Fréttablaðið - 04.03.2002, Blaðsíða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
4. mars 2002 MÁNUDAGUR
veróur haldinn í Súlnasal Radisson SAS Hótel Sögu
fimmtudaginn 14. mars 2002 og hefst kl. 14.00.
#1--------- Á dagskrá fundarins verða: ----------
1. Aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar til breytinga á samþykktum
félagsins: Núverandi heimild 4. gr. a) um
aukningu hlutafjár, verði hækkuó um 5% af
núverandi hlutafé.
3. Tillaga um heimild til félagsstjórnar til kaupa
félagsins á eigin hlutum.
4. Önnur máL, Löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á upp á aðalfundi,
skuLu vera komnar skrifLega í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Morðmál í höfuðborginni:
Rannsókn Bakkaselsmáls lokið
en stendur enn í Víðimelsmáli
sakamál Rannsókn stendur enn yfir
í máli Þórs Sigurðssonar sem játað
hefur að hafa orðið manni að bana á
Víðmel 18. síðasta mánaðar. Hörður
Jóhannesson, yfirlögregluþjón hjá
lögreglunni í Reykjavík, segir að
sem komið er hafi fátt nýtt komið
fram og engar aðrar handtökur ver-
ið gerðar. Þór var úrskurðaður í
gæsluvarðhaldi til 4. apríl. Hörður
útilokaði ekki að rannsókn málsins
kynni að ljúka og Þór færður fyrir
dóm áður en sá tími væri úti. Hann
áréttaði þó að í morðmálum væru
menn alltaf í varðhaldi þar til rétt-
að væri í máli þeirra. Þá sagði hann
að ýmsir þættir gætu orðið til að
tefja rannsókn, s.s. bið eftir niður-
stöðum geðrannsóknar, eða öðrum
rannsóknum.
Lögreglan í Reykjavík hefur lok-
ið rannsókn á morðinu á Finnboga
Sigurbjörnssyni sem átti sér stað í
októbermánuði. Rannsóknargögn
málsins bárust embætti Ríkissak-
sóknara í gær. Nokkur tími gæti þó
liðið enn þar til málið verður dóm-
tekið.
HÖRÐUR
JÓHANNESSON
Lögreglan í Reykjavík
hefur lokið rannsókn
á svokölluðu
„Bakkaselsmáli."
Rannsókn „Víðmels-
málsins" stendur
hins vegar enn.
Ásbjörn Leví Grétarsson, 26
ára, játaði fyrir lögreglu að hafa
orðið Finnboga að bana 28. októ-
ber s.l. í íbúð við Bakkasel í
Reykjavík. ■
msmxmftíssssmsíi
Augnaðgerðir geta
verið varasamar
Fundargögn verða afhent hluthöfum eða umboðs-
mönnum þeirra á skrifstofu félagsins, Pósthússtræti 2,
miðvikudaginn 13. mars og tiL kl. 12.00 á fundardegi.
Einnig verða fundargögn afhent á fundarstað frá
kl. 13.00.
Reykjavík, 24. janúar 2002.
Stjórn Hf. Eimskipafélags íslands
EIMSKIP
www.eimskip.is
Aðalfundur Landssíma Islands hf.
verður haldinn mánudaginn 11. márs
á Grand Hótel Reykjavík, kl. 16.00.
AÐALFUNDUR
2002
LANDSSÍMI ÍSLANDS HF.
Dagákrá:
„ B Aðalfundarstórf samkvæmt samþykktum féfagsins.
••••.'p Tillaga um fareytingar.á samþykktum félagsíns uni
fækkun stjórrfáRtiahna úf sjö i fimm óg fækkún
v;;. varamaftnáAr sjö:í.,f}|^m^Grejn 19.1. '
,^3ÍLbnnur-m|lí-fÖgfégá;®þp/faoHn. - - v;,
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Ársreikningur félagsins liggur frammí á skrifstofu
félagsins í Landssímahúsinu við Austurvöll.
Hægt verður að fylgjast með beinní útsendingu frá
aðalfundinum á heímasíðu félagsins, www.simi.is.
Stjórn Landssíma íslands hf.
Jákvæð umræða hefur verið um augnaðgerðir til að laga skerta sjón.
Sjónfræðingum finnst vanta aukna umfjöllun um áhættuna sem fylgir
aðgerðinni. Mörg dæmi þekkjast erlendis frá þar sem sjónin hefur
versnað eftir slíka aðgerð.
heilbricðismál Sjónfræðingar á Is-
landi hafa stigið fram og gagnrýnt
umfjöllun um augnaðgerðir sem
eiga að laga sjón hjá fólki með
leisertækni. Segja þeir lítið fjallað
um áhættuna sem fylgir slíkri að-
gerð.
