð notalegri 2ja her-
bergja íbúð í austurborginni má vera risíbúð
eða lítið niðurgrafin kjallaraíbúð. Sölum. Geir.
Höfum kaupendur að litlum 2ja herbergja
íbúðum og einstaklingsíbúöum, bæði sam-
þykktum og ósamþykktum.
Tölvufræðingur leitar að ca. 55-70 fm 2ja til
3ja herb. íbúð á jarðhæð í Grandahverfi, helst
með sér garði. Sölum. Þórður
3ja
Erlendur ríkisborgari leitar að 3ja herbergja
íbúð í Reykjavík vestan við Elliðaár. Þarf að
vera á 1. h. eða í lyftuhúsi. Sölum. Geir.
Bóndi leitar að íbúð með a.m.k. 2 svefnher-
bergjum vegna skólagöngu barna sinna, stað-
greiðsla í boði, engin húsbréfaafföll. Sölum.
Þórður
Þjónustufulltrúi óskar eftir 3ja herb. íbúð í
Þingholtunum eða í gamla vesturbæ, Hrjng-
braut kemur til greina. Ekki kjallari. Sölum.
Þórður
Hjón leita að 3ja til 4ra herbergja íbúð í lyftu-
húsi í Reykjavík. Gott hjólastólaaögengi nauð-
synlegt, lyftudyr þurfa að vera a.m.k. 80 cm
breiðar. Best væri ef eigninni fylgdi stæði í
bílageymslu og innangengt væri í það. Sölum.'
Þórður.
Hjón sem búin eru að selja vantar sérbýli með
3 til 4 svefnherbergi í Grafarvogi eða Grafar-
holti sölumaður örn
Hjón sem eru búin að selja verðmæta fast-
eign leita að minna sérbýli, rað, par, eða ein-
býlishúsi í Garðabæ eða Kópavogi. Sérhæð á
1 .h með sér garði kemur einnig til greina. Söl-
um. Geir.
Hestamaður óskar eftir minna sérbýli í Mos-
fellsbæ td. við Grundartanga. Sölum. Þórður
Finbýlishús
Hjón sem eru búin að selja og eru með góða
greiðslugetu vantar einbýlishúsi í Breiðholti
eða Árbæ. Húsið þarf helst að vera á eipni
hæð. Sölum. örn
Fjölskylda utan af landi leitar að einbýlishúsi
eða stóru raðhúsi með aukaibúð eða mögu-
leika á aukaíbúð. Sölum. Þórður
Lóðir
Traust byggingarfyrirtæki óskar eftir lóðum á
höfuðborgarsvæðinu. Góðar greiðslur í boði.
sölum. örn
Rafvirkja vantar 3ja til 4ra herbergja íbúð helst
fokhelda á höfuðborgarsvæðinu. sölum. örn
4-5ja
Hjón sem vinna hjá traustu fyrirtæki uppi á
Höfða vantar 4-5 herbergja íbúð í nágrenninu.
Sölum. Örn
Fjölskylda leitar að íbúð með 3-4 svefnher-
bergjum í Foldahverfi, til greina kemur að taka
eignina upp í raðhús í sama hvörfi. Sölum.
Geir og Þórður
Vélstjóri leitar að góðri 4-5 herb. íbúö í hverf-
um 104 og 105, má gjarnan vera falleg risí-
búð, ekki blokk eða kjajlari. Sölum. örn.
Hseðir
Yfirmaður í banka leitar að góðri sérhæð 120
- 160 fm á svæðum 170-108. Bílskúr skilyrði.
TH greina kemur að kaupa eign sem þarfnast
einhverrar endurnýjunar. Sölumaður Þórður
Góðan kaupanda vantar hæð með góðum bíl-
skúr vestan Elliðaáa. Sölum. örn
Höfum fjársterkan kaupanda að sérhæð í
Vesturbæ, aðeins mjög góð eign kemur til
greina. Sölum. Geir
VANTAR ALLAR TEGUNDIR EIGNA Á SKRÁ I
ÞINGHOLTUNUM VEGNA MIKILLAR EFTIRSPURNAR
Lögmaður leitar áð góðri íbúð 120 - 160 fm
á svæðum 170-108 og 200. Sérinngangur
skilyrði. Sölumaður Steinbergur.
Höfum fjársterkan kaupanda að sérhæð í
Vesturbæ, aðeins mjög góð eign kemur til
greina. Sölum. Steinbergur.
ORÐRÉTT
SAMVISKA OC HEIMILI
ÞJÓÐARSÁLARINNAR
„En spyrja má
sjálfan sig hvort
hús sem hafa sál
svo ekki sé talað
um mikla sál, geti
ekki líka haft sam-
visku, en samvisk-
an er elsta systir
sálarinnar. [...]
[H]eilu þjóðirnar eru stundum
taldar búa við eina sameiginlega
sál. Hin íslenska þjóðarsál má
gjarnan eiga lögheimili sitt í
þessu húsi unt langa framtíð og
verður ekki séö að henni verði vís-
að á annan og betri sess.““
Davíð Oddsson, í ávarpi við opnun Þjóð-
menningarhúss, 20. apríl 2000.
FÍKNIEFNIN RÉÐU
„Þetta er góður
drengur og við
biðjum fyrir hon-
um og þeim manni
sem lést. Það
skelfilega er að
þarna voru allt
önnur öfl á ferð en
þau sem venjulegt
fólk þekkir. Þau ósköp sem hafa
dunið á í vikunni eru harmleikur
þar sem fíkniefni réðu ferðinni."
Arnar Jónsson, eigandi Hjólbarnaviðgerð-
ar Vesturbæjar og fyrrverandi samstarfs-
maður unga mannsins sem framdi morðið
á Víðimel. DV, 21. febrúar.
ÁKVEÐUR FÍKILLINN SIC?
„Sá sem orðinn er fíkill og illa
staddur hefur á einhvern hátt orð-
FOR
ið það og það gerist
ekki með því að
einn daginn gangi
sjálfráða fullorð-
inn maður út í búð
og kaupi sér kóka-
ín eða hass. [...]
Þeir sem segja
kotrosknir að þeir
sjái nú ekkert athugavert við að
lögleiða sölu fíkniefna eru ekki
endilega til í að taka afleiðingun-
um af því sjálfir."
Vigdís Stefánsdóttir, blaðamaður.
Mbl. 21. febrúar.
HRÆÐILEGT LEIKRIT
„Þetta er hræðilegt
leikrit þar sem höf-
undui inn Hefur
verið ófær um að
ákveða hvort hann
væri að semja
kjánalega spennu-
sögu eða tilgerðar-
legt fjölskyldu-
drama. Eini raunverulegi leynd-
ardómurinn er hvað Sniglaveislan
er að gera á West End.“
Charles Spencer gangrýnandi Daily Tel-
egraph um Sniglaveislu Ólafs Jóhanns
Ólfassonar, sem nú er sýnd í London.
Mbl. 21. febrúar.
EKKI BENDA
Á MIC
„Sá sem aldrei ger-
ir mistök gerir
aldrei neitt.“
Guðmundur Magnússon,
forstöðumaður Þjóð-
menningarhússins, vitn-
ar í Napóleon. DV, 21.
febrúar.