Fréttablaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAUR 5. mars 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
ísafjarðarbær:
Skýr valkostur með
bæjarstjóra á lista
FRAMBOÐSMÁL Halldór Halldórsson
bæjarstjóri í ísafjarðarbæ skipar
efsta sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins við komandi kosningar
til sveitarstjórna. Hann var ekki á
lista flokksins við síðustu kosn-
ingar. Fyrr í vetur hafði hann gef-
ið í skyn að hann yrði ekki í fram-
boði. Hann segir að ein af ástæð-
unum fyrir þessari viðhorfsbreyt-
ingu sé m.a. sú vissa að hann yrði
ekki bæjarstjóri á næsta kjör-
tímabili ef núverandi minnihluti
kemst til valda. Þá telur hann að
með framboði sínu fái kjósendur
skýran valkost um það hver verði
bæjarstjóri á næsta kjörtímabili
ef sjálfstæðismenn verða við
stjórnvölinn í næstu bæjarstjórn.
Halldór telur sig þó vera áfram
bæjarstjóra allra íbúa í bænum.
Aðrir í fimm efstu sætum list-
ans eru þau Birna Lárusdóttir,
Ragnheiður Hákonardóttir, Ingi
Þór Ágústsson og Elías Guð-
mundsson. Sjálfstæðisflokkurinn
fékk fjóra fulltrúa kjörna við síð-
ustu kosningar. Þeir hafa myndað
meirihluta með stuðningi bæjar-
fulltrúa Framsóknarflokksins á
HALLDÓR HALLDÓRSSON
Segist vilja halda áfram að vera bæjarstjóri
(sfjarðarbæjar.
þessu kjörtímabili. Halldór Hall-
dórsson var kjörinn bæjarfulltrúi
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn
Grindavíkur í kosningunum 1994
en flutti vestur tveimur árum
seinna. ■
Leikskólar í Hafnarfirði:
Um 30 millj-
ónir í endur-
bætur
leikskólar Um 30 milljónum króna
verður veitt í endurbætur á tveim-
ur eldri leikskólum í Hafnarfirði í
sumar. Að sögn Halldórs Árnason-
ar, framkvæmdastjóra stjórn-
sýslu- og fjármálasviðs, á fyrst og
fremst að bæta aðstöðu starfs-
manna í leikskólunum Hvammi og
Smáralundi. Að sögn Halldórs
mun starfsemi leikskólanna ekki
raskast að ráði. Unnið verður að
endurbótunum á meðan leikskól-
arnir verða í sumarfríi. Fram-
kvæmdir vegna nýs leikskóla á
Hörðuvöllum standa yfir. Ráðgert
er að opna hann í lok apríl. ■
Heimilisdagar
10-40% S
Fjögurra mánaða stjórnarkreppu lokið:
Rugova kosinn
forseti Kosovo
brussel. ap Javier Solana, utanrík-
ismálafulltrúi Evrópusambands-
ins, fagnaði því í gær að Ibrahim
Rugova hafi verið kosinn forseti
Kosovo-héraðs.
Siðasta haust kusu íbúar hér-
aðsins sér þing. Þessu þingi hefur
gengið brösulega að kjósa forseta
héraðsins. Fjórða tilraun tókst þó
í gær og varð Ibrahim Rugova
fyrir valinu.
Rugova er leiðtogi stærsta
flokks þingsins. Birjam Rexhepi
var kosinn varaforseti eftir að
þingflokkarnir náðu samkomulagi
um að skipta með sér völdum. ■
RÁÐAIMENN f KOSOVO
Ibrahim Rugova forseti situr vinstra megin
á myndinni. Nexhat Daci þingforseti er fyrir
miðju. Hægra megin er Bajram Rexhepi
forsætisráðherra. Héraðið tilheyrir enn
Júgóslavíu en hefur verið stjórnað af Sam-
einuðu þjóðunum.
afsláttur
hreinlætistæki
éJOTUN
JOTA PROFF innanhússmálning 10 Itr, gljástig 07
Verð 4.390 kr.
VerÖ áöur 6,990 kr. HÚIASMIDiAN
Sfmf Sö(f6 * www.fttmis
Kr i |*
Rúðuvökvi með sítrónuilm
- öryggi í umferð!