Fréttablaðið - 22.02.2002, Side 14
FRÉTTABLAÐIÐ
ÓLYMPÍULEIKAR
LOKSINS GULL HJÁ EBERHARTER
Kristinn Magnússon var á samanlagt 10
sekúnda slakari tíma en Austurríkismaður-
inn Stefan Eberharter í stórsvigi í gær.
Eberharter vann gullverðlaun, Bandaríkja-
maðurinn Bode Miller silfur og Norðmað-
urinn Lasse Kjus brons. Björgvin Björgvins-
son og Jóhann Friðrik Haraldsson luku ekki
við keppni. Þegar Ijóst var að Eberharter
hafði unnið fagnaði austurríska popp-
stjarnan D.J. Oetzi honum.
14
22. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
Hvít-Rússar komast í undanúrslit:
Svíar niðurlægðir
iSHOKKÍ Þriðja daginn í röð eru
fyrirsagnir frétta frá Vetrar-
ólympíuleikunum um Hvít-
Rússa. í þetta sinn snýst málið
hinsvegar ekki um stera eða
týnda íþróttamenn. Hvít-rúss-
neska íshokkíliðið vann Svía 4-3 í
fjórðungsúrslitum á miðvikudag-
inn. Svíar voru taldir mun
sterkara lið og líklegir til að næla
í gull. Þessi sigur er kærkomin
álitsauki fyrir Hvít-Rússland. Á
sunnudaginn mældist skauta-
hlaupari með 380 sinnum of mik-
ið magn stera í blóðinu og mætti
ekki til að endurtaka lyfjaprófið.
Fararstjórinn var rekinn heim í
kjölfarið. Um helgina týndist
einn skíðastökkvari úr liðinu og
talið er líklegt að hann hafi látið
sig hverfa í Bandaríkjunum.
Hokkílið Hvít-Rússa þurfti að
hafa mikið fyrir því að komast í
fjórðungsúrslit en Svíar lítið. Að-
eins einn leikmaður þess spilar í
bandarísku NHL deildinni á með-
an flestir Svíanna spila þar. Sig-
urmarkið var skorað af 20 metra
færi þegar 2:24 mínútur voru eft-
ir af leiknum. Skotið var auðvar-
ið en pökkurinn hrökk af hjálmi
sænska markvarðarins og í
mark.
í hinum leikjum undanúrslita
unnu Rússar Tékka 1-0. Sömu lið
mættust í úrslitaleiknum í Naga-
no en þá unnu Tékkar. Bandarík-
in unnu Þýskaland 5-0 og gætu
fengið sín fyrstu hokkíverðlaun á
Ólympíuleikum í 22 ár. Kanada
vann Finnland 2-1. ■
HOKKÍLIÐ TIL SÖLU - ÓDÝRT!
Lítið annað en niðurlægt landslið
Svía prýddi forsíður sænskra dagblaða
í gær. Þar mátti m.a. sjá fyrirsagnirnar
„Dimmasti dagur í sögu sænskra íþrótta"
og „Dagur smánar".
FÖSTUDAGURINN
22. JANÚÁR
HANDBOLTI___________________________
ESSO-deild karia
20.00 FH tekur á móti Þór frá Akureyri
að Kaplakrika. Bæði liðin eru með
fjórtán stig. Þór er í sjöunda sæti
deildarinnar og FH er í níunda
sæti.
20.00 KA fær HK i heimsókn í KA heim-
ilið á Akureyri.
20.00 Reykjavíkurliðin Valur og ÍR mæt-
ast í Valsheimilinu að Hlíðarenda.
Liðin eru í toppbaráttu og eru
bæðí með 22 stig. Valur er í öðru
sæti og ÍR í þriðja.
ESSO-deild kvenna
20.00 Stelpurnar (ÍBV vonast eftir góðu
veðri í dag. Þá getur lið Fram flog-
ið til Eyja og spilað við þær.
KÖRFUBOLTI__________________________
Epson-deild karla
20.00 Það er sannkallaður Suðurnesja-
slagur f Njarðvík í kvöld. Þá taka
heimamenn á móti Grindvíking-
um. Njarðvík er f þriðja sæti deild-
arinnar með 28 stig en Grindavík
í því sjötta með 16 stig.
;:-:úvK..r WA m
i Ifc, f/ /j ■ .
mora
i Mtínma
Moraœra
blöndunartæki
Moracera er ódýrari línan af einshandfangs og
hitastýröum blöndunartækjum sem fullnægja kröfum
tímans um rekstrarhagkvæmni, barnaöryggi og einfalda,
fallega hönnun. Þetta eru blöndunartæki fyrir kröfuharða
neytendur.
Mora - sænsk gæðavara
T€HGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax.- 564 1089 • tengi.is
Norðmönnum gengur gífurlega vel á Vetrarólympíuleikunum í Salt
Lake City. Sænskur dálkahöfundur stingur upp á því að þjóðirnar sam-
einist aftur. Norskur lesandi vill skipta á gullverðlaunum og þátttökurétt
á HM við Svíþjóð.
ólympíuleikar Tíu gullverölaun
komin og fleiri eflaust á leiðinni.
Noregur er sigursælasta þjóð
Vetrarólympíuleikanna og á
miklu skriði þegar nokkrir dagar
eru eftir af leikunum.
Á miðvikudaginn tryggði Nor-
egur sér stöðuna í fyrsta sæti
yfir gullverðlaun þegar Ole Einar
Bjoerndalen halaði skíðaskotfim-
iliðið til sigurs í 4x7,5 kílómetra
göngu. í lok keppni á miðvikudag
var Noregur með tíu gullverð-
laun, sex silfur og tvö brons.
