Fréttablaðið - 05.03.2002, Síða 1
ÞRIÐJUDAGUR
LEIKHUS
Slagsmálin
skemmtilegust
bls 16
45. tölublað - 2. árgangur
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Þriðjudagurinn 5. mars 2002
Bamsmóðir Vatnsberans:
Krefst
milljóna úr
dánarbúi
dánarbú Barnsmóðir Þórhalls Öl-
vers Gunnlaugssonar, sem
þekktur er sem vatnsberinn, hef-
ur lagt fram 3,8 milljóna króna
kröfu í dánarbú Agnars W. Agn-
arssonar vegna þriggja skulda-
bréfa sem Þórhallur Ölver Gunn-
laugsson var upphaflegur eig-
andi að. Þórhallur myrti Agnar í
íbúð hans að Leifsgötu í júlí árið
1999.
Bréfin þrjú, sem eru að höfuð-
stóli 2,5 milljónir króna, eru gef-
in út sama daginn árið 1995. Þau
áttu öll að greiðast í einu lagi sex
árum síðar, í apríl árið 2001. Þór-
hallur framseldi bréfin til barns-
móður sinnar í október árið 1998.
Þórhallur var dæmdur í sextán
ára fangelsi vorið 2000 fyrir að
hafa stungið Agnar til bana. Þór-
hallur stal við sama tækifæri
skartgripum að verðmæti 300
þúsund króna úr íbúð Agnars.
Jón Ármann Guðjónsson,
skiptastjóri dánarbúsins, segir
að hægt væri að ganga frá skipt-
únum á næstu vikum ef ekki
væri fyrir kröfuna vegna skulda-
bréfanna þriggja. Jón Ármann
sagði að ganga þurfi úr skugga
um að ekki sé um falsanir að
ræða. Farið verði fram á það við
embætti ríkislögreglustjóra að
það kanni hvort svo sé.
Nánar bls. 2
| ÞETTA HELST|
Sextán Palestínumenn létust í
hefndarárásum ísraelsmanna
í gær vegna árása Palestínu-
manna um helgina sem urðu 22
ísraelmönnum að bana. Meðal
Palestínumannanna sem létust í
gær voru fimm börn og læknir
sem var staddur í sjúkrabifreið.
Hann hafði umsjón með björgun-
arstörfum.
bls. 2
—«—
Samtök eigenda sjávarjarða
vilja að bætt verði ákvæðum
um rétt strandbænda til fiskveiða
í ný lög um stjórn fiskveiða sem
eru tilumfjöllunar á Alþingi.
Samtökin vonast til að sjávarút-
vegsnefnd taki tillit til umleitana
félagsins. bls. 4.
| FÓLK 1
Rokkdívur,
loðfeldir og
þjóðsögur
FÓLK
Kominn
af galdramönnum
bls 22
SKIPULAGSMAL
Mokað yfxr
náttúruna
bls 4
KVÖLDIÐ í KVÖLD
Selfoss mætir KA
HANPBom Selfyss-
ingar og KA mæt-
ast í Esso-deildinni
í handbolta í kvöld.
Það eru Akureyr-
ingar sem eru á
heimavelli í þetta
skiptið en leikurinn
fer fram í KA heimilinu á Akur-
eyri. Hann hefst kl. 20.
Tónlist 18 Bió 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
ÍÞRÓTTIR
Kristinn hættir keppni
VETRARHÖRKUR f BANDARÍKJUNUM Það er viðar en hér á klakanum sem snjóar þessa dagana. Umferð tafðist töluvert á hraðbraut
í Kalamazoo í Michigan í Bandaríkjunum. Löng röð bíla varð eftir að vöruflutningabíll valt á brautinni. Mjög vont veður var víða í Banda-
ríkjunum um helgina. 23 dauðsföll voru rakin til veðursins og í Colorado er eins manns saknað.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára
íbúar á höfuð-_
« « 60.8%
borgarsvæð- WMÉT
inu í dag?