Rúdiger Þór Seidenfaden, sjón-
fræðingur, segir stutt síðan þessar
aðgerðir urðu algengar hér á landi.
Engin reynsla sé komin á þær og
því beri okkur að fara varlega. „Við
vitum ekki hver langtímaáhrifin
eru.“
Rúdiger Þór segist vera að
vekja athygli á áhættunni en ekki
—4— gagnrýna að þessar
Það er aldrei aðgerðir séu stund-
hægt að taka aðar. „Augun verða
þaðtilbaka. aldrei jafn sterk og
aður. Það er skorið
með leysergeisla í
heilbrigðan vef. Það er aldrei hægt
að taka það til þaka.“ Hann segir
ekki að fullu ljóst hvernig líkaminn
bregðist við. Það geti verið mis-
munandi eftir einstaklingum.
Oftast heppnast þessar aðgerðir
sem betur fer vel segir Rúdiger.
Hins vegar verða sumir að fá sér
gleraugu aftur eftir nokkurn tíma.
Sumir fara aftur í aðgerð sem get-
ur verið varasamt þegar fólk er
ungt og á eftir að nota sjónina í tugi
ára áfram. Eins eru þekktar auka-
verkanir eins og þurr augu, tvísýni
og minni sjónskerpa. Alvarlegri
dæmi í kjölfar svona aðgerða, eins
og blinda, þekkist utan úr heimi en
hefur ekki komið upp hér á landi.
f skýrslu samtaka bandarískra
augnlækna frá því í janúar segir
RUDIGER ÞÓR SEIDENFADEN, SJÓNFRÆÐINGUR
Við verðum að fara varlega því við vitum ekki langtímaáhrif svona aðgerða. Hluti af heil-
brigðum vef er fjarlægður og verður aldrei bættur aftur.
að betri tækni gerir þessar að-
gerðir öruggari. Sérstaklega sé
hún örugg þegar um lítinn sjón-
galla sé að ræða en hætta á auka-
verkunum aukist eftir því sem
sjónin er verri. í því sambandi er
bent á aukaverkanirnar sem
Rúdiger nefnir. Sérstaklega þurfi
að fara varlega þegar um fjær-
sýna einstaklinga er að ræða.
Áður en einstaklingar fara í
leyser aðgerð þurfa þeir að skrifa
undir upplýst samþykki að þeir
hafi kynnt sér áhættu sem aðgerð-
inni fylgir. Það kemur fram að
sjónin geti orðið lakari en hún var
fyrir aðgerð.
bjorgvin@frettablatlid.is
Shevardnadze segir að Bandaríkin muni aðstoða
Georgíu í baráttunni gegn hryðjuverkum:
Uppræta glæpamenn í felum
SHEVARDNADZE
Segir Bandaríkin eina landíð sem geti aðstoðað Georgíu við að uppræta
glapamenn í landinu.
erlent Bandaríkin hyggjast þjál-
fa sérsveitir gegn hryðjuverk-
um í Georgíu. Einnig hyggjast
þeir sjá þeim fyrir viðeigandi
búnaði. Þetta er haft eftir Edu-
ard Shevardnadze forseta Ge-
orgíu. Hann sagði að Bandaríkin
væru eina landið sem gæti að-
stoðað Georgíu við að uppraéta
glæpamenn sem eru í felúm í
landinu. Shevardnadze sagði
ennfremur að Georgía myndi
vinna með Rússlandi. Margir
rússneskir embættismenn
hræðast veru bandarísks herliðs
á svæðinu sem er við landamæri
Checheníu. Bandaríkjamenn
hugleiða að senda allt að 200
manna herlið til Georgíu. Það
hefur vakið upp spurningar um
það hvort landið verði hin nýja
framlína í stríðinu gegn hryðju-
verkum. Schvarndnadze sagði á
fundi ellefu leiðtoga fyrrum
ríkja Sovíetríkjanna í Kazakst-
an, að Georgía hefði um langt
skeið reitt sig á hernaðaraðstoð
Bandaríkjanna. Hann hefur ein-
nig viðurkennt í yfirlýsingu að
landið sé að hruni komið. Tvö
svæði við landamæri Rússlands,
Abkhazia og Ossetia, hafa þegar
lýst yfir sjálfstæði. Engin er-
lend ríki hafa viðurkennt þær
yfirlýsingar þeirra. ■