Fréttablaðið - 22.02.2002, Qupperneq 18
Tímar siðferðis-
spurninga
Við iifum á tímum þar sem við þar sem við veltum
fyrir okkur siðferði. í stjórnmálum, peningamálum
og hvort rétt sé að klóna menn.
Jón Óskar Sólnes, rekstrarhagfræðingur
DAVÍÐ STEFÁNSSON
Fram að þessu hefur ekki verið mikið
framboð af efni um Davíð á netinu.
Vefur um Davíð frá
Fagraskógi:
Fjallað um líf og
störf skáldsins
vefssíða Opnaður hefur verið sér-
stakur áhugamannavefur um
Davíð Stefánsson, þjóðskáldið
frá Fagraskógi. Á vefnum er
meðal annars að finna allítar-
lega umfjöllun um líf og störf
skáldsins, ljóð dagsins, myndir
og tengingar á skyldar vefsíður.
Fram að þessu hefur ekki verið
mikið framboð af efni um Davíð
á Netinu, en vef þessum er ætlað
að þæta að einhverju leyti úr
því.
Höfundur vefsins er Anton
Karl Ingason, háskólanemi og
kennari við Verzlunarskóla ís-
lands. Slóðin er: http://fagriskog-
ur.cjb.net. ■
18
FRETTABLAÐIÐ
22. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
Tattórveraði Álendingurinn:
Elsta húðflúrið 4000 ára gamalt
sýning Tattóveraði Alendingur-
inn er yfirskrift sýningar sem
er opnuð í dag í anddyri Nor-
ræna hússins. Sýningin kemur
frá Álandseyjum og stendur
Þjóðminjasafn Álandseyja að
henni. Hún var fyrst sett upp í
safninu sumarið 1994 og var
Göran Jansson verkefnisstjóri
sýningarinnar.
Aðalmarkmiðið var annars
vegar að skrásetja húðflúr á
Álandseyjum og hins vegar að
setja saman spennandi og um-
hugsunarverða sýningu sem lýs-
ir vel húðflúrslistinni sem bæði
aflar sér margra vina (og fjand-
manna) um þessar mundir. Efn-
inu um húðflúr hefur verið safn-
að með viðtölum og myndatök-
um. Allt það efni sem safnaðist,
bæði ljósmyndir, viðtöl og ann-
að, verður geymt í fórum Þjóð-
minjasafnsins. Sýningin fjallar
þannig um húðflúr á álenskum
samtímamönum en henni er ein-
nig ætlað að vekja fólk til um-
hugsunar um val á myndefni og
þær sálfræðilegu ástæður sem
liggja að baki þörf fólks fyrir að
skreyta sig.
Húðflúr er að öllum líkindum
ein allra elsta listgrein mann-
kyns. Fundist hafa leifar litar-
efna og verkfæri sem benda til
að það hafi tíðkast þegar áður en
gerð hellamálverka hófst, það er
fyrir um 40.000 árum. Elsta
varðveitta húðflúrið er um 4.000
ára gamalt og er að finna á eg-
ypskum smurlingum.
Sýningin stendur til 17. mars
n.k. og verður opin kl. 9-17
mánudaga til laugardaga,
sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur
er ókeypis. ■
TATTÓ
Menn hafa ætíð haft þörf fyrir að skreyta
sig og hægt er að halda þvi fram með
nokkurri vissu að húðflúrslistin sé þekkt í
nær ölium menningarhópum.
FÖSTUDAGURINN
22. JANÚAR
FYRIRLESTUR
20.00 Dr. Martin Hielscher heldur í dag
fyrirlestur í Goethe-Zentrum,
Laugavegi 18, um þýskar samtíð-
arbókmenntir - Breytingar, áhrifa-
valdar, höfundar.
TÓNLEIKAR
20.00 Kristinn Sigmundsson, Gunnar
Guðbjörnsson og Jónas Ingi-
mundarson halda tónleika í
Salnum i Kópavogi í kvöld og
hefjast þeir kl. 20.
22.00 Dixielandhljómsveitin Sýslu-
mennirnir heldur tónleika í Kaffi-
teikhúsinu i kvöld. Fiuttir verða
gamlir og góðir New Orleans
standardar. Miðaverð er 1.200
krónur.
LEIKLIST______________________________
20.00 6. sýning af leikritinu Anna
Karenina er sýnt í kvöld á Stóra
sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Hver er hræddur við Virginíu
Woolf er sýnt á Litla sviði Þjóð-
leikhússins.
20.00 Á Smíðaverkstæðinu er sýning á
Með fulla vasa af grjóti.
20.00 Gamanleikurinn Með vífið í lúk-
unum er sýnt í kvöld á Stóra
sviði Borgarleikhússins.
20.00 Uppistand með Jóni Gnarr er í
kvöld og verður það á Nýja sviði
Borgarleikhússins.
20.00 Á 3. hæð Borgarleikhússins verða
fluttar Píkusögur.
20.00 Gesturinn er sýnt á Litla sviði
Borgarleikhússins.
