Fréttablaðið - 04.03.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.03.2002, Blaðsíða 14
FRÉTTABLAÐIÐ FÓTBOLTI 4. mars 2002 MÁNUDAGUR Aston Villa-West Ham 2:1 Bolton-Blackburn 1:1 Charlton-Chelsea 2:1 Fulham-Liverpool 0:2 Ipswich-Southampton 1:3 Middlesbro-Leicester 1:0 Tottenham-Sunderland 2:1 Newcastle-Arsenal 0:2 Everton-Leeds 0:0 Derby-Man.Utd. 2:2 ENSKA ÚRVALSDEILDIN Lið Leikir U J T Mörk Stig Man.Utd. 29 18 4 7 69:37 58 Arsenal 28 16 9 3 57:31 57 Liverpoot 29 16 8 5 47:25 56 Newcastle 28 17 4 7 52:35 55 Leeds 28 11 12 5 37:29 45 Chelsea 27 11 11 5 47:28 44 Aston Villa 28 10 11 7 34:31 41 Tottenham 27 11 5 11 39:36 38 Charlton 28 9 10 9 32:33 37 Fulham 28 8 11 9 27:31 35 íbróttir áSýn 4 io niáí í <"án- Heklusport lim kl. 22.30 þri Blackbum - Aston Vllla Enski boltlnn kl. 19.50 mið Liverpool - Newcastle Enskl boltinn kl. 19.50 lau Newcastle - Arsenal Enski boltlnn kl. 17.20 P. Ayala - C. Adams Hnefaleikar kl. 22.55 Rangers - Celtic Skoski boltinn kl. 11.45 italski boltinn kl. 13.45 Tottenham - Chelsea Enski boltlnnkl. 15.55 WBA - Fulham Enski boltinn kl. 18.25 U Lakers - | NBAkl. 23.00 New York 1 HM 2002 " Ifíl/tJI/lW /’t'/l MyndnjKk SífjlU' / frou memfí út úfí sjónvofípmu ÞÍnu VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN Upplýslngar lalma 580 2525 Textavarp IÚ 110-113 RÚV281, 283 og 284 Jókertölur laugardags 1 8 8 2 2 Jókertölur mlðvlkudags 5 7 8 0 7 Varð fjórði í sjöþraut á eftir Sebrle, Dvorak og Nool: Jón Arnar á hælum hinna bestu siöþraut Jón Arnar Magnússon hreppti fjórða sæti í sjöþraut á Evr- ópumeistaramótinu innanhúss, sem haldið var um Vínarborg um helgina. í þremur efstu sætunum eru þeir þrír, sem óumdeilanlega eru bestu tugþautarmenn í heimi undanfarin ár: Tékkarnir Roman Seberle heims- methafi og Tomas Dvorak fyrrum heimsmethafi hlutu gull og silfur og Sæti Nafn 60 m lang- stökk kúlu- varp há- stökk 60m grind stang- arstök 1000 m stig 1. Roman Sebrle 6.97 7.82 15.62 2,11 7.93 4.80 2:47.69 6280 2. Tomas Dvorak 6.92 7.55 16.08 1,90 7.84 5.00 2:46.31 6165 3. Erki Nool 6.91 7.56 14.01 1,96 8.17 5.20 2:45.60 6084 4. Jón Arnar 7.00 7.51 15.53 1,96 8.24 5.00 2:50.91 5996 ÞEIR BESTU Jón Arnar, lengst til hægri, í 60 metra hlaupi f Vín. Lengst til vinstri á myndinni eru Sebrle, Nool og Dvorak, síður mikil lyftistöng, eftir meiðsli og mótlæti undanfarin misseri. Úr- slitin eru staðfesting þess að hann er enn í fremstu röð í heiminum í erfið- ustu grein frjálsra íþrótta; fjölþraut- unum. Vala Flosadóttir komst ekki í úr- slit í stangarstökki. Hún stökk 4,30 m og varð níunda í undankeppni. ■ Erki Nool, ólympíumiestari frá Eist- landi hlaut brons. Jón Arnar var í þriðja sæti þegar kom að næstsíðustu grein, stangar- stökki. Það er sérgrein Erki Nool og fleytti honum í þriðja sætið. Jón átti enn möguleika að komast á pall en hefði til þess þurft að vera um það bil 5 sekúndum á undan Nool í 1000 metra hlaupinu. Það tókst ekki því Nool varð rúmum fimm sekúndum á undan Jóni í mark. 4. sætið er Jóni Arnari engu að Vil ekki enda í hjólastól Knattspyrnumaðurinn Bjarki Gunnlaugsson er kominn heim. Ætlar að reyna fyrir sér með KR, launalaust, á þeim forsendum að hann geti eitthvað fært til klúbbsins. fólk „Draumurinn er búinn,“ seg- ir knattspyrnumaðurinn Bjarki Gunnlaugsson en viðvarandi meiðsl í mjöðm hafa orðið til þess að hann hefur verið dæmdur úr leik sem atvinnuknattspyrnu- maður. Lék Bjarki með knatt- spyrnuliðinu Preston í Norður- Englandi en er nú alkominn heim til Islands. Bjarki segir ekki þýða að gráta orðinn hlut. „Ég hef heyrt að það sé líf eftir fótbolt- ann þrátt fyrir að ég hafi ekki persónulega reynslu af því sjálf- ur.“ Bjarki segir ferli sínum end- anlega lokið sem atvinnumaður í fótbolta en vonir standi til að hann geti leikið sem áhugamaður. „Álag á leikmenn í atvinnu- og áhugamennsku er afar ólíkt. Ég held þess vegna í þá von að geta eitthvað spilað hérna heima og þá eingöngu með KR.