Meðallestur 25 til 49
ára á þriðjudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2001
70.000 cintök
65% lólks U's hkiöiö
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT
iiOiMiBLftr.aiif.unf.ftmiP i ai.iúuui^am—-
59,3%
Sverrir og Össur fá falleinkunn hjá svarendum í skoðanakönnun Fréttablaðsins:
Davíð og Halldór dúxa með 6,3
könnun Davíð Oddsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og Halldór
Ásgrímsson, formaður Framsókn-
arflokksins, skara fram úr öðrum
formönnum stjórnmálaflokka í ein-
kunnagjöf kjósenda samkvæmt
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Kjósendur voru beðnir um að gefa
leiðtogum flokkanna einkunn á bil-
inu 0 til 10 eftir því hvernig þeim
þótti forystumennirnir hafa staðið
sig. Davíð og Halldór voru saman á
toppnum. Hvor þeirra um sig fékk
6,3 í meðaleinkunn hjá kjósendum.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, varð í þriðja sæti for-
HALLDÓR OG DAVÍÐ
Oddvitar stjómarflokkanna geta vel unað
við niðurstöðu sína.
mannanna í einkunnagjöf kjósenda.
Steingrímur fékk 5,6 í meðalein-
kunn. Það dugði honum til að vera
sá formaður stjórnarandstöðu-
flokks sem fær hæsta einkunn.
Hann fær einum heilum hærra í
meðaleinkunn en Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylkingar,
sem fær 4,6 í meðaleinkunn hjá
kjósendum. Hann hefur þó öruggt
forskot á Sverri Hermannsson, for-
mann Frjálslynda flokksins. Sverr-
ir fær aðeins 3,3 í meðaleinkunn hjá
kjósendum allra flokka.
Davíð er sá formannanna sem
fær hæsta meðaleinkunn hjá stuðn-
ingsmönnum flokks síns eða 8,5.
Næstur honum er Steingrímur J
með 8,2 í meðaleinkunn.
Meira um könnunina á blaðsíðu 6
Danskir nemendur
heimsækja Alþingi
alþinci Hópur dan-
skra nemenda skoð-
ar sig um á Alþingi í
dag. Nokkrir nefnd-
arfundir eru á dags-
skránni fyrir hádegi
en þingfundur hefst
klukkan hálftvö.
Keppt til úrslita
keppni Úrslit í spurningakeppni
grunnskólanema í 8., 9. og 10.
bekk, „Nema hvað“, fara fram í
kvöld. Alls tóku 24 skólar þátt í
keppninni og það eru Seljaskóli og
Hagaskóli sem sigrað hafa and-
stæðinga sína hingað tii og keppa
til úrslita. Keppnin hefst klukkan
20 og verður henni útvarpað beint
á Rás 2.
ÍVEÐRIÐ f DAGl
REYKJAVÍK Norðaustan
5-13 m/s. Léttskýjað.
Frost 3 til 10 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
fsafjörður Q 10-15 Éljagangur O 10
Akureyri 9 10-15 Él Qll
Egilsstaðir 9 10-15 Éljagangur Qll
Vestmannaeyjar 9 10-15 Éljagangur Q1
Viðhorf til
vinstri stefnu
fyrirlestur Ragnheiður Kristjáns-
dóttir sagnfræðingur heldur erindi
í hádegisfundaröð Sagnfræðingafé-
lagsins í dag. „(Ó)þjóðlegt fólk?
Um viðhorf til vinstri stefnu" er
heiti fyrirlestursins sem hefst kl.
12.05. Fundurinn fer fram í Nor-
ræna húsinu.