Ef Grandarar
vinna frýs í helvíti
Skákfélagð Hrókurinn stendur fyrir tónlistarveislu á Grandrokk.
skemmtun Skákfélagið Hrókurinn
stendur fyrir tónlistarveislu í
kvöld á Grandrokk við Smiðjustíg
með yfirskriftinni Kóngar og
drottningar. Rennur allur ágóði til
styrktar alþjóðlegs skákmóts sem
haldið verður í Ráðhúsi Reykjavík-
ur í byrjun mars. Þeir sem ætla að
gefa vinnu sína í kvöld koma úr
ýmsum áttum. Þeirra á meðal eru:
Andrea Gylfadóttir, Jakob Frí-
mann Magnússon, Bjartmar Guð-
laugsson, Björn Jörundur, Heiða,
o.fl. Jakob Bjarni Grétarsson, einn
skipuleggjara veislunnar, segir
tónlistarfólkið velunnara skáklist-
arinnar og ekki síst skákfélagsins.
Rúmlega tuttugu stórmeistarar
eru skráðir til leiks á skákmótið í
mars. Blaðamaður hafði orð á
hversu stórhuga félagið væri og
innti Jakob eftir því hvort mikill
metnaður ríkti innan þess. „Það
hefur alltaf verið skefjalaus metn-
aður í félaginu, þrátt fyrir að stofn-
að hafi verið til þess á léttu nótun:
um. En öllu gamni fylgir alvara. f
dag eru við búnir að geysast upp úr
fjórðu deildinni upp í þá fyrstu. Er
ætlunin að berjast til þrautar um
íslandsmeistaratitilinn - þakka
FORSVARSMENN HRÓKSINS
Tónlistarveislan hefst klukkan tíu í kvöld og stendur til klukkan tvö eftir miðnætti. Að-
gangseyrir er 1.500 krónur og innifalið í því verði er ein bjórkrús.
þér.“ Blaðamaður þakkaði á móti
og spurði Jakob um tilurð félags-
ins. Hann segir Hrókinn fyrst
stofnaðan sem áhugamannafélag
fyrir tilstuðlan Hrafns Jökulsson-
ar, blaðamanns. Félagsmenn hefðu
margir hverjir verið með frá byrj-
un og væri óhætt að segja að þeir
næðu yfir allt litróf mannlífsins.
„Framganga okkar í skákheim-
inum hefur farið fyrir brjóstið á
mörgum. Hafa skáktitlarnir hing-
að til verið nokkurs konar helg vé
fárra skákfélaga. Var t.a.m. haft
eftir einum virðulegum skákmanni
að daginn sem Grandararnir ynnu
íslandsmeistaratitilinn myndi
frjósa í helvíti," sagði Jakob og hló
og bætti því við að þessu væri nú
slegið fram í hálfkæringi og í fullri
vinsemd.
kolbrun@frettabladid.is
Hljómsveitin
TIES
SKEMMTUN
Kópavogi í kvöld.
Föstudagsrx
Laudörc
22.00 Skákfélagið Hrókurinn stendur
fyrir tónlistarveislu á Grandrokk,
Smiðjustíg 6, í kvöld. Fram koma:
Andrea Gylfadóttir, Jakob Frí-
mann Magnússon, Mæjónes,
Ceres 4, Heiða, Kántrý piltar,
Radíusbræður og fleiri.
22.00 Plötusnúðurinn viðkunnanlegi,
Doddi litli, verður við stjórnvölinn
í diskóbúri Club 22 og mun
hann láta gamminn geysa til
morguns. Frítt er inn til kl. 2.30.
Frítt er inn alla nóttina fyrír hand-
hafa stúdentaskírteina. Afmælistil-
boð verða á barnum alla helgina.
22.00 Hljómsveitin Sixties leikur fyrir
dansi á Kaffi Reykjavik í kvöld.
22.00 Á skemmtistaðnum Vídalín
v/lngólfstorg leikur hljómsveitin
Buff tyrir dansi.
22.00 Hljómsveitin Spútnik heldur uppi
fjörinu og leikur á Players í
DANS
18.00 Frístælkeppni 13-17 ára verður
haldin í dag í íþróttahúsi Fram
við hliðina á Tónabæ.
SYNINGAR
í anddyri Norræna húsinu stendur yfir
sýningin Tattóveraði Álendingur-
inn. Sýningin kemur frá
Álandseyjum og stendur Þjóð-
minjasafn Álandseyja að henni.
Sýningin fjallar um húðflúr á
álenskum samtímamönnum en
henni er einnig ætlað að vekja
fólk til umhugsunar um val á
myndefni og þær sálfræðilegu
ástæður sem liggja að baki þörf
fólks fyrir að skreyta sig. Sýningin
stendur til 17. mars.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabladid.is
iQucprdQgskvöld
AFFI
REYMAVIK
RESTAURANT / BAR
ARSHATIÐIR
& E!NKA-
SAMKVÆM!
tOkum ao okkuk
MATAIWEISUIR og
SKEMMTANAHÖID.
UPP. ISÍMA 9G7
& mt Ti ;n
Skemmtistaöur Akureyri
Föstudags og laugardagskvöld:
Hljómsveitin
Bingó
Odd-Vitinn • pub-skemmlislaSur • Slrandgata 53 • Akureyri • Sími 462 6020 • GSM 867 4069
V..................... ...................—- ......................- ........'J