“ Hann segir ráðamenn KR-liðsins hafa komið að máli við sig. Til standi að hefja æfingar með liðinu í marsmán- uði. „Ég á von á að niðurstaða liggi fyrir í byrjun apríl hvort ég geti þetta eða ekki. Ég verð að hugsa til framtíðarinnar og passa upp á að ganga ekki alveg fram af mér, ekki vil ég enda í hjóla- stól.“ Blaðamaður hafði á orði við Bjarka að hann ætli sér greini- lega að reyna til þrautar að leika fótbolta. „Ég vil ekki enda feril- inn svona en ég verð að vera BJARKI GUNNLAUGSSON „Ég vil ekki enda ferilinn svona en ég verð að vera raunsær. Ef ég get ekki sýnt af mér einhverja leikni og fært eitthvað til klúbbsins stend ég ekki í þessu. Ég ætla ekki að fara láta vorkenna mér." raunsær. Ef ég get ekki sýnt af mér einhverja leikni og fært eitt- hvað til klúbbsins stend ég ekki í þessu. Ég ætla ekki að fara láta vorkenna mér.“ Bjarki á eiginkonu og tvö börn og segist hann vera að leita sér að húsnæði, á meðan dvelji hann í foreldrahúsum á Akranesi. „Ég kláraði ekki framhaldsskólann heldur átti fótboltinn hug minn allan. Ég hef hugsað mér að setj- ast á skólabekk í haust og þá í Viðskipta- og tölvuháskólann." Hann segist vera með mörg járn í eldinum. Stefnan sé tekin á sjálfstæðan rekstur og séu samn- ingar í gangi sem hann vilji ekki gefa uppi að svo stöddu. „Ég fékk dágóða upphæð úr tryggingunum sem gerir mér kleift að starta upp nýju lífi á íslandi án þess að setja mig í stórskuldir. Það var lán í óláni að ég hafði tryggt mig en það hafði ég ekki gert fyrr en ég fór að spila á Englandi. Þegar maður er ungur eru hugsanleg meiðsl ekki efst í huganum. Svona hugsunargangur er nátt- úrulega algjör þvæla, og það kom á daginn. Eg var búinn að sjá fyr- ir mér sex ár í atvinnumennsk- unni í viðbót. Mín skilaboð eru því skýr, allir sem eru í atvinnu- mennsku í hvaða íþrótt sem er eiga undantekningarlaust að tryggja sig,“ segir Bjarki að lok- um. kolbrun@frettabladid.is SKÚTUSIGLINGAR Árs sigling Kjölbátasamband íslands heldur fræðslu- fund, sem er öllum opinn, að Skúlagötu 30, (beint á móti Aktu-Taktu) 101 Reykjavík mánudaginn 4. mars. kl. 20:00 Fundarefni: Árs sigling frá Englandi til Króatíu. Hjón fóru til Englands og keyptu seglskútu og sigldu þaðan til Frakklands, Spánar og inn í Miðjarðarhaf. Þau heimsóttu hátt í sextíu staði og lögðu ýmist að í höfn eða við akkeri. Sagt verður frá þessari löngu ferð í tali og myndum. Sama lága verðið; kr. 500 - og kaffiveitingar að sjálfsögðu innifaldar. Sjá nánar um fundarstað á http://sigl- Sögulegri Formúlukeppni lauk með sigri Schumachers: Aðeins átta öku- menn luku keppni MELBOURNE, AP Þjóðverj- inn Michael Schumacher sigraði í Formúlu- kappakstrinum í Ástralíu í fyrrinótt, þriðja árið í röð. Bifreiðin var sú sama og hann notaði í fyrra, vegna þess að bif- reiðasmiðunum hjá Ferr- ari tókst ekki að klára 2002-módelið í tæka tíð. f öðru sæti varð Juan Pablo Montoya á Willi- ams bifreið. Sá þriðji í mark varð Kimi Raikkonen fyrir MacLaren- liðið. Ellefu bifreiðar lentu saman í gríðarlegum árekstri þegar Ralf Schumacher, bróðir Michaels, reyndi að fara fram úr Rubens Barichello. Bílarnir lentu saman og bifreið Schumachers tókst á flug. Enginn ökumannanna ellefu varð þó fyrir meiðslum. Ákvörðun yfirstjórnar For- múlukeppninnar, FIA, um að stöð- va ekki keppnina sætti gagnrýni margra ökumanna. Einungis átta bifreiðum af tuttugu og tveimur tókst að ljúka keppninni í fyrr- inótt. A FERÐ OG FLUGI f FORMÚLUNNI Wílliams-bifreið Ralfs Schumachers flýgur yfir Ferrar-bifreið Rubens Barrichello í For- múlu-keppninni f fyrrinótt. Alls lentu ellefu bifreiðar í þessum árekstri. Ökumennirnir sluppu þó allir án meiðsla. Michael Schumacher slapp naumlega við að lenda í árekstrin- um. Hann sagðist hafa orðið býsna hræddur þegar áreksturinn varð. „Ég vissi ekkert hvað var að ger- ast,“ sagði Schumacher. „Það voru bara bílar á flugi alls staðar." „Þetta var skelfilegt, get ég sagt ykkur,“ sagði Ralf Schumacher. „Að takast á loft í flugvél er miklu skárra en að takast á loft í F1 bifreið, sem er ekki til þess gerð.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.