Fréttablaðið - 04.03.2002, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 4.mars
FRETTABLAÐIÐ
13
íanns lífið:
ugi manna lífið
Palestínumenn segja árásirn-
ar hafa beinst eingöngu gegn
óbreyttum borgurum. ísraels-
menn segjast vera að ráðast á
bækistöðvar hryðjuverkamanna
í flóttamannabúðunum. Meðal
annars fundust þar flugskeyti af
sömu gerð og notuð hafa verið
gegn ísrael nýverið.
Þrátt fyrir átökin binda marg-
ir vonir við að friðartillögur frá
Sádi-Arabíu geti rofið vítahring
ofbeldisins. Þar er ísraelsmönn-
um boðin viðurkenningu
Arabaríkja og frið gegn því að
þeir láti af hendi þau svæði, sem
þeir hernámu í stríðinu árið
1967. ■
ÖRYGGISGÆSLA VIÐ MARKAÐINN
Strangtrúaður gyðingur horfir á ísraelska landamæraverði sem hafa sett upp gæslu við
hefðbundinn matvælamarkað í Jerúsalem. Israelsmenn hafa eflt öryggisráðstafanir eftir
átökin undanfarna daga.
Kópavogur:
Tvö um-
ferðarslys
lögregla Tvö umferðarslys urðu í
Kópavogi aðfaranótt sunnudags og
í gærmorgun. Engin teljandi slys
urðu á fólki en bílarnir skemmdust
nokkuð. Fyrra óhappið átti sér stað
rétt fyrir kl. 3 um nóttina. Þá missti
ökumaður stjórn á bíl sínum á
Hafnarfjarðarvegi, á móts við
Kópavogsbraut. Farþegi í bílnum
hlaut minniháttar meiðsl. Bíllinn
skemmdist nokkuð.
Klukkan hálf sjö í gær var bíl
ekið út af Suðurlandsvegi, á móts
við Lögbergsbrekku. Lögreglan að-
stoðaði manninn við að koma bíln-
um aftur upp á veginn. Bíllinn var
ökufær. ■
MALARINNim
Bæjarlind 2 • Kópavogi • Simi: 581 3500
Hópslagsmál á Höfn:
Sökudólgar
földu sig
LÖGREGLA Fjórir menn réðust inn í
hús á Höfn í gærmorgun til að
hefna harma frá því á dansleik fyrr
um nóttina. Þrír voru í húsinu.
Brutust út slagsmál. Þegar lögregl-
an kom á staðinn höfðu söku-
dólgarnir horfið á braut. Þeir földu
sig fyrir lögreglunni um stund en
hún hafði hendur í hári þeirra
nokkru síðar, enda var vitað um
hverja var að ræða. Enginn slasað-
ist að ráði í slagsmálunum.
Tveir dansleikir voru á Höfn í
fyrrinótt. Mikið fyllerí var á fólki.
Lögregla hafði því í 'nógu að snúast
og þurfti oft að skakka leikinn. ■
ERLENT
Lögreglan í Skopje í Makedóníu
skaut til bana sjö uppreisnar-
menn. Mennirnir hugðust gera
skotárás á erlend sendiráð á laug-
ardag. Uppreisnarmennirnir voru
drepnir eftir að þeir hófu skothríð
með vélbyssum á lögreglustöðina.
Innanríkisráðherra Makedóníu
vildi ekki láta uppi hverra þjóða
mennirnir væru.
Tyrkneskir ráðamenn munu
funda með evrópskum og
bandarískum ráðamönnum á
næstu dögum. Á fundunum verður
rætt undir hvaða skilmálum Tyrk-
land taki við stjórnartaumunum í
friðargæsluliðinu í Afganistan.
Þetta er haft eftir Bulent Ecevit,
forsætisráðherra Tyrklands.
Breskir og bandarískir erindrekar
gátu ekki staðfest efni fundarins.
Ecevit sagði blaðamönnum að
Týrkir væru tilbúnir til að taka að
sér verkefnið, sem hann lýsti sem
heiðvirðu en erfiðu. Ræða þyrfti
ýmis málefni áður en Týrkland
samþykkti að taka við stjórninni úr
höndum Breta.
|lögreglufréttir|
Aannað hundrað nemar úr Verzl-
unarskóla íslands voru staddir
á Ólafsfirði um helgina. Verzlingar
höfðu lagt land undir fót til að fara
á skíði og skemmta sér. Að sögn
lögreglu var framkoma nemend-
anna til fyrirmyndar. Þeir voru
hins vegar heldur óheppnir með
veðrið sem var ekki mjög gott til
skíðaiðkunar, rigning um tíma og
hvasst.
Hörð aftanákeyrsla varð á mót-
um Hafnargötu og Tjarnar-
götu í Keflavík eftir hádegi í gær.
Engin slys urðu á fólki. Bílarnir
skemmdust mikið og þurfti að
draga þá af vettvangi.
Lögreglan á Blönduósi sagði um-
ferð helgarinnar hafa verið
miklu minni en vanalega. Veður
var frekar leiðinlegt sem er líkleg
skýring þess að fólk sat heima.
Ralla þurfti út björgunarsveit á
Fjarðarheiði aðfaranótt sunnu-
dags. Skafrenningur var á þessum
slóðum og sátu þrír til fjórir bílar
fastir í sköflum. Liðsmenn björg-
unarsveitarinnar ísólfs á Seyðis-
firði komu ökumönnum af stað.
SKIÐAPAKKAR A AKUREYRI
Verðdæmi:
DAGSFERÐ
Flug fram og til baka til Akureyrar. Dagpassi
I Hlíðarfjalli. Bílaleigubíli frá Hertz.
Verð frá 12.625 kr. á mann m.v. tvo í bíl
Flugvallarskattur og tryggingargjald, 830 kr., eru ekki innifalin I verði.
EINN SOLARBRINGUR
Flug fram og til baka til Akureyrar. Skíðapassi
í Hlíðarfjalli. Bílaleigubíll frá Hertz og gisting
Verð frá 16.438 kr. á mann m.v. tvo í herb.
Flugvallarskattur og tryggingargjald, 830 kr., eru ekki innifalin í veröi.
Skíðaslaufur
Snjórinn freistar fyrir norðan. Spennandi skíðaferðir
til Akureyrar fyrir alla sem vilja njóta sín og sinna í
góðu skíðafæri.
Dagsferð eða flug og gisting í eina eða fleiri nætur á frábæru
verði, bílaleigubíll frá Hertz og lyftupassi í Hlíðarfjalii.
Tryggið ykkur sæti í tíma!
Munið eftir skíðaslaufunum
þegar þið fáið fiðring í bindingarnar.
Tilboðin gilda til 30. apríl
Hafið samband í síma 570 30 30
fax: 570 3001
websales@flugfelag.is
www.flugfelag.is
ICELANDAIR £
Bílaleiga
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
- fyrir fólk eins og þig!