Fréttablaðið - 22.02.2002, Page 15
FÖSTUDAGUR 22. febrúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Gontinental Gup 2002:
Evrópukeppni í Lágmúla
snóker í dag hefst Evrójpukeppni
landsliða í snóker hér á Islandi og
stendur yfir um helgina. Mótið er
haldið á vegum Billiardsambands
íslands. Þáttakendur eru frá að-
ildarþjóðum CB&SA (Continental
Billiards and Snooker Associ-
ation). Samhliða keppni landsliða
verður einnig haldin einstak-
lingskeppni kvenna í snóker. Þar
tekur Emilía Eiríksdóttir þátt.
„Þetta er stærsta mót sem við
höfum haldið síðan 1993,“ segir
Jóhannes B. Jóhannesson. „Þá
héldum við heimsmeistaramót
unglinga. Við ætlum okkur að
vinna mótið. Fyrsta sætið gefur
væntanlega sæti á World Cup
mótinu, sem verður haldið á Bret-
landi í sumar. Það er mjög sterkt
mót.“
Mótið um helgina verður hald-
ið í Snóker og Poolstofunni Lág-
múla 5. Úrslit fara þar fram en
einnig verður spilað í Billiard-
stofu Hafnarfjarðar. „Okkur
langaði að leigja Perluna fyrir úr-
slitin en það reyndist of mikið
vesen. Borðin eru tæp tvö tonn og
þurfa að standa í viku áður en
spilað er á þeim,“ segir Jóhannes.
A-lið íslands er geysisterkt en
það skipa Kristján Helgason, Jó-
hannes B. Jóhannesson og Brynj-
ar Valdimarsson, og eru þeir tald-
ir eiga góða sigurmöguleika á
mótinu. Þátttökuþjóðir eru tólf en
sem gestgjafar tefla íslendingar
fram þremur liðum og keppnislið
á mótinu eru því fjórtán talsins.
CB&SA var stofnað af billi-
ardsamböndum á meginlandi
Evrópu til þess að reyna að styrk-
ja snóker gegn Bretum, sem hafa
verið nánast einráðir í íþróttinni.
fslendingum var boðin aðild árið
1998 þar sem íslenskir
snókerspilarar höfðu vakið at-
hygli á alþjóðlegum mótum. Ár-
angur íslends hefur verið góður,
fjórða sæti árið 1999, þriðja sæti
2000 og 2001 tapaðist úrslitaleik-
ur naumlega fyrir Hollendingum.
Þáttökuþjóðir eru einnig Austur-
ríki, Kýpur, Þýskaland, Ungverja-
land, Finnland, Frakkland, Gí-
braltar, Malta, Pólland og Sviss.
Continental Cup vekur athygli al-
þjóðlega snókerheiminum. Mótið
er orðið sterkt þar sem sumar
þjóðir tefla fram atvinnumönn-
SNOKER.IS
Þar verður hægt að fylgíast með gangi
mótsins um helgina.
um. Tveir vel þekktir spilarar frá
Möltu taka þátt um helgina. Hægt
verður að fylgjast með gangi
mótsins á snoker.is. Þar eru upp-
lýsingar um leikmenn, dómara og
beinar útsendingar frá völdum
leikjum. ■
Heitir Governador José Fragelli. Rúmar 47
þúsund manns. Byggður 1976.
Óvænt boð frá
Suður-Ameríku:
Islenska
landsliðið til
Brasilíu
fótbolti íslenska landsliðið í fót-
bolta mun að öllum líkindum mæta
landsliði Brasilíu 7. mars nk. Brasil-
ía sendi boð um leikinn, sem myndi
fara fram í borginni Cuiabá. Fót-
boltavöllurinn þar tekur 47 þúsund
manns.
„Þetta er ekki staðfest en mjög
líklegt," sagði Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri KSÍ, í gær. „Und-
irbúningur er hafinn. Við erum að
reyna að komast að því hvort ekki sé
hægt að koma landsliðinu á staðinn.“
Þar sem fimmtudagurinn 7. mars er
ekki viðurkenndur landsleikjadagur
fá margir af bestu íslensku atvinnu-
mönnunum ekki frí hjá sínum liðum.
Því er stílað inn á þá leikmenn, sem
eru í atvinnumennsku á Norðurlönd-
unum.
Áður en Brasilía leitaði til íslands
voru Kólumbía, Chile og Noregur
búin að hafna því að mæta liðinu
þennan dag. Það ætti samt ekki að
koma sér illa fyrir Brasilíu að sigra
fsland. Liðin mættust síðast í Flori-
anopolis vorið 1994. Brasilía vann 3-
0 og varð síðan heimsmeistari í
Bandaríkjunum um sumarið. Nú er
liðið að undirbúa sig undir loka-
keppni HM í Suður-Kóreu og Japan í
sumar. Þar er það í riðli með Týrk-
landi, Kosta Ríka og Kína. Þannig
gæti þetta verió hjátrú hjá Brasilíu
að vilja mæta íslandi aftur. „Það er
mögulégt,“'. ségir Geir: „Eigum við
ekki bara að segja það í bili.“ ■
|iy Kyiij«ikall«i
ts, Kíi|i?iv0jjí
f! ?A. foliriinf