Þýskaland var með níu gullverð-
laun, 15 silfur og sjö brons,
Bandaríkin með átta gull, níu
silfur og átta brons.
Útsendingar frá Salt Lake City
njóta gríðarlegra vinsælda hjá
Norðmönnum. Rúmlega 1,6 millj-
ón manna fylgdust með boðgöng-
unni á sunnudaginn. Það var einn
af hápunktum leikanna fyrir
Norðmenn, sem eru 4,5 milljónir.
Þessi fjöldi áhorfenda er meiri
en horfði á leik landsliðs Noregs
spila við Brasilíu á Heimsmeist-
arakeppninni í fótbolta 1998.
Allir Norðmenn virðast fylgj-
ast með leikunum, sama þótt þeir
séu staddir á skútu úti á hafi.
Knut Frostad, skipstjóri norsku
skútunnar Djuice, sem tekur þátt
í Volvo hnattsiglingunni, fylgist
reglulega með gangi mála. Þó
hefur hann meira en nóg að gera
og tókst að stýra skútunni í annað
sæti í fjórða hluta kappsiglingar-
innar.
Sigurganga Noregs varð til
þess að Lars Lindstrom, dálka-
höfundur í sænska blaðinu Ex-
pressen, stakk upp á því að lönd-
in tvö myndu sameinast á ný árið
2005. Þá eru hundrað ár liðin frá
því þegar norska þingið kaus að
kljúfa landið frá Svíþjóð. „Það
gæti auðveldlega orðið af þessari
sameiningu fyrir leikana í Turin
2006. Eina krafa mín er að Sví-
þjóð sjái um íshokkíið,“ skrifaði
Lindstrom í opnu bréfi til Har-
aldar V Noregskonungs, sem er
að sjálfsögðu staddur á leikun-
um. Eftir ótrúlegt tap Svíþjóðar á
móti Hvíta-Rússlandi í íshokkí á
miðvikudaginn gæti Lindstrom
FERFALT GULL
Ole Einar Bjoerndalen er þriðji íþróttamað-
ur sögunnar til að vinna fjögur gullverð-
laun á einum Ólympíuleikum. Hann vann í
10 km skíðaskotfimi, 20 km skíðagöngu,
4x7,5 km boðgöngu karla og 12,5 km
skotfimieltigöngu.
orðið af þeirri kröfu. Svíþjóð er
ekki enn búin að vinna gullverð-
laun á leikunum.
Bréf Lindstrom vakti athygli í
Noregi. „Skiptum á gullverðlaun-
unum fyrir þátttökurétt í Heims-
meistarakeppninni í fótbolta,"
skrifaði lesandi á heimasíðu Dag-
bladet. Noregi tókst ekki að kom-
ast í úrslitakeppni HM en Svíþjóð
komst í tíunda skipti. Karl Gústaf
Svíakonungur og Sylvía drottn-
ing eru einnig stödd á leikunum.
Þeim þykir mikið til koma til
Norðmanna. „Ef ég væri með
hatt myndi ég taka ofan,“ sagði
Karl Gústaf. „Árangur þeirra á
leikunum er ótrúlegur."
Þó aðaláhugamál Norðmanna
hafi lengi verið að bregða sér á
skíði gekk þjóðinni ekki alltaf vel
á Vetrarólympíuleikum. í Cal-
gary í Kanada 1988 unnu þeir að-
eins fimm verðlaun. Það var síð-
an í Albertville í Frakklandi 1992
sem þeir fengu 20. Besti árangur
Norðmanna var síðan á heima-
velli í Lillehammer 1994. Þá
fengu þeir tíu gullverðlaun, 11
silfur og fimm brons. í Nagano
munaði litlu að þessi árangur
væri jafnaður, tíu gull, tíu silfur
og fimm brons.
Fyrir leikana í Salt Lake City
spáðu fáir svo góðu gengi. „Ég
spáði 12 gullverðlaunum og allir
hlógu að mér,“ segir Tormod
Haugstad, blaðamaður Dagbla-
det. „Nú eigum við möguleika á
því að verða aftur besta þjóð
Vetrarólympíuleikanna, sem er
ótrúlegt."
halldor@frettabladid.is
jSJÓNVARPl
9.45 Eurosport
Ólympíuleikar: stórsvig karla
10.50 Eurosport
Úrslitaviðureign Noregs og
Kanada í krulli karia
12.00 Eurosport
Skautadans kvenna
15.45 Eurosport
Norræn tvíkeppni
(stökk af 120 metra palli)
14.50 Eurosport
4x5 km boðganga kvenna
15.50 Stoð 2
NBA-tilþrif (NBA Action)
15.45 Eurosport
Keppni dagsins kynnt
16.00 Eurosport
Samantekt af þvi besta úr
hokkí, krulli, skautadansi og
sleðakeppni fimmtudags
18.00 Sýn
Heklusport
18.50 Sýn
íþróttir um allan heim
19.00 Eurosport
Fyrsta umferð stórsvigs kvenna.
Dagný Linda Kristjánsdóttir
tekur þátt en Eurosport sýnir
ekki alla keppendur.
19.50 Svn
Alltaf í boltanum
20.00 Eurosport
Svíþjóð og Sviss keppa
um bronsið i kruili karia
20.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn
21.50 Eurosport
Norræn tvikeppni
(7,5 km 5kiðaganga)
22.15 Eurosport
Önnur umferð stórsvigs kvenna
25.15 Eurosport
Undanúrslit í ishokki