Segir Bjama hafa
hlunnfarið hluthafa
Jón Asgeir Jóhannesson, stærsti eigandi Islandsbanka, segist munu krefj-
ast skýringa á störfum Bjarna Armannssonar í stjórn eða á aðalfundi.
valdabarátta „Það er ljóst að það
hefur átt sér stað trúnaðarbrestur
milli eigenda og stjórnar," segir Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, um þá ákvörðun stjórnar
Fjárfestingarfélagsins Straums að
+ selja 11% hlut sinn í
Eftir viðskiptin Tryggingamiðstöð-
er talið víst að innl Lamisbank-
t-,___________ ans. Auk þess að
b ® . f sækjast sjálfur eftir
Þorstemn Mar hlutJnum Jse ir Jón
Baldvinsson Ásgeir að tv|ir aðrir
tapi yfirraðum ha|j komið fram Qg
yfir Tryggmga- jýs(. aflUga sínum.
miðstoðinni. Hluturinn var seld-
* ur á genginu 67 á um
1.680 milljónir króna, en Jón Ásgeir
fullyrðir að hægt hefði verið að fá
mun hagstæðara verð. Markaðs-
gengi bréfa TM er nú undir 60.
Bjarni Ármannsson situr í stjóm
Straums fyrir hönd íslandsbanka,
stærsta hluthafa fjárfestingarfé-
lagsins. Jón Ásgeir og tengdir aðil-
ar eru hins vegar stærstu eigendur
bankans.
„Ég fullyrði ekkert um slíkt, það
verður að koma í ljós. Trúnaðar-
bresturinn er orðinn og það verður
að taka á því,“ sagði Jón Ásgeir að-
JÓN ÁSGEIR BJARNI
„Það er Ijóst að það Býst ekki við breyt-
verða eftirmál." ingu á samskiptum.
spurður um hvort hann muni beita
sér fyrir því að Bjarni verði látinn
hætta sem bankastjóri á aðalfundi
félagsins í næstu viku. Hann kvaðst
ætla að krefjast skýringa á fram-
ferði bankastjórans, annað hvort í
stjórn bankans eða á aðalfundi í
næstu viku. „í það minnsta tel ég að
hluthafar beggja félaga hafi verið
hlunnfarnir í þessum viðskiptum."
Samkvæmt heimildum blaðsins
er Landsbankinn í kaupunum milli-
liður fyrir meðal annars fjölskyldu
Sigurðar heitins Einarssonar, út-
gerðarmanns í Eyjum. Áður hefur
verið rakið í blaðinu hvernig Jón
Ásgeir ásamt tengdum aðilum náði
yfirráðum í TM af fjölskyldunni
eftir umfangsmikil hlutabréfakaup
á síðasta ári. Eftir viðskiptin er hins
vegar talið víst að Jón Ásgeir og
Þorsteinn Már Baldvinsson tapi
þeim yfirráðum og þar með ráðstöf-
unarrétti á 4,3% hlut félagsins í ís-
landsbanka. Það mun hamla áform-
um þeirra um að treysta völd sín í
bankanum.
Bjarni Ármannsson sagði í sam-
tali við blaðið í gær að ekki hefði
komið til tals að gefa Jóni Ásgeiri
tækifæri til að hækka sig áður en
tilboði Landsbankans var tekið.
„Það hefur komið fram að hann
gerði tilboð á mun lægra gengi en
tekið var. Ég tel að söluferillinn hafi
verið mjög eðlilegur og til þess fall-
inn að hámarka verðmæti Straums
hluthöfum þar til hagsbóta."
„Hann verður sjálfur að meta
hvað hann vill gera,“ sagði Bjarni
um þau ummæli Jóns Ásgeirs að
eftirmálar yrðu vegna viðskiptanna.
Að öðru leyti vísaði Bjarni á Þórð
Má Jóhannesson, framkvæmda-
stjóra Straums. Þórður tók undir
með Bjarna að hagstæðasta tilboði í
hlutinn hafi verið tekið og tók fram
að aðeins tvö tilboð hafi borist.
mbh@frettabladid.is
FRFTTAFU AF)
JBl JHL AhíÍ jL Æl. JL am, ÆrnmmJ ArbmbRÍ Æ Hl Bi«i.
i