Fréttablaðið - 22.02.2002, Page 24
FRFTTARI AFMF")
r rvc I i adlal/1 yj
SlMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SECJUM FRfeTTlR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Fréttir frá
Mörlandi
Frá Mörlandi er það helst að frét-
ta að almenningur og jafnvel
fjölmiðlar séu að verða lúnir á þeim
ræningabarónum sem heimta auka-
greiðslur upp á margar milljónir
fyrir þá þrælavinnu að skipta pen-
ingum almennings á milli sín. Lang-
lundargeð Mörlandans gagnvart rík-
isreknum frjálshyggjugreifum er
komið að þrotum og því er meiri-
hluti þjóðarinnar alvarlega farinn að
hugsa um að slást í hóp siðmennt-
aðra þjóða í Evrópusambandinu.
—♦—
SUMIR hafa þó áhyggjur af því að
ef Mörland gerðist aðili að Evrópu-
sambandinu, þjóðabandalagi þeirrar
heimsálfu sem eyjan tilheyrir kynnu
útlendingar að fara að hafa áhrif á
nýtingu hinna fengsælu fiskimiða
þjóðarinnar. Fáir eru þó andvaka út
af þessu enda eru fiskimiðin hvort
sem er ekki í eigu þjóðarinnar nema
að nafninu til.
FYRIR UTAN EVRÓPUMET í
spillingu og lágu viðskiptasiðferði
státa Mörlendingar af því að hafa
fundið upp heita vatnið og jafnvel
líka kalda vatnið. Hver bjartsýnis-
maðurinn á fætur öðrum hefur kom-
ið fram með stórkostlegar áætlanir
um að laða erlenda auðjöfra til Mör-
lands að stunda leirböð og gufuböð í
hveraleir og hveragufu rétt eins og
gigtveikir milljónamæringar hafi
ekki ráð á volgum vatnssopa til að
komast í bað heima hjá sér.
—♦— '
EINNIG hafa Mörlendingar uppi
miklar ráðagerðir um að flytja út
mörlenskt hugvit og þar sem Mör-
lendingar reiða hugvitið í þverpok-
um eru bjartir tímar framundan að
mati fjármálaspekinga og því ekki
ráðlegt að ganga í bandalag með fá-
tæklingum eins og Frökkum, Þjóð-
verjum og Svíum. Eiturlyfjaneysla á
Mörlandi er eins og mest gerist í
Evrópu - einkum meðal unglinga - og
eru því margir hugsjónamenn að
velta því fyrir sér að lögleyfa eitur-
lyf og selja áfengi í matvörubúðum
enda hefur Alþingi Mörlendinga ný-
lega tekið þá ákvörðun að leyfa
hnefaleika eins og tímabært var orð-
ið fyrir löngu í landi hnefaréttarins.
Að öðru leyti eru fastir liðir eins og
venjulega á Mörlandi og enn sem
komið er hefur Evrópusambandið
plumað sig merkilega vel án þessar-
ar sérkennilegu þjóðar og virðist
ekki vera á þeim buxunum að biðla
til hennar á næstunni. ■
BIRNU
í 1. - 2. sæti
Kópavogsbúar!
Tökum þátt í prófkjöri
Samfylkingarinnar
Kosið er í Digranesskóla
laugardaginn 23. febrúar
kl. 09:00 - 20:00
i+it* •
Stuðningsmenn
Kjósum Birnu Bjarnadöttur t 1, - 2. sæti.
Sími Birnu er 554 0580 og 895 6500. Akstur á prófkjörsdag; sími 564 2780.
Nú erum iiid ad taka til.
Eigum enn nokkra sleda af 2001 árgerd
Fyrstir koma fyrstir táí
Polarís er stærstl snjósleða-
framlelðandí heims
ellefta árið íröð!
POLARIS
BRÆÐURNIR
OBMSSON
POLRRIS
The Way Out.
* Þessi afsláttur er
verðlag á sama vélsleða af 2002 árgerð.
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
afsláttur*